Þjóðviljinn - 24.10.1976, Page 5

Þjóðviljinn - 24.10.1976, Page 5
Sunnudagur 24. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Frá útifundi hjá PCI : hrifning og spurn. Kommúnistaf lokkur Italíu vann allgóðan sigur í kosningunum í sumar eins og mönnum er í fersku minni. Þeir staðfestu fyrri sigra og bættu við sig fylgi- fengu 34,5% atkvæða. Þessi sigur hefur að visu ekki dugað til að ná þeim áfanga í þróun svonefndr- ar sögulegrar málamiðlun- ar, að upp úr kosningum yrði til þjóðstjórn helstu f lokka landsins, sem tækist á við þá efnahagskreppu sem ítalía er í. Slík stjórn væri of stórt stökk fyrir Kristilega demókrata, sem hafa haldið velli sem stærsti flokkur landsins. Og auk þess eru þau öfl meðal kristilegra sem vilja samstarf við kommúnista neydd til að fara sér hægt: lánadrottnarnir vestur- þýskuog bandarísku hafa i hótunum um efnahagsleg- ar þvinganir séu kommún- istar teknir í ríkisstjórn. Hverð gerist næst? En á hinn bóginn kemur þaö greinilega i ljós eftir kosningar a6 ekki er hægt að stjórna i blóra viö kommúnista, án verulegs sam- starfs við þá. Breytt aöstaöa þeirra á þingi ber þessu vitni — þeir eiga forseta fulltrúadeildar- innar og hafa formennsku i sjö meiriháttar þingnefndum. Stjórn Andreottis er fallin nema kommúnistar sýni henni þá misk- unnaðsitja hjá. En þessi staða er um leið þunguð ýmsum áhættum fyrir kommúnistaflokkinn, eink- um fyrir samband hans við al- þýðu, við verklýðshreyfinguna. Þetta kemur vel i ljós á þessum vikum, þegar stjórn Andreottis hefur staðið fyrir verðhækkunum á ýmsum vörum. Ýmsar efasemdir setjast nú að hinum virku meðlimum flokksins i þeirri gagnrýnu sjálfsskoðun sem þeir stunda. Annarsvegar hafa þeir verið hrifnir, já allt að þvi barnslega hrifnir af þvi, að fá opinbera viðurkenningu á hinu mikla afli sem flokkur þeirra er, yfir möguleikum hans til að hafa áhrif á pólitiskt lif i landinu. En á KOMMÚNISTAFLOKKUR ÍTALÍU frumkvæðis, og um leið verðum við aö virkja sem best hæfni okk- ar til baráttu og til tillögugerð- ar.” en ekki vald hinn bóginn eru þeir i vanda: hvað gerist næst? Hvaða stökk verða þeir að taka undir sig næst eftir að þeir hafa bjargað hægri- stjórn með hjásetu á þingi? Nú þegar þeir eru á miðri leið milli meirihluta og stjórnarandstöðu, eiga þeir að krefjast beinnar aðildar að stjórn eða slá undan? Er það ekki hættulegt að neyðast til að standa stöðugt i „stjórn- list”, bregðast við málum frá degi til dags eftir þvi sem þau upp koma? Vandinn viðurkenndur Forysta flokksins lætur sér ekki sjást yfir þennan vanda. Alfredo Reichlin, ritstjóri vikurits kommúnista, Rinascitá talar i leiðara um að flokkurinn verði nú fyrir erfiðri prófraun og taki miklar áhættur. Enrico Berlingu- er taldi ástæöu til þéss, þegar hann hélt lokaræðu á hátiö blaðs- ins Unitá i Napoli, að leggja á það áherslu að „PCI hefur verið, er og verður kommúnistaflokkur”. Gi- orgio Amendola, einn af helstu foringjum flokksins um langan tima telur að flokkurinn eigi að ganga i stjórn