Þjóðviljinn - 22.07.1976, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 22.07.1976, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 22. júll 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Skálholtshátíð Eitt af verkum KEES VISSERS á sýningunni. Um þessar mundir stendur yfirsýning á verkum hollenska listamannsins KEES VISSERS, i Galleri SCM, Vatnsstig 3b, sýnir hann þar Conceptualverk (hugmyndafræöileg) og texta. KEES VISSER er ættaöur frá Haarlem og heldur hann þar hús ásamt Ólafi Lárussyni og fjölskyldu, hann rekur eigiö sýningarhús i miöborg Haarlem og hefur þegar bókaö sýningar islenskra myndlistarmanna i þeim söl- um. Sýningin i Galleri SÚM er opindag hvern frá kl. 4-10, henni lýkur væntanlega 31. júli. Háskólamenn hjá hinu opinbera kvarta: 30% til 65% hærri laun á almennum markaði A fundi meö forsvarsmönnum Bandal. háskólamanna I gær var meöal annars rætt um saman- burö á launum háskólamanna hjá riki og bæ og á almennum vinnu- markaöi. Þar komu m.a. fram eftirfarandi tölulegar staöreynd- ir: Látið hefur verið i veðri vaka i dagblööum, að undanförnu, að með kjaradómum hefðu fengist almennt um 3-4% hækkanir á launum. Staöeyndin er sú, að að- eins örfáir starfsmenn fengu launaflokkshækkun nú. Að visu verður almenn launaflokkshækk- un um næstu áramót, en erfitt er aö gera sér grein fyrir þvi nú, hvers virði hún verður þá. Launakjör á almennum vinnu- markaði eru nú a.m.k. 30% og allt upp i 65% hærri en hjá sambæri- legum starfshópum háskóla- manna i rikisþjónustu. Sem dæmi má nefna, að meðallaun yfir- manna á hafrannsóknarskipum voru árið 1975 um 42% hærri en meðallaun þeirra deildarstjóra á Hafrannsóknarstofnun, sem stjórna rannsóknarleiðöngrum. Undanfarin tvö ár hefur stööugt sigið á ógæfuhliðina hjá hinu opinbera miðað við almennan vinnumarkað. Þá má benda á, að skv. launa- könnunum Félags viðsk. og hagfr., sem gerðar voru i mai 1975 og júni 1976, höfðú laun viðskfr. á frjálsum markaði hækkað um rúm 50% á timabilinu en laun sambærilegra starfshópa Framhald á bls. 14, útvarp .....I I iúli "! 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Marinó Stefánsson lýkur lestri sögu sinnar „Manna litla” (4). Tilkynn- ingar kl. 9.30. Létt lög milli atriöa. Viö sjóinnkl. 10.25: Ingólfur Stefánsson ræöir við Tómas Þorvaldsson i Grindavik — þriöji þáttur. (áöur útv. i október). Tón- leikar. Morguntónleikar kl. 11.00: Nicanor Zabaleta og Sinfóniuhljómsveit útvarps- ins i Berlin leika Hörpukon- sert i C-dúr eftir Boieldieu, Ernst Marzendorfer stjórn- ar / Filharmoniusveit Lundúna leikur „Þrjá dansa frá Bæheimi” eftir Edward Elgar, Sir Adrian Boult stjórnar / Jascha Heifetz og RCA Victor sinfóniuhljóm- sveitin leika Fiðlukonsert nr.2 i d-mollop. 44eftir Max Bruch, Izler Solomon stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Frá ólympiuleikunum i Montreal: Jón Asgeirsson segir frá. Tilkynningar. A frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 M iödegiss agan : „Römm er sú taug” eftir Sterling North. Þórir Friögeirsson þýddi. Knútur R. Magnússon les (10). 15.00 Miðdegistónleikar. Hansheiz Schne'eberger, Walter KSgi, Rolf Looser og Franz Josef Hirt leika á fiðlu, lágfiðlu, sellóog pianó Kvartett op. 117 eftir Hans Huber. Boyd Neel strengja- sveitin leikur „Capriol”, svitu eftir Peter Warlock. John Williams og félagar úr Sinfóniuhljómsveitinni i Filadelfiu leika Konsert i D-dúr fyrir gitar og hljóm- sveit op. 99 eftir Castel- nuovo-Tedesco, Eugene Or- mandy stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). Tón- ieikar. 16.40 Litli barnatiminn. Finn- borg Scheving stjórnar. 17.00 Tónleikar. 17.30 Spjall frá Noregi.Ingólf- ur Margeirsson talar um norska verkalýðsskáldiö Rudolf Nielsen. Siðari þátt- ur. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Nasasjón. Árni Þórarinsson og Björn Vignir Sigurpálsson ræða við Gunnar Reyni Sveinsson tónskáld. 