Þjóðviljinn - 12.10.1976, Side 7

Þjóðviljinn - 12.10.1976, Side 7
Þriðjudagur 12. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 ADAQSieRA Mörg er mælistikan I ágústbyrjun i sumar las ég litla grein i Morgunblaðinu eftir Grétu Sigfúsdóttur rithöfund. Þar gerði Gréta aö umræðuefni sinu kynningu á islenskum bók- menntum sem haldin var I Norrænahúsinu fyrr um sumar- ið. Framsögumaður eða fyrir- lesari var Sigurður A. Magnús- son. Átaldi Gréta þar harölega hefðbundið mat „sænsku mafiunnar” á bókmenntum og listum. Þess skal getið að kynn- ingin var fyrir skandinafa á Islandi. Nú skal þess getið að mig skiptir óendanlega litlu máli hvaö sviar eða aðrir skandinafarhugsa um islenskar bókmenntir. Vera kann að ein- hverjir þar i landi gætu haft af þvi nokkra ánægju að lesa sér þar til, jafnvel gagn. Hitt skiptir mig aftur meira máli hversu endalaust er hægt að fimbulfamba um list og bók- menntir, jafnvel af þeim sem telja sig bæði frjálslynda og vinstrisnnaöa. Grein Grétu varð mérþvi ekkisvohugstæð sökum þess að hún kæmi þar hælkrók afturfyrir báða á Sigurð A. heldur vegna þess að hún beitti þar gæðamati sem þvi miður f á- irnota þegar þeir taka að mæla spaklega um andleg verðmæti. Þessum linum minum er þvl fyrst og fremst ætlað að vera viðbót viö það sem Gréta drap á I sinni ágætu grein. Snorri karlinn Sturluson bar sér aldrei orðið list I munn svo vitað sé, nema i merkingunni „list og vél”, þ.e. klókindi, brögö eða kunnáttusemi. Þar með slapp hann I sinum bók- menntaskrifum við þá hörmu- legu blindgötu að rembast við að leggja mat á eitthvað ákaf- lega merkilegt, næstum yfir- náttúrulegt og óhöndlanlegt. Þegar aftur spakvitrir menn á 20 öld hófu afskipti af bók- menntum og listum, þá lá þeim ekki síður mikið á hjarta en Snorra karlinum, en þeirra viðfangsefni var þó annaö,eitt- hvað svo óendanlega háleitt og óhöndlanlegt, að orðum var sjaldnast komiö við nema þá þeim orðum sem bera óskýra og annkanalega merkingu. Mest hefur borið á slikum málflutn- ingi I blaðaskrifum og útvarps- og sjónvarpsumræðum og hefur þar margur verið tilkvaddur. Háskólar okkar daga framleiða menn þessarar speki og eru þeir oft m eð ólikindum f ær ir I að tala og skrifa gáfulega um listir og bókmenntir. Þessir menn hlutu nafnið menningarvitar á 6. tug. þessarar aldar. Ekki vil ég taka undir þann ófagra söng sem um þá hefur verið sunginn, en þeim hefur m.a. veriö borið á brýn að hafa fælt allan þorra læsra Islendinga frá „góðum bókum” þar sem sérhver venjuleg manneskja finni ákaft til smæð- ar sinnar hvert sinn er hún tek- ur sér viðurkennda bók I hönd. Þetta er áreiðanlega röng álykt- un, enda hefur sennilega aldrei verið lesið meira á landinu en nú. Hitt er svo annað mál og menningarvitunum óskylt, að lestrarsmekkur hefur breyst allverulega, einnig það að gleggri skil eru á milli lesenda einstakra bókmenntategunda. Og þar er komið aö þvl sem flestir bókmenntaumsagnar- menn og fyrirlesarar veigra sér við að nefna og nota sem skýr- ingaraðferð á einstök tilfelli, nefnil. þvi að við lifum I þjóð- félagi sem stöðugt verður stétt- skiptara og stéttskiptara, þar sem æ gleggri skil verða á milli rlkra og fátækra, útvalinna og útskúfaðra. Bókmenntir eða listir eru nefnilega ekki bara „góðar” eða bara „vondar”, þær eru góðar og vondar á ein- hverriákveöinniforsendu, og sú forsenda er mismunandi eftir þvi hvaða stétt sá tilheyrir sem les eða nýtur. Það er m.