nú þegar. Luigi Longo segir hinsvegar: „Alla- vega má ekki telja hjásetu okkar á þingi sem lið i samkomulagi stórvelda um skiptingu valds”. Giorgio Napolitano hefur dregið þverstæður ástandsins saman á þennan hátt i nýlegri grein: „Andspænis stjórninni erum við i stöðu virkrar árvekni, yfir- vegaðrar gagnrýni, úthugsaðs Bjargráð og umbætur Astæðurnar fyrir vanliðan kommúnista eru margar. Það er ástæða til að byrja á efnahags- ástandinu i landinu sem er langt frá þvi að vera glæsilegt. Verð- bólgan er um 18% á þessu ári, gengið fellur, viðskiptajöfnuður- inn er óhagstæður um 6.500 mil- jarði lira, erlendar skuldir nema 14.000 miljörðum, atvinnu- leysingjar eru tvær miljónir. Það er við þessar aðstæður sem Kommúnistaflokkur Italiu tekur á sig nokkurn hluta ábyrgðar á stjórn landsins. Nú er flokkurinn i sjálfu sér ekki andstæður sparnaðarráðstöfunum. En i dag er spurt um valkosti sem þessa: hækka verðlag á opinberri þjón- ustu, frysta laun, takmarka lán- veitingar peningastofnana. Og það sem verra er fyrir flokkinn — það er hætta á þvi, að þessir val- kostir verði að veruleika i nafni „neyðarástands” án þess að þessum ráðstöfunum fylgi ein- hverjar meiriháttar umbætur. Og þar með verði sparnaðar- og niðurskurðarráðstafanir aðeins til að festa i sessi allt það sem rotið er og úrkynjað i enahags- legri uppbyggingu italsks sam- félags. Kommúnistaflokkurinn veit vel, að ef stefnt væri á raunveru- legar breytingar nú, þá mundi það jafnvel krefjast enn harðari ráðstafana en stjórn Andreottis boðar. Til dæmis veit flokkurinn, að ef gerðar væru áhrifamiklar breytingar á fjárlagapólitik þá yrði það alls ekki sársaukalaust — breytingarnar mundu ekki að- eins koma við pyngju auðmanna og meðaltekjuhópa heldur og skerða laun vissra hópa meðal verkafólks. Verkföll og launastigar Það ber margt til þess, aö flokkurinn hikar við að kjósa sér hlut i þessum málum. Eitt er, aö flokkurinn stendur andspænis heilli skriðu verkfalla og skæru- hernaðar. Lestarstjórar stöðva umferð, flugmenn fara sér hægt, Framhald á bls. rl mm KILJUR (Verð án söluskatts) . □ Inngangur að félagsfræði. Kr. 1000. [71 Með storminn i fangið I. Greinar og ræður 1937-1952 kr. 1200. L Með storminn í fangið II Grein- ar og ræður 1953-1972 kr. 1200. H Félagi forseti. Kr. 1000. r ! Um listþörfina. Kr. 1000. □ Listin að elska. Kr. 1000 f ;Frásögur úr byltingunni. Kr. 1000. iUpphaf siðmenningar. Kr. 800. Kalda stríðið. Kr. 1000. L □ Og svo fór ég að skjóta... Frásagnir bandarískra her- manna úr Vietnamstríðinu kr. 1000. □ Kommúnistaávarpið. Kr. 1000. H Bandaríkin og þriðji heimurinn. Kr. 1000. [TlÞættirúrsögusósíalismans. Kr. 1000. L1 Einum kennt — öðrum bent. Tuttugu ritgerðir og bréf 1925- 1970. Kr. 1200. □ Summerhill-skólinn. Kr. 2000. H Jarðneskar eigur. Saga auðs og stétta. Kr. 2000. H Þættir úr sögu Rómönsku H Ameriku Kr. 1800 H Heimskreppan og heimsvið- H skiptin. Kr. 900. Nafn Heimilisfang Pöntunarlisti

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.