Þjóðviljinn - 13.08.1976, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. ágúst 1976
Sævar
Framhald af bls. 6.
aldrei réttlætt óöruggt atvinnuá-
stand og jafnvel landflótta svo
eitthvað sé nefnt.
Dreifing mannafla.
Hér að framan voru gerðar
nokkrar athugasemdir við aðal-
forsendu skýrslunnar eða þróun
mannaflaframboðsins. Ef þessar
athugasemdir eru réttar mun það
hafa i för með sér vissar og jafn-'
vel verulegar breytingar á spánni
um dreifingu þessa mannafla eft-
ir atvinnugreinum. Hér verður
þvi þó ekki gerð frekari skil,held-
ur aðeins tekin til athugunar sú
dreifing sem kemur fram i spá
nefndarinnar, þó að hún sé ef til
vill byggð á rangri forsendu um
mannafla.
Spáin byggir á tölum um at-
vinnudreifingu mannaflans eftir
slysatryggðum vinnuvikum frá
árinu 1972 og þar á undan. Aö auki
er gengið út frá gefnu mannafla-
framboði 7-8% framleiðni-
aukningu i iðnaði og 3% hagvexti
hvorttveggja á mann og ár. í
þessari spá kemur m.a. fram
eftirfarandi dreifing mannaflans
i mannárum (þúsundir):
Mannaf laskipting (1963-1972) og
mannaflaspá (1975-1990) atvinnugreina.
FRUMVINNSLA: 1963 13.7
—Landbúnaður 9.2
— Fiskveiöar 4.5
ORVINNSLA: 26.0
— Fiskiðnaður 6.7
— Annar iðnaöur 12.1
— Bygg.starfsemi 7.2
ÞJÓNUSTA: 27.9
— Samgöngur 6.5
— Versl.o.viðsk. 11.1
— önnur þjónusta 10.3
Alls: 67.2
1) Aðalspá
1965 1970 1972 1975 1980 1985° 1990
14.2 15.2 14.0 14.0 13.5 12.5 12.5
9.6 9.8 9.0 9.0 8.5 8.0 8.0
4.6 5.4 5.0 5.0 5.0 4.5 4.5
29.1 29.4 32.2 34.2 37.2 38.9 38.9
7.1 6.6 6.8 7.0 7.2 7.5 7.5
13.0 14.1 15.7 16.4 18.0 19.6 19.6
9.0 8.7 9.7 10.8 12.0 11.8 11.8
32.5 36.6 41.0 45.3 51.9 58.3 66.2
7.2 6.9 7.7 8.0 8.5 9.0 10.0
13.2 14.4 16.2 18.0 21.1 23.3 24.1
12.1 15.3 17.1 19.3 22.3 26.0 29.1
75.8 81.2 87.2 93.5 102.6 109.7 117.6
Samkvæmt þessari töflu er
spáð fyrir timabilið 1972-1985:
— 1500 manna fækkun i frum-
vinnslugreinum.
— 6700 manna fjölgun i iönaði
og
— 17300 manna fjölgun i
þjónustustörfum.
t skýringum með spánni er tal-
að um „almennt samband” á
milli aukningar þjóðartekna á
mann og eftirspurnar þjónustu. I
næsta kafla er sýnd mynd, sem á
að sanna þetta samband fyrir 14
OECD-lönd. Eflaust er þetta
samband fyrir hendlen hins veg-
ar segja hvorki myndin né
skýringar með henni neitt um
„operatift” eðli sambandsins.
Myndin sýnir, að þrátt fyrir likar
þjóðartekjur á mann, er eftir-
spurnin mjög mismunandi eftir
löndum. IÞ-nefnd virðist hins
vegar ganga út frá tiltölulega ná-
kvæmu sambandi i sinni spá eða
framreikningi. Væri fróðlegt að
fá nánari vitneskju um eðli þessa
sambands.
Ein af forsendunum fyrir
þessari spá er, að framleiðni i
þjónustugreinum vaxi ekki jafn
fljótt og i vöruframleiðslugrein-
um. Sennilega er þessi forsenda
rétt i sinu almenna orðalagi, en
hversu rétt hún er við islenskar
aðstæður er allt annað mál. Þvi
miður reynir nefndin ekki að
meta framleiðni þjónustu-
greinanna i fyrsta lagi m.v. vöru-
framleiðslugreinarnar og þá
einkum iðnað og i öðru lagi m.v.
framleiðni þjónustugreina i lönd-
um á hliðstæðu hagþróunarstigi
og Island. Hér á undan var gengið
út frá þvi, að framleiðni þjónustu-
greina væri mjög lág. Væru þvi
allmiklir möguleikar til fram-
leiðniaukningar þar sem i iðnað-
inum, sem myndi leysa mikið
vinnuafl af. Hlýtur þetta að hafa
allmikil áhrif á mannafladreif-
inguna.
