Þjóðviljinn - 12.10.1976, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 12. október 1976
Sigurðnr Jóhannsson
y egamálast j óri
I dag verður gerð útför Sigurð-
ar Jóhannssonar vega-
málastjóra. Vinátta okkar
Sigurðar hefur staðið i fjóra ára-
tugi og var lengi mjög náin. Við
kynntumst i menntaskóla á
kreppuárunum fyrirstrið. Þá var
erfitt fyrir skólafólk að fá
sumaratvinnu, en faðir Sigurðar,
Jóhann Hjörleifsson yfirverk-
stjóri, hafði þann hátt á að ráða
jafnan hóp skólapilta i vinnu-
flokka sina. Þannig komst ég i
vegavinnu á Holtavörðuheiði á-
samt Sigurði og mörgum skóla-
piltum öðrum. Við höfðum þar
holla og ánægjulega vist, stung-
um hnausa, fluttum þá á hest-
vögnum i vegarstæðið, skárum
sniddu, hlóðum kanta (þeir sem
höfðu listræna hæfileika) og flutt-
um sand, innan um vætti lands-
ins, og Tröllakirkja gnæfði yfir
okkur. Sigurður fór til náms i
Danmörku ári á undan mér, og
hann útvegaði mér vist á
pensjónati sem islendingar lögðu
smátt og smátt undir sig, svo aö
það varö að lokum eins og
islenskur stúdentagarður. Viö
lokuðumst inni i Danmörku,
þegar þýsku nasistarnir her-
námu meginhluta Vestur-
evrópu. Þá urðu viðbrögð
islendinga þau að auka samheldni
sina með öllum tiltækum ráðum.
Stúdentafélagið beitt sér fyrir þvi
að haldnar voru kvöldvökur sem
allir landar i Höfn áttu kost á að
sækja, en þeim stjórnuðu menn
sem kunnu öðrum beturtilverka,
dr. Jakob Benediktsson og Jón
Helgason prófessor. Við gáfum út
söngbók sem notuð var á kvöld-
vökum þessum, og þær urðu ein-
hverjar ánægjulegustu samkom-
ur sem ég hef veriö á, ævinlega
mjög fjölsóttar, og þeir Jón og
Jakob opnuðu fyrir okkur brunna
islenskrar menningar frá öllum
öldum. Þessi starfsemi var bund-
in við Kaupmannahöfn, en við
hugsuðum senn hærra. Stúdenta-
félagið réðst i að gefa út timarit,
Frón, sem ná skyldi til allra
islendinga sem lokast höfðu inni í
ógnarveldi nasista. Forustumenn
þessa timarits voru þeir Jón
Helgason og Jakob Benedikts-
son, en við stúdentarnir
lögðum þvi lið eins og máttum.í
öllu þessu menningarstarfi var
hlutur Sigurðar Jóhannssonar
mikill, hann var um skeið for-
maöur stúdentafélagsins og hann
annaðist fjárreiður Fróns af mik-
illi prýði aUt til loka. Ég kynntist
eölisþáttum Sigurðar mjög vel á
þessum árum. Hann stundaði
nám sitt af mikilli kostgæfni og
átti auðvelt með það. En hann
gætti þess vandlega að loka sig
ekki inni á einu sviði, hann fylgd-
ist með atburðarásinni umhverfis
sig, las mikið góðar bókmenntir
Fœddur 16. mars 1918
Dáinn 2. október 1976
og hafði yndi af sigildri tónlist.
Þau áhugamál entust honum til
æviloka.
Atvikin höguðu þvi svo að við
Sigurður komumst báðir yfir til
Sviþjóðar 1943 og dvöldumst sam-
an i Stokkhómi um eins árs skeið.
Einnig þar var mikið félagslif
með islendingum. Ég hafði þá
stofnað heimili og við hjónin höfð-
um mikla ánægju af þvi að landar
okkar komu oft í heimsókn; i þeim
hópi var Sigurður Jóhannsson
jafnan. Þessi nánu persónulegu
kynni héldust eftir heimkomuna
til íslands, m.a. fórum við i sam-
völdum hópi i páskaferðalög um
jökla og öræfi i nokkur ár og var
Sigurður þar hinn besti ferða-
félagi, glaðvær og úrræðagóður
En höguðu atvikin þvi svo að þeg-
ar Sigurður kvæntist Stefaníu
Guðnadóttur stofnuðu þau fyrsta
heimili sitt i húsinu þar sem við
hjónin áttum heimá'; það var
ánægjulegt að fylgjast með þvi
hvað þau Sigurður og Stefania
áttu vel skap saman.
Þessar linur sem ég hef skrifað
eru allt persónulegar minningar,
þærhafa sópastað mér eftir að ég
frétti um hið sviplega andlátSig-
urðar langt fyrir aldur fram. í
raun eiga allir islendingar per-
sónulegar minningar um Sigurð,
einnig þeir sem aldrei hittu hann.
