Þjóðviljinn - 22.07.1976, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 22.07.1976, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 22. júll 1976. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Byltingarsinnaðar fegurðardrottningar Hætta á kynsjúkdómum Filippinskur iiðsforingi í leynilegri bækistöð Nýja Alþýðuhersins. legur á Filippseyjum. Varla þarf að taka það fram að fegurðar- drottningarnar koma yfirleitt út röðum yfirstéttarinnar, og þannig var það um Neliu Sancho. En þótt hún hefðialla möguleika á að láta lifið verða sér dans á rósum, sýndi hún þegar i bernsku merki um þankagang, sem ættingjum hennar og vinum fannst undar- legur og óskiljanlegur. Hún var stöðugt að láta i ljós hneykslun á þvi þjóðfélastlega misrétti, sem rikjandi er i föðurlandi hennar. Og þetta breyttist ekki þótt hún yrði fræg sem fegurðardrottning gervallra Kyrrahafslanda. ,,Hún gat ekki um annað talað en hið mikla djúp, sem staðfest væri á milli rikra og fátækra.” sagði út- varpsfréttamaður nokkur, stein- hissa á svo furðulegum hugsana- gangi. „Ég botnaði ekkert i þvi.” En Drottning Kyrrahafsins lét ekki sitja við orðin tóm. Ein- hverntima skömmu siðar gekk hún i skæruliðasamtök, sem þekktusteru undir skammstöfun- inni NPA og sögð eru maóisk. Þótt samtök þessi séu ekki talin hafa nema tæplega 2000 vopn- uðum skæruliðum á að skipa, stendur Ferdinand Marcos Filippseyjaforseta og stjórn hans af þeim mikill ótti. Ýmisskonar marxisk skæruliðasamtök hafa raunar verið við lýði á eyjunum allt frá þvi i lok siðariheimsstyrj- aldar og stjórnvöldum aldrei tekist að útrýma þeim fyllilega, þótt ekkert hafi verið til þess sparað. Fyrir fáum árum lagði stjórnarherinn til dæmis heil héruð á Luzon i eyði i þvi skyni að þurrka út maóista þar. Engu að siður er það hald fréttamanna, meðal annars frá bandariska blaðinu Newsweek, að NPA auki stöðugt fylgi sitt i sveitahéruð- unum og geti vel orðið stjórn Marcosar hættulegir, jafnvel hættulegri en skæruliðar af trú núhameðsmanna, sem berjast gegn stjórnarhernum syðst á eyj- unum. Lítt var vitað um hvað Nelia Sancho hafðist að þangað til i fe- brúar s.1., er stjórnarhermann komu henni og nokkrum félögum hennar á óvart og handtóku þau. Vakti þetta gifurlega athygli á eyjunum og jók mjög áhyggjur stjórnvalda, þvi að fegurðar- drottningar hafa þar mikla hylli i öllum stéttum. Ahyggjur stjórn- valda stafa ekki hvað sist af þvi, að NPA — Nýi alþýðu- herinn — hefurreynst sérlega snjall við að afla sér fylgis ungs fólks af efnastéttunum. óttast ráðamenn nú að handtaka Sancho muni verða þeim vafasamur vinningur, þar eð liklegt sé að al- menningur og ungt fólk fari að lita á hana sem pislarvott. Þar við bætist að ein önnur meiriháttar fegurðardrottning er i liði Nýja alþýðuhersins, að minnsta kost. Hún heitir Maita Gomez og vann eitt sinn titill Ungfrú Filippseyjar. Hún slapp nýlega úr varðhladi stjórnarliða með þvi að plata varðmann til að hlaupast á brott með sér. Lik hans fannst þremur dögum siðar. (Byggt á Newsweek, dþ.) Filippinskt kvenfólk er sagt með þvi fegursta i heimi, að minnsta kosti miðað við smekk þeirra, er ráða kjöri fegurðar- drottninga á alþjóðlegum fégurðarsamkeppnum. Eru þær þvi orðnar allnokkrar stúlkurnar frá Filippseyjum sem hlotið hafa alþjóðlega frægð með þessu móti. Ein þeirra er Nelia Sancho, sem kjörin var Drottning Kyrra- hafsins (Queen of the Pacific) i fegurðarsamkeppni i Ástraliu 1971. Eins og nærri má geta slógu fjölmiðlar i heimalandi hennar þessu myndarlega upp, sérstak- lega þó i heimaborg hennar, Davao á Mindanao, sem er önnur mesta ey Filippseyja og ein sú syðsta þeirra. Eins og i flestum Asiulöndum, sem búa við einhverskonar kapi- taliskt hagkerfi, er