Hvort spá IÞ-nefndar um
mannafladreifingu „stenst”, er
tiitöiulega auðvelt að prófa. Tii er
fjöldinn allur af reiknilikönum
fyrir slikt vandamál. Hins vegar
virðist einfaldur hlutfalla-
reikningur sýna fram á, að 7-8%
framleiðniaukning bæði i frum-
vinnslu- og úrvinnslugreinum,
muni varla standa undir mann-
aflaaukningu þjónustugreinanna
ásamt 3% aukningu þjóðartekna
á mann og ár (fram til 1985).
Elkem
Framhald af bls. 1
eins og tiðkast i Noregi en I samn-
ingnum við Union Carbide var
gert ráð fyrir endurskoðun á fjög-
urra ára fresti. Þetta kemur
óhagstæðar út fyrir Járnblendifé-
lagið I byrjun, en jafnast út þegar
á heildina er litiö.
Þá var Asgeir að þvi spuröur
hvort Alþingi þyrfti að sam-
þykkja samningana við Elk-
em-Spigerverket?
— Samkvæmt lögunum um
Union Carbide virðist þess ekki
þörf. Þar segir að rikisstjórninni
sé heimilt að semja við Union
Carbide eða annan aðila um
Járnblendiverksmiðju á Grund-
artanga. Að sjálfsögðu eru svo
ýmis ákvæði i aðalsamningi og
aukasamningum, sem eru þess
eðlis, að yrði á þeim stórbreyting-
in, þyrfti málið að koma til kasta
Alþingis. En eins og horfir um
samningageröina veröa engar
stórbreytingar á samningunum.
I samningaumleitununum viö
norðmenn hefur verið gert ráð
fyrir þvi að verksmiöjan taki til
starfa um mitt sumar 1978, og
framleiddi þá 25 þúsund tonn af
ferrosiliconi á ári. Einu og hálfu
ári siðar yrði bætt viö öörum ofni,
sem yrði jafnvel stærri, og yrði þá
ársframleiðslan rúmlega 50 þús-
und tonn á ári. Gert er ráð fýrir
að hlutur Elkem i Járnblendifé-
laginu verði 45%. Aætlaður heild-
arkostnaöur við verksmiðjuna er
nú 445 miljónir norskra króna eða
14.8 miljaröar. Um 180-200 manns
DJOÐVIIIINN
BÍÓ FYRIR
BLAÐBERA
Framvegis mun hver blaðberi Þjóðviljans fá
afhentan aðgöngumiða fyrir tvo að kvik-
myndasýningum í Hafnarbíói. Sýningar verða
kl. 1 eftir hádegi annan laugardag í hverjum
mánuði, nema sú f yrsta, sem verður 21. ágúst
næstkomandi. Vitja má miða á fyrstu sýning-
una til afgreiðslunnar frá og með næsta
mánudegi, 16. ágúst.
öllum blaðberum Þjóðviljans gefst kostur á
þessum sýningum, einnig þeim sem búa utan
Reykjavfkur.
AFGREIÐSLA ÞJÓÐVILJANS
munu vinna við verksmiöjubygg-
inguna.
Asgeir Magnússon sagði f gær
að búast mætti við að fyrsta verk-
ið, undirstöður vinnubúöa á
Grundartanga, yrði boðið út um
næstu mánaðamót.
Skuld
Framhald af 1 siðu
Viö sömu mánaðarlok i fyrra
skuldaði rikissjóður Seölabank-
anum rúma 7,4 miljarða. Um
áramótin siðustu var skuldaupp-
hæðin komin I rétt rúma 12 milj-
arða, en hins vegar var skuldin i
aprillok siðast liðnum 11,9 milj-
arðar.
Tölur þessar eru úr júlihefti
ritsins Hagtölurmánaðarins, sem
Seðlabankinn gefur út mánuð
3. deild
Framhald af bls.io
Fimmtudagur 19. ágúst:
A-riðill: Afturelding — Vikingur
01?
