Þjóðviljinn - 13.08.1976, Qupperneq 5
Föstudagur 13. ágiist 1976 ÞJÓÐVILJINN - StÐA 5
Hvað verður
um „jóla-
plattana”
Sjö víkna verkfaU hjá
Bing og Gröndahl
Verksmiðjan hefur semsé
verið óstarfhæf siðan á þjóð-
hátiðardag islendinga, 17. júni,
eða i sjö vikur. Ástæðan er sú að
1.200 starfsmenn hennar hafa
verið i verkfalli þennan tíma og
þegar þetta er ritað sér ekki
fyrir endann á þvi, báðir
aðilar standa fast á sinu og
hyggjast knýja hinn til undan-
láts.
Verkfallið hófsí á þvi að 250
manns, flestir málarar, settu
fram kröfu um kauphækkun úr
26 kr. i 31.50 á timann. Þessu
hafnaði stjórn verksmiðjanna
og þá hófst verkfall. Það náði þó
ekki eingöngu til málaranna þvi
aðrir starfsmenn fyrirtækisins
lögöu einnig niður vinnu i sam-
úðarskyni við málarana. Helsta
krafan er að lágmarkslaun fyrir
alla starfshópa verði fastsett
31.50 kr. á timann. Stjórn verk-
smiðjanna hefuir sett'fram gagn-
tilboð sem aöeins eiga aö ná til
sumra starfshópa en þeim hefur
verið hafnað.
Samstaða
auðva Idsins.
Deilan fer nú stöðugt harðn-
andi og samstaðan eykst á báða
bóga. Harka stjórnarinnar
byggist á þvi aö ekki má rjúfa
samstöðu atvinnurekenda um
engar kauphækkanir. Danska
atvinnurekendasambandið, DA,
hefur heitið verksmiðjunum
fjárhagsstuðningi I deilunni, en
sá stuðningur er háður þvi hver
úrslit deilunnar verða.
Formaður DA hefur skýrt Infor-
matíon frá þvi að stuðningur
sambandsins verði minnkaður
ef verksmiðjustjórnin slakar til
gagnvart verkafólkinu.
Verksmiðjustjórnin skaut
málinu til Atvinnuréttarinstsem
er einna helst sambærilegur viö
Félagsdóm hérlendis) á þeim
forsendum aö kröfur verka-
fólksins vlsuðu út fyrir gildandi
kjarasamnina og þvi væri verk-
fallið ólöglegt. Vanalega er At-
vinnurétturinn sammála at-
vinnurekendum um túlkun
vinnulöggjafarinnar og hefur
iðulega dæmt verkamenn eöa
stéttarfélög þeirra i sektir fyrir
ólögleg verkföll. Að þessu sinni
var þó eitthvert hik á réttinum
í Hinum
konungl. postu-
linsverksmiðjum
í Kaupmanna -
höfn?
og var úrskurður hans á þann
veg að verksmiðjustjórninni
væri frjálst að ráða nýtt fólk i
stað þess sem er i verkfalli. En
skiljanlega hikar stjórnin við
það,þvi þaö tæki mikinn tima og
kostaði drjúgan skilding að
þjálfa nýtt fólk upp til sérhæfðra
starfa. Samt hefur hún notað
það gegn verkafólkinu að þessi
leið sé alls ekki endanlega úti-
lokuð.
Samstaða
verkalýðs
Undanfarna daga hefur sam-
staða verkafólksins og stéttar-
bræðra þess verið að aukast
mjög. Fólkið hefur málað á 15
þúsund pappadiska og selt þá
fyrir 10 kr. stykkið. Meðal kaup-
enda er stéttarfélag prentara
sem keypti 300 diska til að
stinga i möppur fulltrúa á
landsfundi prentara á hausti
komanda. 1 siðustu viku til-
kynnti stéttarfélag starfsmanna
Hinna sameinuðu Brueehúsa
Tuborg og Carlsberg , að það
hefði gefið 7 þúsund danskar
krónur til stuðnings verkfallinu
og hvatti önnur stéttarfélög til
að gera slikt hið sama.
