Þjóðviljinn - 13.08.1976, Qupperneq 3
Flóttamannabúðirnar í Tel al-Zaatar
Föstudagur 13. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Falla í hendur
hægri manna
BEIRUT 12/8 — Fltíttamanna-
búöirnar i Tel al-Zaatar féllu
snemma i morgun i hendur hægri
sinnaöra libana eftir 51 dags um-
sátur, og sögöu talsmenn hægri
manna aö aöeins væru eftir fáein-
ar leyniskyttur i búöunum.
Hægri menn sögöu aö flestir
ibúar flóttamannabúöanna, sem
voru orönar e.k. tákn um baráttu
palestinuaraba i Libanon, hafi
gefist upp sjálfviljugir og heföu
aöeins um hundraö menn veriö
handteknir.
Lokaáhlaupiöhófst um kl. fjög-
ur i nótt, þegar mikiö herhö i
skriödrekum og bryndrekum
réöst á búöirnar. Skömmu siöar
voru þær á valdi hægri mann-
anna. Þá voru aö sögn aöeins sex
þúsund manns eftir i búðunum, en
þegar umsátrið hófst fyrir sjö
vikum voru ibúar þeirra taldir
um 30 þúsund. Yfirmenn hægri
manna sögðu aö allir þeir, sem
hefðu verið teknir til fanga,
myndu fá þá meöferö, sem skylt
væri að veita striösföngum sam-
kvæmt alþjóðalögum, en óbreytt-
ir borgarar hefðu fengiö aö snúa
aftur til þeirra hverfa, sem mú-
hameðstrúarmenn hafa á valdi
sinu.
Talsmaöur þjóöfrelsishreyfing-.
ar palestinuaraba staöfesti i dag
að flóttamannabúöirnar heföu
fallið i hendur ha^ri manna, og
sagöi hann að árásin heföi heppn-
ast vegna þess aö árásarmenn-
irnir hefðu taliö ibúum búöanna
trú um aö náöst heföi samkomu-
lag um aöflytja óbreytta borgara
burt.
Ýmsir fréttamenn i Beirut
vonast til aö fall flóttamannabúö-
anna auki horfur á vopnahléi i
borgarastyrjöldinni i Libanon,
sem nú hefur staöiö i sextán mán-
uði. Tel al-Zaatar var siöasta vig-
iðsem múhameöstrúarmenn áttu
eftir i kristna hluta Beirút.
Erlendar
fréttir í stuttu
máli
Úryggisráðið rœðir
deilur um Eyjahaf
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR 12/8—öryggisráöið kom saman til
fundar i dag til að ræöa um deilur grikkja og tyrkja um auölinda-
lögsögu i Eyjahafi, og er þetta aö sögn i fyrsta skipti sem tvær
þjóðir úr kærleiksheimilinu NATÓ, klaga hvor aðra fyrir
öryggisráöinu.
Það voru grikkir sem fóru fram á að öryggisráöið kæmi
saman til fundar og ákæröu þeir tyrki fyrir að fremja landhelgis-
brot með þvi aö senda leitarskipið Sismik 1 á umdeild svæöi i
Eyjahafinu.
Tyrkir neituðu þessu og sögöu aö landgrunniö i Eyjahafinu
hefði aldrei veriö skilgreint, og væri ákæra grikkja þvi ekki
byggð á neinum rökum. Utanrikisráðherrar Grikklands og
Tyrklands munu bábir ávarpa öryggisráðið.
Samkvæmt fréttum frá Aþenu hefur griska stjórnin skipað
hernum að vera reiðubúinn, og er mest allur flugherinn nú
kominn i herbúðir.