Þegar hann kom heim eftir strið
tók hann til við þau verk sem við
unnum á Holtavörðuheiði forðum,
gerðist verkfræðingur hjá Vega-
gerð rikisins og varð vegamála-
stjóri 1956. Mér hafa sagt menn
sem ég tel dómbæra að undir yfir-
stjórn hans hafi Vegagerð rfkisins
orðið eitthvert best rekna fyrir-
tæki á íslandi. Hann hafði glögga
yfirsýn yfir stórt verksvið, hann
kunni að velja sér góða sam-
verkamenn og hafði þann hátt á
að láta þá vinna á sjálfstæöan
hátt að verkefnum sinum. Vega-
gerðinni hefur einnig haldist bet-
ur á hæfu starfsfólki en flestum
stofnunum öðrum. Sigurður hafði
mikla samvinnu við alþingi um
gerð vegaáætlana, og ég hygg að
það sé samdóma álit allra sem
tekið hafa þátt i þeim störfum að
undirbúningur hans hafi verið
með sönnum ágætum. Á 1100 ára
afmæli Islandsbyggðar fékk
Vegagerðin það verkefni að
leggja veg um Skeiðarársand
Húsbyggjendur
Verktakar
Höfum til leigu
mótahreinsivél
Og
rafknúnar járnaklippur.
oaökca
Laugavegi 178 simi 38000
sunnan Vatnajökuls og tengja
þannig hringveg um landið. Það
var vandasamt verk og krafðist
mikillar fyrirhyggju. En hjá
Vegagerðinni stóðust allar
áætlanir, jafnt um framkvæmda-
hraða sem kostnað. Það er góður
þegn sem skilur eftir sig slikan
minnisvarða.
Við hjónin sendum Stefaníu
bestu kveðjur i dag og einnig
Skúla syni þeirra hjóna, en þeir
feðgarnir voru mjög samrýmdir.
A kveðjustund eru orð fátækleg.
Minningunum fylgir einnig sárs-
aukiennþá,en þær munu halda á-
fram að lifa og eiga eftir að ylja
og gleðja.
Magnús Kjartansson
„Minir vinir fara fjöld”. í dag
er kvaddur einn hinn traustasti og
tryggasti þeirra, Sigurður Jó-
hannsson, vegamálastjóri.
Ég kynntist Sigurði fyrst, lifs-
glöðum, aðlaðandi ungum stúdent
á leið yfir Atlantsála til náms við
Verkfræðiháskólann i Kaup-
mannahöfn. Þetta var á þeim
timum, fyrir heimsstyrjöldina
aðra, þegar þriðja farrýmið á
Gullfossi gamla og lest á Brúar-
fossi voru eftirsótt pláss af stú-
dentum. Nánari urðu kynni okkar
i Sviþjóð á styrjaldarárunum, en
þangað flúði Sigurður frá Dan-
mörku 1942 og vann siðan i Stokk-
hólmi, aðallega að mig minnir hjá
Almanna Ingeniörsbyran, þar til
við urðum samferða heim i all-
viðburðarikri ferð með Lýru sið-
asta styrjaldarveturinn. Siðan
höfum við haft margt saman að
sælda og þá einkum i stjórn
Ferðafélags Islands siðustu ára-
tugina.
Sigurði Jóhannssyni mun
snemma hafa orðið ofarlega i
huga að gerast vegaverk-
fræðingur. Faðir hans, Jóhann
Hjörleifsson var vegaverkstjóri,
annálaður fyrir vandvirkni og
snyrtimennsku i vegagerð. Eftir
heimkomuna 1945 réðst Sigurður
til þáverandi vegamálastjóra
Geirs Zoéga, og hafði starfað þar
i áratug er hann tók við af honum.
Það var áreiðanlega ekki heigl-
um hent að setjast i sæti Geirs
Zoéga, sem var aðsópsmikill em-
bættismaður af gamla skólanum
og embættið eitt af þeim virtustu
og umsvifamestu i landinu. En
Geir Zogga vissi hvað hann gerði*
er hann eftir áratuga reynslu af
Sigurði Jóhannssyni sem sam-
starfsmanni, mælti með honum
sem eftirmanni sinum. Flestir
munu og á einu máli um það að
Sigurður hafi rækt þetta
ábyrgðarmikla embætti af sér-
stakri prýði og mjög til fyrir-
myndar. Hér verður ekki rakið
nánar starf hans að vegamálum,
né fjallað um önnur þau mikils-
verð störf, sem á hann hlóðust,
utan eitt, sem segja má að hann
hafi einnig, þótt með óbeinum
hætti væri erft eftir Geir Zoega.
Sigurður var kosinn i stjórn
Ferðafélags íslands 1959 og
tveimur árum siðar á aðalfundi
félagsins 19. desember 1961, var
hann kosinn forseti þess og hafði
gegnt þvi starfi i hálfan annan
áratug er hann féll frá. Reyndist
stórn hans þessu stóra félagi
heilladrjúg, eins og vænta mátti.
