Þjóðviljinn - 16.10.1976, Page 11

Þjóðviljinn - 16.10.1976, Page 11
Laugardagur 16. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Gunnar Kvaran Erling Blöndal Bengtsson leikur svitur Bachs hjá Kammer- músfkklúbbnum. Erling Blöndal Bengtsson leikur svítu Bachs hjá Kammermúsíkklúbbnum Kainmermúsikklúbburinn hef- ur nú starfsáriö 1976-1977 meö þvi aö prófessor Erling Blöndal Bengtsson flytur allar sex svitur J.S. Bach fyrir ein- leikssello á tvennum tónleikum i Bústaöakirkju, sunnudaginn 17. október og þriöjudaginn 19. október. Fyrir réttum 40 árum kom prófessor Erling Blöndal Bengtsson, þá rúmlega 4 ára gamall, fyrst fram á tónleikum i Kaupmannahöfn. Starfsemi Kammermúsik- klubbsins hófst i febrúar 1957 og á klúbburinn þvi 20 ára afmæli á næsta ári. t þvi tilefni eru ráö- geröir afmælistðnleikar snemma á næsta ári, en ekki hefur endanlega veriö gengiö frá efni þeirra. A 4. og 5. tónleikum starfsársins veröur haldiö áfram heildar- flutningi strengjakvartetta Beethoven og flytur þá Sinn- hofer kvartettinn frá Þýzka- landi sex Strengjakvartetta Beethoven. Félagar i Kammermúsik- klúbbnum eru um 200, en heppi- legt er aö auka þá tölu nokkuö. Þeir sem vilja gerast félagar eru beönirað koma nokkru fyrir tónleikana i Bústaöakirkju til innritunar. Magnús A. Arnason viö eitt verka sinna. Torfi Jónsson sýnir á Loftinu Torfi Jónsson opnar i dag kl. 2 myndlistarsýningu á Loftinu á Skólavörðustig 4. Listamaður- inn sagði okkur, þegar við litum inn til hans, aö þegar væri ljóst að á sýningunni yröu um 40 myndir, en að þær gætu vel oröiö fleiri. Flestar myndanna, eða yfir 30, eru vatnslitamyndir, hinar skriftgrafik og teikningar. Sýningin stendur yfir i tvær vik- ur og verður opin kl. 2-6 á laugardögum og 9-6 aöra daga nema sunnudaga. Torfi kvað hér raunar vera um aö ræöa framhald sýningar, sem hann heföi veriö meö á vinnustofu sinni á Skúlagötu 61 og ætlaö fyrst og fremst vinum og kunningjum, en vegna margra áskorana heföi hann ákveöið að setja upp opinbera sýningu i hentugu húsnæöi. Þetta er fyrsta sýning Torfa á tslandi, en hann hefur tekiö þátt i samsýningum i Frakklandi og Þýskalandi. Brúöur Jóns E. Guömundssonar á sýningunni. Brúðusýning í anddyri Kjarvalsstaða Um þessa helgi byrjar Jón E. Guðmundsson sýningar með brúðuleikhúsi i austurgangi Kjarvalsstaða og veröa tvær sýningar á dag, kl. 5 og 9. Hver sýning stendur yfir 45 minútur. Sýningar þessar eru einkum ætlaðar börnum og unglingum og kostar aögangur 300 kr. Af hálfu Kjarvalsstaöa er hér um tilraun að ræöa, þvi aö ef aösókn verður góö, er fyrir- hugað að Jón haldi áfram sýningum með brúðuleikhús sitt um helgar. Klassísk gftartónlist á sunnudag A morgun munu félagar i Félagi áhugamanna um klass- iska gitartónlist koma saman i kjallara Tónabæjar kl. 14. Starf- semi félagsins hefur legiö niöri um nokkurt skeið, en er nú endurvakin. Ollu áhugafólki um sigilda gitartónlist er velkomið aö lita inn. Upplýsinga er hægt aö afla hjá forsvarsmönnum félagsins, þeim Kjartani Eggertssyni, i sima 74689 og Jóni Ivarssyni, i sima 71246. Leiklestur á Don Juan Fitjað verður upp á nýjung á Litla sviöi Þjóðleikhússins næstkomandi þriðjudagskvöld. Þar veröur fluttur i upplestrar- formi leikþátturinn Don Juan i Helviti eftir George Bernhard Shaw. Þáttur þessi er hluti af leikritinu Man and Superman, sem i islenskri þýöingu Menn og ofurmenn. Þátturinn um Don Juan er draumkafli i leikritinu, en oft fluttur einn sér, enda sjálfstæö heild. Leikstjóri er Baldvin Halldórsson en fjórir leikarar lesa hlutverkin: Gunnar Eyjólfsson er i hlutverki Don Juans, Erlingur Gislason les Djöfulinn, Margrét Guömunds- dóttir önnu og Ævar R. Kvaran er i hlutverki styttunnar. Leikritib Menn og ofurmenni er meðal þekktari verka Shaws og hefur þaö veriö flutt hér i útvarp en aldrei leikiö. Sem fyrr segir veröur flutn- ingurinn á Don Juan á þriðju- dagskvöld kl. 20:30 og verður endurtekinn kvöldiö eftir. Gefi tilraun