Þjóðviljinn - 12.10.1976, Page 11
Þriðjudagur 12. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Armenningurinn fyrrverandi, Jens Jensson, hefur misst einn eldkláran hornamann þjóöverja inn fyrir
og til varnar er Guðjón Erlendsson einn i markinu, sem stóð sig mjög vel einkum i fyrri hálfleik.
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í KÖRFUBOLTA
KR-ingar skelltu meisturunum
KR-ingar unnu sanngjarnan
sigur yfir tvöföldum meisturum
Armanns frá i fyrra i Reykja-
vikurmótinu i körfu og skoruðu 71
stig gegn 63 hjá ármenningum.
Armenningar tóku forustuna i
leiknum, en hægt og sigandi unnu
KR-ingarnir hana upp og endaði
leikurinn með sigri þeirra.
Besti maður KR liðsins var án
efa Einar „gamli” Boilason sem
nú leikur með liðinu aftur eftir
nokkurra ára hlé. A hann að
koma i stað „Trukksins” Carters
og fyllir Einar vel það skarð sem
hann skildi eftir sig. Auðséð var
að hann hefur engu gleymt og
voru menn að ræða aö hann ætti
heima i landsliðinu, svo góður
væri hann. Aðrir i liðinu voru
einnig góðir og virðist það ætla að
bera góðan árangur hversu
snemma liðið byrjaði að æfa fyrir
þetta keppnistimabil.
Ármannsliðið er i ágætis æf-
ingu, en auðséð er að það er i
miklu mannskapshællæri, hafa
ágætist byrjunarlið, en litið af
skiptimönnum og verður erfitt
fyrir þá að vinna þrefalt eins og
þeir ætla sér i vetur. Jón Sig. og
Jimmy Rogers voru að venju
bestu menn liðsins.
Stigahæstir KR-inga: Einar og
Kolbeinn Pálsson 19 hvor og
Bjarni Jóhannesson 17.
Hæstir Armenninga: Jimmy 22,
Jón Sig. 16 og Jón Björgvinsson
. 15. G. J óh.
Elías meö frábært
met í fimmtarþraut
Elias Sveinsson bætti um
helgina sautján ára gamalt
tslandsmet Björgvins Hólm I
fimmtarþraut, sem sett var
árið 1959.
Og Elias gerði raunar betur
en aö bæta metið þvi hann náði
frábærum árangri og fékk
3.533 stig, eða 66 stigum meira
en metið hjá Björgvini. Um
leið hefur Elias skipaö sér á
bekk með allra bestu
fimmtarþrautarmönnum á
Norðurlöndunum.
Árangur hans um helgina
varð þessi: Langstökk 6.53
metrar, spjótkast 60.84 metr-
ar, 200 m. hlaut 23.1 sekúnda,
kringlukast 46.07 metrar og
1500 m. hlaup 4.42.2 min.
—gsp-
Da nkersen
sigraði í
daufum leik
Framarar léku góöa vörn með
Guöjón frábæran í markinu
Þórir og
unnu ÍR-
Þórir Magnússon og félagar
hans i Val sigruöu Reykjavikur-
meistarana f körfubolta frá þvl I
fyrra i mfl. karla, lR-inga, með 74
stigum gegn 69. Valsmenn voru
með sitt sterkasta lið, en ÍR-ingar
voru án fyrirliðans frá þvi I fyrra,
Kristins Jörundssonar. Valsar-
arnir tóku forustu i leiknum og
var það ekki fyrr en undir lok
fyrri hálfleiks að tR-ingarnir
náðu að jafna, i hálfleik voru þeir
einu stigi yfir, 33—32.
1 seinni hálfleik höföu IR-
ingarnir svo forustuna allt fram á
siðustu 3 minúturnar, en þá tóku
valsararnir góðan sprett og sigr-
uðu eins og fyrr segir. 74-69.
Sem fyrrsegir voru valsararnir
með sitt sterkasta lið i þessum
leik. Þeir hafa nú endurheimt
Jóhannes Magnússon, bróður
Þóris, en hann var frá i allan
fyrravetur vegna veikinda. Er
hann nú aö komast i góða æfingu
og á eflaust eftir að vera mjög
góður i vetur. Annar mjög góður
leikmaður lék meö þeim i þessum
leik, en það var Kristján Agúst-
son, sem áður lék með Snæfelli úr
Stykkishólmi, en hann skipti um
félag I haust. Hann átti einnig
mjög góðan leik og styrkir koma
hans liöiö mikið og spái ég liðinu
einu af efstu sætum mótsins i ár.