Þórsvöllur kl. 16.00
A-riðill: KS — Þróttur
Þórsvöllur kl. 17.45
B-riðill: Fylkir — Austri/Leikn-
ir
Þórsvöllur kl. 19.30
Föstudagur 20. ágúst:
A-riðill: Vikingur Ól? — Þróttur
N.
Þórsvöllur kl. 16.00
A-riðill: Afturelding — KS
Þórsvöllur kl. 17.45
B-riðill: Reynir — Fylkir
Þórsvöllur kl. 19.00
Laugardagur 21. ágúst:
A-riðill: KS — Vikingur 01?
Þórsvöllur kl. 13.30
A-riðill: Þróttur — Afturelding
Þórsvöllur kl. 15.15
B-riðill: Leiknir / Austri —
Reynir
Þórsvöllur kl. 17.00
Sunnudagur 22. ágúst: Crslit:
3. sæti Akureyrarvöllur kl. 15.00
1. sæti Akureyrarvöllur kl. 16.00
Efsta liðið flyst beint upp i
aðra deild en vegna fjölgunar i
deildum munu tvö næstu lið hins
vegar leika i sérstöku móti gegn
neðsta liðinu i 2. deild og úr þvi
móti munu tvö lið öðlast rétt til
þátttöku i 2. deild. Markahlut-
fall ræður úrslitum i riðla-
keppninni ef tvö lið verða jöfn
að stigum.
— gsp
Ylrækt
Framhald af .
væru mjög bjartsýnir á hag-
kvæmni sliks fyrirtækis.
— Þegar fullvist reynist að
hagkvæmt sé fyrir islendinga aö
reisa ylræktarver á borð við þaö
sem um hefur verið rætt, og flytja
út blóm, þá er kominn timi til að
velta þvi fyrir sér hvert rekstar-
formið eigi að vera, sagöi Svein-
björn. — Hvort um veröur að
ræða rikisfyrirtæki, einkafyrir-
tæki eða sameignarfyrirtæki rlkis
eöa sveitarfélaga og einstaklinga
vitum viö sem sagt ekki, en ég
veit að Reykjavikurborg hefur
sýnt þessu máli mikinn áhuga.
—hm
Sjónvarpið
Framhald af bls. 16
sprengikraft hennar. Siðan er
fylgst með þróun mála sagt frá
smiði fyrstu kjarnorkusprengj-
unnar, framleiðslu á Uran 235 og
plútóníum, sem er klofið og
myndar sprenginguna.
Síðan er sagt frá smiði sprengj-
unnar i Lós Alamos I Nýju Mexikó
undir stjórn dr. Oppenheimers,
og einkar athyglisvert viðtal er
við Edward Teller, sem vann að
smiði kjarnorkusprengjunnar og
hefur verið nefndur faöir vetnis-
sprengjunnar. Þaö er ansi fróö-
legt viðtal og lýsir vel hugmynda-
heimi visindamanns sem vinnur
aö þvi aö gera uppfinningar sem
leitt geta til tortimingar heims-
ins. Skoöanir Tellers eru aðsjálf-
sögðu ekki algildar, en það er
býsna fróðlegt aö kynnast þeim.
— Kemur Island eitthvað við
sögu i þessum þáttum?
— Eins og ég sagði áðan er ég
búinn að skoða þrjá fyrstu þætt-
ina i seriunni, og i þeim þriðja
kemur ísland eitthvað við sögu,
en ég á eftir að þýða þann þátt og
þori þvi ekki að segja á hvern hátt
það er. En svo mikið er vist að
það kemur við sögu, sagði Gylfi
að lokum.
Ekki veit Þjv. hvort þaö er
Nýlega birtust i útvarpi og
blöðum viðtöl við Guðrúnu
Erlendsdóttur formann nýskip-
aös jafnréttisráðs. Þar kom fram
að meöal heistu hlutverka ráðsins
i fyrstu verður að ganga milli bols
oghöfuðs á auglýsingum i blöðum
þar sem atvinnurekendur aug-
lýsa eftir fólki af ákveðnu kyni til
starfa. Slikar auglýsingar eru
bannaðar i löguin um jafnrétti
sem sett voru I vor.
Af þessu vaknaði sú spurning
hvernig ráðið hygöist framfylgja
þessu ákvæði laganna. Hverjir
verða gerðir ábyrgir fyrir kyn-
bundnum auglýsingum, auglýs-
endur eða þeir fjölmiðlar sem
birta auglýsingarnar?
