Þjóðviljinn - 03.09.1976, Blaðsíða 11
Föstudagur 3. september 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Hermann Gunnarsson skorar sfðara mark sitt i gærkvöldi meö þrumuskoti.
r
Agúst
leikur
með ÍR
í vetur
og Jens Einarsson
kemur aftur i
markið hjá liðinu
Agúst Svavarsson, sem sl.
vetur lék meö sænsku hand-
knattleiksliöi viö gööan orö-
stir, hefur hætt viö aö fara
aftur utan til Sviþjóöar og
ætlar að leika i vetur meö
sinuin gömlu félögum i ÍR.
Það verður áreiöanlega
mikill styrkur aö þvi fyrir IR
aö fá Agúst aftur til sin, enda
hefur hann sjaldan eöa aldrei
verið betri en I fyrravetur og
var koininn i mjög góöa
æfingu þá, þegar er hann fór
frá IR til sænska iiösins.
Þá er einnig ákveðiö aö Jens
Einarsson komi aftur i markiö
hjá IR, en hann hætti i hand-
knattleik i fyrra og gerðist
sjómaöur. Nú mun hann hins-
vegar ætia á iþróttakennara-
skólann og er ætlun IR-inga aö
sækja hann til Laugarvatns i
leikina, eins og mörg önnur
félög hafa gert á liönum árum
þegar sterkir leikmenn hafa
fariö á skólann. —S.dór.
Frjálsíþrótta-
menn
stofna
körfnbolta-
félag
Stofnaö hefur veriö nýtt i-
þróttafélag, Körfuboltafélag
frjálsiþróttainanna, og mun
þaö taka þátt i 3. deildar-
keppninni i körfubolta næsta
vetur. Margir af okkar bestu
frjálsiþróttamönnum ætla aö
verða meö i körfuknattleikn-
urn; má þar til nefna, Hafstein
Jóhannsson úr UMSK, Friörik
Þór úr ÍR, Stefán Jóhannesson
þjálfara Armanns i frjáls-
um og' fleiri og fleiri. Mikiil á-
hugi er á þessu máli hjá frjáls-
iþróttamönnunum, en þaö eina
sem þeir óttast er aö ná of
miklum árangri, komast
kannski uppi 1. deild eftir tvö
ár, en þaö myndi skapa
nokkurt vandamál fyrir þá,
þar sem fr jálsiþróttirnar
veröa áfrain grein númer eitt
hjá þeim öllum.
—S.dór.
Valsmenn tryggðu sér rétt til að leika úrslitaleikinn
Blikarnir keyrðir í
bólakaf í gærkvöldi
Þeir áttu ekkert svar við eldfrískum
sóknarleik valsmanna sem sigruðu
með þremur mörkum gegn engu
Valsmenn keyrðu Breiðablik á
bóiakaf þegar liöin mættust I
Kópavogi i gær. Lcikinn var þá
aukaleikur i undanúrsUtunum og
eftir óskabyrjun i leiknum gáfu
Valsmenn BUkunum engin tæki-
færi á að ná sér á strik. Staðan i
leikhléi var 1-0 og á þremur
minútum i seinni hálfleik skoraöi
Valur tvö mörk til viöbótar og
sigraði verðskuldað 3-0.
Það var fjölmennt á Kópavogs-
vellinum i gærkvöldi og töluverð
stemmning i loftinu þegar liðin
hófu leikinn. Trúlega hefur óska-
byrjun Vals þó skipt sköpum, þeir
skoruðu mark strax á fyrstu
minútunni, og hefúr svo sannar-
lega munað um minna fyrir
knattspyrnulið i erfiðum og
taugatrekkjandi leik.
Hermann Gunnarsson tók þá
aukaspyrnu töluvert fyrir utan
vitateig. Hann skaut sannköliuðu
þrumuskoti að marki og boltinn
þeyttist i netmöskvana efst i
markhornið fjær...beint i vihkil-
inn!! Ólafur Hákonarson stóð
sem frosinn á markh'nunni og
hreyfði hvorki legg né Uð til vam-
ar.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð
jafn. BUkar sóttu að visu ivið
meira, en það voru Valsmenn
sem mku upp öðru hvom og
sköpuðu sér fleiri hættuleg tæki-
færi sem ekki nýttust þó. Á 32.
minútu dæmdi Magnús Pétursson
mark af Valsmönnum sem Guð-
mundur Þorbjörnsson skoraði og
er þvi ekki að neita að mörgum
þótti markið gott og gilt og
dómurinn ansi harður. Magnús
dæmdi brot á Guðmund og var sá
marksækni framherji Vals ekki
yfir sig hrifinn af þeim úrskurði.
í siðari hálfleik tóku Valsmenn
svo leikinn gjörsamlega i sinar
hendur. Þeir léku yfirvegaða
knattspyrnu, létu boltann ganga
og opnuðu BUkavörnina oft iUi-
lega.
2-0 kom siðan á 22. minútu eftir
að mark hafði legið i loftinu lengi,
ekki sist eftir þrjú stórhættuleg
skot Atla Eðvaldssonar. En það
var Guðmundur Þorbjörnsson
sem braust upp vinstri kantinn og
inn með endamörkum á 22.
minútu og gaf þaðan skemmti-
lega til Kristins Björnssonar sem
skoraði af stuttu færi 2-0. Ólafur
markvörður var fimm sentimetr-
um ,,of stuttur” og munaði Utlu
að hann hefði hendur á knettin-
um.
