Þjóðviljinn - 16.10.1976, Side 16
MOÐVIUINN
Laugardagur 16. október 1976
Alþýðubandalagið
um nefndaskipan
Engin
áhrif á
störf
VL-málið gegn Þjóðviljanum
8 tíma málflutningur, en lauk þó ekki
Alþingis
Þingflokkur Alþýöubandalags-
ins hefur tiinefnt Lúövik Jóseps-
son i nefnd þá um veröbólguþró-
unina sem rikisstjórnin hefur
óskað eftir að þingflokkarnir til-
nefndu fulltrúa i ásamt fleiri aöil-
um. i bréfi Alþýðubandal. segir:
Þingflokkur Alþýðubandalags-
ins hefir tilnefnt Lúðvik Jóseps-
son sem fulltrúa i þá nefnd, sem
þér óskið tilnefningar i með bréfi
yðar frá 8. okt. s.l.
Það skal skýrt tekið fram, að
þingflokkur Alþýðubandalagsins
telur aö skipan umræddrar
nefndar og þátttaka i störfum
hennar, hafi engin áhrif á flutning
og afgreiðslu mála á Alþingi um
efnahagsmál, né heldur geti hún á
nokkurn hátt haft áhrif á gang
launamála i landinu almennt.”
Klukkan niu f gærmorgun
hófst málflutningur i máli VL-
inga gegn Svavari Gestssyni,
ritstjóra, fyrir hönd Þjóðvilj-
ans. Hófst flutningur með ræðu
lögmanns VL, Gunnars M. Guð-
mundssonar hrl. Stóð ræða hans
frá kl. 9.30-12 og frá 1-3.10, en þá
tók við Ingi R. Helgason, hrl.
lögmaður Þjóðviljans. Talaði
hann til klukkan hálfsjö um
kvöldið. Lauk málflutningi ekki
og verður honum framhaldið i
dag árdegis.
Dómari i málinu er Garðar
Gislason.
Mál þetta er umfangsmesta
Andri
Gils
Svava
Thor
meiðyrðamál, sem komið hefur
fyrir borgardóm Reykjavikur.
Á myndinni eru vottar og
dómari til vinstri, lögmaður VL
sitjandi og i ræðustól lögmaður
Þjóðviljans Ingi R. Helgason.
• Fundur hefst
i Stapa kl. 14
• Baráttuvaka
i Stapa kl. 20
i kvöld
• Fundur i
Sigtúni 9-19
ásunnudag
Viðamikil ráðstefna
herstöðvaandstæðinga
Ráðstefna Samtaka herstöðva-
andstæðinga hefst i Stapa kl. 13 f
dag. Um hádegi í gær höfðu lið-
lega 250 manns skráð sig á ráð-
stefnuna en skráningu lýkur ekki
fyrr en kl. 14 á sunnudag. Menn
gcta þvi sótt ráðstefnuna seinni
daginn, þó að ekki sé timi til aó
vera á henni báða dagana. Ráð-
stefnugjald hefur verið ákveðiil
2000 kr. og veður hluta þess varii)
til að greiða niður flugfargjöld
gesta utan af landi. Gjaldið skal
greiða við innganginn.
1 dag verða fjögur framsögu-
erindi flutt. Fyrstur talar Andri
tsaksson, formaður miðnefndar
og gerir grein fyrir störfuiri
hennar. Þá mælir Gils Guð-
mundsson fyrir tillögu miðnefnd-
ar að lögum fyrir samtökin, en
siðan verða kynnt drög að stefnu •
skrá. Það gera þeir Gunnar
Andrésson, Ari Trausti Guð-
mundsson, Ragnar Stefánsson og',
Ásmundur Asmundsson. Lokíi
verður starfsáætlunin rædd og;
hefur Svava Jakobsdóttir fram-
sögu um það mál.
Aætlað er að þessir dagskrár-
liðir og umræður um þá standi tii
kl. 18.30 en þá verður fundarhlé.
Kl. 20 hefst svo kvöldvaka of!
verður þar margt á dagskrá.
Starfshópur um alþýðu-
menningu byrjar á þvi að raule.
lög um herinn og baráttu is-
lendinga, spánverja og Chilebúá.
gegn honum. Þá les Birgir Svan
eigin ljóð og á eftir flytur Thor
Vilhjálmsson ræðu, sem er jafn
framt aðalræða kvöldsins. Næstl
les Ingibjörg Haraldsdóttir úr
ljóðum sinum og Baldvin Hall-
dórsson les ávarp frá Indiana-
höfðingja. örn Bjarnason syngur
þvinæst baráttusöngva, Óskar
Halldórsson les úr ljóðum Jó-
hannesar úr Kötlum og að lokum:
syngja félagar úr ýmsum áttunri
lag og ljóð Þorsteins Valdemars-
sonar ,,Þu veist i hjarta þér.”
