Þjóðviljinn - 13.08.1976, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. ágúst 1976
Búið að draga í riðla
og raða niður leikjum
Dregið i 4ra liða úrslitum bikarkeppninnar:
FH—Akranes og
V alur —UBK/KR
i gærkvöldi var dregið
i 4ra liða úrslit bikar-
keppni KSi. Niðurstaðan
varð sú að FH-ingar
leika á heimavelli gegn
skagamönnum og síðan
leikur Valur á heima-
velli við Breiðablik eða
KR, en viðureign þeirra
iiða er enn óútkljáð.
Breiöablik og KR geröu
jafntefli i 8-liöa úrslitunum
þrátt fyrir framlengdan leik
og veröa þvi aö leika aö nýju.
Er reiknað.meö aö sá leikur
fari fram 20. ágúst, eöa daginn
fyrir landsleikinn gegn
Luxemborg. Sigurvegarinn
mætir siðan Valsmönnum á
Laugardalsvelli en samkvæmt
mótabók KSl eiga 4ra liða úr-
slitin að fara fram finntudag-
inn 26. ágúst.
— gsp
í úrslitakeppni
3. deildar sem fram
fer á Akureyri
I gær var á skrifstofu
KSÍ dregið i riðla úrslita-
keppni 3. deildar, en hún
hefst á Akureyri þann 19.
þessa mánaðar. Við-
staddir athöfnina voru
forráðamenn flestra
þeirra liða sem hlut eiga
að máli.
I A-riðli munu leika
saman lið Aftureldingar,
KS frá Siglufirði, Þróttur
Neskaupstað og sigur-
vegarar í D-riðli, sem að
öllum líkindum verða
Víkingur frá ólafsvík. I
B-riðli leika saman Reyn-
ir Sandgerði, Fylkir
Reykjavík og Austri eða
Leiknir, en þar er kæru-
mál í gangi.
Leikjunum á Akureyri hefur
verið raðað þannig niöur:
Framhald á 14. siðu.
Bjarni Stefánsson spretthlaupari:
Leiðinlegur blaðamaður -gsp
A iþróttaslöu Þjóöviljans birt-
ist þann 10. ágúst sl. skitkasts-
flötur, sem likist helst útburöar-
væii, undir fyrirsögninni ALLT
LEIÐINLEGT. Þar er sem gsp
fái útrás fyrir hinar neikvæöu
hvatir sinar. Segir hann mig
varla hafa tekið þátt i frjáls-
Iþróttamótum hér heima, sem
er svo mjög út I bláinn, aö þaö
tekur þvi ekki aö eyöa oröum i
þvilikt þvaöur.
1 skitkastsfleti sínum kveöur
hann mig hafa veriö aö skokka á
olympiuleikunum I Montreal, en
þar fékk ég timann 48.34 sek. i
400 m. hlaupi, og af 44 keppend-
um hafnaöi ég I 35. sæti i undan-
rásum, 32 keppendur komust i
milliriöla, vantaöi þvi ekki
ýkjamikiö til þess aö ég kæmist
i milliriöla, þó ekki heföi ég ver-
iö nærri Isl.meti minu, sem er
46.76 sek. — Nú er mér spurn,
gsp, hvers konar hlaupastil not-
uöu þeir 9 hlauparar, sem náöu
lakari árangri en ég?
t nefndum skitkastsfleti spyr
gsp, hvar ég hafi veriö, þegar
meistaramót tslands I frjálsum
iþróttum fór fram, og máli sinu
til áherslu setur hann þrjú
spurningarmerki. — Þessu vii
ég svara svo: „Hvern andsk.
varðar gsp um þaö, hvar ég var
staddur þá helgi”!!! Er þaö
þegnskylduvinna aö taka þátt i
frjálsiþróttamótum?
Þó skal ég upplýsa, aö tveim-
ur dögum fyrir meistaramótiö
fékk ég slæman vöövakrampa i
annan fótinn og haföi ekki jafn-
aö mig nægiiega, þegar aö
meistaramótinu kom, sinnti ég
þvi ööru áhugamáli minu, fór á
silungsveiöar.
