Þjóðviljinn - 10.08.1976, Síða 11
Þriðjudagur XO. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Yestmanna-
eyingar
Islands-
meistarar
í 5. flokki
Vestmannaeyingar urðu
tslandsmeistarar i 5. flokki er
þeir sigruðu Fram i úrslitaleik
mótsins á Akureyri um
helgina. Þeir sýndu mikla
yfirburði i tslandsmótinu að
þessu sinni og i úrslitakepþn-
inni skoruðu þeir i þremur
leikjum tuttugu og eitt mark
gegn þremur.
t öðru sæti urðu Framarar
en númer þrjú i mótinu urðu
KA-menn, sem sigruðu 1R i
úrslitalcik um þriðja til fjórða
sæti.
Vetmannaeyingar sigruðu
Fram 4-1 i úrslitaleiknum og
sama markatala varð er KA
sigraði tR.
Norðurlandamót unglinga
Norðmenn sigr-
uðu í vítakeppni
Islendingar í neðsta sæti
Norðmenn urðu Norður-
landaineistarar I knattspyrnu
i flokki 14-16 ára unglinga með
þvi að sigra svia i úrslita-
leiknum i mótinu i vítaspyrnu-
keppni, 6-5.
Norðmennirnir voru allan
timann mun harðari og sást
strax að þeir ætluðu sér ekkert
ininna en sigur i leiknum, en
sviarnir voru ekki á þvi að
gefa sitt eftir og léku einnig af
hörku. Þeir sýndu oftast betri
knattspyrnu en norðmennirnir
og hefðu átt skilið að vinna
leikinn og þar með mótið, en
norsararnir strögluðu allan
leikinn svo og framlengingu
og i vitakeppninni tókst þeim
að sigra. Danir urðu i 2. sæti,
sigruðu finna 3-2 I úrslitaleft
um það sæti og v-þjóöverjar
burstuöu islendinga 4-1 i leikn-
um um neðstu sætin.
Norðmennirnir fögnuðu
ákaft eftir sigurinn og er langt
siðan önnur eins fagnaðarlæti
hafa sést hjá sigurvegurum i
keppni.
íslandsmótið
í útihand-
knattleik í kvöld
I kvöld hefst islandsmótið i
útihandknattleik og verða það
konurnar sem opna mótið,
sem haldið er við Austur-
bæjarskólann i Reykjavik.
Handknattleiksdeild ÍR
annast framkvæmd mótsins.
i meistarafiokki kvenna eru
6 lið og drógust þau þannig i
riðla:
A-riöill:
1. Fram
2. Haukar
3. F.H.
Briðill:
1. Valúr
2. H.S.K.
3. Arinann
i kvöld leika saman Haukar
og FH kl. 18.30 og strax á eftir
lið HSK og Armanns.
i karlaflokkum hefst
keppnin ekki fyrr en 14. ágúst
eða næstkomandi laugardag.
ÍBY-IBI
frestað -
ófært frá
ísafirði
Leik IBV og ÍBt, sem fara
átti fram I Vestmannaeyjum á
laugardag var frestaö þvi ekki
var hægt aö fljúga til isa-
fjarðar. Vestmannaeyingar
ætluðu að sýna yfirburði sina
þjóöhátiöargestum, en ekkert
varð úr þvi. Þeir verða að biöa
eftir að veðurguðirnir gefi sitt
leyfi.
G.Jóh.
Heppnissigur
Ármenninga
Armenningar voru svo
sannarlega heppnir að fá bæði
stigin úr leik sinum við Hauka
i 2. deild. llaukarnir sóttu
stanslaust að Armanns-
markinu en ekki tókst þeim að
skora, ekki einu sinni úr vita-
spyrnu sem þeir fengu, boltinn
fór i þverslá og Armenningar
sluppu með skrekkinn.
Armenningarnir áttu hins
vegar fá tækifæri, en ur einu
þeirra uppskáru þeir þó mark.
Þráinn Asmundsson skoraöi
eftir ljót varnarmistök hjá
Haukunum. „ ...
—G.Joh
GIsli Sigurðsson gerði eins og aðrir framlinumenn Breiðabliks oft usla I vörn IBK, sem leikin var sundur
og saman I þessum leik. Hér kemst GIsli upp vinstri kantinn og gefur fyrir. Mynd: — gsp
Breiðablik - ÍBK: 3:1
Sigurganga Breiða-
bliks heldur áfram
Liðið hefur tekið níu stig í síðustu fimm leikjum og
er nú í þriðja sæti mótsins
Breiðabliksmenn hafa
heldur^ betur sannað til-
verurétt sinn á meðal
bestu knattspy rnuliða
landsins undanfarið og í
síðustu fimm leikjum
sínum hafa kópavogsmenn
aðeins tapað einu stigi. Um
helgina sigruðu þeir kefl-
víkinga með þremur
mörkum gen einu í Kópa-
voginum og sigur Breiða-
bliks hefði getað orðið enn
stærri. Lið var áberandi
betra, lék á köflum
meistaralega vel og upp-
skar þrjú mörk.
