Þjóðviljinn - 16.10.1976, Qupperneq 3
Laugardagur 16. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Ekkja Maós sögð sökuð um
morðsamsæri gegn Húa
Hreinsun gegn róttœka flokksarminum að hefjast
PEKING, MOSKVU 15/10 Reuter
— Haft er eftir „áreiðanlegum
heimildum” að Sjiang Sjing,
ekkja Maó Tse-túngs, hafi verið
ákærð um að hafa staðið að sam-
særi i þeim tilgangi að myrða Húa
Kúó-feng, eftirmann Maós i for-
mannssæti og þar með leiðtoga
fjórðungs mannkynsins. Þeir
Vang Húng-ven, varaformaður
Kommúnistaflokks Kins, Sjang
Sjún-sjfaó varaforsætisráðherra
og Jaó Ven-júan, sem fregnir
Sýrlendingar
nálgast
Beirút
og Sidon
BEIRÚT, AMMAN 15/10 Reuter
— Harðir bardagar geisa i
fjöllunum austur af Beirút og
Sidon milli sýrlenskra hersveita,
sem hófu stórsókn á þeim slóðum
fyrir nokkrum dögum, og hins-
vegar palestinumanna og
libanskra vinstrimanna. Sýr-
lendingar segjast hafa tekið bæ-
inn Bhamdoun, sem er aðeins 18
kilómetra frá Beirút, en
palestinumenn segjast verjast
þar enn. Þá eru sýrlendingar
komnir svo nærri Sidon að þeir
eru farnir að skjóta sprengikúlum
og eldflaugum á höfnina, þannig
að nokkur skip hafa orðið að flýja
þaðan án þess að hafa verið af-
fermd.
Assad Sýrlandsforseti, Sadat
Egyptalandsforseti, Arafat
leiötogi palestinumanna og fleiri
forustumenn araba munu hittast
á morgun i Riad, höfuðborg
Saúdi-Arabiu, til að ræða mögu-
leika á sáttum i Llbanon, og
verður Kalid konungur Saudi-
Arabiu þar i forsæti.
Sendiráðsmenn
sakaðir um
fikniefnasölu
KAUPMANNAHÖFN 15/10
Reuter — Danska stjórnin sakaði
i dag norðurkóreanska sendiráðs-
menn um að selja mikið magn af
fiknilyfjum i Danmörku og hefur
farið þess á leit við stjórn Norður-
Kóreu að ambassador þess lands i
Kaupmannahöfn verði kallaður
heim, svo og þrir aðrir starfs-
menn sendiráösins. Eftir
lögreglunni i Kaupmannahöfn er
haft að þetta standi i sambandi
við handtöku sex manna I gær, en
þeir eru ákærðir fyrir að smygla
147 kilóum af hassi inn i landið i
sendiráðspósti. Þrir smyglarar
þessara eru danir, t
sýrlendingar og einn libani.
herma að handteknir hafi verið
ásamt ekkju Maós, kváðu vera
sakaðir um að hafa átt hlut að
samsærinu með henni.
Þá herma fregnir að mikill
veggblaðaáróður gegn þeim fjór-
menningum sé kominn i gang i
Sjanghai, borg þeirri sem talin
hefur verið sterkasta vigi þeirra.
Haft er eftir einhverjum
heimildum að ,,þrir ihaldsmenn”
hafi beðið bana vegna atviks i
sambandi við samsærið gegn
Húa. Talsmenn stjórnvalda neita
enn sem fyrr að segja nokkuð um
málin. Hinsvegar er svo að sjá að
hreinsunarherferð gegn róttæk-
um mönnum fari i hönd eða sé
þegarhafin. Mikill mannfjöldi fór
fylktu liði og syngjandi i kvöld að
aðalstöðvum kommúnistaflokks-
ins i Sjanghaí og hafði á brott með
sér þaðan tvo menn, sem ekki er
vitað hverjir voru. Á veggblöðum
i borginni var æðsti embættis-
maður borgarstjórnar, Hsú Sjing-
hsien, gagnrýndur og þess krafist
að hann gerði grein fyrir sam-
bandi sinu við vinstrileiðtogana
fjóra. Einnig kvað hafa verið
veist að þeim fjórmenningum á
veggblöðum i Peking, þar á
meðal i Tsinghúatækniháskólan-
um, þar sem stúdentar hafa verið
taldir mjög róttækir. A veggjum
nálægt stúdentagörðum i Peking
mátti hvarvetna lita blöð, þar
sem ráðist var að róttækum leið-
togum, sem þó voru ekki nefndir
á nafn, fyrir meintar rangfærslur
á fyrirmælum Maós formanns. Á
einu veggblaðanna i iðnaðarborg-
inni Vúhan i Húpei kvað hafa
verið skýrt svo frá, að fjór-
menningarnir hefðu verið sviptir
öllum stöðum i hernum. Ýmislegt
þykir benda til þess að hægfara
HAVANA 15/10 Reuter — Fidel
Castro, forsætisráðherra Kúbu,
sakaði i dag bandarisku
utanríkisleyniþjónustuna, CIA,
um að hafa átt beinan þált i
skemmdarverki á kúba nskri
farþegaflugvél i siðustu viku.