1 þessu sambandi verður að
geta þess að stéttarfélag brugg-
húsamanna tekur með þessu
nokkra áhættu. Samkvæmt
dönskum lögum er verkalýðs-
hreyfingunni eða einstökum
stéttarfélögum bannað aö
styðja við bakið á verkafólki
sem stendur i ólöglegu verkfalli
að viðlögðum sektum. Félög
sem sllkt gera eiga yfir höfði 50-
100 þúsund króna sekt og er þar
átt við danskar krónur.
En verkfallsmönnum er
engin vanþörf á stuðningi.
I verkfallssjóði þeim sem þaö á
aðgang að eru aðeins 60 þúsund
krónur danskar sem myndu
jafnast út i 50 krónur á mann.
Það er ekki mikið miðað við það
að launamissir hvers verkfalls-
manns er nú metinn á um fimm
þúsund krónur.
Eftir að stuöningur brugg-
húsamanna barst efndi verk-
fallsnefndin til fundar með
fjölmörgum trúnaðarmönnum á
höfuðborgarsvæðinu. Þar var
kosin stuðningsnefnd sem i eiga
sæti trúnaðarmenn i mörgum
stórfyrirtækjum, svo sem Bur-
meister og Wain skipasmiða-
stöðvunum, SAS, Tuborg, Carls-
berg ofl. I ályktun þessa fundar
er verksmiðjustjórnin gagnrýnd
og sagt að ekki sé heil brú i rök-
semdafærslu hennar fyrir þvi aö
hún geti ekki mætt kröfum
verkafólksins. Einnig var sam-
þykkt að beina þvi til allra
verkamanna að þeir gefi tiu
krónur hver af launum sinum i
viku hverri til stuðnings verk-
fallsmönnum.
Lærdómsrikt.
Lengra voru málin ekki komin
þegar siðast fréttist, nema hvað
boðað hafði verið til mótmæla-
göngu á fimmtudag þann 12.
ágúst frá verksmiðjunum til
bækistöðva atvinnurekenda-
sambandsins.
En þetta mál er vei til þess
fallið að auka samstöðu dansks
verkafólks. 1 fyrsta lagi af-
hjúpar það stéttarsamstöðu at-
vinnurekenda sem aldrei vilja
viðurkenna tilvist andstæðra
stétta. I öðru lagi sýnir það
verkafólki fram á að þau laun
sem það fær þurfa ekki að vera i
neinu sambandi við verðmæta-
sköpun þess eða afkomu fyrir-
tækisins. 1 þessu tilfelli dregur
enginn i efa að hinar konung-
legu verksmiðjur geti séö
þeim þremur miljónum sem það
myndi kosta þær að veröa við
kröfum verkafólksins. En ofar
hagsmunum einstakra fyrir-
tækja eru heildarhagsmunir
auðstéttarinnar sem nú kref jast
þess að atvinnurekendur sýni
samstöðu og verkafólki fram á
að það borgi sig ekki að vera
með neitt múður. Það eigi að
gera sig ánægt með það sem það
fær.
—ÞH.
Á hverju ári rétt fyrir
jól birtast í ísienskum
verslunum svonefndir
//jólaplattar". Þar er um
að ræða skrautmálaða
diska sem fólk hengir upp
á stofuveggi sína og eiga
sumir orðið heilt safn af
þeim. Þessir plattar eru
framleiddir i Danmörku/
nánar tiltekið f Hinum
konunglegu postulíns-
verksmiðjum Bing og
Gröndahl. Nú eru ýmsar
blikur á lofti í þessari
konunglegu verksmiðju í
Kaupmannahöfn og ef til
vill hafa þær áhrif á jóla-
plattasöluna á komandi
jólum.