Ég vona aö i framtiöinni sjáist
ekki slik skætingsskrif á
iþróttasiöum dagbiaöanna, þvi
þau eru til þess eins aö rifa niö-
ur iþróttaáhuga og starfsemi
iþróttahreyfingarinnar hér á ts-
landi.
Gjört I Reykjavik 12/8 1976
BjarniStefánsson
Ólympiufari á silungsveiðum
þegar Islandsmót fer fram
I Athugasemd — gsp I
iþróttasiöu Þjóðviljans barst
gær eftirfarandi bréfkorn frá
Bjarna Stefánssyni spretthlaup-
ara undir fyrirsögninni „Leiöin-
legur blaöamaöur gsp”:
Ekki getur undirritaöur oröa
bundist, sökum viðbjóös á skrif-
um gsp um frjálsiþróttafólk og
þá sérstaklega, hversu hann
hefur reynt aö sverta mig og
árangur minn.
Tel ég gsp vera iþróttafrétta-
riturum til ómælanlegrar
skammar, vegna heimskulegra,
órökstuddra dylgja um afrek og
áhuga islenskra frjáisiþrótta-
manna.
Bjarni Stefánsson
„Er þaö þegnskylduvinna aö
taka þátt i frjálsiþrótta-
mótum?” spyr islenskur 01-
ymplufari hinn hvassasti eftir
að hafa fórnaö Meistaramóti ís-
lands I frjálsum iþróttum, sem
haldiövar nokkrum dögum eftir
Ólympiuleikana, fyrir annaö
áhugamál sitt... silungsveiöar.
Spretthlauparinn Bjarni
Stefánsson óskar eftir þvi, ab
undirritaður láti gagnrýnin
skrif um frjálsar iþróttir hér
eftir eiga sig, og raunar má lesa
úr linunum þá ósk hans, aö ég
skipti mér sem allra minnst af
þeim mönnum, sem þar koma
viö sögu. Skal þessi ósk lands-
liðsmannsins okkar, sem
væntanlega talar fyrir munn
fleiri frjálsiþróttamanna, aö
sjálfsögðu tekin til athugunar.
Snúum okkur að bréfi Bjarna
Stefánssonar. Viöbjóöur hans á
heimskulegu útburðarvæli þar
sem ég fæ útrás fyrir neikvæöar
hvatir og spyr spurninga sem
mig varöar andskotann ekkert
um og eru til þess eins aö rifa
niður iþróttaáhuga lands-
manna, er mikill, svo ekki sé
meira sagt. Segir hann Þjv.
hafa reynt aö sverta sig og
árangur sinn.
Máliö i hnotskurn er þannig
(og skal það aö þessu sinni sagt
umbúöalaust): Bjarni Stefáns-
son hefur i ár litilsvirt félaga
sina og keppinauta I frjálsum
iþróttum rrorgoft með þvi aö
mæta ekki ui keppni á frjáls-
iþróttamótum. Vitaðhefur veriö
lengi, að til eru þeir menn i
röðum islenskra frjálsiþrótta-
manna sem gjarnan heföu
viljað etja viö hann kappi i
spretthlaupunum, freista þess
aö hafa betur i slikum viöur-
eignum og komast þannig I hans
staö á ólympiuleikana, sem eru
eins og Bjarni hefur sjálfur sagt
.... æösti draumur allra ijx-ótta-
manna.
Bjarni hefur hins vegar boöað
forföll hvaö eftir annaö og enga
möguleika gefiö á keppni... ekki
frekar en t.d. heimsmeistari i
•skák, sem dregur sig i hlé og
neitarað gefa öðrum tækifæri til
aö vinna titilinn af sér. Viö
skulum til gamans og fróöleiks
fara I gegnum stærstu mótin á
þessu ári.
Til að byrja með er rétt að
hafa i huga ummæli fjölda
frjálsiþróttamanna sem segja,
aö fyrir siöastliöin áramót hafi
Bjarni Stefánsson Olympiufari
ekki sést á einni einustu æfingu.
Eftir áramót sást hann endrum
og eins, en æföi ekki af kappi.
