Þjóðviljinn - 02.10.1976, Page 3
Laugardagur 2. október 1976 ÞJÓÐVIUINN — SIÐA 3
Þetta bandarlska starfsfólk vinnur I birgðageymslum hersins, en þar vinna hátt I þrjú hundruð fsiend-
ingar auk bandarlsku starfsmannanna, sem eru rúmlega eitt hundrað og fimmtlu talsins.
i fyrradag buðu forráðamenn
bandarlska hersetuliðsins blaða-
mönnum að lita á herstöðina,
taka myndir eins og hvern mann
lysti og spyrja alira þeirra spurn-
inga sem hugsanlega væri hægt
að láta sér detta I hug.
Ákveðið var að þekkjast þetta
boð I þeim tilgangi að ná myndum
af öllu þvi sem fyrir augu bæri og
var Ijósmyndari sendur á vett-
vang. Er þó skemmst frá þvf að
segja að fátt og raunar ekkert
verulega markvert var látiðbera
fyriraugu blaðamannanna og hið
eina sem bitastætt var hafði verið
falið á bak við svört pappaspjöld
þar sem það var að sögn blaða-
fulltrúanna „algjört hernaðar-
leydarmál”.
Ekki var þó gott að hylja heilu
flugvélarnar með pappaspjöldum
og þegar um svo stórgerð
leyndarmál var að ræða voru
myndatökur einfaldlega bannað-
ar. Þannig voru blaðamenn
teymdir á milli þriggja eða
fjögurra staða á mettima, allt fal-
ið sem áhugavert var og síðan
boðið til veislu á eftir, þar sem
hægtvaraðræða við æðstu menn.
Við spurningum um t.d. kjarn-
orkuvopn, neðansjávardufl o.fl.
þ.h. fengust engin svör og var
viðkvæðið ávallt hið sama: „Ég
er bara hermaður og má ekki
svara svona spurningum nema
með leyfi æðri manna. Þú verður
að snúa þér til sendiráðsins eða
annarra slikra aðila”.
Hálf var hún þvi snubbótt þessi
heimsókn og að mati Þjv. er ekki
ástæða tU að tiunda þær tækninýj-
ungar sem voru á borð bornar
fyrir blaðamenn i þessari ferð,
sem fyrst og fremst var hugsuð til
þess að auka kynni blaðamanna
og yfirmanna hersins. SSP
Biskup dæmdur
í tíu ára fangelsi
UMTALI, Hódesiu, 1/10 (Reuter)
— Kaþólski biskupinn af Umtali I
Ródesiu, Donald Lamont, var I
dag dæmdur i tiu ára fangelsi
fyrir að láta undir höfuð leggjast
að skýra frá ferðum skæruliða.
Lamont biskup, sem er 65 ára
að aldri, viðurkenndi það sem
hann var ákærður fyrir og sagðist
einnig hafa hvatt aðra til að gera
það sama. Hann lét ekki i ljós
neinar tilfinningar þegar dómur-
inn var lesinn upp og sagðist
myndu áfrýja honum, Var hann
ekki settur i varðhald.
Þetta mál hlaust af þvi að
svartir skæruliðar heimsóttu trú-
boðsstöð I grennd við landamæri
Hœttir boxi
fyrir Allah
ISTANBUL 1/10 (Reuter) —
Múhameð Ali, heims-
meistari i þungavigt, til-
kynnti i Istanbul i dag, að
hann myndi nú hætta allri
þátttöku i hnefaleikaiþrótt-
inni og verj£t öllum starfs-
kröftum sinum i þágu
Múhameðstrúar.
Heimsmeistarinn gaf
þessa yfirlýsingu á blaða-
mannafundi, sem hann hélt
eftir hinn umdeilda sigur
sinn yfir Ken Norton i New
York á þriðjudaginn.
í gærkvöldi sagði Ali
fréttamönnum i London að
hann ætlaði a.m.k. að keppa
einu sinni enn, gegn George
Foreman áður en hann drægi
sig í hlé. Nú sagðist hann
hins vegar ætla að draga sig
alveg i hlé vegna trúar-
bragða sinna.
Mósambik og báðu um aö fá fæði
og annan útbúnað til aðstoðar i
baráttunni við hvitu minnihluta-
stjórnina. Viðurkenndi Lamont
biskup að honum hefði verið
kunnugt um þessar heimsóknir og
hefði hann sagt nunnum i trú-
boðsstöðinni að láta ekkert uppi
um þær.
