Þjóðviljinn - 12.10.1976, Page 12

Þjóðviljinn - 12.10.1976, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 12. október 1976 Gunnar Andersson, fræðslufulltrúi frá Stokkhólmi, flytur fyrirlestur i Norræna húsinu þriðjudaginn 12. október 1976 kl. 20:30 um „Radio och TV som hjálpmedel i utbildningen av barn och vuxna.” Um- ræður að erindi loknu. Aðgangur er öllum heimill Verið velkomin. NORRÆNA HUSIÐ Nótur í miklu úrvali NÓTUR OG SKÓLAR f. gltar, fiðlu, lág- fiðlu, selió, kontra-bassa, pianó, orgel, harmoniku, óbó, fagott, klarinett, horn, trompet, básúnu, flautu, túbu og jazz- trommer. Nótur Albúm eftir gömlu meist- arana i miklu úrvali. Mjög hagstætt verð. Erlend timarit, Hverfisgata 50 v/Vatns- stig 2 hæð s. 28035. Auglýsingasími Þjóðviljans er 17500 Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir september mánuð er 15. október. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna rikissjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti Fjármálaráðuneytið 11. október 1876 Garðaskóli Skólaritari óskast i hálft starf árdegis. Nánari uppl. gefnar á skrifstofu skólans simi 52194. » LOKAÐ Skrifstofurnar verða lokaðar i dag vegna útfarar Sigurðar Jóhannssonar vega- málastjóra. Vegagerð rílcisins • ' ' LOKAÐ Skrifstofa samgönguráðuneytisins verður lokuð þriðjudaginn 12. okt., frá kl. 13.00, vegna útfarar Sigurðar Jóhannssonar, vegamálastjóra. - Hinn nýi Volvóbill: ekki of stór, rúmgóður og meö ölluin þægindum og öryggi Volvóbislins. Nýr Yolvóbíll á markaðinn Um siðustu helgi hélt Veltir hf. Volvóumboðið á tslandi Volvó- sýningu þar sem ma. var sýnd ný gerð af Volvóbil, Volvó 343 DL. Bill þessi er nokkru minni að sjá en fyrri Volvóbilar. Hann er fimm manna, þriggja dyra og sjálfskiptur. Venjulega gerðin af þéssum nýja Volvóbíl kostar 1.840.000 krónur en luxusgeröin 2.2 miljónir. Annan litinn Volvóbil hefur um- boðið einnig á boðstólum. Heitir hann Volvó 66 og kostar frá tæp- lega 1,7 miljón króna upp i tæpar 1900 þúsundir. Um siðustu áramót voru hér á landi tæplega 3.100 Volvóbilar, fólksbilar, en 606 vörubilar. A Volvóbilum er árs ábyrgð og sett hafa veriö á laggirnar 14 þjónustuverkstæði fyrir Volvóbila vitt um land. Minnsti Volvobíllinn, Volvo 66. Þetta er fjögurra manna bfll með 53 eða 57 hestafla vél. Nú hafa kanar keypt nokkra Volvobfla til þess að klessukeyra þá. Kanar kaupa Volvó tíl að keyra í klessu! Bandariska rlkisstjórnin er ný- verið orðin ein af stærstu við- skiptavinum Volvo. Stjórnin hef- ur gert samning við Volvo um kaup á allmörgum Volvobilum. Þessir Volvobiiar veröa eyðilagð- ir á nokkrum dögum. Þeir verða keyrðir hver á annan, keyrðir á aðra bíla, keyrðir á veggi og vegamerki á um það bil 100 km. hraða. Arekstrarnir eru hluti af sér- stökum tilraunum, sem gerðar eru á vegum bandariska öryggis- eftirlitsins, til þess að komast að niðurstöðum um opinberar öryggiskröfur vegna bifreiða- framleiðslu framtiðarinnar. Volvobilarnir voru valdir f þessar tilraunir vegna þess að Volvo hef- ur verið leiðandi I öryggisbúnaði bila sinna undanfarin ár. Álafoss flytur í gamalt