Þjóðviljinn - 10.08.1976, Page 13
Þriðjudagur 10. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Eins og auðmaður á einkaströnd! Myndin er frá Suður-Georgia, eyju í Suður-Atlantshafmu.
Erlendar fréttir
Hinn mikli
matarforði
Suðuríshafsins
Vísindamenn margra landa á
sviði matvælaframleiðslu beina
nú athy gli sinni i vaxandi mæli að
Suðurishafinu, þessu mikla
næringarefna-forðabúri jarðar-
innar. Eftir að ýmsar hvalveiði-
þjóðir höfðunæstum þvi gengið af
skiöishvölunum dauöum þar
suður frá, þá hefur mergð hins
smávaxna krabbadýrs sem var
aðalfæða hvalanna margfaldast.
Ég hef hér áður ? essum þætti
nefnt þetta krabbadýr krili
sökum hinnar miklu smæðar
þess, og fundist þaö vera rétt-
nefni. A norðurlandamálum ber
það hinsvegar heitið krill, en hið
latneska nafn þess er hinsvegar
„Euphausia Superba Dana”.
Erfitt er áreiðanlega að ákveða
með nokkurri nákvæmni hvað
mikið er af þessu krabbadýri í
Suðurishafinu. En sérfræðingar
japana og rússa sem mest hafa
stundað rannsóknir á þessu haf-
svæði áætla að krilisstofninn sé
frá l-5miljarðar tonn, og að óhætt
muniað veiða 50-100miljón tonn á
ári, án þess að skaða stofninn.
Þessar tvær þjóðir hafa stundað
þarna tilraunaveiðar i nokkur ár,
en hvað krílisafli þeirra hefur
orðið mikill á ári, er ekki vitað.
Þá er vitað að þessar þjóðir hafa
unnið að margvislegum vinnslu-
tilraunum á krilinu. Rússar hafa
t.d. unnið úr þvi mauk sem selt
hefur verið i túbum á heima-
markaðiogersagt ljúffengt. Eins
munu bæði japanir ogrússar hafa
unnið kraft úr þessu hráefni,
sem notað er i ýmsar sósur og
súpur. Rannsóknir hafa leitt i ljós
að krilishráefniðer auðugt af pr-
óteini, eða eggjahvituefnum, sem
frá næringarfræðilegu sjónarmiði
eru sérstaklga vel samansett af
aminosýrum. Auk þessa er hrá-
efnið sagt innihalda sykurefni,
feiti, bætiefni og málmsölt og þvi
talið gott hráefni i matvælafram-
leiðslu.
Japanir og rússar hafa setið
einir að þessum tilraunaveiðum á
undanförnum árum, en nú i ár -
bættust tveir rannsóknarleiö-
angrar i veiðiskipaflota Suðuris-
hafsins til rannsókna á krilinu.
Annar þessara leiðangra er frá
Vestur-Þýskalandi en hinn frá
Noregi. Þaö er pólarrannsóknar-
stofnun Noregs sem gerir út
norska leiðangurinn, en hann er
farinn á stórum verksmiðju-
togara, með fjölda visindamanna
um borð. Mikill áhugi er sagður
hjá norðmönnum á hagnýtingu á
krOi Suðurishafsins, og sjávarút-
vegsráðuneytið skipaði nefnd
manna i málið á sl. ári, en i þeirri
nefnd eiga sæti menn frá hval-
veiðum, fiskveiðistofnunum svo
og vísindamenn. A þessu ári sem
nefndin er búin að starfa hefur
hún látið gera tilraunir á norð-
lægum slóöum með ýmsan búnað
og tæki fyrir krilisveiðar, þar á
meðal hefur verið útbúin norsk
flotvarpa fyrir krili sem á að geta
veitt allt upp undir yfirborð
sjávar.
Krili er til i norðlægum höfum,
en i miklu minna mæli heldur en i
Suðurishafi. Þetta norðlæga
krabbadýr ber visindaheitið
„Meganyetiphanes norvegiea”.
Þá hefur þessi norska undir-
búningsnefnd látið vinna að
margvislegum rannsóknum i
hagnýtingu á krili og þá einnig
flutt inn til þess krili i frosnu
ástandi, veitt i Suðurishafi. Þá
hafa norðmenn nú þegar gert til-
raunir með vöru unna úr krili á
erlendum mörkuðum.
