Þjóðviljinn - 19.06.1976, Blaðsíða 16
voDvmm
Laugardagur 19. júní 1976
Sigrún
Stefáns-
dóttir
ráðin
frétta-
maður
Sigrún Stefánsdóttir, ritstjóri
Islendings á Akureyri, hefur ver-
iö ráðin fréttamaður sjónvarps i
staö Svölu Thorlacius. Umsækj-
endur um starfið voru fjórir og
greiddi útvarpsráð, sem er um-
sagnaraðili um ráðningu frétta-
manna, atkvæöi um ráðn. Sig-
rúnar eða Einars Karls Haralds-
sonar, fréttastjóra. Fulltrúar
ihalds og framsóknar i ráðinu
greiddu Sigrúnu atkvæði en full-
trúar minnihlutaflokkanna Ein-
ari Karli.
Úr þessu var skorið á fundi út-
varpsráðs i gær. Auður Auðuns,
Þorsteinn Pálsson og Magnús
Þórðarson, sátu fund ráðsins fyr-
ir hönd Sjálfstæðisflokksins, Þór-
arinn Þórarinsson og ör-
lygur Hálfdánarson, fyrir Fram-
sóknarflokkinn, Sigurður A.
Magnússon og Stefán Júliusson
fyrir minnihlutaflokkana.
Fyrsta
málverka-
sýningin á
Raufarhöfn
— Nei, það er sko enginn fiskur
undir steini á Raufarhöfn, listin
hefur flætt yfir okkur að undan-
förnu sagði Heimir Ingimarsson
sveitarstjóri á Raufarhöfn, er við
ræddum við hann i gær. Um
siðustu helgi stóð hér yfir mál-
verkasýning, sú fyrsta sem
haldin hefur verið á Raufarhöfn.
Það var Hallmundur Kristinsson,
fyrrum myndlistargagnrýnandi
Þjóðviljans sem reið á vaðið og
opnaði hér málverkasýningu,
sem stóð yfir I tvo daga. Hún var
bærilega sótt þessi sýning og eitt-
hvaðseldist af málverkum, sagöi
Heimir.
Hann sagði aö i vor hefðu verif
haldnir þrir tónleikar á Raufar-
höfn, enskur baritónsöngvari
kom og heillaði fólk og kórar
sungu. Nú, og þá hefur ekki
vantað leiksýningarnar. Leik-
félag Akureyriar kom og sýndi
Kristnihald undir Jökli, og
Alþýðuleikhúsiö sýndi Krumma-
gull og loks kom svo leikflokkur
Þjóðleikhússins og sýndi ímynd-
unarveikina.
Við snérum okkur frá listum og
spurðum um veraldlegri hluti
eins og atvinnu. Heimir sagöi að
nóg væri að gera á Raufarhöfn, að
visu væri ástandið I bili þannig aö
tæpt væri með atvinnu hjá ung-
lingum og konum, vegna þess að
menn eru að gera klárt að fara á
handfæri eftir þolanlega grá-
sleppuvertið og skuttogarinn
hefur ekki aflaö vel aö undan,-
förnu, en allt er þetta að lagast
vegna þess að handfæraveiði er
að hefjast.
Heimir sagði að einn bátur
hefði komið að i fyrradag með 2
tonn en þrir menn eru á bátnum
með einar 8 handfærarúllur.
— Þegar sumarvertiöin er
komin i gang er frekar a6 okkur
vanti fólk en hitt sagöi sveitar-
stjórinn að lokum.
—S.dór
Listamenn taka verk sln af Lækjartorgi. —
myndari Þjóðviljans I gærmorgun.
Myndina tók eik. Ijós-
Lögreglan
hafði vörslu
dag og nótt
en segir listaverkin
hafa
verið of viðkvœm
Blaðið haföi samband við
Erlend Sveinsson varðstjóra i
stöð miðbæjarlögregl. og
spuröist fyrir um gæslu á lista-
verkunum i Austurstræti. Hann
tjáöi þvi að verið hefði gæsla
bæði dag og nótt i Austurstræti
en sum listaverkin hefðu veriö
svo viðkvæm að ekki hefði mátt
við þau koma.
— Formaður Myndhöggvara-
félagsins segir að 8 höggmyndir
hafi verið skemmdar.
— Það hlýtur að vera rétt hjá
honum þó að ég leyfi mér að
efast um það. Þrátt fyrir
stöðuga gæslu geta alltaf liðið
einhverjar minútur sem menn
eru ekki nærri en margt af
þessu var svo viðkvæmt að þaö
þoldi ekki einu sinni að forvitnir
kæmu við þetta. Og þessi stytta,
Fjölskyldan, hún féll ofan á fót á
barni og það var flutt á slysa-
varðstofu nokkuð mikiö meitt.
Það voru reyndar útigangs-
menn þarna og komu eitthvað
við hana. Ég held að þetta sé nú
dálitið ýkt I sjálfu sér að lista-
verkin hafi verið skemmd svona
mikið. Svo var eitthvert vesen
meö eitt listaverkanna. Það var
flutt i burtu af hreinsunardeild
Reykjavikurborgar einhverra
hluta vegna. Það var álitið að
þvi hefði verið stoliö en ég held
aö þaö hafi verið vel geymt hjá
þeim. Allavega var það ekki
hinn almenni borgari sem hafði
það með sér.
— Sýnir þetta ekki að gæsla
lögreglunnar hefur alveg brugð-
ist?
