Þjóðviljinn - 12.10.1976, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
B.H.M. þingar
um kjaramál
Launamálaráð Bandalags há-
skólamanna hefur ákveðið að
boða til almenns fundar rlkis-
starfsmanna innan bandalagsins
i dag þriðjudag. Þar verða rædd-
ar hugmyndir um frekari aðgerð-
ir til þess að ná bættum kjörum og
koma verkfallsréttarmálinu i
höfn. BHM er nú eina launþega-
sambandið sem engan verkfells-
rétt hefur.
1 frétt frá BHM segir svo um
ástæður þessa fundarboðs:
Kaupmáttur launa rikisstarfs-
manna hefur frá þvi 1. jánúar
1974 rýrnað 20-25% meira en laun
á frjálsum vinnumarkaði. Laun
rikisstarfsmanna eru nú 30-60%
lægri en laun sambærilegra stétta
á almennum vinnumarkaði.
BHM hefur frá upphafi stutt
launakröfur sinar rökum sem
byggð hafa verið á viðtkri gagna-
söfnun. Sú mikla vinna sem i
þetta hefur verið lögð virðist hafa
verið til einskis þvi heiðarleg rök-
semdafærsla virðist ekki bita á
rikisvaldið eða Kjaradóm, sem
hvað eftir annað hefur hunsað
ákvæði kjarasamningalaganna.
Hinn 10. september s.l. lagði
BHM framkröfuum endurskoðun
aðalkjarasamnings. Ekkert til-
boð hefur borist frá fulltrúum
rikisins. BHM verður þvi að taka
upp nýjar aðferðir i kjarabarátt-
unni.
Þýskukennsla fyrir
börn 7-13 ára
hefst laugardaginn 16. október 1976 i
Hliðaskóla (inngangur frá Hamrahlið).
Innritað verður 16. október kl. 10.30—12.
Innritunargjald 1.000 kr.
Bókasafn þýska sendikennarans
Herstöðva-
andstœðingar
Næsti fundur i hverfahópum er þriðjudag
inn 13. október. — Kópavogur kl. 8.30 i
Þinghóli.
Miðnefnd.
Fulltrúafundur
Landverndar
Verður haldinn i Tjarnarbúð Reykjavik
laugardaginn 6. nóvember næstkomandi
og hefst klukkan 19.30. Nánar tilkynnt i
bréfi til aðildarfélaga.
Stjórn Landverndar
Rýmingarsala
á húsgagnaáklæðum
Pluss-ullarefni.
40-60% afsláttur.
Húsgagnahúsið hf..
Auðbrekku 61, Kópavogi.
Alþýðubandalagið I Neskaupstað heldur fund i Egilsbúð á miðviku-
dagskvöld 13. október kl. 20.30. Dagskrá: 1. Vetrarstarfið. 2. Frá kjör-
dæmisráði. 3. Þjóðviljinn 4. Onnur mál. — Stjórnin
Sprengdi
sjálfan sig
i loft upp
SALZBURG 11/10 (Reuter) —
Jóhann Engel, 53 ára gamall
austurriskur sprengiefnasér-
fræðingur sprengdi sjálfan sig
upp i loftið skammt frá heimili
sinu i gær. Að sögn lög-
reglunnar var þetta sjálfs-
morð, og fargaði sprengiefna-
sérfræðingurinn sér eftir
fylliri og rifrildi viö konu sina.
Bilið
Framhald af bls. 3.
um þáttum rikisvaldsins.
Ian Smith sagði i dag i viötali
við bandariska vikuritið News-
week að ef þjóðernissinnar héldu
ekki þaö samkomulag, sem hann
hefði tilkynnt eftir fund sinn með
Kissinger, myndi bráðabirgða-
stjórn ekki vera komið á á næst-
unni. Hann sagði að yfirráð hvitra
manna yfir her og lögreglu væru
þáttur i tillögum Kissingers og
breta. Sagði Smith að Kissinger
hefði sagt sér aö bæði Kenneth
Kaunda forseti Sambiu og Julius
Nyerere, forseti Tansaniu hefðu
fallist á þessa skipun mála.
Opinber talsmaður i Dar es
Salaam hefur hins vegar boriö
þetta til baka og sagt aö Nyerere
hefði aldrei rætt við Kissinger um
skipun bráðabirgðastjórnarinnar
i smáatriðum.
Talsmaður stjórnar Ródesiu
sagði i útvarpi i dag að við-
ræðurnar i Genf ættu einungis að
snúast um bráðabirgðastjórn, en
ekki kæmi til greina að ræða þar
um efni sem snertu stjórnarskrá
landsins. Hins vegar hefur
Nkomo kallað Genfarráðstefnuna
„stjórnlagaþing” sem eigi að af-
henda þjóðinni völdin.