Hinir leikmenn liðsins eru og
einnig i góðri þjálfun, mun betri
en i fyrra.
IR-liðið hefur misst tvo menn
frá þvi i fyrra, Birgi Jakobsson,
Agnar Friöriksson og Kristinn
Jörundsson sem er ekki á landinu
sem stendur og hefur heyrst að
félagar
inga
hann ætli sér ekki að vera með i
vetur, en ekki fengist staðfesting
á þvi. Einn leikmaður hefur geng-
ið yfir i IR i haust, en það er Jón
Pálsson, sem lék meö 2. deildar
liðiÞórsá Akureyriifyrra. Koma
hans styrkir liðið mikið og i leikn-
Framhald á bls. 14.
Úrslit í
fyrstu
leikjum
Fyrstu leikirnir i Reykjavikur-
mótinu i körfubolta fóru fram á
fimmtudagskvöldið siöasta og
léku þá fyrst ÍR og IS i mfl.
kvenna. Lauk leiknum með sigri
IR, 33-30, en staðan i hálfleik var
21-7 fyrir stúdinur.
Ármann og ÍS léku fyrsta leik-
inn i mfl. karla og sigruðu
ármenningarnir 77-69, eftir
spennandi og tvisýnan leik.
Jimmy Rogers skoraði 28 stig
fyrir Armann, en Jón Sig. 15 og
fyrir IS skoruðu mest þeir Ingi
Stefánsson 19 og Bjarni Gunnar 18
stig.
KR-ingar sigruðu siðan fram-
ara auðveldlega 83-66, eftir aö
hafa haft 46-26 yfir i hálfleik.
Einar Bollason var stigahæstur
KR-inga með 16 stig, en Kolbeinn
Pálsson kom næstur með 12 stig.
Helgi Valdemarsson var lang-
hæstur framara með 31 stig.
G.Jóh.
Elias setti stórgott tslandsmct I fimmtarþraut.
Dankersen með þá ölaf Jóns-
son og Axel Axelsson innanborðs,
sigraði gestgjafa sina úr Fram i
gærkvöldi með fjórtán mörkum
gegn ellefu i daufum leik, þar sem
markversla Guðjóns Erlendsson-
ar var nánast hið eina sem upp úr
stóð. I leikhléi var staðan jöfn,
5:5, en i upphafi siðari hálfleiks
náði Fram forystunni, 6:5, en i
upphafi siðari hálfleiks náði
Fram forystunni, 6:5 og var það i
eina skiptið sem islendingarnir
höfðu yfirhöndina.
Trúlega hafa þeir fáu áhorfend-
ur, sem mættu i Laugardalshöll-
ina i gærkvöldi, orðið fyrir nokkr-
um vonbrigðum meö leikinn og þá
einkum frammistöðu Dankersen.
Liðið lék að þvi er virtist langt
undir fullri getu, leikmennirnir,
sem allir voru sterkir og stæðileg-
ir, tóku litið á og ógnuöu aldrei af
verulegri grimmd. I vörninni léku
þeir að sama skapi alls ekki fast
og er með öllu óskiljanlegt hvers
vegna dómararnir, þeir Björn
Kristjánsson og Oli Ölsen,
sendu þá út af i tveggja til fimm
minútna hvildir i jafn rikum mæli
og raun bar vitni.
Þannig var Axeli Axelssyni,
sem lék þó af stakri prúð-
mennsku, vikið af leikvelli i sam-
tals sjö minútur og tveir félagar
hans fengu tveggja mlnútna
hvild. Enginn frammari fékk hins
vegar brottvisun af velli, en vörn-
in var þó áberandi betri hluti liðs-
ins með Guðjón i markinu sem
aðalmann.
Andrés Bridde skoraði mest
fyrirFram, eða fimm mörk sam-
tals, en aðrir markaskorarar
voru þeir Jens 2, Arnar 2, Guð-
mundur 1 og Arni 1. Fyrir
Dankersen skoruðu: Bernhard
Busch 8, Dieter Waltke 2, Hans
Kramer 1, Gerd Becker 1, Axel
Axelsson log Úlafur H. Jónsson 1.
Fremur litið bar á islensku
leikmönnum Dankersen að þessu
sinni. ólafur var að venju traust-
ur i vörninni en beitti sér litið i
sókn. Axel er hins vegar greini-
lega ekki kominn I fulla æfingu
eftir meiðslin undanfarið og var
hann tiltölulega litiö inn á að
þessu sinni, ekki sist kannski fyr-
ir tilstilli dómaranna.
—gsp