munurinn á kjörum rikra og fátækra gifur- Neiia Sancho. í sumarfríinu Nýlega hafa þrfr franskir lækn- ar, Coulon, Durel og Siboulet, gef- ið út yfirlýsingu þar sem þeir vara sérstaklega alla ferðamenn við hættunni af kynsjúkdómum i sumarfriunum, sem nú fara i hönd. Sögðu þeir að vegna fáfræði sinnar yrðu ferðamenn öðrum mönnum fremur fyrir barðinu á kynsjúkdómum, og þar sem þeir hefðu takmarkaðan skilning á málunum væru þeir einn helsti smitberinn. Læknarnir nefndu sem dæmi fertugan mann sem kom heim til sin úr ferðalagi til Bangkok þar sem hann hafði smitast af lekanda, og smitaði siðan sjálfur beint eða óbeint tutt- ugu og fjóra menn á sex mánuð- um. Læknarnir bentu á hve undar- legt það væri að þótt læknavisind- in réðu nú mjög vel við kynsjúk- dóma og hægt væri t.d. að lækna lekanda á augabragði i 96% til- vika, fjölgaði þeim mönnum stöð- Mikið úrval bóka Marx, Engels, Lenin, tækni, visindabæk- ur, skáldsögur, listaverkabækur, einnig nótur og hljómplötur frá Sovétrikjunum, Tékkóslóvakiu, Póliandi og Ungverja- landi. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæö. Simi 28035. ugt sem tækju þessa sjúkdóma. Töldu þeir að aukin ferðalög manna, einkum til suður-og aust- urlanda yllu miklu um þetta og sögðu þeir að nauðsynlegt væri að grlpa til róttækra aðgerða. Töldu þeir t.d. að flugfélög og ferða- skrifstofui ættu að taka upp fræðslu um þessi mál og dreifa upplýsingapésum til allra þeirra sem skiptu við þessi félög. Læknarnir bentu á að menn gætu verið haldnir kynsjúkdóm- um og smitað aðra án þess að þeir hefðu sjálfir nein sjúkdómsein- kenni, og töldu þeir þvi æskilegt að hvetja menn til þess að fara i læknisskoðun þegar þeir kæmu aftur úr sumarleyfisferðum. Að lokum hörmuðu læknarnir það hve fáfræði manna um þessa sjúkdóma væri mikil. Sögðu þeir að algengt væri að konur héldu að „pillan” væri vörn gegn kynsjúk- dómum, slikt væri auðvitað hin mesta firra. Hins vegar gerðu margir sér enga grein fyrir þvi að gúmmiverjur karlmanna veita talsverða vörn gegn smitun þótt ekki væru þær óbrigðular. Fá- fræðin væri svo mikil að fyrst þyrfti að uppfræða leiðbeinendur um þessi mál. Að sögn læknanna væru allar aðgerðir torveldari fyrir þá sök að læknar vanrækja oft að gefa reglulegar skýrslur um kynsjúkdómatilvik, sem koma til þeirra kasta. Frá Gagnfræðaskólanum I Stykkishólmi: F ramhaldsdeild Ráðgerter, að framhaldsdeild (5. bekkur) verði i skólanum næsta skólaár. Umsókn- ir, ásamt afritum prófskirteina, 'sendist skólastjóra fyrir 1. ágúst n.k. Tekið skal fram hvort óskað er eftir heimavistarplássi eða ekki. Nánari upplýsingar i simum 93-8160 og 93- 8101. Skólanefnd. SÖLUSKATTUR Viðurlög falla á söluskatt fyrir júni mánuð 1976, hafi hann ekki verið greiddur i sið- asta lagi 26. þ.m. Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu- skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft- ir eindaga uns þau eru orðin 10% en siðan eru viðurlögin 11/2% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið, 20. júli 1976. Kvállsöppet i Notdens Hus Författaren Sigurður A. Magnússon ' kSserar (p& svenska) om Ny islandsk litteratur torsdagen den 22 juli kl. 20:30. I Kl. 22:00 visas Magnús Magnússons film Islands tre ansikten (norsk text). Kafeterian ar öppen kl. 20:00-23 :00 Las dagstidningar hemifr&n med kaffet. Valkomna Nordens hus NORRÆNA HUSIÐ Tannlæknir Búðahreppur óskar eftir að ráða tann- lækni til starfa nú þegar. Upplýsingar veitir sveitarstjórinn i sima 97-5220 eða 97- 5221. Umsóknum skal skila til skrifstofu Búðahrepps, Fáskrúðsfirði, fyrir 27. júli n.k. Sveitarstjórinn Búðahreppi ' blaðið r sem vitnað er í Áskriftarsími 17505

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.