Hann bar hag þess mjög fyrir
brjósti og stjórnaði þvi af rögg-
semi, festu og framsýni, þá best
er mest á reyndi, trúr hugsjónum
frumherja þess. Er félaginu nú
mikill vandi á höndum, þvi þar er
nú opið skarð sem erfitt verður að
fylla. Fyrir hönd Ferðafélagsins,
sér i lagi stjórnar þess, flyt ég
Sigurði Jóhannssyni hugheilar
þakkir fyrir frábært starf félag-
inu til heilla.
Fjölskylda min og ég þökkum
honum af hjarta trygga vináttu.
Við vottum Stefaniu hans og
einkasyninum, Skúla, inniiega
samúð okkar og geymum þakklát
minninguna um mikilhæfan
drengskaparmann.
Sigurður Þórarinsson
Sigurður Jóhannss., vega-
málastjóri fæddist á Hofstöðum i
Miklaholtshr. 16. marz 1918. For-
eldrar hans voru Jóhann Hjör-
leifsson vegaverkstjóri og 'kona
hans Sigriður Sigurðardóttir.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum i Reykjavik
1937 og sigldi að þvi loknu til
Kaupmannahafnar og nam bygg-
ingaverkfræði. Lauk Sigurður
prófi i þeirri grein frá Danmarks
tekniske höjskoie árið 1942. Þetta
var i miðju striðinu og óhægt um
heimför. Næstu árin vann hann að
verkfræðistörfum i Danmörku og
Sviþjóð, en kom heim þegar strið-
inu létti og réðst þá'til Vegagerð-
ar rikisins, þar sem hann starfaði
til æviloka. Þegar Geir G. ZoBga
lét af störfum vegamálastjóra,
var Sigurður skipaður i sæti hans
árið 1956. Brátt hlóðst á hann
fjöldi aukastarfa og seta i marg-
vislegum nefndum og ráðum á
vegum hins opinbera og einka-
samtaka. Kvæntur var Sigurður
Stefaniu Guðnadóttur, mikilli at-
gerfiskonu, og áttu þau einn son,
Skúla að nafni, nemanda i
menntaskóla.
Um mitt sumar kenndi Sig-
urður veilu fyrir hjarta, en virtist
kominn á góðan bataveg og var
hinn hressasti, þegar hann brá
sér snögga ferð til Færeyja ásamt
konu sinni. En sú ferð varð hin
siðasta, þvi að þar varð hann
bráðkvaddur að morgni laugar-
dagsins 2. október.
Um þátt Sigurðar að vega-
málum mun ég ekki ræða, til þess
skortir mig þekkingu bæði á verk-
efninu sjálfu og hvernig hæfir að
standa að þvi og halda um stjórn-
taumana. Þann þátt i ævistarfi
hans munu aðrir kunnugri rekja
að verkalokum. Hitt er hverjum
manni augljóst, að vegamálum
þokaði fram um drjugan áfanga,
meðan Sigurður sat þar við stýri.
Takmarkið er að visu enn langt
undan, en hefur þó færst góðum
spöl nær. Ekki hvarflar þó að mér
að eigna Sigurði hér annað og
meira en leiðsögn og forystu.
Þjóðfélagslegar aðstæður og
bættur fjárhagur siðustu ára-
tugina er þar auðvitað snarasti
þátturinn.
Fundum okkar Sigurðar bar
fyrst saman sumarið 1945, þegar
hann kom heim frá námi og störf-
um erlendis. Kynni okkar urðu þó
ekki náin næstu árin. Það var
ekki fyrr en leiðir okkar lágu
saman i stjórn Ferðafélags Is-
lands, að þau jukust til muna og
héldust, meðan samfylgd entist.
Hann lét sér annt um hag og gengi
félagsins og átti gildan þátt i að
greiða úr málum þess, ekki sist á
opinberum vettvangi, enda hafði
hann mörgum betri aðstöðu til
þess að beita sér á þvi sviði.
Sigurður var skapfestumaður,
einbeittur og fylginn sér að
hverju sem hann gekk, og fundum
stjórnaði hann af röggsemi og
lipurð. Traustur var hann og
sanngjarn i ályktunum ef vanda
bar að höndum eins og stundum
vill verða. Samskipti okkar voru
öll á þá leið, að ég mat hann þvi
meira, sem kynni okkar urðu
lengri og nánari.
En nú er komið að kveðjustund
og eftir er aðeins að votta konu
hans, syni og öðrum aðstand-
endum fátæklega samúð.
Haraldur Sigurðsson.
W
Félag járniðnaðarmanna
F élagsf undur
verður haldinn fimmtudaginn 14. okt. 1976
Kl. 8.30 e.h. í Félagsheimili Kópavogs,
niðri.
1. Félagsmál
2. Kosning fulltrúa á 7. þing Málm og
skipasmíðasambands Islands
3. Önnur mál
4. ólafur R. Einarsson sagnfræðingur
ræðir um afdrifarikan atburð úr stétta-
baráttuni.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
1=0
□a
BANDALAG HASKÓLAMANNA
Ríkisstarfsmenn BHM
Almennur fundur um kjaramálin verður haldinn í Glæsi-
bæ, þriðjudaginn 12. október kl. 13.30. Aríðandi að allir
mæti.
Launamálaráð BHM