Breiðabliksliðinu hefur farið
geysilega fram i sumar undir
handleiðslu Þorsteins Friðþjófs-
sonar þjálfara, sem greinilega
virðist vera einn allrabesti
þjálfari okkar um þessar mundir.
Hann hefur náð upp I liði sinu
skemmtilegum samleik, góöum
baráttuvilja og fyrirmyndar
samheldni sem trúlega leggur
öðru fremur grunninn að góðum
árangri i siðustu leikjum.
Keflvikingar áttu aldrei mögu-
leika i þessum leik og á meðan
Breiðablik lét boltann ganga frá
manni til manns i stórhættulegum
og fallegum sóknarlotum, sást
varla ljóte punktur i liði og leik
IBK, sem lék undan sterkum
vindi i fyrri hálfleik. Keflvik-
ingum tókst þó ekki að nýta sér
vindinn, miklu fremur var það
Breiðablik sem sótti og skapaöi
sér tækifæri. Staðan i leikhléi var
0-0, en eftir frisklega frammi-
stöðu heimamanna gegn vind-
inum áttu menn sannarlega von á
markasúpu eftir hlé... Og hún lét
ekki standa á sér.
Strax á 2. min kom fyrsta
markið. Þór Hreiðarsson skoraöi
1-0 fyrir Breiðablik eftir laglega
sendingu Hinriks Þórhallssonar,
langbesta manns vallarins.
A 15. min. bjargaði IBK á
marklinu skallabolta frá Einari
Þórhallssyni, en annaö mark
hafði lengi legið i loftinu. Það
kom siðan á 21. min. er Vignir rak
endahnútinn á fullfallegt samspil
upp völlinn með þvi að stinga
boltanum inn fyrir til Hinriks sem
skoraði i gegnum klofið á Þor-
steini markverði.
Heiðar Breiðfjörð skoraöi siöan
svipað mark á 39. min. siðari
hálfleiks eftir sendingu frá Ólafi
Friðrikssyni en Einar
Gunnarsson minnkaði muninn I 3-
1 með skallamarki á 43. min. eftir
fyrirgjöf frá hægra kanti.
Fátt fallegt verður sagt um lið
keflvikinga að þessu sinni. Það er
tekið að eldast iskyggilega og
grunur leikur á að ekki sé hugsað
um of fyrir efniviði úr yngri
flokkunum. Helst reyndu þeir
Guðni Kjartansson og Einar
Gunnarsson að berjast en liðið i
heild sinni virðist Utbrunnið að
mestu og sýndi nákvæmlega enga
getu i leiknum gegn Breiðabliki.
Hjá heimamönnum bar lang-
mest á Hinriki Þórhallssyni.
Hann var sivinnandi allan
timann, hljóp eins og þindarlaus
um allan völl, skapaði hættu hvað
eftir annað, skoraði mark og lagði
boltann fyrir félaga sina hvaö
eftir annað. Sannarlega efnilegur
og vaxandi leikmaður og enda
mun landsliðseinvaldur Tony
Knapp hafa hann rækilega i
sigtinu þessa dagana. ,
Dómari var Valur Benedikts-
son og var leikurinn auödæmdur.
Enginn fékk áminningu enda var
viðureignin hin prúömann-
legasta.
—gsp
. staöan.
^^^mmmmmmm^mmimmm^r
Staðan i 1 deild er þessi:
Valur 13 8 4 1 37:13 20
Fram 13 8 3 2 20:15 19
UBK 12 6 2 4 16:14 14
Akranes 12 5 4 3 16:16 14
Vikingur 11 6 1 4 15:14 13
KR 13 3 5 5 19:18 11
tBK 13 5 1 7 18:20 11
FH 12 1 4 7 7:20 6
Þróttur 12 1 2 9 7:25 4
Markahæstu menn:
Ingi Bj. Albertss. Val 11
Guðm. Þorbj. Val 10
Hermann Gunnarss. Val .. 10
Kristinn Jörundss. Fram .. 6
Jóhann Torfason KR 6
Teitur Þórðarson 1A 6
Hinrik Þórh. UBK 6
Sigþór ómarsson 1A 5
Staöan i 2. deild er nú þessi:
ÍBV 11 9 2 0 34:9 20
Þór 12 7 4 1 29:11 18
Armann 12 6 3 3 22:13 15
Völsungur 13 5 3 5 20:21 13
KA 13 4 3 5 21:25 12
1B1 11 3 4 4 13:14 10
Haukar 12 3 2 7 18:25 8
Selfoss 12 2 3 7 18:32
Reynir 12 2 1 9 11:36 5