20.10 Gestir i útvarpssal. Bernhard Wilkinsson leikur á flautu og Lára Rafnsdóttir á pianó. a. Sónata i g-moll - eftir Johann Sebastian Bach. b. Sónata i D-dúr eftir Carl Philipp Emanuel Bach. 20.35 Leikrit: „Bældar hvat- ir” eltir Susan Glaspell. Þýðandi: Þorsteinn O. Step- hensen. Leikstjóri: Helga Bachmann. Persónur og leikendur: Henrietta: Briet Héðinsdóttir. Finnbjörn: Borgar Garðarsson. Maria: Kristin Anna Þórarinsdótt- ir. 21.10 Holbergsvita op. 40 eftir Edvard Grieg.Walter Klien leikur á pianó. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Litli dýrlingurinn” eft- ir Georges Simcnon. Asmundur Jónsson þýddi. Kristinn Reyr les (15). 22.40 Á sumarkvöldi. Guðmundur Jónsson kynnir tónlist varðandi ýmsar starfsgreinar. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. og helgartón leikar í Skál- holtskirkju Hin árlega Skálholtshátið verð- ur haldin sunnudaginn 25. júli. Slikar hátiðir hafa jafnan veriö haldnar á hverju sumri frá þvi að kirkjan var vigð, sumarið 1963. Venja hefur verið að halda hátið- ina fyrsta sunnudag eftir Þorláksmessu á sumri, sem er 20. júli. Hátiðin hefst með klukkna- hringingu kl. 13.30 á sunnudag. Kl. 14.00 hefst svo messa i Skál- holtskiirkju. Biskup Islands, hérra Sigurbjörn Einarsson og séra Guðmundur Oli Ólafsson þjóna fyrir altari, en séra Eirikur J. Eiriksson, prófastur, prédikar. Meðhjálpari verður Björn Er- lendsson. Skálholtskórinn syngur undir stjórn Hauks Guðlaugssonar. Forsöngvarar eru Ingvar Þórðar- son og Sigurður Erlendsson. Trompetleikarar eru Jón Sigurðsson og Snæbjörn Jónsson. Organleikari er Glúmur Gylfa- son. Kl. 16.30 sama dag hefst siðan samkoma i kirkjunni. Þar verður flutt sónata fyrir tvo trompeta og orgel, eftir G. Tartini. Jón Sig- urðsson, forstjóri Menningar- sjóðs, flytur ræðu og leikið verður úr 'nótnahefti önnu Magdalenu Bach. Séra Ulfar Guðmundsson flytur ritningarorö og bæn. Að lokum verður almennur söngur. Flytjendur tónlistar á samkom- unni eru Agústa Ágústsdóttir, sópran, Jón Sigurðsson, trompet, Pétur Þorvaldsson, cello, Helga Ingólfsdóttir, semball, Glúmur Gylfason, orgel og Haukur Guðlaugsson, orgel. Þá verða eins og i fyrra haldnir tónleikar um helgar i Skálholts- kirkju: Þann 24. júli verður flutt tónlist úr nótnahefti önnu Magdalenu Bach. 31. júli, 1. ágúst og 2. ágúst verða flutt verk eftir Jóhann Se- bastian Bach. 7. og 8. ágúst verður flutt tónlist frá Frakk- landi. Þann 14. og 15. ágúst verður siðan flutt tónlist eftir Jóhann Sebastian Bach. Tónleikar þessir hefjast allir kl. 16.00. Flytjendur tónlistar eru: Ágústa Agústsdóttir, sópran, Manuela Wiesler, flauta, Sig- urður Snorrason, klarinett, Haf- liði Hallgrimsson. cello, Helga Ingólfsdóttir, semball og Haukur Guðlaugsson, orgel. ^Bældar hvatir” leiknar í útvarpinu í kvöld Fimmtudaginn 22. júli kl. 20.35 veröur flutt leikritið „Bældar hvatir” eftir banda- riska höfundinn Susan Glaspell. Þýðinguna geröi Þorsteinn O. Stephensen. Leikstjóri er Helga Bachmann. I hlutverkum eru Briet Héðinsdóttir, Borgar Garðarson og Kristin Anna Þórarinsdóttir. Susan Glaspell fæddist i Davenport i Iowa árið 1882. Hún stundaöi m.a. nám við háskól- ann i Chicago og fékkst við að skrifa bæði leikrit og skáldsög- ur. Glaspell og maður hennar, rithöfundurinn George Cram Cook, áttu þátt i að stofna leik- flokkinn „Provincetown Play- ers” áriö 1915 og skrifuðu mörg leikrit fyrir hann, einkum ein- þáttunga. Af skáldsögum Suan Glaspell má nefna „The Glory of the Conquered”. Hún fékk Pulitzer-verölaunin árið 1931 fyrir leikritið „Alison’s House”. Glaspell lést árið 1948. „Bældar hvatir” (Supressed Desires) var frumsýnt 1914. Þar segir frá Finnbirni Hans- syni húsameistara og konu hans, Henriettu. Frúin er mjög hrifin af öllu sem varðar sálar- lifið og undirvitundina og upp- götvar ótrúlegustu hluti hjá manni sinum á þvi sviöi, ekki sist eftir að systir hennar, Maria, kemur i heimsókn. Henrietta gerir nefnilega þá uppgötvun að það getur reynst varasamt aö hætta sér of langt út á braut sálkönnunar. Af öðrum leikritum Susan Glaspell mætti nefna: „Trifl- es”, „Tickless Time” og „The Outside”.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.