Norska nefndin hefur komist að
þeirri niðurstöðu að norðmönnum
beri að snúa sér að hagnýtingu
krilisins i Suðurishafi, en áður
þurfi norðmenn að senda þangað
veiðileiðangur til tilraunaveiða
og vfðtækari rannsókna. En veiði-
og rannsóknarleiðangur heim-
skautastofnunar Noregs, sem nú
er i Suðurishafi og kemur ekki
þaðan fyrr en einhverntima á
næsta ári, mun að likindum geta
flýtt þessum framkvæmdum.
Eitt af þvi sem olli bæði rúsum
og japönum miklum erfiðleikum
við veiðar á krilinu fyrst framan
af voru hin skörpu viðbrögð þess
að flytja sig frá yfirborði sjávar
niður á mikið dýpi eins og hendi
væri veifað. Aö finna ráð gegn
þessumun lengi hafa gengið illa,
en þó munu nú þessir erfiðleikar
hafa verið yfirstignir, þvi fréttir
herma að i ár hafi fengist 30 tonn
af krili á togtima þar suður frá.
Norðmenn voru um langt
árabil ein af stærstu hvalveiði-
þjóðum i Suðurishafi, en hafa nú
hætt þeim veiðum. Máski á
norskur sjávarútvegur eftir að
hasla sér völl við krisilveiðar i
Suðurishafinu i álika mæli i
náinni framtið.
(Efnisheimildir teknar úr Fiskets
Gang, Fiskaren og fleiri ritum).
Norski stórsíldar-
árgangurinn frá
1975 virðist sterkur
Samkvæmt rannsóknum sem
framkvæmdar voru á norska
stórsildarstofninum nú i vor, þá
komust fiskifræðingar að þeirri
niðurstöðu að hrygning sildar-
innar á fyrra ári hafi gengið sér-
staklega vel, og að sildarseiða-
stofninn frá fyrra ári sé sá sterk-
asti siðan árið 1969.
Anehovetaveiðarnar
í Perú hafa
gengið illa
Pescaperu, rikisrekna út-
gerðarfélagið i Perú sem stjórnar
veiðum og vinnslu aflans, hefur
hvað eftir annað orðið að stöðva
veiðarnar sökum þess hve mikið
af smáanehovetafiski hefur verið
iaflanum á sl. vetriog i vor. Talið
er að anehovetaaflinn hafi verið
kominn upp i rúmlega miljón tonn
um mánaðamótin april-mai, frá
nýári. Þá er sagt að vinnslan hafi
gengið verren áður, þar sem fitu-
innihald hafi aöeins verið 2% i
stað 4-6% oft áður. Útflutningur á
fiskimjöli frá Perú hófst aftur i
aprilmánuði, en hann hafði verið
stöðvaður i nóvember 1975 af
stjórnvöldum.
Óvenjumikil
þorskgengd í Suður-
Eystrasalti í vor
Samkvæmt sænskum heim-
ildum var óvenjumikil þorsk-
gengd i suðurhluta Eystrasalts i
vor, i febrúar-april og byrjun
mái. Fiskmóttökustöðvar i
Suður-Sviþjóð fengu á land á
þessu timabili 7000 tonn af þorski,
en yfir sama timabil i fyrra 4600
tonn.
fiskimál
.eftir Jóhann J. E. Kúld^,
Norskar
hugleiðingar um að
nota stórar þyrlur
við landhelgisgœslu
°g björgunarstörf
Norska rikisstjórnin hugleiðir
nú, hvort ekki sé hagkvæmt að
nota i vaxandi mæli stórar þyrlur
við landhelgis- og björgunarstörf,
og tengja björgun og gæslu betur
saman en verið hefur fram að
þessu. Mál þetta hefur þegar
verið lagt fyrir varnarmálanefnd
Stórþingsins, varnarmálaráðu-
neytið og yfirmann norskra loft-
varna til umsagnar.
Óvenjustór
lax veiddur í
norskum firði
Nú i vorveiddist við Vik i Sogni
i kilnót ógenjustór laxahængur,
sem vó hvorki meira né minna en
26 kg. Þetta þótti svo óvenjuleg
veiði að hennar var getið i
mörgum blöðum. Hefur nokkur
áður heyrt getið um þyngri lax?
