Þjóðviljinn - 03.09.1976, Page 1
UÚÐVIUINN
Föstudagur 3. september 1976. — 41. árg. —195. tbl.
Engin lausn ennþá
Þjóðviljinn hafði tal af for-
manni verkalýðsfélagsins i
Stykkishólmi, Einari Karlssyni,
um kvöldmatarleytið f gær, og
hafði sjómönnum á skelveiðibát-
uin þaðan þá ekki verið birt nein
tillaga um leiðréttingu á skel-
verði, og falla þvi róðrar niður
þangað til leiðrétting hefur verið
gerð.
Að sögn Einars er ekki ven ja að
róa á föstudögum og laugardög-
um. Hins vegar halda bátarnir
yfirleitt út á sunnudögum, og
sagði Einar að til þess að róðrar
hæfustnk.sunnudag yröiaðleysa
úr málum-i dag eða á morgun.
Sjómenn munu væntanlega halda
með sér fund um málið á morgun.
—úþ
Mengunin og Elkem:
Timman
hélt
jöfnu á
móti
Friðriki
— og hefur þvi
enn örugga
forystu í Reykja-
vikurskákmótinu
Friðrik og Timman vöktu langmesta athygli I gærkvöldi, en skák Gunnars Gunnarssonar var sú
skemmtilegasta. Myndin er tekin viö upphaf áttundu umferöarinnar I gær. Mynd: —eik.
með hálfs
vinnings forskot
og gjörunna
biðskák
Hollendingurinn Timraan
varöist i gærkvöldi öllum
tilraunum Friðriks ólafss., til
að ná vinningi úr viðureign
þeirra, en hennar var beðið með
inikilli eftirvæntingu. Friðrik
þurfti að vinna þessa skák til
þess að komast f efsta sætið
ásamt Timinan.en þrátt fyrir á-
kafar tilraunir gekk dæinið ekki
upp hjá honum. Hollendingur-
inn sá við hverri ráðagerð
Friðriks sem varð þvi að láta
sér lynda jafntefli eftir 22 leiki.
En áttunda umferðin sem
tefld var i gærkvöldi var I heild
sinni fremur fjörlitil. Metað-
sókn var þó að mótinu, hátt i 400
inanns komu til þess að sjá
skákirnar og var ansi þröngt á
þingi og heitt f salnum.
Gunnar Gunnarsson bjargaði
kvöldinu með þvi að tefla stór-
skemmtilega á móti englend-
ingnum Keene og þegar skák
þeirra fór i bið virtist Gunnar
með gjörunnið tafl. A öðrum
vigstöðvum var mikið um jafn-
tefli, en frá .keþpninni i gær-
kvöldi ei;að venju ein siða full af
glænýjum fréttum. gsp
Tveir menn kynna sér
málin í Noregi
Þegar til stóð að bandariska
fyrirtækið Union Carbide reisti og
ræki járnblendivcrksmiðjuna að
Grundartanga, ásamt Islenska
rikinu, var búið að ganga frá öllu
þvisem viðkom mengun frá verk-
smiöjunni, enda þarf UC að
undirgangast afar strangar
mengunarreglur I Bandarikjun-
um. En nú þegar norska fyrir-
tækið Elkem Spicgelverket tekur
sæti UC f Járnblendifclaginu
verður að fara I þessi mál öll
uppá nýtt, enda hafa norðmenn
litt sinnt mengun frá slikum verk-
smiðjum til þessa, en nú er komin
fram i Noregi ný löggjöf um
auknar mengunarvarnir.
Eyjólfur Sæmundsson, hjá
Heilbrigðiseftirliti rikisins, sagði
að heilbrigðiseftirlitið i samráði
við náttúruverndarráð væri sú
stofnun, sem gerði tilögur um
skilyrði fyrir slikum verksmiðju-
rekstri, sem þarna er um að
ræða. Hann sagði að eftir að
skriður komst á viðræður Elkem
og rikisstjórnarinnar um járn-
blendiverksmiðjuna, hefði verið
haldinn fundur með fulltrúa heil-
brigðiseftirlitsins og fulltrúa frá
náttúruverndarráði og fulltrúum
frá Elkem um mengunarvanda-
málið. A þessum fundi fór fram
frumkynning á áætlunum Elkem i
málinu. Þessi fundur fór fram
vegna þess að Járnblendifélagið
þarf að sækja um starfsleyfi til
eftirlitsins.