Við þetta mark brotnuðu
Breiðabliksmenn endanlega. 3-0
kom aðeins einni mmútu siöar.
Kristinn Bjömsson stóö i dauða-
færien skaut i þverslá, hver skot-
tilraunin kom eftir það á fætur
annarri uns Hermann sendi bolt-
ann með þrumuskoti i markið.
Sigurinn var innsiglaöur, Valur
hafði tryggt sér rétt til að leika
gegn tA um bikarmeistaratitUinn
og leikmennirnir fögnuðu inni-
lega.
Þeir héldu siðan áfram að
sækja. Mörg dauðafæri áttu eftir
að fara forgörðum áður en leikur-
inn var flautaöur af og varnar-
menn Breiðabliks stóöu gjörsam-
lega á gati. Skæðustu sóknar-
menn Islands sönnuðu heldur bet-
ur hvers þeir eru megnugir er
þeir léku Kópavogsvörnina sund-
ur og saman i gær
Valsmenn léku að þessu sinni
án Tnga Björns og Magnúsar
Bergs sem báðir voru veikir.
Ekki virtist það koma mikið niöur
á heildarsvip liðsins, nóg er
greinilega tU af aukamannskap,
og i heildina kom liðið stórvel frá
þessari viðureign. Hermann
Gunnarsson var besti maður liðs-
ins, hann vann vel og skoraði að
auki tvö dýrmætmörk, einkum þó
hið fyrra sem var meistaralega
gert hjá Hermanni. Betra liðið
vann sigur i gær, sigur sem hefði
eftir gangi leiksins getað oröið
ennþá stærri.
Breiðabliksmenn voru með
Vigni Baldursson i leikbanni. Sá
baráttuvUji og knattspyrnuneisti
sem variliðinuifyrrileik liðanna
i undanúrslitunum, var iUa fjarri
i gærkvöldi. Liðið náði sér aldrei
á strUc, trúlega niðurbrotið eftir
fyrsta markið, og i siöari hálfleilc
fengu BUkarnir ekkert við Vals-
mennina ráðið.
Dómari var Magnús Pétursson.
Heldur flautaði hann mikið á köf 1-
um, og einhvern veginn fannst
manni að Breiðabliksmenn
högnuðust heldur á dómum hans.
—gsp
„Það var dásamlee
tilfinning að skora”
— sagði Hermann Gunnarsson
sem gerði út um leikinn í gœrkvöldi
Hermann Gunnarsson var maðurinn á
bak við stóran sigur Vals i gærkvöldi.
Hann skoraði stórglæsilegt mark beint
úr aukaspyrnu á fyrstu minútu og svo
innsiglaði hann sigurinn i siðari halfleik
með þriðja Vaismarkinu.
— Það var dásamieg tilfinning að
skora svona strax i byrjun, sagði Her-
mann eftir leikinn. — Það var pinulitil
glufa I varnarveggnum þeirra.sem mér
tókstsvona vel að hitta i,og að sjá bolt-
ann enda i samskeytunum var hreinlega
stórkostlegt. Annars voru Blikarnir ekki
eins sterkir og við áttum von á, og þótt
þetta hafi tekið á taugarnar framan af
áttuðum við okkur i seinni hálfleik, fór-
um að láta boltann ganga og gátum
hugsað meira um að spila heldur en úr-
slitin eingöngu.
— Og list þér á úrslitaleikinn?
— Já, já. Auðvitað stefnum við aö þvi
aö sigra tvöfalt i ár, en hvernig svo sem
leikurinn viö skagamenn endar er ég
viss um að þarna munu mætast tvö
skemmtilegustu liðin I Islensku knatt-
spyrnunni þessa dagana. —SSP
„Allt er þegar þrennt er
— nú gengur það”
— segir Jón Gunnlaugsson og líst vel á úrslitin
— Allt er þegar þrennt er... nú hlýtur
dæmið að ganga upp hjá mér, sagði Jón
Gunnlaugsson þegar við hringdum til
hans i gærkvöldi og spurðum álits á úr-
slitunum i lcik Breiðabliks og Vals. —
Mig langaði alltaf aö fá Val i úrslita-
leikinn. Bæði langar mig til að vinna þá
einu sinni, og svo spilar hitt inn I, að tak-
ist það ekki fáum við engu að siöur
evrópukeppni næsta ár út á þriðja sætið
i mótinu. Auk þess verður ineiri stemn-
ing yfir þessum úrslitaleik, Valur —
Akranes, heldur en ef viö hefðum spilað
á móti blikunuin.
— Þiö hafið hjátrúna meö ykkur?
— Nei, ég vil ekkert um þaö segja, ég
hef aldrei trúað neitt á hana. Hitt er svo
annað að okkur hefur gengið illa i úr-
slilaleikjunum og alltaf tapað, en þetta
verður þriðji leikurinn minn i úrslitaleik
Bikarkeppninnar og nú hlýtur þetta
loksins að ganga. —gsp