Munið að skráning á ráðstefnuna fer fram
en þá verður Sigtúni lokað. Ráðstefnugjald
Kynnir á kvöldvökunni er Stein-
unn Jóhannesdóttir
Seinni daginn, sunnudag
verður ráðstefnunni fram haldið
Sigtúni i Rvk. Hefst fundur kl
9.30 og starfa þá umræðuhópai
um lög, stefnuskrá og starfs
áætlun samtakanna. Þeim ei
ætlað að ljúka störfum á hádegi
Að hádegisverðarhléi loknu
gera hóparnir grein fyrir störfumi
sinum og þvinæst verða frjálsar
umræður. Þá verða tillögur af-
greiddar og i lokin verður kosið i
miðnefnd. Áður en ráðstefnunni
verður slitið mun Gunnar
Guttormsson stjórna baráttusöng
fundargesta við undirleik Eliasar
Daviðssonar.
Framhald á bls. 14.
til kl. 14 á sunnudag,
er kr. 2000.
Notuðu þyrlu
í þriðju leitir
Menn eru sifellt aö taka
tæknina meira og meira I sina
þjónustu. Og um leið hverfur
„.sjarminn” af sumum verkum,
sem' um aldaraðir hafa verið
unnin af mönnum án mikilla
hjálpargagna. Eitt af þvi sem
hefur haft yfir sér sérstakan biæ
i þjóðlifi islendinga um aldir eru
göngur og réttir og svo er enn.
En nú eru menn lika farnir að
nota tæknina við göngur eins og
fleira.
Þannig höfðu mývetningar
það amk. þegar þriðju leitir áttu
að fara fram, að þeir fengu sér
þyrlu og flugu yfir það svæði,
sem menn hefðu annars farið
gangandi eða riðandi á hestum.
„Þetta er i fyrsta sinn, sem
við notum þyrlu i leitir,” sagði
Erlingur Sigurðarson bóndi að
Grænavatni i Mývatnssveit, er
við ræddum við hann i gær, og
spurðumst frétta af þessari
nýstárlegu „smölun” ,,og þetta
gekk ljómandi vel”, sagði Er
lingur.
Eins og gefur að skilja tók
þessi leit mun skemmri tima en
ef leitað hefði verið uppá gamla
mátann. Flogið var yfir stórt
svæði part úr degi. Flogið var
norður fyrir Gæsafjöll austur að
Dettifossi og siðan suður hjá
Bláfjalli og þaðan suður yfir
Bruna og austan við Dyngju-
fjöll, austur með þeim og allt til
Kollóttu Dyngju, sunnan við
Herðubreið og austur að Jökuls-
á og þar norður siðan og suður
yfir fjöllinn aftur, norðan við
Búrfell.
1 þessari þyrluleit náðu menn
14 kindum og tóku um borð i
þyrluna en þeií sáu fleiri kind-
ur,sem svo voru sóttar dag-
inn eftir. Til að handsama
kindurnar þarna á reginfjöllum,
var notuð tik, sem er einstakur
smalahundur og nefnd er Týra.
Hún hljóp kindurnar uppi og
hélt þeim, þar til menn komu
höndum yfir þær.
Geta má þess að þarna var
flogið yir stærra svæði en vana-
lega er farið i göngum og á sum-
Sigurður Þórisson frá Grænavatni, Jón Armann Pétursson og Jón Heiðberg flugmaður á hlaðinu að
Grænavatni eftir að farið hafði verið I leitir I þyrlu. Tikin Týra, sem sést á myndinni, ásamt einu af þeim
lömbum sem handsömuð voru á reginfjöllum, lék stórt hlutverk i þessari sérstöku leit, hún hljóp uppi 14
kindur og hélt þeim þar til menn komu og handsömuðu þær. (Ljósm. Erlingur Sigurðarson)
um svæðum sem ekki eru geng-
in náðust kindur, sem annars
hefðu ekki komið fram.
Erlingur tók fram, að þyrlu-
timinn væri mjög dýr, en hins
vegar væri það lika dýrt að taka
menn frá haustönnumog senda i
leitir og þessar þyrluieitir hefðu
sparað mjög mikinn tima og
mannafla, þannig að sennilega
væri nokkuð jafnvægi á þegar
upp væri staðið. En þrátt fyrir
þetta flug, fóru menn i þriðju
leit, en vegna þess að búið var
að fljúga yfir mestan part af
svæðinu, þurfti miklu færri
menn og þeir sem fóru þurftu
ekki að fara yfir nema brot af
þvi svæði, sem þeir annars
hefðu þurft og gátu i mörgum
tilfellum gengið að kindunum
visum eftir tilsögn þeirra, sem
flugu yfir svæðið daginn áður.
S.dór