Þessa spurningu lögðum við
fyrir Guðrúnu. Hún kvað ráðið
eiga eftir að ræöa þetta atriði.
Þaö væri ætlast tU þess að blööin
bentu auglýsendum á þetta
ákvæöi laganna, en hugsanlega
yrðu báðir aðilar gerðir ábyrgir.
— Þetta var mikiö rætt i Noregi
þegar sams konar lög voru sett
þar, en niðurstaða fékkst ekki og
málinu visað til stjórnarinnar. En
þetta er allt I deiglunni ennþá hjá
okkur svo ég get litið um það sagt
hvað verður ofaná.
— Er ráðið tekið til starfa?
— Við höfum haldið einn fund
siöan ráðið var skipaðum miðjan
vegna kimnigáfu dagskrárdeild-
ar sjónvarpsins eða af einberri
tilviljun, að næsti liður sjónvarps-
ins á eftir þessum sænska þætti,
heitir Morð eftir uppskrift. En
það er mjög viö hæfi.
— hm.
júli. Eins og stendur erum við að
leita að húsnæði og ætlum að aug-
lýsa eftir framkvæmdastjóra.
Meðan þetta tvennt er ekki fengiö
geta menn snúið sér til okkar i
ráðinu persónulega sagði Guðrún.
I jafnréttisráði rikisins eiga nú
sæti þessir menn: Guðrún
Erlendsdóttir formaður skipuð af
Hæstarétti, Aöalheiður Bjarn-
freðsdóttir skipuð af ASt, Áslaug
Thorlacius skipuð af BSRB, Geir-
þrúöur Bernhöft skipuð af félags-
málaráðherra og Ólafur Jónsson
skipaður af Vinnuveitendasam-
bandinu. Ráðið er skipaö til
þriggja ára.
—ÞH.
Kaupiö bílmerki
Landverndar
Hreint É
^SJand |
fagurt I
land I
LAWDVERND
Tíl sölu hjá ESSO og SHELL
bensínafgreiðslum og skrifstofu
Landverndar Skólavöróustig 25
Flugvélarán mis-
tekst í Istanbul
ISTANBUL 12/8 — Fjórir menn létu lifið og yfir 30 særðust,
þegar palestfnuskæruliðar köstuðu sprengjum og hófu skothrið
að mönnum á flugstöðinni I Istanbul i gærkvöldi. Svo virtist sem
þeir hefðu ætlað að ræna israelskri flugvél frá flugféiaginu E1 Al.
Palestinumennirnir, sem voru að verki, voru tveir og voru þeir
báðir handteknir, en hugsanlegt er að einn þeirra, sem létu lifið,
hafi i rauninni verið i fylgd með þeim.
Fréttamenn telja yfirleitt að þessi árás hafi verið e.k. hefnd
vegna árásar israelsmanna á Entebbe flugvöll, þegar þeim tókst
að leysa aila gisla palestinuskæruliða úr haldi. En árásin virtist
þó óvenju illa skipulögð, þegar á þaö er litið hve miklar öryggis-
reglur eru viðhafðar við brottför israelskra flugvéla. Að sögn
lögreglunnar voru palestinumennirnir I ,,transit”salnum að biða
eftir flugvél til Bagdad, og virtust þeir hafa ætlað að reyna að
komast um borð i israelsku flugvélina á þess að á þeim væri
leitað. Þegar þeir sáu að farið var að leita á farþegunum ákváðu
þeir, samkvæmt talsmarmi tyrknesku lögreglunnar, að kasta
sprengjum sinum. Hins vegar reyndu þeir ekki að taka gisia.
Eftir að palestinumennirnir voru búnir að kasta sprengjunum,
flúðu þeir inn á kvennaklósett i flugstöinni og skiptust þar á
skotum við lögregluna i hálftima. Tyrknesk kvenlögregla, sem
kunni arabisku, samdi að lokum við þá um uppgjöf, og eru þeir
nú i yfirheyrslum. Palestinumennirnir komu frá Libýu til Istan-
bul með viðkomu I Róm og ferðuöust á vegabréfum frá Kuvait,
en að öðru leyti er ekkert um þá vitað.
28 farast í bílslysi
MEXICO BORG 11/8 — Tuttugu og átta menn biðú bana og
sextán aðrir særðust i árekstri, sem varð milli áætlunarbils og
vöruflutningabils i norðurhluta Mexikó, nálægt landamærum
Bandarikjanna.
Ekki afráðið
hvernig á að
framfylgja
lögum um
augkjafnrétti