Hunsaði hann öll innanhússmót
i vetur uns kom aö Meistaramóti
Islands innanhúss. Dagblöð
höföu skrifaö um forvitnilegt og
væntanlega spennandi uppgjör
Sigurðar Sigurðssonar og
Bjarna i spretthlaupunum, en
viti menn ... Bjarni veikist
skyndilega og liggur rúmfastur
að eigin sögn á meðan mótiö fer
fram. Mönnum þótti afsökunin
einkennileg... ekki sist vegna
þess að hann sást hinn spræk-
asti á bókamarkaði sama dag
og keppnin fór fram. Svonalitur
þessi staðreynd út, þegar talað
er umbúðalaust.
Aö loknum innanhússmótum
kom vorið meö Vormót 1R fyrst
á dagskrá. Spennandi uppgjör i
vændum en ... Bjarna vantar. 3.
júni kemur annaö stórt mót,
EOP-mótið. Spennandi uppgjör
framundan, en ...Bjarna
vantar. 17. júni rennur upp, og
þá er ab venju haldiö stórt og
mikiö frjálsiþróttamót. Bjarni
hleypur I 200 metrum, spenn-
andi uppgjör framundan i' 100
metrum, en ... Bjarna vantar.
Fimm dögum seinna fara
Reykjavikurleikarnir fram.
Mánuður á eftir aö liða þar til
Ólympiuleikarnir áttu aö fara
fram, menn böröust um hvert
sæti i liðinu sem þangað fór, og
spennandi uppgjör i sprett-
hlaupunum var framundan, en
.. Bjarna vantar. Hann hljóp
aðeins 400 metrana, en tók ekki
þátt i öðrum hlaupum.-
Bjarni fór siöan á OL-leikana
og náöi ekki góöum árangri, en
hann hljóp i 400 og 200 m. hlaupi.
Hann haföi enda ekki lagt jafn
hartað sér eins og keppinautar
hans i Montreal, trúlega haföi
enginn þeirra efni á aö hvila sig
I heilan vetur, abeins nokkrum
mánuöum áðuren leikarnir fóru
fram.
En Bjarni fór til Montreal, og
fylgdu honum aö sjálfsögöu
góöar óskir héöan af Þjóðvilj-
anum sem og annars staöar frá.
Enginn minntist einu orði á þaö
sem hér hefur veriö skrifaö, Þjv
amaðist ekki á nokurn hátt við
vali hans i Olympiuliöið, enda
hefur Bjami á undanförnum
árum gert marga ágæta hluti
sem frjálsiþróttamaöur.
En þegar islenskur Ólympíu-
farisem-hefur hagaö sér eins og
hér hefur verið rakiö, fer á
silungsveiöar á meöan
Meistaramótiö fer fram, veröur
vartorða bundist. Það er ekki i
þaö óendanlega hægt aö kyngja
svona framkomu án þess að
minnast á hana einu orði, og I
grein undirritaös um meistara-
mótiö falla þessi orö:
„Þá var einnig leiöinlegt aö
sjá hve marga toppmenn vant-
aöi (á meistaramótið). Hvar
var t.d. Bjarni Stefánsson???
Hann sést varla á nokkru móti
hér heima, en skokkar bara i
Montreal! Siguröur Sigurðsson
var meiddur, Friörik Þór sömu-
leiöis i þristökkinu, og Stefán
Hallgrimsson var einnig
meiddur. Lilja Guömundsdóttir
keppti aðeins fyrri daginn og
,,... o.s.frv.
Þetta er ástæöan fyrir
kurteislega oröuöu bréfi Bjarna
Stefánssonar sem hann sendi
afrit af til annarra dagblaöa, ef
marka má upplýsingar sem ég
hefi fengið annars staöar frá.
Aðlokum: tslenskir Olympiu-
farar eru valdir úr hópi fjöl-
margra sem þangab vilja
komast og leggja hart að sér til
þess að svo megi verða. Þeir
eiga skyldum að gegna við
iþróttinasem feröast á vegum is-
lenskra iþróttasambanda, og til
litils er að setja upp snúö og
segja að Pétur eða Pál varði
andsk. ekkert um hvernig
iþróttamenn eyða helgum
sinum á meöan stærstu mótin i
hverri grein fara fram.
Vonandi er að vöövakrampi
Bjarna Stefánssonar hafi ekki
verið alvarlegs eölis, a.mJi.
ekki einsslæmur og flensan sem
hann fékk á meðan Meistara-
mótiö innanhúss fór fram.
—gsp