Trúnaöarmenn I fjölmörgum>undirrita áskorun til danskra verka
manna um að láta 10 krónur af hendi rakna vikulega til stuönings
verkfallsmönnum hjá Bing og Gröndahl.
Eyjahaf
Sismik 1.
hefur mælingar
Aþenu og Ankara 6/8 reuter —
Tyrkneska oliuieitarskipiö Sism-
ik 1. hóf I dag bergmálsmælingar
á austanveröu Eyjahafi.en ekki er
vitaö hvort skipið var komiö inn á
svæði það sem tyrkir og grikkir
telja báöir sina eign.
Heimildir innan tyrknesku
stjórnarinnar sögöu að engin
grisk herskip fylgdust með ferð-
um Sismiks 1. en I Aþenu var sagt
að eftirlit herskipa nærri
tyrknesku ströndinni hefði veriö
hert til muna. Væri ætlunin að
koma i veg fyrir að Sismik 1. færi
til oliuleitar á griska land-
grunninu.
Fréttamenn segja þó, að nokk-
uð hafi slaknað á spennunni sem
rikt hefur i sambúð tyrkja og
grikkja eftir að Sismik 1. hóf
mælingar á hafsvæði sem ekki er
umdeilt. Þrálátur orðrómur er á
kreiki I Ankara um að tyrkneska
stjórnin hafi þreifað fyrir sér meö
samningaviðræður við grikki að
tjaldabaki.en stjórnin hefur þver-
tekiö fyrir það.
Sismik 1. verður við mælingar á
Eyjahafi næstu tiu daga og á
skipið að kortieggja hafsbotninn
milli tyrkneska meginlandsins og
grisku eyjarinnar Limnos á Eyja-
hafi austanverðu.
Ljón norðursins sýnir
Leó Arnason frá Vikum, „Ljón
norðursins” heldur nú málverka-
sýningu á Mokka.
Leó kynnir sjálfan sig með
þessum hætti i frétt til blaðsins:
„Fæddur 27 júni 1912 á Vikum á
Skaga i Húnavatnssýslu. Hrein-
ræktaður húnvetningur i báðar
ættir og ættleggur búið i Vikum og
Mánavik um þrjár aldir, land-
námsmannsins Mána, sem nam
land á milli fossanna tveggja.
Frá þvi bergi er hann
runninn og faðir hans hét Arni
Anton Guðmundsson byggingar-
meistari og bóndi. Hann nam i
Reykjavik I 6. ár og kom þaraf-
leiöandi með heimsmenninguna
heim og var hrafndökkur og
brúnn yfirlitum og er Ljón Norð-
ursins talinn likastur honum i út-
liti af 8. bræðrum og 2. systrum og
ef Ljón Norðursins væri skirður
rétt, þá er hann skáld, málari,
myndhöggvari, byggingarmeist-
ari og maður.
Móðir hans hét Anna Lilja
Tómasdóttir og á ættir að rekja til
vatnsdæla i Húnaþingi. Hann var
eftirlæti hennar og séreign.”
Loftræstikerfi
Tilboð óskast i smiði og uppsetningu loft-
ræstikerfis i byggingu Sjúkrahússins á
Seifossi. útboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu vorri, Borgartúni 7, gegn 5000 kr.
skiiatryggingu. Tilboð verða opnuð
þriðjudaginn 31. ágúst 1976, kl. 11.00 f.h. á
sama stað.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
^BIómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430 Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590 Blóm og gjafavörur i úrvali
Blikkiðjan ía
Önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboö.
SÍMI 53468
IJTSALA ÚTSALA
Látið ekki verðbóiguúlfinn gleypa peningana ykkar i dýr-
tiðinni. Allar vörur versiunarinnar seldar með miklum r.f-
slætti. Allt nýjar og fallegar vörur á iitlu börnin.
Barnafataverslunin Rauðhetta
Iðnaðarmannahúsinu
Hallveigarstig 1.