Þjóðviljinn - 10.08.1976, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 10. ágúst 1976
K)Om
„Hefði mátt
rigna eldi og
brennisteini”
segir Sigurgeir Olafsson um
Þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum
„Blessaður vertu, við heföum
haldiö áfram þdtt rignt heföi eldi
og brennisteini. Veöur hefur eng-
in áhrif á það hvort fólk skemmtir
sér á þjóöhátfö eöa ekki,* sagöi
Sigurgeir Ólafsson formaöur
iþróttaféiagsins Þórs i Vest-
mannaeyjum þegar Þjóöviljinn
haföi samband viö hann i gær og
spurði frétta af þjóöhátiö Vest-
mannaeyja, sem haldin var um
helgina.
Fimm sóttu um
Skipaútgerðina
Fimm menn sóttu um stöðu for-
stjóra Skipaútgerðarinnar, en
umsóknarfrestur rann út fyrir
nokkru. Þeir eru Guðmundur
Einarsson, viðskiptafræðingur,
Hallur Hermannsson, skrifstofu-
stjóri, Jón Gunnar Stefánsson,
viðskiptafræðingur, Kristinn
Helgason, innkaupastjóri og Rik-
harð Jónsson, fra’mkvæmda-
stjóri.
Sigurgeir sagði að hann væri
mjög ánægður með þessa þjóðhá-
tið, og þá sérstaklega hvað fólkið
hefði tekið mikinn og virkan þátt i
öllum skemmtunum þrátt fyrir
látlitla rigningu. „Þegar svoleiðis
stendur á fara menn bara i regn-
gallann sinn og halda áfram aö
skemmta sér.”
Um kostnaðinn við svona há-
tiðahald sagði Sigurgeir að út-
lagður væri hann um 8 miljónir
króna, en „við förum sléttir út úr
þvi með þessum mannfjölda.”
Að sögn lögreglunnar var þetta
tiltölulega róleg þjóðhátið.þótt
veðrið hefði varla getað verið
miklu leiðinlegra. Um 4000 manns
hefðu tekið þátt i hátiðinni og þar
af væru svo sem 1200 sem komið
hefðu gagngert til Eyja frá meg-
inlandinu til að taka þátt i hátið-
arhöldunúm. Nokkrum hefði ver-
ið stungið inn, aðallega til þurrk-
unar eftir full mikla áfengis-
neyslu, og eitthvað hefði verið um
þjófnaði úr tjöldum, „en annars
var þetta ósköp hóflegt”.
— hm.
Flugleiðamenn segja:
Góð útkoma
í innanlands-
flug
mu í ar
Innanlandsflug á tslandi hefur
gengiö vel þaö sem af er yfir-
standandi sumri. Einar Helga-
son, framkvæmdastjóri innan-
landsflugs Fiugfélags tsiands,
sagöi aö heildarfarþegafjöidi frá
1. janúar til 17. júli væri i ár
109.000 farþegar, en heföu veriö
Þjóðvegookstur
Ég klossbrerosoði
Gerðu bér glSgga grein
fyrir stöðvunarvegalengd
á mismunandi hraoa
Sá tími sem líður frá því að hætta kemur í Ijós, þar til stigið
er á hemlana nefnist viðbragðstími. Hann nemur venju-
lega 0,8—1,8 sek. Hjá góðum bílstjóra á vióbragðstíminn
ekki að nema meiru en einni sekúndu.
Vegalengdin sem bíllinn rennur á einni sekúndu við
mismunandi hraðastig er:
á 20 km/klst 5,6 m á 60 km/klst 17.0 m
á 30 km/klSt 8,3 m á 70 km/klst 19,0 m
á 40 km/klst 11,6 m á 80 km/klst 22,0 m
á 50 km/klst 14,0 m
Viðbragðsvegaiengd á 80 km/klst,ef viðbragðstíminn
erl sek.er því 22 metrar. Það er verðugt umhugsunarefni.
Hemlunarvegalengd er sú vegalengd sem bíllinn fer frá
því að hemiarnir taka að virka, þar til bíllinn hefur stöðv-
ast.
Hemlunarvegalengd eykst, á sama hátt og hreyfiorkan,
með kvaórati hraðaaukningarinnar. Sé hraðinn tvöfald-
aður FJÓRFALDAST hemlunarvegalengdin. Sé hann
þrefaldaður NÍFALDAST hemlunarvegalengdin.
Stödvunarvegalengdin
við mismunandi ökuhraða
Vióbragós Hemlunar
vegalengd vegalengd
35 km
21 m
40 km
26 m
V6Ökm
51 m
70 km
66,5 m
125m
y IQQkm^ý
Mióað vió vióbragóstima 0,9 sek
og akstur á þurrum malarvegi
***»//, ■'*
UMFERÐARRÁÐ
Vevðlaunagetraun
í haust gengst Umferöarráö fyrir verölaunagetraun um
umferðarmál, sérstaklega þjóðvegaakstur. Spurningar
verða úr því efni sem hér birtist, svo og úr ööru efni sem
birt verður í dagblöðum í sumar.
Heildarverðmætl verðlauna mun nema kr. 400.000.—
Fylgist því með frá byrjun.
108.000 farþegar á sama timabili i
fyrra. Þess ber einnig aö geta aö i
febrúar s.l. varö tveggja vikna
verkfall, sem varö þess valdandi
aö ekkert var flogiö þann tima.
Einar sagöi aö reikna mætti meö
þvi aö GOOOfarþegar heföu flogið á
þvi timabili. Þvi væri útkoman i
ár alls ekki slæm.