Eyjólfur sagði það rétt vera, að
tækni Elkem væri að einhverju
leyti frábrugðin UC, en umsókn
um starfsleyfi hefur ekki verið
lögðfram ennþá og þvi ekki ljóst i
smáatriðum hver munurinn er,
en þegar umsóknin er lögð fram
verður lýsing á öllum atriðum
varðandi mengun og mengunar-
varnir að leggjast fram.
Fram til þessa hefur norskur
kisiljárniðnaður ekki beitt nein-
um mengunarvörnum hvað út-
blástur snertir. En þær nýju
Framhald á bls. 14.
Viltu auka skuldirnar og lœkka eignarskattinn?
Þinglýsing y eðskulda
bréfs í eigin hendi!
Ef þú vilt vera skuldun-
um vafinti þegar þú telur
fram til skatts þannig að
þú losnir undan því að
greiða eignaskatt getur þú
gef ið út veðskuldabréf upp
á svo mikla upphæð sem
þér sýnist og látið þinglýsa
þvi og fært siðan upphæð
bréfsins í skuldadálk
skattframtals!
Samkvæmt unplýsingum
borgarfógetaembættisins er
aldrei spurst fyrir um það á þeim
bæ, hvað gera eigi við skuldabréf.
Við spurðum þá eftir þvi hvort
eigandi fasteignar gæti gefið út
skuldabréf, sem tryggt væri meö
veði i eigninni, látið þinglýsa upp-
hæð bréfsins sem áhvilandi
veðskuld, en haldiö bréfinu i eigin
höndum, og fengum það svar að
ekkert væri sliku og þviumliku
uppátæki til fyrirstöðu.
Orðrétt fórust borgarfógeta svo
orð vegna þessarar spurningar:
„Viö höfum engan rétt til þess
að spyrja fólk eftir þvi hvað það
ætlar aö gera við skuldabréf eða
þá peninga, sem það hljóðar upp
á”
—uþ
Þj óðvilj ahúsið
Málarar og aðrir
lagtækir menn
óskast i vinnu við
Þjóðviljahúsið á
morgun, laugardag-
inn 4. sept. Vinna
hefst kl. 9.
Kröfluverð er
svipað og
frá Sigöldu
— Sjá 16. siðu
Likur á
að
Vikingi
verði
breytt í
nóta-
veiðiskip
Talið er að
breytingin kosti
ekki undir 300
miljónum króna
Eigendur togarans Vikings AK,
sem er síðutogari af sömu stærð
og gerð og Sigurður RE, sem
breytt var I nótaskip fyrir tveim-
ur árum eða svo, hafa mikinn hug
á þvi að iáta breyta Vikingi á
saina hátt og Siguröi RE var
breytt með svo góðum árangri,
scm raun ber vitni.
Akvöröun um málið hefur ekki
verið tekin endanlega, en allar
likur benda til þess að af þessu
verði. Yrði breytingin að öllum
likindum látin fara fram i Noregi,
og er talið að hún kosti ekki undir
300 miljónum kr. en tilboð i verkið
liggur ekki fyrir, heldur er hér
um lauslega áætlun að ræða.
Breytingin á Sigurði RE tókst
eins og áður segir mjög vel og
hefur Sigurður RE verið mesta
aflaskip landsins á loönu bæði yfir
veturinn og eins I sumar, en hann
hefur aflað yfir 7 þúsund lestir
það sem af er. Það er þvi ekki
nema von að eigendur Vikings AK
láti breyta skipinu, þar sem það
kemur nú að engu gagni eins og er
sem gamall siðutogari á skut-
togaraöld.
—S.dór
Grjótjötuns-
málið er i
sumarfríi!
Eins og frá hefur veriö skýrt i
blaöinu visaði saksóknari rfkisins
faktúrusvindlmáli þvi, sem heitiö
hefur verið Grjótjötunsmál I al-
memium fréttum, til sakadóms á
nýjan leik fyrir nokkru ineö þvi
loforði, að það yrði tekið til fram-
haldsrannsóknar.
Hraði verður ekki á þeirri
framhaldsrannsókn, þvi sam-
kvæmt upplýsingum frá Saka-
dómi er fulltrúi sá, sem með
framhaldsrannsóknina hefur að
gera og jafnframt vann að frum-
rannsókn i Sakadómi, Erla Jóns-
dóttir, i frii þessa stundina, og
málið þar með!!!
Þá flytur Dagblaðið þá frétt i
gær að samkvæmt ósk stjórnar
Sandskips, sem er hlutafélag
stofnað til reksturs og kaupa á
Grjótjötni, verði félagið tekið til
gjaldþrotaskipta fyrir Skiptarétti
Reykjavikur.
—úþ