Þjóðviljinn - 10.08.1976, Síða 10

Þjóðviljinn - 10.08.1976, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 10. ágúst 1976 Karl Þdrðarson skorar eína mark skagamanna. SigurCur Dagsson kemur engum vörnum við, boltinn er kominn inn fyrir markllnu og Grlmur Sæmundsen er lagstur og horfir ángistarfullur á. Mynd: — gsp Fjögur stangarskot og fjögur mörk í hörkuleik IA og Vals Valsmenn sigruðu með þremur mörkum gegn einu og stefna hraðbyri að íslands- meistaratitli Fjölmargir áhorfendur,! roki og rigningu á Akranesi um helgina/ voru ekki sviknir er þeir fylgdust með hörkuleik skagamenna og Vals, sem lauk með 3-1 sigri aðkomumanna. Leikurinn var afar þýðingarmikill fyrir toppbaráttu beggja liða og eftir tapið fyrir Val eru skagamenn komnir niður í 4. sæti. öðrum fremur var það Ingi Björn Albertsson sem sá um sigur Vals í leikn- um, hann skoraði sjálfur eitt mark og lagði annað og þrátt fyrir að leikurinn hafi allan tímann verið fremur jafn eru það mörkin sem gilda og þess vegna varð sigur- inn valsmanna. En leikurinn var ekki ójafn. Raunar hefðu akurnesingar auö- veldlega gert út um hann I fyrri hálfleik er þeir óðu í tækifærunum en klúðruðu jafnmörgum. I leik- hléi var staðan 0-0, en þá höfðu valsmenn bjargað einu sinni á marklinu eftir laglegt skot Péturs Péturssonar, en aðeins tveimur min. áður hafði Pétur sent bolt- ann til Arna Sveinssonár i dauða- færi en drullan fyrir framan Vals- markið kom Sigurði Dagssyni til bjargar. En Valur átti einnig sin tæki- færi fyrir hlé, m.a. hörkuskot Hermanns Gunnarssonar i stöng á 4. min. I slðari hálfleik kom fyrsta markið strax á ca. 8. min. Krist- inn Björnsson sendi boltann vel fyrir og Ingi Björn afgreiddi hann i netið. 1-0. Nokkrum minútum siðar var Ingi Björn aftin: á ferðinni er hann lék upp að endamörkum, sendi siðan fyrir markið til Her- manns sem skoraði framhjá Herði Helgasyni 2-0. Karl Þórðarson minnkaði muninn í 2-1 á 19. mln. eftir aö Siguröur Dagsson hafði varið skot Péturs Péturssonar og misst bolt- ann siðan út til Karls. Siðasta markið kom 10 min. fyrir leiks- lok. Ingi Björn fékk boltann nokk- uð óvænt inni I vitateig IA og sneri bakinu i markið. Hann gaf sér tima, sneri sér við og sendi knött- inn upp i markhornið fjær án þess að vörnum yrði við komið. Enn eru ótalin þrjú stangar- skot. Fyrir utan skot Hermanns i byrjun leiksins átti Ingi Björn hörkuskot i þverslána á 21. min. og Jón Alfreðsson átti sömuleiðis gott skot I stöng uppi við þverslá undir lok leiksins. Pétur Péturs- son átti einnig stangarskot undir lokin og munaði þvi ekki miklu að IA tækist að minnka muninn og jafnvel að jafna metin undir lok- in, en þá var sóknarþungi þeirra mfiúll. Nokkuð kemur á óvart hve mik- ið virðist vanta I liö 1A eftir að Matthlas Hallgrimsson hætti. Þessi leikur var dæmigerður fyrir lið skagamanna sem eiga góða miðjumenn og sækja sist minna og jafnvel meira heldur en and- stæðingurinn en sóknin er bitlaus og ráöþrota með öllu. Pétur var aö visu friskur en þar með eru af- rek sóknarmanna upptalin. Lið Vals vann betur saman, heildin er góð og samhent og eftir erfiða leiki undanfarið hlýtur þessi sigur að hafa verið kærkom- inn. Enn heldhr Valur forystunni og með sama áframhaldi kemur Jafnt á Akureyri KA og Reynir, Arskógsströnd, Þessi úrslit höfðu engin skildu jöfn i spennandi leik I 2. áhrif á stöðuna i deildinni, KA er deild I fótbolta á Akureyri á enn um miðja deild og Reynir er laugardag, hvorugt liðiö skoraði I neðsta sæti meö tveim stigum, mark. minna en næsta lið. fátt i veg fyrir sigur þeirra i deildinni. 