ö.o. hægt aö nota margvlslegar mælistikur á gæðin. Menningar- vitarnirnotast gjarnan við þann kvarða sem þeim hefur yerið kennt að nota i skólagöngu sinni, þ.e. kvarða vitsmunanna, þvi meir af harðvitugum flækju- böndum fræðikenninga sem hægt er að heimfæra upp á ein- stöku persónur bóka (t.d. Freudisminn á sinum tima) þvl betri er bókin. Sé hún reist á einhverri heimspekistefnu eða hagfræðikerfi þá er það til marks um gæði hennar hvort höfundi hefur tekist vel eða illa að flétta fræðunum saman viö efnið. Þetta á við I flestum til- vikum nema ef höfundur hefur áberandi marxiska söguskoðun. Þá fyrirfinnast margir, og flest- ir menntaöir og aldir upp við frjálshyggjusjónarmið vest- rænna háskóla, sem leggja óhikaö á hana þann dóm að hún sé bæði vond og vitlaus. Eitt frægasta dæmi um dáleika menningarvita á vitsmunaleg- um bókmenntum er sú mikla dýrkun sem fagurkerar bókmenntanna lögðu á bækur James Joyce um miðja öldina og gera kannski enn. Og þar kemur stéttlægt eðli mælistik- unnar hvað best I ljós. James Joyce er flestum heilbrigðum mönnum svo gjörsamleja óskiljanlegur að þeir fleygja honum frá sér með angist og hrolli eftir fyrstu tilraun. Þeir sem aftur á móti hafa haft til þess tima og peninga að liggja yfir honum timunum saman og hlusta á lærða ritskýrendur ausa af skálum visku sinnar, þeir una gíaðir við þann lestur og þykir fátt merkilegt á eftir. James Joyce er þvi dæmigert yfirstéttarfyrirbrigði, á sama tima og Alister McLean og Agata Christy eru bókmenntir yfirspenntrar og taugabilaðrar borgarastéttar. Enn gleggri verða þessi skilþegar „neysla” kvikmynda er skouð. Streitu- strekkt borgarastétt sem lifir og hrærist I hugarheimi eignarétt- arins sækist eðlilega eftir að sjá drauma sina rætast, — þótt ekki sé nema á tjaldinu. Þjófurinn sem ógnar eignaréttarhug- myndinni hann fær makleg málagjöld, hetjan sem er hörð og töff, lemur, sparkar og stundum drepur þjófinn hún er góð og gild. Sá stóri hópur aðdá- enda þannig kvikmynda og bók- mennta leggur engan mæli- kvarða á það hvort persónur verksins stjórnast af dulvituð- um, freudiskum sálflækjum, eða þá dialektiskum forsendum, — það sem hann metur fyrst og fremst og metur mikils er það að dæmiö gengur upp miðað við þann hugarheim sem hann lifir og hrærist i. Þegar svo „sænska mafian” metur ritverk Svövu Jakobsdóttur eða Thors Vilhjálmssonar góð og merki- leg, — en gefur sklt I Jón Björnsson, þá er það ekki vegna þess aö Svava og Thor séu betri rithöfundar miðað við algildan mælikvarða listarinnar, heldur einfaldlega vegna þess að þau, eða þeirra ritverk, falla eins og Böðvar Guðmundsson. Eftir Böövar Guðmundsson, menntaskóla- kennara á Akureyri flls við rass að þeim hugarheimi sem sá lifir i sem drekkur af skálum yfirstéttarmenntunar i Sviariki. Til að fyrirbyggja all- an misskilning er ég ekki að leggja dóm á þá þrjá rithöfunda sem ég tók sem dæmi, þau Svövu, Thor og Jón, þvert á móti, — ég er að reyna að skýra fyrir mér og öðrum afhverju islenskir menningarvitar bregðast stundum viö á einstak- lega ergilegan hátt. Ég vil einn- ig leyfa mér að tilfæra önnur dæmi. Frægt er enn það uppþot sem varð þegar Halldór Laxness skrifaði Sjálfstætt fólk. Þeir sem lifðu I