Þjóðviljinn - 16.10.1976, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 16.10.1976, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. október 1976 KOMIÐ TÍMANLEGA Nauðungaruppboð Kftir kröfu skiptaréttar Kópavogs og skattheimtu rlkis- sjóös i Kópavogi verfta eftirgreindir lausafjármunir seldir á nauftungaruppbofti, sem hefst á bæjarfógetaskrifstof- unni aft llamraborg 7 mánudaginn 25. október 1976 kl. 14, en verftur siftan fram haldift á öftrum stöftum, þar sem nokkrir lausafjármunirnir eru staftsettir: 1. Ilúsgögn og heimilistæki: sjónvarpstæki, isskápar, þvottavélar, Nilfisk ryksuga, út- varpstæki og plötuspilarar, magnari, sófasett (4), borft- stofuborft og 6 stólar, stofuskápur, hornborft. 2. Vinnusktlrar (nú staftsettir viö Vallartröft). 3. Kantlimingarvél (Holz-HER). 4. Iljúpfrystir og kjötsög. 5. Saumavél (rykkingavél) Pfaff. 6. Nylon húftunarofn. 7. Skurftgrafa, John Deere. S. Valtari, Gallion, 10 smál. Greiftsla fari fram vift hamarshögg. Bæjarfógetinn 1 Kópavogi. Notuð eldhúsinnrétting Til sölu. Upplýsingar á Barónsstig 65 ann- arri hæð simi 18724. þingsjá þjóðviljans Rætt um rannsóknar lögreglu ríkisins 1 fyrradag kom til fyrstu um- ræðu i neðri deild Alþingis frum- varp rikisstjórnarinnar um rann- sóknarlögreglu rikisins, en frum- varpið var einnig flutt á siðasta þingi en hlaut þá ekki afgreiðslu. Það var ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra, sem mælti fyrir frumvarpinu i fyrradag. Ólafur sagði, a ð frumvarpið miðaði að þvi að styrkja rannsókn brotamála og tryggja að hægt væri að upplýsa þau. Ráðherrann Jóhannesson kvaðst viður- kenna að dómskerfið og rannsóknakerfið væri of seinvirkt, en hins vegar væru það órökstuddar stað- hæfingar, að fjöldi mála lægi óupplýstur. Á þessu ári hafi t.d. verið framin 4 morð hér á landi, og tekist hafi að upplýsa þau öll innan mjög skamms tima. Verst af öllu væri það, ef sak- lausir menn væru dæmdir, en um þaö kvaöst ráðherrann ekki vita dæmi hér á landi. Þetta frumvarp kvað ráðherr- ann ekki vera neina töfralausn, og fleiri endurbætur þyrftu aö koma til á réttarkerfinu. Fleiri frumvarpa mætti værtta siöar á þinginu um þessi mál, Aðalmark- miðið hlýtur að vera að koma i veg fyrir að afbrot séu framin, sagði ráðherrann, en til þess duga ekki bara lög, hversu góð sem þau eru. Ólafur lét i ljós þá skoðun að áhrif sjónvarpsins hafi verið miður heppileg og aukið á glæpa- tilhneigingar hjá landslýðnum. — Og hvaða áhrif hafa skólarnir i mótun hugarfars? spuröi ráð- herrann og hann bætti við: — Sækja nemendur máske þangað einhvern leiða.eða einhvern þann hugsunarhátt, sem er öndverður við það þjóðfélag, sem hefur haldiðþeim i skóla, e.t.v. nauðug- um? — Þetta biður félagsfræðinga að rannsaka, sagði Ólafur Jó- hannesson. Aö lokinni ræðu ráðherra tóku nokkrir þingmenn til máls. Sighvatur Björgvinsson lýsti stuðningi þingmanna Alþýðu- flokksins við frumvarpið, og taldi að átt hefði að samþykkja það strax i fyrra. Ingólfur Jónssonsagði að frum- varpið hefði stöðvast i allsherjar- nefnd í fyrra vegna þess, að margar umsagnir, sem nefndinni bárust um það, hafi verið mjög neikvæðar. Þess vegna hefði meirihluti nefndarinnar viljað at- huga málið betur, enda hafi hvort sem er ekki verið gert ráð fyrir I frumvarpinu að lögin tækju gildi fyrr en 1. janúar 1977. Sagðist Ingólfur nú vilja vinna