GÍFULEGAR ÓEIRÐIR
NÁLÆGT HÖFÐABORG
HÖFÐABORG 12/8 — Suöur-
Afrisk lögregla hóf I dag skothrið
á 1000 blökkumenn, sem fóru
syngjandi og hrópandi um götur i
borgarhverfinu Nyanga nálægt
Höfðaborg. Sögðu sjónarvottar að
a.m.k. fjórir blökkumenn hefðu
látið lifið og sex særst. Sam-
kvæmt opinberum tíikynningum
höfðu 23 biökkumenn fallið i nótt,
svo að opinber tala fallinna er nú
27. En Gert Prinsioo, yfirmaður
lögreglunnar i Suður-Afriku sagði
að ekki væri vitað hve margir
hefðu orðið fyrir kúlum
lögreglunnar.
Astandið i Suður-Afriku hefur
versnað mjög mikið siðan óeirð-
irnar breiddust út til héraðanna
umhverfis Höföaborg, og var haft
eftir áreiðanlegum heimildar-
mönnum að yfirvöldin óttuðust nú
að þær kynnu að breiðast enn
meir út og ná t.d. til „litaðra
manna” (kynblendinga) i
Höfðaborg sjálfri.
Óeiröirnar i nótt urðu verstar i
bæjunum Nyanga, Langa og
Guguleto, og lenti lögreglunni þar
saman við blökkumenn sem
reyndu að kveikja i byggingum og
ræna. Siðar fóru þúsund blökku-
menn syngjandi og hrópandi um
götur Nyanga, og réöst lögreglan
á þá til að sundra hópnum. Þegar
táragas reyndist árangurslaust,
skautlögreglan á hópinn. 1 Langa
fóru 300 stúdentar i mótmæla-
göngu að lögreglustöðinni og full-
orðnir menn meö þeim. Þeir
hrópuöu: „Vib erum ekki að
berjast, skjótiö ekki, heldur
leysið félaga okkar úr haldi”.
Lögreglan kastaöi táragasi á hóp-
inn til að reyna að skilja að stúd-
entana og fullorðna fólkið, en
stúdentarnir héldu afram og
sungu sálma. Einn þeirra fékk aö
fara inn I lögreglustöðina til að
ræða við yfirmenn þar. Margar
opinberar byggingar skemmdust
i eldi i Langa um nóttina.
Mannréttindavernd
helsta verkefnið
segir Georg Kahn-Ackermann aðalframkvœmdastjóri
Evrópuráðsins sem er hér i heimsókn
Hér á landi er nú staddur aðal-
framkvæmdastjóri Evrópu-
ráösins, Georg Kahn-Ackermann.
Hann drepur hér niöur fæti i þrjá
daga og er heimsókn hans liður i
yfirreiö yfir aðildarriki ráösins
sem eru 18 aö tölu.
Kahn-Ackermann hefur veriö
framkvæmdastjóri ráösins siöan
um haustiö 1974. Hann er 58 ára
þjóðverji, var allt striöiö i þýska
hernum, en gerðist blaöamaöur
að striöinu loknu. Hann situr á
þinginu i Bonn fyrir sósialdemó-
krata og hefur gert það meö
hléum siðan 1953. Auk þess hefur
hann gegnt ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir land sitt, Evrópu-
ráöiö og Vestur-Evrópubanda-
lagið sem er samband sjö
EBE-rlkja um varnarmál.
Hér á landi hefur
Kahn-Ackermann rætt við for-
sætis- og utanrikisráöherra og
kynnt sér aöra merkilega hluti. A
blaöamannafundi sem efnt var til
I tilefni af heimsókn hans kvaöst
hann mjög ánægöur með viöræö-
urnar viö ráðherrana, sem og hlut
íslands 1 starfsemi ráösins.
Kahn-Ackermann sagöi aö eitt
helsta verkefni ráösins siöan þaö
var stofnað fyrir 27 árum heföi
veriö á sviöi mannréttindamála.
Ráöið hefur samþykkt mann-
réttindayfirlýsingu og er, að sögn
Kahn-Ackermanns, eina stofn-
unin sem i raun vinnur aö mann-
réttindamálum I álfunni.