— Það verður hver að hafa
sýna skoðun á þvi, segir
Erlendur að lokum. —GFr
Listamenn flýja und-
an skemmdarvörgum
Atta listaverk skemmd í Austurstrœti
1 tilefni Listahátiðar 1976 var
sett upp viðamikil höggmynda-
sýning i miðbæ Reykjavlkur,
var þar farið að ósk ýmissa
félagasamtaka og opinberra að-
ilja sem vildu fegra umhverfið
og gera það manneskjulegra.
Strax eftir opnun sýningarinnar
gerðu skemmdarvargar atlögu
að nokkrum listaverkunum,
klindu þau út i sigarettuösku,
brutu áfengisflöskur á þeim,
beygðu verk og brutu i mask.
Samkvæmt umtali við borgar-
yfirvöld átti lögreglan að hafa
eftirlit á staönum allan sólar-
hringinn. Sú gæsla hefur alger-
lega brugðist.
t gærmorgun þegar fólk mætti
til vinnu sinnar voru mynd-
höggvarar aö fjarlægja lista-
verkin. Þjóðviljinn hafði tal af
formanni félagsins, Nielsi Haf-
stein, og spurði hann hvers
vegna myndirnar væru teknar I
burtu.
t fyrsta lagi getum viö ekki
þolað það að einhverjir ofstæk-
ismenn leggi i rúst starf okkar.
Samtals hafa átta myndlistar-
verk verið skemmd meira eða
minna, tvö hafa algerlega eyði-
lagst og var annað þeirra fjar-
lægt af hreinsunardeild borgar-
innar án leyfis viökomandi að-
ilja. 1 öðru lagi gerðust starfs-
menn þjóðhátiöarnefndar
Reykjavfkur svo djarfir að
flytja til verk á sýningunni”.
„Hvers vegna?”
„Þeir hafa sjálfsagt taliö þau
skyggja á skemmtiatriðin þann
sautjánda.”
„Skemmdist nokkuð I þeim
flutningi?”
„Já, eitt verk, og veröur mikil
vinna að koma þvi i samt lag
aftur.”
Þjóðviljinn hefur oröiö var
mikillar óánægju borgarbúa yf-
ir þvi að listaverkin skuli vera
farin og eru menn hneykslaðir
þvi að listamenn skuli hrökklast
Framhald á bls. 14.
Þetta sýnir hvað við er-
um á lagu menningarstigi
segir Hafliði Jónsson garyrkjustjóri Reykjavikur um skemmdarverkin
Þjóöviljinn hafði samband við
Hafliöa Jónsson garðyrkjustjóra
Reykjavikurborgaren hann hefur
umsjón meö göröum borgarinnar
og listaverkum og veitti mynd-
höggvurum I Austurstræti fyrir-
greiöslu viö uppsetningu verk-
anna sem hafa verið skemmd
meira og minna. Hann sagöi aö
þessi skemmdarverk sýndu
aöeins á hve lágu menningarstigi
viö værum. Þessir menn sem
þarna eru aö verki eru annað-
hvort meö delerium eöa þykjast
hafa heiminn I hendi sér, sagöi
Hafliöi.
— Er algengt að unnin séu
skemmdarverk á listaverkum
borgarinnar Hafliði?
— Það er einstaka sinnum sem
þau verða fyrir einhverju aNcasti
og þá er það vanalega eitthvað
klámkennt og við litum á það sem
afbrigðilega menn sem leika sér
að sliku og þegjum yfirleitt um
slika hluti nema þvi aðeins að
blaðamenn geri sér mat úr þessu
til að auka heimsborgarabrag á
sinum blöðum. Min reynsla er að
það borgi sig yfirleitt ekki að hafa
hátt um skemmdarverk þvi að
þau kalla bara á ný skemmdar-
verk. Ég er búinn aö fá margra
áratuga reynslu af þessu og
verði ég fyrir barðinu á skemmd-
arfýsn af einhverju tagi á þeim
mannvirkjum, sem ég á að gæta,
þá er það segin saga að sé þess
getið verð ég fyrir skemmdum
næstu sólarhringa á eftir. Þetta
er mjög sláandi. Þess vegna hef
égyfirleittreynt að forðastþað að
vekja athygli á þvi sem mið-
ur hefur farið i slikum efnum og
reyni yfirleitt að halda mér á
móttunni jafnvel þó að mér sárni.
— Er mikið um skemmdir i
göröum bæjarins?
— O, já. Það er alltaf eitthvað af
sliku og jafnvel aö menn taki sig
til og sýni krafta sfiia á þvi að
glima við móður jörð og rffa upp
stórar trjáplöntur og ég tala nú
ekki um þegar þeir leggjast á
götubekki og sorpilát og það er
langt siðan ég tók eftir þvi að
fyrsta skilyrðið til þess að reyna
að hafa bekki I friði var að hafa
þá lausa. Það byggðist á þvi að ef
þeir voru fastir að þá vildu menn
sýna krafta sina með þvi að rifa
þá upp úr íestingu og þá varð
kannski eitthvaö undan að láta og
vanalega járnarmarnir. Þeir
brotnuðu hreinlega af. Sumir
taka sig til og sparka i þá og
brjóta þá. Þaö er með ólikindum
hvað menn geta lagt á sig til að
sýna ofurmennsku sina.
— Kemur það fyrir að högg-
myndir borgarinnar eru brotnar?
M'avj c* ðvuuuu uill
ölflöskum eða áfengisflöskum er bögglað nef á einhverri styttu og
hentiþær. Sjaldnast vinnur þetta Framhald á bls. 14.
BARUM m
BfíEGST EKKI |
_ Fólksbíladekk 5
Kynnið ykkur
hin hagstæðu verð.
I TÉKKNESKA B/FfíE/ÐAUMBOÐ/Ð I
Á ÍSLAND/ H/E
AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606