þessi góöa raun er fyrir- hugaö framhald á og fleiri verk tekin til flutnings siðar i vetur. Magnús Á. Árnason á Kjarvalsstöðum Magnús A Arnason, listmál- ari, opnar myndlistarsýningu i austursal Kjarvalsstaöa i dag, og stendur sýningin til 31. þ.m. og verður opin klukkan 2-10 siö- degis alla dagana nema á mánudögum. Magnús sýnir þarna 101 verk, flest þeirra mál- verk, en einnig átta höggmyndir og nokkrar kaffi- og blekteikn- ingar. Flest verkanna á sýning- unni eru frá siðustu árum og þá einkum frá siðastliðnu ári. Sumar kaffi- og blekteikning- anna eru þó heldur betur eldri, eöa frá árunum 1933-34. Kvað Magnús þær hafa verið týndar en fundist nýlega. Magnús sagöi blaöamanni Þjóöviljans aö sjö ár væru siöan hann hélt sýningu siöast. Hann hefur margoft sýnt bæöi hér heima og erlendis, og kvaðst hann sjálfur ekki hafa haft neina tölu á þvi, hve oft hann heföi haldiö sýningar, bæöi einn og meö öðrum, nema þab aö hann heföi haldið 11 sýningar hér á landi utan Reykjavikur. Landslagsmyndir eru mjög margar á þessari sýningu, enda kvaöst Magnús mest hafa gert af þvi að mála landslag, portrett og blóm. dþ. Skemmtanir fóstbræðra Karlakórinn Fóstbræður gengst fyrir skemmtikvöldum fyrir styrktarfélaga sina i félagsheimili kórsins aö Lang- holtsvegi 109-111. Skemmt- anirnar verða haldnar föstu- dags- og laugardagskvöld sennipart október og fyrripart nóvembermánaöar. Þær hefjast kl. 20.30 öll kvöldin. Kórinn syngur nokkur létt lög. Stjórnandi kórsins Jónas Ingi- mundarson leikur á pianó. Blandaður kór Fóstbræöra og eiginkvenna þeirra syngur. Ómar Ragnarsson kemur fram og eiginkonur fóstbræöra sýna leikþætti um stööu konunnar i ýmsum löndum undir stjórn Sigriðar Þorvaldsdóttur leikara. Miðasala er i Fóstbræöra- heimilinu á fimmtudögum frá 18 til 20 á fimmtudögum og frá 19 sýningardagana. Upplýsingar i sima 85206. og Gísli Magnússon í Austurbæjarbíói 1 dag kl. 14.30 halda Gunnar Kvaran, sellóleikari, og Gisli Magnússon pianóleikari, tón- leika á vegum Tónlistafélags Reykjavikur i Austurbæjarbiói. Tónleikar þessir eru þriðju tón- leikar félagsins á starfsvetrin- um 1976-1977. A efnisskrá tónleikanna er einleikssvita fyrir selló nr. 2 eftir S.S. Bach, Fantasiestucke eftir R. Schumann. Elegie eftir G. Fauré. Siöan er verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem heitir ,,Oft vex leikur af litlur”. Siöasta verkiö er sónata op. 40 eftir D. Schostakovitsh. Alls munu veröa haldnir 9 tónleikar á vegum Tónlistar- félagsins i vetur. Af þeim sem framundan eru má nefna: Guöný Guömundsdóttir, Hafliöi Hallgrimsson, og Philip Jenkins i jánúar. Franski fiölul. Jan DOBRZELEWSKI, Pina CARMIRELLI, og Arni Kristj- ánsson. Stuttgartkammer- hljómsveitin undir stjórn Karls Munchinger, heldur tón leika hér i mars. Selma Guömundsdóttir, pianóleikari i april og siðan heldur söngvarinn Peter Pears tónleika i lok mai. Tónlisarfélaeið eetur bætt viö sig nokkrum áskrifendum. Einar Hákonarson meö stórsýningu á Kjarvalsstöðum Einar Hákonarson á Kjarvalsstöðum Einar Hákonarson listmálari opnar málverkasýningu kl. 14 i dag, laugardaginn 16. okt. i vestursal Kjarvalsstaöa. Sýningin veröur opin til 25. okt. A sýningunni eru 88 ný málverk, og segir i tilkynningu frá listráöi Kjarvalsstaða aö verk þessi marki að mörgu leyti þáttaskil i listsköpun Einars. Hann hefur áður haft fimm einkasýningar og auk þess tekið þátt i fjöl- mörgum alþjóölegum sýningum og samsýningum innanlands. Hann hefur hlotið verölaun fyrir málverk og grafik erlendis. Björn Th. Björnsson segir m.a. um sýningu Einars i formála að málverkaskrá: ,,Hann er teiknari og mynd- skipunarmaður fyrst og fremst. agaður af góöum skólum og löngu starfi aö svartlist, þar sem reynir ekki sist á þá frum- þætti myndgerðar sem hér er haldið til skila.” dþ Torfi Jónsson á Loftinu Eiginkonur fóstbræðra sýna stöðu konunnar i ýmsum löndum á skem mtikvöldum kórsins.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.