Jákvæð
Framhald af bls. 16.
forstjóri IBM á Islandi herra Ottó
A. Michaelsen.
Æðsta menntastofnun okkar,
Háskóli Islands, má ekki láta
gróðafikn erlendra auðhringa
ráða stefnumótun á sviði mennta-
mála, jafnvel þótt þessir hringir
leggi að fótum Háskólans „veg-
legar gjafir”.
Vaxandi ítaká IBM á sviði
tölvumála er nú farið að gæta á
öllum sviðum þjóðlifsins, en
alvarlegast hlýtur þó að teljast
áhrif fyrirtækisins á uppfræðslu I
æðri menntastofnunum.
Starfshópurinn gerir þá kröfu
að reglur „styrktarsjóðsins”
verði birtar i fjölmiðlum og að
aöilar tengdir erlendum auð-
hringum eigi ekki sæti i stjórn
hans.”
Alfreð
Framhald af bls 8.
Ragnar Júliusson (D), Elin
Pálmadóttir (D), Davið Oddson
(I)) og Sigurjón Pétursson (G),
sem benti á, að ekki væri óeðlilegt
að deilt væri um embætta-
veitingar .Sagði Sigurjón að hann
teldi i mörgum tilvikum sjálfsagt
að ráðherra gengi gegn meiri-
hlutasamþykktum fræðsluráða,
einkum þegar þau ganga
pólitiskra erinda.
„Vissulega þarf ráðherra þó að
taka tillit til fræðsluráða,” sagði
Sigurjón, „til dæmis þegar meiri-
hlutinn er stærri en svo að einn
flokkur geti myndað hann. Þá
þarf ráðherra einnig að koma
með þyngri rök fyrir þvi að ganga
gegn slikum meirihluta en hann
hefur gert i þessu máli.
Þessi ákveðna stöðuveiting
er deila á milli fræðsluráðs og
ráðherra. Þess vegna er ðsæmi-
legt að draga persónur um-
sækjenda inn i umræðu um
málið.”
Alfreð Þorsteinsson (B) tók enn
aftur til máls og hafði ennþá ekki
skilið að hann hefði i nokkru hag-
að sér ósæmiiega við umræöurn-
ar. Bjuggust reyndar fæstir viö,
að skilningur hans yröi vakinn.
-OÞ
Rikisstjórnin
Framhald af 1
stjórnin skipa fjóra menn án til-
nefningar og er einn þeirra, Jón
Sigurðsson, hagrannsóknarstjóri,
formaður nefndarinnar.
I nefndinni skuli sitja: 5 til-
nefndir af þingflokkunum, 1 til-
nefndur af ASl, 1 tilnefndur af
Vinnuveitendasambandi Islands,
1 tilnefndur af BSRB, 1 tilnefndur
af Stéttarsambandi bænda og 4
skipaðir af rikisstjórninni án til-
nefningar.”
Hér er þvi um að ræða 13
manna nefnd.
„Rikisstjórnin gerir siðan ráð
fyrir að álit nefndarinnar og til-
lögur verði undirstaða umræðna
á alþingi og viðræðna rikis-
stjórnarinnar við aðila vinnu-
markaðarins um heildarstefnu i
verðlags- og launamálum.
I starfi nefndarinnar skal þess
vegna að þvi stefnt að hún skili
áliti og tillögum eigi siðar en i
febrúarmánuði 1976.”
V estmannaeyjar
Framhald af bls. 1.
„Fundurinn mótmælir harð-
lega lögum þeim gegn sjómönn-
um, sem sett voru 6. sept. s.1., þar
sem slik lög eru bein aöför að
samningsrétti alls vinnandi fólks
I landinu. Einnig mótmælir fund-
urinn harðlega þeim drögum til
breytinga á vinnulöggjöf, sem
rikisstjórnin hyggst leggja fyrir
Alþingi, þar sem allar þær breyt-
ingar,sem þar koma fram fela i
sér beina skerðingu á þeim rétti,
sem vinnandi fólk hefur áunnið
sér með áratugalangri baráttu.”
Kristján
Framhald af bls. 16.
frammifyrir þeirri staðreynd, að
landsmanna, fara meö kjara-
samninga, en alþingi, rikisstjórn
og rikisbankastjórnir fara með
það vald i efnahagsmálum, sem
styrkt getur eða eyðilagt þá
stefnu i kjaramálum sem samiö
er um við atvinnurekendur og
rikisvald. Hagsmunir meginhluta
launafólks fara saman. Þetta
sama launafólk er þorri Islensku
þjóðarinnar. Þvi ber launþega-
samtökunum réttur og skylda til
þess að beita áhrifum sinum, ekki
aðeins á kjaramál i þrengstu
merkingu, heldur á öllum sviðum
efnahagsmála.”