aö þvi, að frumvarpið yröi sam- þykkt, e.t.v. með einhverjum breytingum, og að lögin gætu tekið gildi eins og upphaflega var ráðgert. Tómas Árnasontaldi slæmt, að frumvarpiö hefði ekki verið sam- þykkt i fyrra, þvi að illt væri að missa tima i þessum efnum. Friftjón Þóröarson sagði að góð iöggjöf leysti ekki allan vanda. Þetta mál yrðu þingmenn að skoða vandlega og rasa ekki um ráð fram. Málið væri mikilvægt. Svava Jakobsdóttir sagðist hafa stutt það i allsherjar- nefnd i fyrra, að málinu yrði frestað til hausts, þar sem umsagnir hefðu sýnt að það þyrfti frekari athug- unar við, og frumvarpinu hvort sem er ekki ætlað að taka gildi fyrr en um næstu áramót. Hins vegar kvaðst Svava hafa verið þvi fylgjandi, að heimila fjölgun rannsóknarlögreglumanna engu að siður,— en sú tillaga hafi einnig verið lögð i salt af þinginu i fyrra. Þá kvaðst Svava vilja benda á, að ef við hefðum efni á að verja meira fé til lögreglustarfa, þá hlyti þjóðfélagið ekki siður að hafa efni á fjárveitingum sem miðuðu að þvi að koma i veg fyrir afbrot. í þvi sambandi nefndi Svava þörfina á þvi, að sjónvarpið flytti þætti sem vöruðu við og vörpuðu ljósi á starfsemi eiturlyfjahringa. Sighvatur Björgvinsson tók aftur til máls og aö lokum talaði Karvel Pálmason, sem kvaðst styðja frumvarpið. Svava Jakobsdóttir Leiklistarlög rædd í Blikkiöjan Garðahreppi Önnumst þakrennusmíöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötilboö. SÍMI 53468 efri deild 1 efri deild Alþingis var i fyrra- dag tekið til fyrstu umræðu frum- varp rikisstjórnarinnar um ný leiklistarlög. Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra mælti fyrir frumvarpinu og gerði grein fyrir efni þess, en i athugasemdum með frumvarpinu segir m.a.: „Frumvarpi þessu, ef að lögum verður, er ætlað marka i megin- dráttum hversu haga beri stuðningi rikisvaldsins og sveitarfélaga, við leiklistarstarf- semina. 1 þvi ( ru hins vegar engin fyrirmæli un. fjárhæðir fram- laga, en gert er ráð fyrir að þær Týli hf. Austur- stræti 7. Sjónaukar í öllum stæröum fyrirliggjandi verði ákveðnar i fjárlögum hverju sinni. Stofna skal leiklistarráð með aðild þeirra sem ætla má að eink- um láti leiklist til sin taka. Þvi er ætlað ,,að vera vettvangur skoðanaskipta og umræðna um leiklistarmál og stuðla að stefnu- mótun á þvi sviði á hverjum tima.” Leiklistarráð kýs þriggja manna framkvæmdastjórn.” Frumvarp þetta var einnig flutt á þinginu i fyrra, en hlaut þá ekki afgreiðslu. í frumvarpinu er ákvæði um að sveitarfélögum sé skylt að leggja fram jafnháa upp- hæð og rikið kann að láta I té iil styrktar þessari eða hinni leik- sýningu. Helgi Seljan fagnaði þvi að frumvarpið kæmi nú svo snemma fram, og kvaðst vona að það feng- ist samþykkt á þessu þingi. Sagöi hann þaö mikið áhugamál leik- félaganna úti um land, aö frum- varpið yrði samþykkt. Aðal- atriðiö væri þó að fá hækkaðar nokkuð fjárveitingar til leik- listarinnar, en i fjárlagafrum- varpinu væri gert ráð fyrir óbreyttri krónutölu, þrátt fyrir mikla verðbólgu. Þingmaðurinn kom siðan með nokkrar ábendingar varðandi einstakar greinar frumvarpsins. Albert Guftmundsson andmælti þeirrikvöð, sem frumvarpið felur I sér gagnvart sveitarfélögunum, um fjárútlát. Axel Jónsson benti Albert á, að svipuð ákvæði væru fyrir hendi I núgildandi lögum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.