Þjóðviljinn - 12.10.1976, Side 1

Þjóðviljinn - 12.10.1976, Side 1
ÞJOÐVILJINN Þriðjudagur 12. október 1976—41. árg. 228. tbl. Línubátar byrjaðir róðra á ísafirði: Hver áhöfn hefur samið fyrir sig Þrír linubátar eru byrjaöir róðra frá isafirði og hefur hver áhöfn samið fyrir sig og þvi cru misjöfn kjör á þess- um þremur bátum. Á tveim- ur þeirra róa sjómenn uppá 29,2% skiptaprósentu en i staðinn beita þeir aðeins 8 bala i stað 8 1/2 bala áður en á þriðja bátnum fengu sjó- menn þau kjör sem þeir fóru fram á, eða 31% skiptapró- sentu, að sögn Féturs Sigurðssonar formanns Ál- þýðusambands Vestfjaröa er við ræddum við hann I gær. A Patreksfirði eru allir bátar farnir að róa og róa þar flestir uppá 30% skipta- prósehtu en nokkrir uppá 29,5% skiptaprósentu. En þeir sem róa uppá lægri skiptaprósentuna hafa fengið loforð um að fá hækk- un, ef um semdist almennt, en Pétur taldi að ekki gæti orðið um neitt slikt að ræða. Bolvikingar segjast ekki hreyfa sig fyrir minna en 30% skiptaprósentu og þar stendur allt fast enn svo og á Táknafirði, en þar neita sjó- menn að semja um minna en 30%. Hinsvegar hefur það valdið nokkurri óánægju þar, að landmenn hafa beitt i akkorði og komist upp i 240 þúsund kr. mánaðarlaun á meðan háseti á sama bát hefur kannski ekki nema 100 þúsund kr. En semsagt, þróunin virðist ætla að verða sú að hver áhöfn semji fyrir sig, en allir sem samið hafa eru langt yfir þeirri skiptapró- sentu, sem bráðabirgÖalögin gerðu ráð fyrir. —S.dór Vestmannaeyjar: Mikil sam- staða með sjómönnum Elias Björnsson i Vestmanna- eyjum hafði samband við blaðið og sagði, að mikil samstaða væri f Eyjum meðsjómönnum i baráttu þeirra fyrir rétti sinum og undir- skriftasöfnunin þeim til stuðnings gengi ágætlega. Hann sagöi, aö undirskriftir skiptu hundruðum nú þegar og væru menn fegnir að geta sýnt þannig i verki stuöning sinn. Verkakvennafélagið Snót i Vestmannaeyjum gerði eftir- farandi samþykktir á fundi 7. okt. s.l. Framhald á bls. 14. Þessi mynd var tekin af Gils Guðmundssyni og Magnúsi Kjartanssyni á Alþingi i gær, en Magnús tók þar nú sæti á ný. Alþingi kom saman í gœr Alþingi íslendinga kom saman i gær. Forseti ís- lands, doktor Kristján Eld- járn setti þingið með ávarpi, sem Þjóðviljinn birtir á 7. síðu í dag. Er forseti Islands hafði sett þingið og ávarpað þingheim bað hann al- þingismenn að rísa úr sætum og minnast fóstur- jarðarinnar. Var það gert með ferföldu húrrahrópi. Þvi næst bað forseti tsiands aldursforsetann i hópi alþingis- manna að taka við fundarstjórn, en það er Guðlaugur Gislason þriðji þingmaður Suðurlands. Guðlaugur Gislason flutti siðan minningarorð um tvo fyrrverandi alþingismenn, er látist höfðu frá þvi þingi var slitið i vor, en það voru þeir Alfreð Gislason, fyrr- verandi bæjarfógeti i Keflavik og Birgir Kjaran. Þjóðviljinn mun siðar birta minningarorö aldurs- forseta. Að svo búnu var þingfundi frestað en i dag fer fram forseta- kjör á Alþingi. Allir alþingismenn voru mættir til þings i gær, nema Matthias Á. Mathiesen, fjármálaráðherra, sem mun vera erlendis. Magnús Kjartansson, alþingis- maður, sem ekki sat á þingi siðastliðinn vetur vegna veikinda, tók nú á ný sæti sitt á alþingi. Atvinnuleysi í Ólafsvík SJA BAKSIÐU IBM seiiist tii áhrifa SJA BAKSIÐU Þing BSRB: Y erðhækkun 150%. Kauphækkun 40-70% SJA BAKSIÐU Ríkisstjórnin: Biður um hjálp til að vinna á verðbólgunni Rikisstjórin hefur ákveðið að fara þess á leit við nokkra aðila að þeir tilnefni fulltrúa i nefnd til þess að gera tillögur til að draga úr verðbólgu. Samkvæmt frétt frá forsætisráðuneytinu I gær, er verkcfni nefndar þessarar tvi- þætt: 1. Að kanna horfur i verðlags- málum á næstu misserum og greina ástæður verðhækkana sem orðið hafa og orsakir verðbólg- unnar undanfarin ár. 2. Að gera tillögur um ráð- stafanir til að draga úr verðbólg- unni. „Tillögur þessar skulu taka mið af þvi að þau markmið sem sett eru á þessu sviði þarf að vega og meta við hlið annárra mark- miða stefnunnar i efnahagsmál- um, svo sem jafnvægis i utan- rikisviðskiptum og fullrar at- vinnu.” Þá segir i tilkynningu rikis- stjórnarinnar: „Rikisstjórnin tel- ur mikilvægt að sem flest sjónar- mið komi fram i starfi nefndar- innar og fer þvi þess á leit við aðila vinnumarkaðarins og þing- flokkana að þeir nefi menn i nefndina, auk þess mun rikis- Framhald á bls. 14. Grundar- Mtm Útgerðarmenn óttast manneklu sopar ao sér vinnuafli: Mjög erfitt að fá karlmenn í fiskvinnu um þessar mundir Þótt framkvæmdir við járn- blendiverksmiðjuna að Grund- artanga séu enn ekki komnar i fullan gang, er þegar fariö að örla á þvi hjá útgerðarfyrir- tækjum á Akranesi að erfitt sé að fá karlmenn I fiskvinnu og að sögn Haraldar Sturlaugssonar framkvæmdastjóra HB & Co á Akranesi hefur sjaldan eða aldrei verið jafn vont að fá kari- menn i fiskvinnu og nú i haust. Haraldur sagði að fisk- vinnslufyrirtækin og útgeröar- fyrirtækin á Akranesi, sem eru og hafa lengi verið undirstöðu- atvinnuvegur i þeim bæ, ótt- uðust mjög að ástandið ætti eftir að versna þegar framkvæmdir við Grundartangaverksmiðjuna ykjust. Þó er það von manna að vegna þessara framkvæmda flytjist eitthvað af fólki til Akra- ness, en slikt myndi slaka nokk- uð á spennunni og væri þá auð- veldara að fá fólk i fiskvinnslu. Sem kunnugt er fá menn greidd mun hærri laun við framkvæmdir á borð viö Grundartangaframkvæmdirnar en mögulegt er fyrir fisk- vinnslufyrirtækin að greiða og þvi er samkeppnisaðstaða þeirra nánast engin, ekki sist þegar um slikt nábýli er að ræöa sem Grundartangaverksmiðjan og Akranesbær verða að búa viö. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.