Forgangsverkefnið taldi
Kristján nú vera að ná fram
auknum kaupmætti og ennfrem-
ur: „En gerum okkur grein fyrir
þvi, að ef áhrifamáttur samtaka
launafólks dugir ekki gagnvart
alþingi rikisstjórn og bankavaldi
til þess að fá þessa aðila til að
breyta skattalögum launafólki i
vil og til annarra aðgerða i efna-
hagsmálum, sem rökréttar eru,
með hliðsjón af stórbatnandi við-
skiptakjörum við útlönd, er engin
önnur leið til en hin hefðbundna
kjarabarátta með kjarasamning-
um. Og þá þarf i þetta sinn stór-
aukna samstöðu fólks i sam-
tökunum til undirbúnings
samningum og ekki aðeins það,
heldur til þess að varna þvi að
þeir séu rofnir með löggjöf.”
Loks ræddi Kristján innri mál
BSRBog lagði þunga áherslu á
nauðsyn sem allra viðtækastrar
samstöðu i baráttunni fyrir bætt-
um kjörum opinberra starfs- ,
manna.
LEIKFEIAG Íál
REYKIAVlKUR
SAUMASTOFAN
i kvöld kl. 20,30.
föstudag kl. 20.30
STÓRLAXAR
miðvikudag kl. 20,30.
laugardag kl. 20,30.
SKJALDIIAMRAR
fimmtudag kl. 20,30.
sunnudag kl. 20,30.
Miðasalan i Iðnó kl. 14-20',30.
Simi 1-66-20.
ÞJÓDLEIKHÚSID
INOK
i kvöld kl. 20.
ÍMYNDUNARVEIKIN
miðvikudag kl. 20,
föstudag kl. 20.
SÓLARFERÐ
fimmtudag kl. 20,
laugardag kl. 20.
Miðasala 13,15-20.
Arnarholt
Framhald af bls 8.
gerst gæti þegar fylgt væri
þeirri reglu að taka lægstu til-
boðum i verk. Skýrði hann frá
þvi, að það hefði verið mat
tæknimanna borgarinnar að það
mundi taka lengri tima að taka
verktakann frá verkinu en að fá
hann til að halda áfram, sem
gert hefði verið og þá skipaður
sérstakur fjárhaldsmaður, sem
sjá átti um að fjárveitingar
rynnu til þessa einstaka verks
en ekki i eitthvað annað af þvi,
sem verktaki hafði með hönd-
um. Þráttfyrir þetta hefði verk-
ið stöðvast á nýjan leik. Hins-
vegar stæði nú svo á, að verka-
skil væru við bygginguna og þvi
yrði annar verktaki fenginn til
að ljúka henni, en sá er unnið
hefði að byggingunni til þessa
fengi þó að halda ákveðnum
verkþætti, þeas. gerð alis tré-
verks innanhúss.
Að lokum sagði borgarstjóri
það sina skoðun, að töfin sem á
yrði við bygginguna yrði svo
sem eitt ár og vonaðist til að
henni lyki á næsta sumri.
Ósamið er enn við verktaka
um að taka að sér þá verkþætti,
sem hinn upphaflegi veröur nú
tekinn frá. — úþ
Þórir
F’ramhald af bls. 11.
um skilaði hann hlutverki sinu
mjög vel af hendi, hann gætti
Þóris i sókninni og geröi það svo
vel að Þórir skoraði nær ekkert
meðan Jón var innná.
Stigahæstir hjá Val: Þórir 22,
Kristján 12, Rfkharður
Hrafnkelsson 11, Jóhannes og
Torfi Magnússon 10 hvor.
Hjá 1R: Kolbeinn Kristinsson
14, Jón Jörundsson, Þorsteinn
Guðnason og Sigurður Gislason 11
hver og Jón Pálsson 8 stig.
G.Jóh.
Pípulagnir ;
Nýlagnir, breytingar
hitdveitutengingar.
Simi 36929 (milli kl. 12 og
1 og eftir kl. 7 á kvöldin)
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi:
Reykjavík:
Meistaravelli Melahverfi
Kvisthagi Melhagi
Hverfisgata Álfheimar
Rauðilœkur
Vinsamlegast haf ið sarnband við afgreiðsluna
— sirni 17500.
ÞJÓÐVILJINN