Laxveiðar dana
gengu mjög vel á
hafinu milli
Jan Mayen
og Noregs
Döndcu laxveiðibátarnir sem
stunduðu veiðar með flotlinu
vestur af Norður-Noregi á þessu
vori fengu góöan afla. Einn þess-
ara báta kom til hafnar i Alasundi
á heimleið, hann hafði veitt 5500
laxa á 14 dögum á flotlinu. Lax-
veiðibáturinn hafði 5 manna
skipshöfn, og sagði skipstjóri
hans að hásetahlutur úr veiði-
ferðinni mundi verða i kringum 20
þús. d. kr.eða i isl. kr. nálægt 598
þús. Það er ekki undarlegt þó
ýmsir norskir fiskimenn séu æfir
yfir þvi, að vera útilokaðir frá
þessum veiðum, sökum þess að
norsk stjórnvöld hafa gerst aðilar
að banni gegn laxveiðum á
hafinu. (19/7 1976)
#útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.t 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Ragnar Þorsteinsson
byrjar að lesa þýðingu sina
á „Útungunarvélinni”, sögu
eftir Nikolaj Nosoff. Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Tónleikar kl.
10.25. Morguntónleikar kl.
11.00: Filharmoniusveitin i
ósló leikur „Zorahayda”,
helgisögn op. 11 eftir Johan
Svendsen; Odd Gruner-
Hegge stjórnar/Fil-
harmoniusveitin i Vin leikur
Sinfóniu nr. 4 i f-moll op. 36
eftir Tsjaikovský; Lorin
Maazel stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuná: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Blóm-
ið blóðrauða” eftir
Johannes Linnankoski.
15.00 Miödegistónleikar.
André Pepin, Raymond
Leppard og Claude Viala
leika Sónötu i F-dúr fyrir
flautu, sembal og selló eftir
Georg Philipp Telemann.
Baroque-trióið i Montreal
leikur Trió i D-dúr eftir
Johann Friedrich Fasch.
Jost Michaels og Kammer-
hljómsveitin i Múnchen
leika Konsert i G-dúr fyrir
klarinettu og hljómsveit eft-
ir Johann Melchior Molter;
Hans Stadlmair 'stjórnar.
Andreas Röhn og Enska
kammersveitin leika Fiðlu-
konsert nr. 16 i e-moll eftir
Giovanni Battista Viotti;
Charles Mackerras stjórn-
ar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 Sagan: „Sumardvöl i
Grænufjöllum” eftir Stefán
Juliusson.Sigriður Eyþórs-
dóttir les(2),
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Ja f n r é t tis I ögi n.
Björg Einarsdóttir, Erna
Ragnarsdóttir og Linda Rós
M ichaelsdóttir sjá um
þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins-Sverr-
ir Sverrisson kynnir.
21.00 Þr j á ti i þú s u n d
miljónir? Orkumálin —
ástandið, skipulagið og
framtiðarstefnan. Fimmti
þáttur. Umsjón: Páll Heið-
ar Jónsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Kvöld-
sagan: „Mariumyndin” eft-
ir Guðmund Steinsson.
Kristbjörg Kjeld leikkona
byrjar lesturinn.
22.45 Harmonikulög. Hans
Wahlgren og félagar hans
leika.
23.00 A hljóðbergi. Tveir
danskir meistarar, Adam
Poulsen og Poul Reumert,
lesa kvæði eftir Runeberg,
Oehlenschláger og Drach-
mann.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
sjönvarp
Þriðjudagur
10. ágúst
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Hungur. Kanadisk
teiknimynd, þar sem hæðst
er að ofáti i hungruðum
heimi.
20.55 McCloud. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Friðrof. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.25 úm „Ærumissi Katrinar
Blum". I þessari sænsku
mynd er rætt við vestur-
þýska rithöfundinn Hein-
rich Böll um bók hans, Æru-
missi Katrinar Blum, en
þetta er fyrsta verk Bölls,
sem út kom, eftir að hann
hlaut Nóbelsverðlaun fyrir
bókmenntir. Sagan var lesin
i útvarp i siðasta mánuði.
Viðtalið er á þýsku og með
sænskum textum og ekki
þýtt á islensku.
(Nordvision-Sænska sjón-
varpið)
22.45 Dagskrárlok.