Þjóðviljinn - 29.09.1976, Page 12

Þjóðviljinn - 29.09.1976, Page 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 29. september 1976 M"m KÓPAVOGUR Bffl Störf við ^ leikskóla Félagsmálastofnun Kópavogskaupstaðar auglýsir eftir starfsfólki við leikskóla sem tekur til starfa siðar á þessu ári: A: Fóstrur B: Aðstoðarfólk við uppeldisstörf. C. Starfsfólk við ræstingar. Laun samkvæmt kjarasamningum starfs- mannafélags Kópavogskaupstaðar. Umsóknum er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum, sé skilað til undirritaðs fyrir 13. október n.k. sem jafnframt veitir nánari upplýsingar á Félagsmálastofnun- inni, Álfhólsvegi 32, simi 41570. Þar liggja og frammi umsóknareyðublöð. Félagsmálastjórinn i Kópavogi. Pro arte galleríið í Stokkhólmi hyggst i nóvembermánuði nk. -halda sýningu á verkum ómenntaðra alþýðu- málara (naivista) frá Norðurlöndum. Þremur til fimm islendingum er boðin þátttaka. Þeir, sem áhuga hafa á þessu máli og telja sig fullnægja ofangreindum skilyrðum, vinsamlegast leggi verk sin inn til mats, til Aðalsteins Ingólfssonar Kjarvalsstöðum fyrir 10. október 1976. Starfsmenn óskast Hitaveita Reykjavikur vill ráða nú þegar tvo starfsmenn — annan við viðhald tenginga innanhúss, hinn til mæla- álestrar. Laun samkvæmt samningum Starfs- mannafélags Reykjavikur og borgar- innar. Upplýsingar á skrifstofu Hitaveitu Reykjavikur, Drápuhlið 14 milli klukkan 10 og 12. Hitaveita Reykjavikur. Til leigu 220 fermetra skrifstofuhæð að Skipholti 3 til leigu frá áramótum. Upplýsingar á skrifstofu VFR og VSÍ Skipholti 3 frá klukkan 13-17. Verkstjórafélag Reykjavikur. Ýtumaður Viljum ráða ýtumann, helst vanan Cat. D8H. Einnig vanan bormann. Simi 81935 Minningarorð: Inga Markúsdóttir Fœdd 23. apríl 1918 — Dáin 8. ágúst 1976 ..Engill Drottins laut þér og leysti þig úr böndum og leiddi þina sái inn Í Drottins helgidóm” Daviö Stefánsson. Þessi fögru orö komu mér i hug, er ég frétti að vinur okkar og kór- félagi i áratugi, frú Inga Markús- dóttir, væri látin. Fullu nafni hét hún Ingileif Guðbjörg Markúsdóttir, en hún var aðeins kölluð Inga Markúsdóttir af öllum er hana þekktu. Andlátsfregnin kom ekki á óvart þótt allir hefðu vonað að hún mætti sigrast á hættulegum sjúkdómi, einnig nú i þetta sinn. En Inga var viðbúin kallinu, þvi svo sannarlega hafði hún mikinn hluta ævi sinnar stað- ið andspænis veikindum, sorg og dauða án þess að bugast. Með manni sinum hafði hún gengið i gegnum fleiri raunir en flestir aðrir er ég þekkti til og sýnt þá staðfestu, dugnað, kærleika og trúnaðartraust. Glaðlyndi og bjartsýni var henni meðfædd, og þvi var eins og ljós hefði slokknað eða hlýr sólargeisli horfið, er hún hvarf héðan úr þessum heimi. Inga Markúsdóttir var fædd á Skáladal i Sléttuhreppi i Norður- ísafjarðarsýslu, dóttir hjónanna Markúsar Finnbjörnssonar út- vegsbónda i Skáladal, en siðar á Sæbóli i Aðalvik og konu hans Herborgar Arnadóttur frá Skála- dal. Hún var ein af 11 systkinum, fjögurþeirra dóu ung, en nú eru á lifi sex þeirra eftir andlát Ingu. öll voru þau systkinin listræn að eðlisfari, söngelsk og tónnæm, og nægir i því sambandi að benda á Ingu sjálfa, systur hennar og bræður og er Sigurður bróðir hennar gott dæmi um það. Hann er prýðilega menntaður tónlistar- maður, tónlistarkennari með afbrigðum góður, og hefur um langt árabil leikið i Sinfóniu- hljómsveit íslands. Þröngt mun hafa verið i búi hjá foreldrum Ingu og hún þvi snemma orðið að láta vinnuna sitja i fyrirrúmi þótt námsgáfur væru ágætar. Eftir fermingaraldur var hún i vist hjá föðurbróður sinum, Finnbirni Finnbjörnssyni málarameistara á Isafirði. Að Tungu i Nauteyr- arhreppi fór hún haustið 1933, en þar bjuggu þá Höskuldur Jónsson bóndi þar og kona hans Petra Guðmundsdóttir, ljósmóðir. Fyrir atbeina hennar