Lamont biskup er fæddur á tr-
landi, en hann hefur dvalist i
Ródesiu i þrjátiu ár. Hann er yfir-
lýstur andstæðingur kynþátta-
stefnu hvitu minnihlutastjórnar-
Tel aviv 1 /10 (Reuter) —
Israelskur herréttur, sem sat I
dag fyrir luktum dyrum, úrskurð-
aði að Israelskur herforingi hefði
gert sig sekan um manndráp á
vesturbakka Jórdan I mars, að
sögn talsmanna hersins. Var
hann ákærður fyrir að hafa valdið
dauða arabisks kommúnista, sem
herinn hafði tekið fastan. Dómur
verður kveðinn upp i næstu viku.
Talsmenn hersins i Nablus
vildu ekki gefa upp nafn herfor
ingjans. Sögðu þeir að herréttur-
inn hefði kveðið upp þann úrskurð
að hann væri sekur um dauða
innar, og sagði hann réttinum að
kristin trú hans og hlýðni við
stjórnina I þessum efnum gæti
ekki farið saman.
Strax og dómurinn yfir
biskupnum fréttist, mótmælti
páfastóll honum harðlega. Sagði
blaðafulltrúi páfastóls að dómur-
inn bryti i bága við meginreglur
réttlætis og mannúðar. Málgagn
Vatikansins L’Osservatore
romano, lauk miklu lofsorði á
Lamont biskup.
Ahmed Dib Dahlul, yfirmanns
deildar kommúnistaflokksins i
þorpinu Salfit á vesturbakka
Jórdan, meðan óeirðir araba á
þessum slóðum stóðu yfir i mars i
vor. Dahlul var einn af sjö
arabiskum föngum, sem var ver-
iðað flytja frá heimaþorpi sinu til
yrirheyrslu i nærliggjandi her-
búðum. A leiðinni var hann látinn
sæta barsmið og dó hann siðar af
völdum meiðslanna.
Aður en réttarhöldin fóru fram
sögðu talsmenn hersins i Tel Aviv
að rannsókn hefði leitt i Ijós að
'i'ramhald a bls. 14.
Þess sjást nú mörg merki aö svertingjar I Ródesiu — eða Zimbabwe
eins og þeir kalla landiö —• eru að búa sig undir að fá stjórn landsins f
sinar hendur, og vilja þeir standa sem best að vigi þegar til þess kem-
ur.
F imdinn sekur
um manndráp
Vií wcj'Ý '
Erlendar
fréttir í stuttu
máli
Misheppnað bankarán
BRUSSEL 1/10 (Reuter) —
Fimm vopnuðum mönnum
tókst að komast undan lög-
reglunni með þvi að skýla sér
á bak við tvo gisla eftir
misheppnað bankarán i
Brussel. Einn náðist þó
skömmu siöar.
Ræningjarnir gengu inn i
aðalsetur „Lloyda Bank
Europe” skömmu eftir kl. átta
i morgun að staöartima og
neyddu þá starfsmenn bank-
ans, sem voru mættir til
vinnu, að leggjast á gólfið.
Slðan heimtuðu þeir lykilinn
að peningageymslu bankans
og börðu gjaldkerann i höfuðið
meö byssuskepti, þegar hann
sagðist ekki hafa lykilinn
undir höndum.
En einn af starfsmönnum
bankans, sem var aö koma til
vinnu sinnar, sá hvaö um var
að vera og gaf hættumerki.
Lögreglan fom þegar á vett-
vang, en ræningjarnir tóku tvo
gisla og komust fjórir þeirra
upp i bifreið, sem beið eftir
þeim, en sá fimmti flúði upp á
þakiðá listasafni borgarinnar,
sem þar var i grenndinni. Lög-
reglan umkringdi bygginguna
þegar i stað, en þegar hún
komst upp á þakið var fugl-
inrtfloginn. Hinir fjórir slepptu
gislunum og yfirgáfu bifreið
sina skömmu stðar og komust
þrir undan, en sá fjórði var
siðan handtekinn i útjaðri
borgarinnar skammt frá
hraðbrautinni til Parisar.
