Þjóðviljinn - 24.10.1976, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. október 1976
fil hnífs og skeidar
Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir
Meira um
ávaxtamauk
Ester Rut hringdi og vildi
bæta einni uppskrift við þær
sem við birtum um daginn af
hráu ávaxtamauki. Hún sagöist
hafa búið þetta mauk til i ein 15
ár og það væri alltaf jafn
vinsælt. Svona er uppskriftin:
2 appelsinur
3 sítrónur
1 pk aprikósur
sama magn af sykri (eða
púðursykri)
Avextirnir hakkaðir og vikt-
aðir (börkurinn meö). Sama
magn af sykri sett út i og hrært
vel saman. Látið standa i amk
12 tima i skál og hrært i af og til.
Best er að nota púðursykur,
hann er hollari en hvitur sykur.
Ester sagði að þetta mauk
geymdist mjög vel i krukkum
með góðu loki á köldum stað.
Hún sagðist aldrei setja
viðbótarefni i ávaxtamauk eða
berjasaft, en hana gerir hún úr
sama magni af sykri og saft og
notar ekkert vatn.
Úr eldspýtustokkum og pappa:
Lítil hús og stór
Eldspýtustokkar eru til
ýmissa hluta nytsamlegir þegar
búið er að tæma þá. Þá má nota
til að lima á pappaspjöld, mála
þá og lima á þá glugga og hurð-
ir. Þannig ma byggja heila stór-
borg. Lánið börnunum myndir
af húsum, bilum, trjám o.s.frv.
til að lima á myndina með eld-
spýtustokkunum og gera hana
enn fjölbreyttari. Þá eru eld-
spýtustokkar tilvaldir i húsgögn
i dúkkuhúsið. Dúkkuhúsið úr
pappakassanum yrði áreiðan-
lega vel þegin jólagjöf eða af-
mælisgjöf. Settar eru tvær spýt-
ur i gegnum pappakassa, á þær
limdur botn úr pappa og þá er
búið að byggja tvær hæöir. Hús-
ið er „veggfóðrað” að innan
með skrautlegum gjafapappir
eða veggfóðri, klipptar hurðir
og gluggar, og húsgögn gerð úr
eldspýtustokkum, litlum pappa-
kössum, svampbútum, gömlum
trékubbum, plastilátum o.s.frv.
Klippt gluggatjöld og hengd
fyrir gluggana. Húsið er málað
að utan og einnig má gera garð
með mosa, steinum o.s.frv.
Púslu-veggmynd
Hér er ennþá meiri handa-
vinna, sem börn og fullorðnir
geta gert i sameiningu. Teikn-
aðar eru myndir af 5 persónum.
Þessar myndir eru siðan klippt-
ar út úr filti eða öðru þykku efni
og hver limd á efnislengju:
Efnislengjan er siðan klippt i
þrennt, brotið upp á brúnirnar
(þærmá lima eða sauma), sett-
ar smellur i hornin eöa falskur
rennilás, og siðan er myndunun.
smellt á strigateppi. Strigatepp-
ið hangir á bambusstöng og á
það eru auðvitað festar smellur
eða rennilás eins og á ferhyrn-
ingana. Siðan er hægt að raða
ferhyrningunum saman eftir
vild. Eigi maður saumavél er
ennþá betra að sauma filtmynd-
irnar fastar á eftir að búið er að
lima þær og siðan eru augu,
munnur, nef o.s.frv. saumað i
höndunum. Þetta getur veriö
litil mynd eða stórt veggteppi
eftir vild.
Peysa úr hekluðum
ferhyrningum
Hér er peysa á 6—8 ára, gerð
úr ullargarni (eða bómull) sem
úr eru heklaðir 40 10x10 sm fern-
ingar. Hægt er að nota margs
konar garn og er ágætt að byrja
á að gera einn ferhyrning og
áætla fimm i viðbót til að fá um-
málið á peysunni. Sé garnið
þykkt verður peysan þeim mun
stærri. Einnig má gera hvern
ferhyrning úr mörgum litum af
garni. Þeir eru siðan saumaðir
saman með garni eða heklaðir
saman eins og mynstrið sýnir. 1
hálsinn er heklað meö föstum
lykkjum og gert op til að komast
i peysuna. Heklað niður opið og
framan á ermar eins og i háls-
inn. Tala sett i hálsinn og peys-
an er tilbúin.
HANDA
BÖRNUM
Þrátt fyrir mikið vöru-
úrval/ verður kannski
aldrei hægt að fá eins
skemmtilega og góða
hluti eins og þá sem
maður býr til sjálfur— og
áreiðanlega aldrei ódýr-
ari. Leikföng eru til
dæmis orðin mjög dýr, og
hvernig væri þá að láta
börnin búa til leikföngin
sjálf — með hjálp fullorð-
inna? Hér eru nokkrar
hugmyndir að skemmti-
legum hlutum fyrir börn-
in sem eiga það sam-
eiginlegt að kosta litið og
einhverjum finnst
áreiðanlega gaman að
spreyta sig á. Myndirnar
og hugmyndirnar eru úr
sænska blaðinu „Vi
foráIdrar".