hús Nú hefur Alafoss hf. flutt alla verslunarstarfssemi sina undir eitt þak að Vesturgötu 2, gamia Bryggjuhúsinu, sem svo var nefnt i eina tið. Hús þetta er orðið 140 ára og hefur tekist vel að halda hinu gamla yfirbragði, en arkitekt við breytingar, sem á húsinu voru gerðar áður en Alafoss opnaði þar verslun um helgina, var Þorkell Guðmundsson, innanhússarki- tekt. Að Vesturgötu tvö er hægt að fá allar framleiðsluvörur Alafoss, teppi af margbreytilegri gerð og ullarvörur ýmis konar. Listaverkar þjófar teknir í gildru MARSEILLE 7/10 (Reuter) Franskur leynilögreglumaður, sem lést vera listaverkasafnari, hefur aðstoðað við að finna aftur 118 stolin málverk eftir Picasso, en þau voru metin á meira en 20 miljónir franka (760 miljónir króna). Jean Mathieu yfirmaður lög- reglunnar i Suður-Frakklandi sagði fréttamönnum i dag að sjö menn hefðu nú verið handteknir fyrir þennan þjófnað og hefðu málverki'n fundist aftur. Mál- verkunum var stolið úr „páfa- höllinni” i Avignon 31. janúar, en þau voru þar á sýningu. Voru þetta yfirleitt fremur litlar myndir, og málaöi Picasso þær siðustu 20 mánuðina, sem hann lifði. Sjömenningarnir náðust i gildru sem lögreglan lagði fyrir þá utan við kaffihús i Marseille i gærkvöldi. Einn þeirra, fertugur belgíumaður að nafni Theodorus Timmers, fannst látinn i fanga- klefa sínum i morgun og taldi lög reglan að banameinið heföi veriö hjartaslag, en krufning fer nú fram. Hinir sex eru i stöðugum yfirheyrslum. Þessi þjófnaður er einn mesti listaverkaþjófnaður sem sögur fara af. Þjófarnir settu sig I sam- band við listaverkasafnara i Vestur-Þýskalandi og viðar, en reyndu svo að koma mál- verkunum út i Frakklandi. Franskur lögreglumaður lést vera listaverkasafnari og stóð svo i „samningaviöræðum” viö þjófana i þrjár vikur um aö kaupa þýfið. Á meðan kannaði lögreglan málið og gat loks handtekið þjófana i gærkvöldi. Jean Mathieu sagði að þjófarnir heföu krafist 35 miljóna franka fyrir myndirnar. Vörslu aflétt Fyrir skömmu fannst hættuleg maurategund, Pharaomaurar, i húsi i Garðabæ. Vörslu hefur nú verið aflétt við húsið. öll matvæli i húsinu, sem grunur gat ieikið á að maurar hefðust viö i, voru gerð upptæk af héraðslækni Hafnar- fjarðarumdæmis og flutt að Til- raunastöð Háskólans að Keldum. Þar voru þau brennd að undan- genginni rannrókn. Fylgst verður áfram með húseigninni og væntanlega eitrað aftur til frek- ara öryggis. Heilbrigðiseftirlit rikisins hefur kannað feril ibúa hússins i sumar til að upplýsa hvort meindýr þessi hafi flust með þeim til annarra staða á landinu. Verkamannadeild Verkalýðs- félags Rangceinga Fulltrúakjör Ákveðið er að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu um kjör fulltrúa Verkamanna- deildar Rangæings á 33. þing ASl. Tillög- um með nöfnum þriggja fulltrúa og jafn- margra til vara skal skilað á skrifstofu deildarinnar að Laufskálum 2, Hellu, fyrir klukkan 17:00 mánudaginn 18. október. Tillögunum skulu fylgja skrifleg meðmæli 32 fullgildra félagsmanna. Stjórn verkamannadeildar Rangæings.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.