hugarheimi sjálfseignabóndans ætluðu af göflum að ganga við lestur hennar, gerðu jafnvel frægar samþykktir. Jafnvel niður- brotnir baslarar og fátæktar- menn ærðust þegar þeim var sagt á eftirminnilegan hátt að stríð þeirra væri vonlaust, draumurinn um sjálfseign og sjálfstæði væri hillingin ein sem aldrei kæmi niður á jörðina. Hins vegar hrópuöu sömu menn fimmhundraðfalt húrra fyrir Sturlu I Vogum, enda hvatti hún til þess að halda baslinu áfram I von um betri tlð, eins og stund- um hendir á hvitatjaldinu. Eftir að Halldór Laxness gerðist sið- daufur blekbóndi og fór aö kynna islenskri borgarastétt dásemdir austurlenskrar dul- hyggju hefur hins vegar kveðið við annan tón. „Þetta er taó” — segja menn alls hugar fegnir, þegar þeir finna „farveg alls sem er” I skrifinu. Og: „Þetta er áreiðanlega taó,” segja sömu menn þegar enginn botnar lengur I blekbónda. Sú var einn- ig tlð, að Guðrún gamla frá Lundi var vegin og mæld á mælistiku yfirstéttarlærdóms i sænskum og vesturheimskum háskólum. Gamlakonan reynd- ist ótrúlega létt og litilfjörleg þegar menn lögðu frá sér kvarð- ann. Einhverra hluta vegna náði hún þó útbreiðslu og vinsældum sem einsdæmi er i bókaheimi á Islandi. En hún hefur aldrei svo ég viti komist I skandinafiskar antólóglur, eng- inn hefur reynt að þýða gömlu konuna eða kynna hana i fyrir- lestri fyrir erlenda gesti. Mér berst i hendur norskt timarit sem ber nafnið Dikt og Datt. í einu þeirra er mikil kynning á islenskum bókmennt- um fyrir skandínafa eftir Ólaf Hauk Simonarson. Þar standa m.a þessi gagnmerku orð: Það sem fyrst og fremst einkennir islenskt menningarlif og list er ejnangrun og nærsýni (mangel pa perspektiver). Ekki veit ég hvort Ólafur hefur ætlað sér að leggja þarna neikvæðan eða já- kvæðan dóm á islenskt menn- ingarlif, kannski fræðilegan, en alla vega kemur það ekki fram frá hverju islenskir rithöfundar og listafólk hefur einangrast svo mjög. Er það kannski einangrun frá franski kaffihúsamenningu 19. aldarinnar, eða frá sænskum háskólum? Eða á hann kannski við þá einangrun sem ein getur verið hættuleg fyrir rithöfund, einangrun hans frá öllum þjóðfélagsstéttum, arðræningj- um, borgarastétt og öreygum? Það þætti heldur léleg fyrir- greiðsla á ferðaskrifstofu ef túristi ræki þar inn nefið og spyröi hversu langt væri frá Reykjavik til Geysis I Hauka- dal, ef afgreiðslufólk segði: „Tvöhundruö” — og ekkert meir. Væntanlega mundi túrist- inn spyrja hvort það væru tvöhundruð metrar, álnir. kiló- metrar eða milur, jafnvel senti- metrar. Það væri þvi ekki úr vegi að biðja „sænsku mafiuna” og aðra menningarvita um að segja frá hvaða kvarða þeir nota þegar þeir vega og meta, hvort heldur er fyrir dagblaða- lesendur eöa skandlnafa á islandsreisu. Og það er ástæðu- laust að æðrast þótt framlagið reynist létt á metum ef vitað er um kvarðann sem notaður er, nema auðvitað fyrir þá sem eru að skrifa upp á kvarðann. Eng- inn róttækur rithöfundur þarf til dæmis að æðrast þótt hann sé léttvægur fundinn I ritdómum Mogga, Dagblaði eða Visi, — sá rithöfundur sem veit um sænsku mælistikuna ætti lika að geta sofið rótt þótt hún mæli skref hans stutt og reikul. Ávarp forseta íslands, doktors Kristjáns Eldjárns, við setningu Alþingis í gær Enn seturíslenska þjóöin traust sitt á forustu og forsjá Alþingis Mér er ljúft að