Kahn-Ackermann sagði aö
ráöið heföi átt sinn þátt I aö koma
grisku herforingjastjórninni fyrir
kattarnef, þaö helur aðstoðað
portúgali viö stjórnarskrárgerð
og hvatt til þess aö framþróun
lýöræöis veröi hraöað á Spáni.
Hvorki Portúgal né Spánn eru
aðilar að ráöinu en portúgalir
hyggjast sækja um inngöngu i
haust. Enn er hins vegar beðiö
eftir þvi aö kosningar til þings
farifram áSpánienþaðerhöfuö-
skilyröi fyrir þvi aö lönd fái aðild
að ráöinu aö þeim sé stjórnaö af
rikisstjórnum sem þiggja umboö
sitt frá lýðræðislega kjörnum
þjóöþingum.
Kahn-Ackermann kvað Evrópu-
ráöið ekki hafa yfir aö rába neinu
framkvæmdavaldi i viöleitni
sinni viö aö auka lýöræöi, þaö
gæti aðeins beitt siöferöilegum
þrýstingi. Sem dæmi um viðleitni
ráösins til eflingar lýðræöis
nefndi Kahn-Ackermann aö full-
trúar af spænska þinginu heföu
mætt fulltrúum allra andstööu-
flokka landsins i Paris á vegum
ráösins. Þetta væri eini fundurinn
sem þeir heföu haft meö sér.
Einnig hefðu fulltrúar deiluaðila
á Kýpur komiö saman i Stras-
bourg undir merkjum Evrópu-
ráðsins.
A vegum Evrópuráðsins er
starfandi mannréttindanefnd og
getur hver sá sem telur sig verða
fyrir barðinu á óréttlátum lögum
i heimalandi sinu kært það til
hennar. Þessi óopinberi dómstóll
hefur skiiaö góöum árangri að
sögn framkvæmdastjórans og i
þónokkrum tilvikum knúiö
stjórnir til að breyta óréttlátum
lögum.
Af öðrum starfssviöum ráösins
má nefna samvinnu á sviöi skóla-
og menntamála, eftirlit meö
lyf jaframleiöslu, samræmingu
laga aðildarrikjanna, afnám
vegabréfaáritana og margvlslegt
starf á sviði umhverfismála. Af
þvi siðastnefnda má nefna aö nú
er verið að gera átak i þvi aö
hreinsa Rinarfljót en i það varpa
td. þjóðverjar miklu magni
úrgangsefna sem Ibúar Niöur-
landa veröa aö hreinsa úr þvi
vegna þess aö þeir nota vatnið til
neyslu.
Um hlut fslendinga sagöi
Kahn-Ackermann aö islenska
stjórnin heföi ávallt haft mikinn
áhuga á mannréttindastarfinu og
einnig samvinnu á sviöi skóla- og
menntamála.
t janúará næsta ári verður vigö
ný skrifstofubygging sem ráöiö
hefur i smiöum i Strasbourg. öll
aöildarrikin hafa heitiö einhverju
framlagi til skeytingar hússins.
Héðan fer Kahn-Ackermann meö
smækkaða bronsafsteypu af
höggmynd Einars Jónssonar,
Alda aldanna, sem islenska
stjórnin afhenti ráöinu aö gjöf.
—ÞH
Miklir þurrkar
geisa í Bretlandi
SLONDON 11/8 — Tilkynnt var i dag að ströng skömmtun á vatni
kynni að verða tekin upp I enn einu héraði Bretlands, vegna
þurrkanna sem nú geisa þar og eru sagöir hinir verstu, sem
komið hafa i tvær og hálfa öld.
Þegar hefur verið tekin upp vatnsskömmtun i Suðaustur-
Wales, og er nú lokaðfyrirallt vatn tólf tima á sólarhring. Snertir
þessi skömmtun um miljón manns, en ef ástandið batnar ekki
verður vatnsskömmtunin einnig látin ná til iðnaðarins.