Jafnframt hefur kúbanska
stjórnin lýst samning s.Banda-
ríkjanna og Kúbu varðandi flug-
rán úr gildi fallinn, en sá samn-
ingur var gerður 1973.
Castro tilkynnti þessar
ráðstafanir á fjöldafundi á
Byltingartorgi i Havana, sem
haldinn var til aö minnast 73
manna, sem fórust þegar
kúbönsk farþegaflugvél hrapaði i
sjó skammt frá Barbados.
Kúbönsk stjórnarvöld telja
sannað að útlægir kúbanar og
fjandsamlegir núverandi stjórn
hafi valdið slysinu með
skemmdarverki, enda hefur
útlagahópur nokkur i Flórida
þegar lýst verkinu á hendur sér.
Innanrikisraðuneyti Venesúelu
hefur tilkynnt að lögreglan i
Caracas hafi handtekTð
kúbanskan útlaga og fjóra
Venesúelumenn út frá rannsókn
þessa máls. Samkvæmt fyrr-
nefndum samningi Bandarikj-
anna og Kúbu skuldbundu
bandarisk stjórnvöld sig til að
hindra aögerðir fjandsamlegar
kúbönskum sjtórnarvöldum frá
bandarisku- iandi, en kúbanir
lofuðu þvi móti að veita ekki
hæli flugræningjum. .
I ræðu sinni á fjöldafundinum
sakaöi Castro CIA um beina þátt
töku i að granda flugvélinni og
fleiri svipuðum athöfnum gegn
kúbönskum aðilum undanfarið. t
april beið kúbanskur fiskimaöur
F riðarverðlaun
Nóbels ekki
veitt í ár
OSLÓ 15/10 Reuter —
Nóbelsnefnd norska Stórþingsins
hefur tilkynnt, að friðarverðlaun
Nóbels verði ekki veitt að þessu
sinni. Nefndin hefur ekki gefið
upp ástæðuna fyrir þessari
ákvörðun. Stungið hafði verið upp
á um 50 mönnum sem verðlauna-
höfum, eða fleiri en nokkru sinni
fyrr. Meðal þeirra munu hafa
verið Luis Echeverria, forseti
Mexikó, nunnan móöir Theresa,
sem unniðhefur mikið liknarstarf
i Kalkútta og Vestur-Bengal og
Urho Kekkonen, Finnlands-
forseti.
Sjiang Sjing — aðeins mánuði eft-
ir fráfall manns sins er hún svipt
áhrifum og borin þungum sökum.
armur kommúnistaflokksins sé
að styrkja stöðu sina, og farið er
að spá þvi að Li Hsien-nien, vara-
forsætisráðherra og fyrrum náinn
samstarfsmaður Sjú En-lais,
muni senn taka við forsætisráð-
herraembætti af Húa. Li er talinn
einn fremstu manna i hægfara
arminum.
Af sovéskri hálfu hefur,
siðan Maó lést, margsinnis verið
gefið I skyn að sovétmenn séu
reiöubúnir til að bæta sambúðina
við kinverja. Af opinberri hálfu
kínverskri hefur þó enn ekkert
það komið fram, er bendi til þess
að þessar vonir sovétmanna hafi
við rök að styðjast.
bana á Flóridasundi er
vélbyssuárás var gerð á bát hans,
og lýstu kúbanskir útlagar i
Miami sig seka um þá árás. Fleiri
svipaðir atburðir munu hafa
gerst nýverið, og hafði Castro
fyrr á árinu lýst þvi yfir að
kúbanir sæu sér ekki annað fært
en að segja upp samningnum, ef
ekki yrði hér lát á. A sjöunda
áratugnum var mikið um það að
menn rændu flugvélum yfir
Bandarikjunum og viðar og
stefndu þeim til Kúbu.
Muzorewa
útnefnir
sendi-
nefnd
SALISBURY 15/10 Reuter — Sá
hluti Afriska þjóðarráðsins
(ANC) i Ródesiu, sem Abel
Muzorewa biskup veitir forustu,
hefur útnefnt sendinefnd sina á
ráðstefr.una i Genf um
Ródesiumál. 1 nefndinni eru 31
máðu'- eða jafnmargir og
nefnd sú sem Joshua Nkomo,
forustumaður annars hluta
ANC sem keppir við fiokksbrot
Muzorewa hefur tilnefnt á ráð-
stefnuna. Menn Muzorewa hafa
lýst þvi yfir að þeir muni
útnefna meþódistaprestinn séra
Ndabaningi Sithole i nefnd sina
ef hann fái ekki viðurkenningu
sem fulltrúi eigin samtaka á
ráðstefnunni.