1 heild sinni var leikurinn skemmtilegur og liflegur á að horfa þrátt fyrir vont veður. Betri aðilinn sigraði i þessari viðureign með Inga Björn I broddi fylkingar en hjá skagamönnum bar mest á Pétri Péturssyni, þeim unga og sivinnandi framlinumanni. Dómari var Eysteinn Guð- mundsson og lenti hann nokkuð upp á kant við áhorfendur, sem ekki voru fullkomlega sáttir við dómgæslu hans i fyrri hálfleik. Tveir leikmenn fengu gula spjaldið, þeir Teitur Þórðarson fyrir kjaftbrúk og Grimur Sæmundsen Val fyrir óþarflega gróft brot. — gsp- Framarar fylgja Yalsmöimum eftír Framarar áttu svo sannariega skilin,. sigur sinn i leiknum við FH i Hafnarfirði á laugardag. Þeir iéku allan tlmann af öryggi og festu og oft á tíðum sást góð knattspyrna hjá þeim. Það sama er ekki hægt að segja um FH-inga, þó svo að öðru hvoru hafi þeir leikið ágætlega, þá voru þeir oftast of fljótir á sér. Fram- arar voru fyrri til að skora, FH-ingar jöfnuðu, en skömmu fyrir leikslok skoruðu framarar sigurmarkið. Það voru ekki nema 3 minútur liðnar af leiknum er Rúnar Gislason sendi fallegan bolta á Pétur Ormslev sem lék á varnar- mann og skaut föstu skoti aö marki og var það algerlega óverjandi fyrir Ómar Karlsson i markinu, 1-0. Eftir þetta jafnaðist Ieikurinn nokkuð og FH-ingar fengu sin tækifæri, en Arni Stefánsson i markinu og Framvörnin sáu um að ekkert yröi úr þeim. Framarar áttueinnig sin tækifæri, það besta þegar Rúnar skaut I stöng og bolt- Framhald á bls. 14 Þróttur N kemst í úrslit Þróttarar frá Neskaupstað láta ekki deigan siga og sýna mikinn styrkleika umþcssar mundir. Þeir munu leika annað kvöld gegn FH i 8-liða úrslitum bikar- keppninnar. Þróttur er eina liðið sem komið er i 8-liða úrslitin sem ekki er I 1. deild. Um helgina iék Þróttur frá Neskaupstað gegn Einherja frá Vopnafirði úrslitaleikinn I F-riðli 3. deildar. Skemmst er frá þvi að segja að sigur Neskaupstaöar- manna varð stór. Þeir skoruðu niu irör1' gegn aðeins einu en á það ber að líta að I marki Einherja var varamarkvöröur liðsins. Leikurinn átti að fara fram á laugardeginum en honum var frestað vegna ófærðar til sunnudags og þá leikinn I hávaöa- roki. Einherji skoraði fyrsta markið og var þar að verki Aöalsteinn Björnsson en niu mörk heima- manna skoruðu þeir Björgúlfur Halldórsson 4, Sigurður Friðjóns- son 2, Björn Jóhannesson 2 og Arni Guðjónsson 1. Dómari var Hörvar Ólsen frá Eskifirði og dæmdi hann að að venju með öliu óaðfinnanlega. Eru austanmenn hinir ánægðustu með þennan dómara sinn og segjast ákafir I að láta hann reyna sig i meiriháttar leikjum, þvi þarna sé á ferðinni einn al- besti dómari landsins. —gsp- Einstefna hjá Þór Þórsarar voru heldur betur á skotskónum i leik sinum við Völsunga frá Húsavlk I 2. deild- inni i knattspyrnu. Þórsararnir skoruðu 7 mörk, en Húsvikingar ekkert. Eins og sést af markatölunni vour það Þórsarar sem réðu gangi leiksins, en Völsungar áttu aldrei neina möguleika. Jón Lárusson skoraði 3 mörk fyrir Þór, en þeir Magnús Jónatans- son, Arni Gunnarsson, Sigurður Lárusson og Einar Sveinbjörns- son 1 mark hver. G. Jóh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.