fór Inga til Grindavikur, og var hugmyndin að læra að spila á orgel hjá Sigvalda tónskáldi Kaldalóns. Sigvaldi mun hafa verið fljótur að komast að raun um, að Inga hafði frábæra söngrödd, og þenn- an eina vetur, sem hún var við nám hjá Sigvalda, var það eink- um söngurinn, sem námið snerist um. Sigvaldi lét Ingu syngja lög- in sem hann samdi og taka þátt i söngleikjum. Þessi stutti náms- timi hefur verið ómetanlegur fyrir Ingu og söngferil hennar siðan. Eftir þetta lá leið Ingu i húsmæðraskólann á Isafirði. I Tungu voru mannvænleg börn og þar kynntist hún manni sinum Ásgeiri, syni hjónanna I Tungu. Asgeir hafði verið við nám i 3 vet- ur I Menntaskólanum á Akureyri og innritast i stærðfræðideild þar, en hann varð að hætta námi þegar faðir hans lést. Inga hafði aftur á móti verið tvo vetur i Héraðsskól- anum að Reykjanesi við Isafjarðardjúp. Þau Inga og Asgeir giftu sig sumarið 1941 og mun það hafa verið þeirra mesta gæfuspor. Þessi ungu og fróð- leiksfúsu hjón bjuggu á föðurleifð Asgeirs að Tungu um hrið. Siðan voru þau á Kirkjubóli I Nauteyr- arhreppi og að Lundi i Lunda- reykjadal i Borgarfirði, en þar var Ásgeir ráðsmaður bússins. Hjónin höfðu þegar hér var komið sögu eignast 2 börn. Annað barnið dó I fæðingu á Sjúkrahús- inu á Isafiröi, og þegar bruninn mikli varð að Lundi að morgni 9. nóv. 1944 á meðan þau hjónin bjuggu þar, brann inni hitt litla barnið þeirra, Höskuldur Borgar að nafni f. 3.12. 1941, en bæði hjón- in brenndust við að gera tilraun til að bjarga barninu og eigum sinum. Þetta áfall var bæði átakanlegt og sviplegt, en þar sýndu ungu hjónin mikla hetjudáð. Sama ár fluttu þau svo til Reykjavikur eignalaus og særð bæði á sál og likama. Enginn getur sett sig I fótspor þeirra, en áfram var haldið. Asgeir gerðist póstmaður i Rvk. og formaður Póstmannafélags tslands um tima. Meðeigandi minn var hann um nokkur ár að fasteigna- og lögmannsskrifstofunni „Sala og samningar,” en á þeim árum um og eftir 1950, var hún ein af fáum fasteignasölum hér i borg. Inga vann lengst af utan heimilis með heimilisstörfunum svo sem i brauð- og mjólkurbúðum og verslunum og nú fjölmörg siðustu árin sem verslunarmær hjá skrautgripaverslun Hjartar Niel- sen hf. ásamtkórfélaga sinum frú Svölu Nielsen óperusöngkonu, og var þar sem annarsstaðar mikils metin sem nýtur starfskraftur. Þau hjónin Asgeir og Inga áttu ekki fleiri börn saman en áður getur, en löngunin til að eiga barn sótti á þau. Þau tóku þvi og ætt- leiddu sveinbarn sem þau skirðu Asgeir og var hann fæddur 14.4. 1951. En ennþá var dauðinn við dyrnar og þann 15.8. 1951 dó þessi fallegi litli drengur aðeins 4 mán- aða gamall. Ég minnist þess, að þá var mörgum tregt tungu að hræra, Sorgin var alger. Þriðja barn þeirra hjóna var óvænt kallað burt úr þessum heimi. Þá var gott að geta fundið samúð og samhug i hinni miklu djúpu sorg þessara mæddu hjóna. En Drottinn er alls staðar nálægur og veitti þeim sinn styrk. Eftir stuttan tima ætt- leiddu þau tvö börn, sem bæði eru nú á lifi. Asgeir f. 1. 9. 1951 og er nú sjómaður og Höskuldur Borgar f. 29.3 1952 sem er fisktæknir. Asgeir yngri er giftur dóttur Halldórs Jónmundssonar, yfirlögregluþjóns á Isafirði. Eru þau búsett þar og eiga einn son og eina dóttur. Um söngferil Ingu mætti margt skrifa þvi hann er bæði mikill og viðburðarrikur, en hér skal aðeins stiklað á stóru. Inga mun hafa starfað meira og minna i 5 kórum og kirkjukórum. Árið 1947 var skemmtun haldin á vegum Tónlistarfélagskórsins i Breiðfirðingabúð. Þetta var ein af hinum vinsælu kvöldvökum kórsins og var þá einn nýliði i kórnum fenginn til að syngja ein- söng. Mér var kunnugt um hver það var, enda sá ég að einhverju leyti um þá skemmtun. Sjaldan hafði það borið viö að nýliðar kórsins fengust til sliks, en I