Margir erlendir ferðamenn
fljúga með innanlandsfluginu um
þessar mundir. Flestir eru þeir á
ieiðunum imilli Reykjavikur og
Akureyrar en þangað eru 28 flug-
ferðir i viku, og milli Reykjavlkur
og Vestmannaeyja, en sú flugleið
hefur mesta ferðatiðni, 31 ferð á
viku. Mest farþegaaukning á
einni sérstakri leiö er hins vegar
milli Reykjavikur og Húsavikur.
Þa'ngaðer nú flogið alla sjö daga
vikunnar í fyrsta skipti. Eins og i
fyrrasumar er hluti innanlands-
flugsins rekinn i samvinnu við
Flugfélag Norðurlands á Akur-
eyri. Sú samvinna hefur gengið
með afbrigðum vel, og ennframur
rekstur Flugfélags Norðurlands i
heild. Félagið eignaðist snemma
á þessu ári Twin Otter skrúfuþotu
sem rúmar 19 farþega. Fé-
lagið flýgur frá Akureyri til
Egilsstaða, Raufarhafnar, Þórs-
hafnar, Vopnafjarðar, Húsavik-
ur, Grfrnseyjar, Kópaskers, tsa-
fjarðar og Siglufjarðar.
Auða sætið er vandamál
Einar Helgason sagði: „Eitt
aðalvandamál okkar um þessar
mundir er, hve margir farþegar
láta skrá sig en mæta siðan ekki
til flugs. Láta ekki vita að þeir
munu ekki nota bókuð sæti. Fyrir
bragðið fljúga flugvélarnar
stundum með auð sæti, sem ann-
ars hefðu verið seld öðrum far-
þegum. Þetta er mjög bagalegt,
bæði fyrir félagið og farþega þess
Iheild.” Til innanladsflugsins eru
notaðar fimm Fokkar Friendship
skrúfuþotur sem einnig annast
flug milli íslands og Færeyja og
tslands og Vestur-Grænlands.
Starfsmannafjöldi við innan-
landsflugið er 120-130 manns. (Or
Fréttabréfi Flugleiða.)
Njrtt verð
á loðnu
og urgangi
A fundi yfirnefndar
Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins I dag var ákveðið
eftirfarandi lágmarksverð á
loðnu veiddri til bræðslu frá
og með 1. ágúst til 31.
desember, 1976. Verðið er
miðað við fituinnihald loðn-
unnar sem hér segir:
Fituinnihald: Kr.
Aö 6% ................ 5.15
6% aö 7%............. 5.45
7% aö 8%............. 5.75
8% aö 9%............. 6.05
9% aö 10%............. 6.35
10% að 11%........... 6.65
11% aö 12%........... 7.10
12% aö 13%........... 7.55
13% að 14%........... 8.00
14% að 15%........... 8.45
15% aö 16%........... 8.90
16% og yfir ......... 9.35
Fituinnihald hvers loðnu-
farms skal ákveðið af Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins
eftir sýnum, sem tekin skulu
sameiginlega af fulltrúa
veiðiskips og fulltrúa verk-
smiðju, eftir nánari
fyrirmælum Rannsókna-
stofnunar-fiskiðnaðarins.
Verðið miðast við loðnuna
komna i löndunartæki verk-
smiðju.
Ekki er heimilt að nota
dælu eða blanda vatni eða sjó
i loðnuna við löndun.
Verðið var ákveðið sam-
hljóða. 1 yfirnefndinni áttu
sæti: Ólafur Daviðsson, sem
var oddamaður nefndar-
innar, Jón Reynir Magnús-
son og Jónas Jónsson af
hálfu kaupenda og Kristján
Ragnarsson og Tryggvi
Helgason af hálfu seljenda
og Gunnar Ólafsson og Jónas
Jónsson af hálfu kaupenda.
Aðalfundur
NAUST
haldinn 21.
— 22. ágúst
Auk aðalfundarstarfa veröa á
laugardag tvær skoðunarferðir,
fyrst farið að Hengifossi fyrir
hádegi, en eftir hádegi um
Hallormsstaðaskóg og nágrenni.
Siðan er kvöldvaka, þar sem Anr-
þór Garðarsson, dýrafræðingur,
Sigurður Þórarinsson jarðfræð-
ingur og Hjörleifur Guttormsson,
liffræðingur fjalla um votlendi og
verndun vatnsfalla og sýndar
verða litskyggnur, m.a. frá Eyja-
bökkum við Snæfell.
Eftir hádegi á sunnudag, 22.
ágúst, verður almennur fundur
um Lagarfljót, þar sem Eyþór
Einarsson, magister, greinir frá
umhverfisrannsóknum I
tengslum við miðlun vegna
Lagarfossvirkjunar og rætt
verður um stöðu miðlunar-
málsins. Hefur orkuyfirvöldum
verið boðið að senda fulltrúa á
þennan umræðufund, sem hefst
kl. 13.30.
Allir eru þessir þættir opnir
almenning: og á fundarstað,
sumarhótelinu á Hallormsstað.er
til reiðu öll fyrirgreiðsla fyrir
þátttakendur.
Stjórn NAUST hefur nýverið
hafið útgáfu fréttabréfs, sem sent
er öllum félagsmönnum og
styrktaraðilum, svo og fjöl-
miðlum og ýmsum stofnunum.
BLAÐBERAR
Virisamlega komið á afgreiðslur-a og sækið
rukkunarheftin.
ÞJÓÐVILJINN