Harðnandi átök i Ródesiu
SALISBURY 1/10 (Reuter) —
Talsmenn Ródesiuhers skýrðu
frá þvi I dag aö herinn hefði
fellt 28 skæruliða I bardaga,
sem virðist hafa orðiö I grennd
við landamæri Ródesiu og
Mósambik. Þessi orrusta sýn-
ir að þrátt fyrir áætlanir um
að koma á meirihlutastjórn
svertingja i Ródesiu á
friösamlegan hátt heldur
skæruhernaðurinn stöðugt
áfram. Þessi tala fallinna er
hin hæsta sem birt hefur verið
eftir einn einstakan bardaga I
Ródesiu, og gæti það bent til
þess að nú fari átökin harðn-
andi.
I Botswana, sem er eitt af
nágrannarikjum Ródeslu,
komu andstæðir leiðtogar
þjóðernissinna saman til fund-
ar til að reyna að skapa ein-
ingu meðal þjóðernissinna
áður en ráðstefnan, sem bret-
ar hafa kallað saman til að
ræða um myndun bráða-
birgðastjórnar i Ródesiu,
getur hafist. Leiðtogarnir
tveir, Joshua Nkoko og Abel
Muzorewa biskup, ræddust
ekki við nema i hálfa klukku-
stund, en þeir lýstu þvi báðir
yfir að þeir myndu halda
viðræðunum áfram i Aalis-
bury innan skamms. Hingað
til hefur sundrung þjóöernis-
sinna i Ródesiu gert þeim
örðugt fyrir. Bæði bardaginn
við landamæri Mósambik og
fundurinn i Botswana bendir
til þess að afstaða þjóðernis-
sinna sé að harðna og þeir séu
að búa svo i haginn að staða
þeirra verði sem sterkust,
þegar bráðabirgðastjórn
verður mynduð.
Likfundur við Grenoble
GRENOBLE 1/10 (Reuter) —
Frönsk lögregla fann I dag I
grennd við Grenoble lik ungs
manns og ungrar konu, sem
rænt var i júni. Mun hún hafa
fundið likin eftir nafnlausri til-
vlsun.
Þegar þessu fólki, Christian
Leroy 25. ára og Murielle
Ferrari 21 árs, var rænt i júni,
tilkynntu ræningjarnir eða
ræninginn að „hópur 666 úr
rauðu herdeildinni”” stæðu á
bak við ránið og jafnframt var
sett fram krafa um 350
miljóna franka lausnargjald.
Þetta háa lausnargjald gerði
lögregluna þó mjög tor-
tryggna og héldu ýmsir að
þetta kynni að vera einhver
brella. I júli var svo konu
einni, Olgu Moissenko, rænt og
tilkynntu ræningjarnir að þeir
væru félagar i þessum sama
hóp og kröfðust 750 þúsund
franka i lausnargjald. Eftir
likfundinn i dag hefur lög-
reglan miklar áhyggjur af lifi
Olgu Moissenko. Talið er lik-
legast að þessi mannsrán sé
verk geðveiks manns.
Vill heirnta aftur greiðsl-
una til leigumorðingjans
SAN BERNARDINO,
Kaliforniu, 1/10 (Reuter) —
Læknir nokkur, sem hefur
veriö dæmdur fyrir að leigja
sér morðingja til að drepa
konuna sina, krefst nú réttar-
úrskurðar til að fá aftur 1000
dollara, sem hann borgaði
„morðingjanum” I fyrirfram-
greiðslu.
Dr John Wener, sem er 37
ára gamall og sérfræðingur i
röntgenlækningum, var fund-
inn sekur um þaö 31. ágúst að
hafa farið fram á það viö
leynilögreglumann einn að
hann myrti konuna hans og
léti morðið lita út eins og slys.
Aldrei varð neitt af morðinu
og var Werner dæmdur i 2000
dollara sekt og þúsund dollara
fyrirframgreiðslan var gerð
upptæk sem sönnunargagn i
málinu.
En nú hefur dr. Werner
höfðað mál gegn yfirvöldum i
San Bernardino og heimtar
hann að fá þúsund dollarana
aftur á þeim forsendum að
lögum samkvæmt beri að
skila eigandanum aftur öllum
sönnunargögnum um leið og
málinu er lokið.
Werner fékk mildan dóm,
þviað þeim hjónabandserjum,
sem hann átti i um það leyti,
sem hann gerði morðáætlun-
ina var lokið þegar hann kom
fyrir rétt, og var hann þá orð-
inn fullsáttur við konu sina
aftur.