þetta sinn var það auðsótt. Eftirvænt- ingin var mikil er Inga Markús- dóttir gekk i salinn með söng- stjóranum dr. Victor Urbancic. En Inga var örugg og ákveðin. Með sönglögum sinum söng hún sig inn i hjörtu okkar allra. Hin bjarta og fagra sópranrödd henn- ar naut sin vel i fallegum og til- finningarikum sönglögum eins og „Lindin” eftir Eyþór Stefánsson og „Ég beið þin lengi lengi” eftir dr. Pál tsólfsson. Nýr einsöngvari kórsins var kominn fram. I sigur- för Tónlistarfélagskórsins til Danmerkur sumarið 1948 var hún góður starfskraftur eins og jafn- an siðan, en i þeirri för á Norðurlandasöngmótinu i Kaup- mannahöfn söng frænka hennar, Guðmunda Eliasdóttir óperu- söngkona, einsöng. I ferðalagi Tónlistarfélagskórsins kringum landið sumarið 1951 söng Inga einsöng oft á tiðum, og einnig á fjölmörgum hljómleikum kórs- ins. Við stofnun Þjóðleikhúskórs- ins 9. mars 1953 varð Inga ein af stofnfélögum þess kórs og eft- irsóttur félagi i öllum söngleikj- um kórsins, bæði óperum og óperettum, og ýmsum leikritum, þar sem söngur var ein af uppi- stöðum þeirra. Inga var lika liðtæk sem leikkona, þótt ekki hefði hún lært neitt á þvi sviði. Ég held að lifsreynsla hennar og djúpur skilningur á mannlifinu hafi átt rikan þátt i velgengni hennar á listabrautinni. Fyrir örfáum árum hætti hún að syngja með Þjóðleikhúskórnum, en söng siðustu árin i kirkjukór sinnar sóknar, Langholtskirkjukórnum. Aður hafði hún sungið lengi i öðr- um kirkjukór, Hallgrimskirkju- kórnum, og veitt þar eins og annarsstaðar ómetanlega aðstoð. Um 26 ára skeið höfum við Inga sungið saman i tveimur króum, Tónlistarfélagskórnum og Þjóð- leikhúskórnum. A þessu timabili, svo og hin siðustu ár var Inga oft mikið veik, og hafði gengið undir marga uppskurði, en eigi látið bugast og söngur hennar var jafn fagur sem forðum. Sem félagi I söngkórum var hún einstök, hár- viss, nákvæm, prúð og samvisku- söm. Það var gott að leika á móti henni i söngleikjum, þvi hún skildi sitt hlutverk til fulls og einbeitti sér við hvaðeina stórt og smátt. Að þvi leyti var hún einnig til fyrirmyndar. Hún var minnis- stæður persónuleiki, hafði hlýtt og gott viðmót, var tilfinninga- næm en þó sterk, og sterkust er mest reið á. Hún var einlægur vinur vina sinna, mátti ekki aumt sjá og með afbrigðum fórnfús og kærleiksrik. Fáa hefi ég hitt er höfðu meiri og dýpri skilning á högum og lifi samborgara sinna. Lifið hafði verið henni þungur skóli. En út úr þeim skóla kom hún fordómalaus, heilsteypt og sterk með rika kærleikslund til allra þeirra er bágt áttu. Af þess- um ástæðum verður hún okkur öllum sem með henni störfuðu i söng eða þekktum heimili hennar ógleymanleg. Inga andaðist 8. ágúst s.l., var kvödd hér i Fossvogskirkju 18. ágúst, en jarðsett að Melgraseyri i Nauteyrarhreppi 21. ágúst s.l. hjá sonum sinum. Og með henni var settur i kistu hennar sonur hennar Ásgeir er dó 15.8. 1951. Samkvæmt ósk hennar hafði lik hans verið grafið upp og flutt i kistu hennar. Að Melgraseyri hvlla nú jarðneskar leifar Ingu og þriggja sona henn- ar. Sjálf er hún eins og þeir komin yfir móðuna miklu sem hún svo oft söng um i kirkjum sinum, til hinna himnesku bústaða, til áframhaldandi kærleiksstarfs á landi lifenda. Þjóðleikhúskórinn þakkar henni mikil og fórnfús söng- málastörf allt frá stofnun kórsins, og sjálfur þakka ég bæði sem for- maður kórsins og persónulega áratuga vináttu og ógleymanlegt samstarf öll þessi ár, um leið og ég færi eiginmanni hennar og vini minum Asgeiri Höskuldssyni, börnum, barnabörnum, systkin- um hennar og öðrum ástvinum mina dýpstu samúð. Minningin um góðan vin lifir þótt maðurinn deyi. Far þú i friði. Friður Guös þig blessi. Haf þú þökk fyrir allt og allt. Þorsteinn Sveinsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.