I dag var tilkynnt að vatnsskömmtun kynni einnig að verða
tekin upp i vesturhluta Englands, i fylkjunum Avon, Somerset,
Dorset, Wiltshire, Hampshire og Gloucestershire. Verður reynt
aö minnka vatnsneyslu um þriöjung með þvi að stöðva alla þá
notkun vatns sem er ekki bráðnauðsynleg.
Einnig er talin hætta á þvi að nauðsynlegt verði að taka upp
skömmtun á vatni á ýmsum svæðum i Suðvestur-Englandi i
byrjun september. Sérstök neyðarlög hafa veriö samþykkt og i
dag fyrirskipaði stjórnin rannsókn á öllum vatnsforða Bret-
lands.
Einnig hefur komið til umræöu aö flytja inn vatn frá Noregi til
Bretlands, og ersagtaö skipafélög i London hafi kannað kostnað
viö slika flutninga. En heimildarmenn i Ösló sögðu aö þaö myndi
taka um sex mánuði að skipuleggja vatnsflutninga meö risa-
tankskipum. Vegna þurrkanna hefur verð á grænmeti hækkaö
mjög mikið að undanförnu.
Rod Mackay, yfirmaður vatnsveitu i Wales, sagöi i dag að
hann væri orðinn mjög ergilegur, vegna þess að enginn vildi taka
alvarlega þá uppástungu hans að fólk færi saman i baö og sturtu
til að apara vatn.
Berserksgangur
á Jótlandi
HORSENS 11/8 — Ungur eiturlyfjaneytandi gekk I dag berserks-
gang meö veiðibyssu i iþróttavöruverslun i Horsens á Jótlandi I
dag. Hann drap tvo menn, áöur en lögreglunni tókst aö gera hann
óvlgan.
Að þvi er viröist kom maöurinn með byssuna inn i búðina i þvi
skyni að selja hana, en um leið og hann kom inn úr dyrunum fór
hann að skjóta i allar áttir, og varð hann búðarmanninum og
einum viðskiptavini að bana.
Lögreglan umkringdi búðina og varpaði táragasi inn i hana,
svo aö maðurinn neyddist til aö flýja út á götuna. Þar skaut lög-
reglan á hann og gerði hann óvigan. Var hinn byssuglaði fluttur á
sjúkrahús.
Líkfundur í Pompeii
POMPEII12/8 — ttalskir fornleifafræðingar hafa fundið tvö 1900
ára gömul lik, sem hafa varðveist furðulega vel undir hrauni i
Pompeii. Yfirmaður safnsins, þar sem varðveittir eru þeir
munir, sem fundist hafa við uppgröftinn i borgarrústunum, sagði
að þessi fundur væri einstæður. Við hliðina á likunum fannst litil
stytta úr bronsi og silfurkeðja.
Rómverska borgin Pompeii var lögð i rústir við eldgos i
Vesúviusi árið 79 e.Kr., og er talið að 2000 manns hafi farist. Arið
1823 hófst uppgröftur i borginni en þetta er I fyrsta skipti sem
fornleifafræðingarnir finna vel varðveitt lik.
Fá skilorðsbundinn
dóm fyrir vopnaburð
STOKKHÖLMI 12/8 —Þrir ísraelsmenn sem voru ákærðir fyrir
óleyfilegan vopnaburð i Sviþjóð fengu i dag skilorðsbundinn dóm
og geta þvi farið úr landi frjálsir ferða sinna. tsraelsmennirnir
voru foringjar israelsks knattspyrnuliðs, sem var i keppnisferð i
Sviþjóð, og sögðust þeir hafa fengiö vopnin hjá israelska sendi-
ráðinu. Liðið var að visu undir vernd sænsku lögreglunnar, en
israelsmennirnir sögðu þó að þeim hefði fundist sér ógnað.
Sögðu þeir að þeim hefði virst bilar elta sig og auk þess hefði ólag
á simanum i hótelinu vakið grunsemdir þeirra.