bjóða alla al- þingismenn velkomna til starfa á nýju þingi. Sagt er aö fyrr á tið hafi þingsetningardagur jafnan vakið talsverða athygli I bæjarlif- inu hér i Reykjavík. Nú hafa menn stundum á orði að honum sé litill gaumur gefinn, enda sé það að vonum þar sem landsmenn láti sig yfirleitt lftið varða um Alþingi og störf þess. Þetta á að vera til marks um að vegur Alþingis fari þverrandi með þjóðinni. Um þetta er þó erfitt að dæma með öruggri vissu en margt virðist mér benda til að slik ummæli eigi ekki við rök að styðjast. Menn eru ósparir á að gagnrýna allt og alla, og Alþingi fer ekki varhluta i þvi efni. Til gagnrýni hafa menn rétt, eða allt að þvi skyldu, er stundum sagt, i lýðfrjálsu landi. En gagn- rýni er ekki sama og óvirðing eða fordæming. Og það er ekki heldur sérstakt nútimafyrirbrigði að menn segi Alþingi til syndanna. I þingsetningarpredikun árið 1925 var afstöðu almennings lýst á þessa lund orðrétt: „Alþingi verður fyrir þungum áfellisdóm- um. Varla heyrist nokkur maður leggja þvl liðsyrði sem þar fer fram.” Þannig stóðu málin þá, ef taka mætti þessi stóru orð bókstaflega. Ætla mætti að sú stofnun væri komin að fótum fram sem ætti sér ekki formælendur fleirien hér er lýst. En siðan þessi orð voru mælt i sjálfri dómkirkjunni hafa lands- menn nú i hálfa öld haldiö áfram að kjósa fulltrúa slna til Alþingis, oftast með miklum áhuga og at- fylgi, og sýna þeim traust til að fara með málefni sin þar. Jafn- framt er þá i verki sýndur skilningur á grundvallarþýðingu Alþingis i þjóðlifi voru. Þetta ætla ég að gefi sanna mynd af stöðu þingsins i vitund þjóðarinnar ef þörf væri á að minna á jafnsjálf- sagðan hlut i grónu lýðræðis- og þingræðisþjóðfélagi eins og þvi sem vér búum i. Hvað sem öllum dagdómum liður bæði fyrr og nú er það stað- reynd að islenska þjóðin hefur ætið sett traust sitt á for- ustu og forsjá Alþingis um mál sin, og hún gerir það enn. Þess vegna fer sá dagur þegar þing- iö kemur saman að nýju eft- ir nokkurt hlé, þingsetningardag- urinn, ekki fram hjá þeim sem um þjóðmál hugsa, og þeir eru margir. Þvert á móti er nú hingað hugsað i dag og þess beðið með eftirvæntingu hversu skipast um lausn þeirra vanda- mála sem nú knýja á. Þvi að ekki þarf að fara i grafgötur um að fyrir hverju nýju þingi liggja mörg og vandasöm úrlausnar- efni. Þess er að minnast að siðasta þing hófst á þeim örlaga- tima þegar óséð var hvernig oss reiddi af i átökunum um fiskimið- in kringum landið. Sá háski er nú liðinn hjá, vonandi fyrir fullt og allt. Þökk sé öllum sem átt hafa góðan hlut að þeirri lausn. Nú gefst Alþingi og rikisstjórn meira svigrúm til að snúast með óskiptari kröftum við öðrum mál- um sem ráða þarf fram úr. Þar munu allir þættir efnahagsmála verða efstir á blaði. Gera má ráö fyrir að athygli þjóðarinnar muni nú mjög beinast að þvi hversu tekst að finna þar færar leiðir. Sú er vissulega ósk og von allra landsmanna við upphaf þessa þings, að i þeim efnum megi giftusamlega til takast. Undir það vil ég taka af einlægum huga. Eg býð yður heila til þings komna. Doktor Kristján Eldjárn, forseti tslands flytur ávarp sitt Megi störf yðar verða landi og lýð til farsældar I hvivetna. Að svo mæltu bið ég þingheim að minnast fósturjarðarinnar með þvi að risa úr sætum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.