Breska stjórnin, sem stendur
fyrir ráðstefnunni, hefur ekki
boðið séra Sithole þangað, en
hann telur sig vera leiðtoga
Afriska þjóðarsambandsins i
Zimbabwe (ZANU). Væri
honum boðið, yrðu nefndir
fjögurra samtaka ródesiskra
blökkumanna á ráðstefnunni.
1 Salisburyer haft eftir stjórnar-
embættismönnum að
ráðstefnan, ásamt með ferða-
kostnaði og uppihaldi fjöl-
mennra nefnda, muni kosta
breska skattborgara gifurlegar
fúlgur. Meðal þeirra, sem
biskupinn hefur tilnefnt i nefnd
sinna samtaka, eru þrir, sem
sitja i fangelsum Smith-
stjórnarinnar af pólitiskum
ástæðum og einn, sem
biskupsmenn telja að sé einnig i
fangelsi, en Smith-stjórnin
hefur neitað allri vitneskju. um.
‘--A
Finnur Jónsson við eitt verka sinna i Listasafni tslands I gær.
Yfirlitssýning á verkum Finns Jónssonar
Nýjasta verkið
er varla þornað
Finnur Jónsson, listmálari, er
enn að störfum þótt kominn sé á
niræðisaldur. I dag kl. 14 verður
opnuð yfirlitssýning á verkum
hans I Listasafni Islands. Þar
eru sýnd 198 verk og er hið elsta
frá 1920, en hinu yngsta er
ólokiö, enda málað á þessu ári.
Sýningin stendur i fjórar vikur
og lýkur á 84 ára afmæli list-
málarans 15. nóvember.
A yfirlitssýningunni eru verk
unnin með ýmsum efnum. Það
eru oliumálverk, vatnslita-
myndir, túss- og kolteikningar,
klippimyndir og pastelmyndir
frá hinum ýmsu skeiðum langs
listferils. Sýningin er opin dag-
lega frá 13.30 til 22.
Loðnuveiðarnar í bið
Þrír bátar enn við — veður hamlar veiðum
— besti veiðitiminn eftir segja sumir fiskifrœðingar
„Það má eiginlega segja aö
loönuveiðarnar séu komnar I bið,
eins og sagt er á máli skák-
■nanna,” sagöi Andrés Finnboga-
son, starfsmaður loðnunefndar er
við inntum hann frétta af loðnu-
veiðunum i gær. Andrés sagði að
einungis þrir bátar væru nú við
veiöar, en sem stendur hamlaði
veður þvi aö hægt væri aö bleyta
nót.
Aðalástæðan fyrir þvi hve fáir
bátar eru nú við veiðarnar er sú,
að þeir eru ýmist að veiða sild ■
uppi kvóta sinn hér viö land eöa i
Norðursjónum.
,,Ef það hinsvegar reynist rétt,
sem fiskifræðingar hafa sagt, að
besti veiðitiminn sé eftir, þá má
búast við að fljótlega fjölgi á
miðunum, þegar bátarnir eru
búnir að fylla sildarkvóta sinn,”
sagði Andrés. En hann benti jafn-
framt á, að nú væri komið haust
og allra veðra von og þvi gæti
veriö óhægt um vik fyrir báta að
stunda veiöar, þar sem svo langt
á haf út þarf að sækja til loðnu-
veiðanna.
Nú sem stendur er hafrann-
sóknarskipið Bjarni Sæmundss á
loðnumiðunum og veröur fróðlegt
að fá að heyra niðurstöður af
rannsóknum skir*-!ns.
Heildarloðnuaflinn i sumar er
kominn i rétt tæp 77 þúsund tonn.
Langaflahæsta skipið er Sigurður
RE með 10.600 lestir, en nú er
verið að byggja yfir Sigurð og þvi
kemur hann tæplega til að stunda
loðnuveiðar meira i haust. Næst
Sigurði RE kemur Súlan með
6.220 lestir og i 3. sæti Guðmundur
RE með 6.000 lestir.
Þau skip sem enn eru við loðnu-
veiðar eru Guðmundur RE, Hrafn
og Arsæll Sigurðsson.
Giskað er á að meðalverð fyrir
sumarloðnuna verði um 8 kr.
fyrir kilóið, en hver farmur fyrir
sig er fitumældur og verðlagður
pft’v bvf —s.dór
Kúbumenn
ákæra CIA
Segir upp samningi um flugrán