Þjóðviljinn - 28.10.1976, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.10.1976, Síða 1
„Július Havsteen” á siglingu viö heimahöfnina. UOmiUINN Fimmtudagur 28. október 1976—41. árg. — 242. tbi. Norðlingafljót Sjá opnu Ekki litið á skýrslur um veiðar sem þeir hafa skilað Ráðning eftírlitsmanna sýndarmennska? Sem kunnugt er réð sjávarút- vegsráðuneytið 5 menn, til þess að fara út á sjó með veiðiskipum og hafa eftirlit með afla þeirra og skila þessir eftiriitsmenn skýrslum tii Hafrannsóknar- stofnunarinnar eftir hverja ferð. Þessir eftiriitsmenn hófu störf i septemher sl. og Þjóðvilj- inn veittil þess að skýrslum hef- ur verið skilað eftir veiðiferðir á Vestfjarðarmið. 1 gær þegar við ætluðum að fá fréttir af þvi sem i þessum skýrslum kemur fram, kom i ljós, að enginn hafði litið á þær. f fyrstu virtust menn ekki vita hvar þær væru niður komnar. Við höfðum þá samband við Jón Arnalds, ráðuneytisstjóra i sjávarútvegsráðuneytinu og sagði hann að skýrslunum væri alltaf skilað til bókasafns Haf rannsóknarstofnunarinnar. Þar næsthöfðum við samband við Jón Jónsson forstöðumann Hafrannsóknarstofnunarinnar og sagðist hann ekki hafa séð þessar skýrslur. Þar sem við vildum vita hvað ekýrslur um þorskveiðar útaf Vestfjörðum segðu, höfðum við samband við Sigfús Schopka og sagðist hann ekki hafa haft tima til að lita á þessar skýrslur. Olafur Karvel hafði sagt i samtali við Þjóðvilj- ann i fyrradag að hann hefði ekki séð skýrslurnar. Manni verður þvi spurn. Eru þessir eftirlitsmenn aðeins til að vinna fyrir pappirsgeymslu- möppur á bókasafni Hafrannsóknarstofnunarinnar, ellegar var ráðning þeirra aðeins sýndarmennska að hálfu sjávarútvegsráðherra til að friða einhverja sem ekki var rótt undir vægast sagt umdeild- um störfum hans að málefnum sjávarútvegsins? Eða hver er skýringin á þvi að á skýrslur eftirlitsmannanna er ekki litið? Þjóðviljinn hefur sannfrétt að i einni skýrslunni af veiðiferð á Vestfjarðamið komi fram, að uppistaöa aflans hjá tveimur togurum hafi verið eintómur smáfiskur. —S.dór. Mismunandi hugmyndirum varnargarða fyrir norðan: Erfitt að ná samkomulagi Spurt er hvort verja eigi fyrst og fremst mannvirki á virkjunarsvæðinu við Kröflu eða byggðina við Mývatn og hvort gera eigi ráö fyrir smá- gosi eða stórgosi Talsverðum vandkvæðum virð- ist bundið að ná samkomuiagi um gerð varnargarða á Kröflusvæð- inu og á Mývatnssvæðinu. Iðn- aðarráðuneytið hefur á grund- velii áiitsgerðar frá Orkustofnun sent frá sér tillögur um varnar- garða. Þær miðast fyrst og fremst við að verja virkjunar- svæðið. Alinanna varna rnef nd Skútustaðahrepps hefur hafnað þeim en i gangi eru tilraunir a 11- margra samstarfsaöila i þessu máli til þess að sætta sjónar- miðin. Þar kemur til álita hvort gera skalráð fyrir möguleikum á smá- gosieða meðalgosi, eða stórfelldu gosi. Iðnaðarráðuneytið hallast að fyrri kostinum og telur þvi eðlilegt að ýtt sé upp varnargörð- um i námunda við virkjunar- svæðið til þess að verja mann- virki hraunstraumi frá gosi við Leirhnjúk. I Mývatnssveit telja margir hinsvegar að nauðsynlegt sé að verja byggðina þar betur. Þessi mál eru nú i skoðun hjá almannavarnarráði, almanna- varnarnefnd Skútustaðahrepps, viðkomandi ráðuneytum og nátt- úruverndarráði. Samstarfsnefnd þessara aðila er starfandi og hef- ur Guðmundi Einarssyni, verk- fræðingi, verið falið það verkefni, að reyna að samræma tillögur. Það sem einkum veldur ágrein- ingi er hvað gera eigi ráð fyrir miklu gosi i varnaráætlunum. Þá kemur til álita hvað byggja eigi varnargarða langt frá hugsanleg- um gosstöðvum — 10 km. 20. km. — það er að segja hvar á að setja mörkin. Fyrir nokkru var ýtt upp tveim- ur varnargörðum norðan Reykja- hliðar að tilhlutan Almanna- varnarráðs og fyrir fé Viðlaga- tryggingar. Þar átti að vinna fyrir 10 miljónir króna en var aðeins gert fyrir 3.5 miljónir. Þykir það mikið hálfkák bæði frá sjónarmiði Mývetninga og frá sjónarmiði þeirra sem vilja að þetta sé tekið sem tvö aðskilin mál, annarsvegar varnir virkj.t únarsvæðisins, og hinsvegar byggðarinnar við Mývatn, og að þær fyrrnefndu hafi forgang mið- að við það að möguleikar séu mestir á smágosi eða meðalgosi við Leirhnjúk — ekh Júlíus Havsteen á sinn stað Skírður eftir farsœlu yfirvaldi þingeyinga Sunnudaginn 24. okt. kom til Húsavikur fyrsti skuttogari Hús- víkinga. Skipið er 286 lestir, smiðað í skipasmiðastöð Þorgeirs og Ellerts, Akranesi. Þessi fyrsti skuttogari Húsvik- inga hiaut nafnið Júiius Havsteen ÞH-1 og er nefndur eftir Júllusi Havsteen, sýslumanni, en hann var kunnur, virtur og vinsæll sýslumaður þingeyinga um langt árabii. Skipið er búið öllum nýjustu siglinga- og fiskileitartækjum og er þannig útbúið, að það á að geta stundat jafnt nótaveiðar sem tog- veiðar. Skipstjóri er Benjamin Antons- son frá Akureyri. Fyrsti stýri- maður Hermann Ragnarsson og fyrsti vélstjdri Steingrimur Arna- son, Húsavik. Stofnað var hlutafélag um kaup og rekstur skipsins og eru stærstu hluthafar Fiskiðjusamlag Húsa- vikur, Kaupfélag Þingeyinga, Húsavikurbær, Verkalýðsfélag ■ Húsavikur. Nafn hlutafélagsins er Höfði h.f. og framkvæmda- stjóri er Kristján Asgeirsson Húsvikingar vænta þess að hrá- efnisöflun og atvinna verði örugg- ari með komu þessa nýja skips til bæjarins. K.P. Þorsk- aflinn amk. 330- 340 þúsund tonn Heildarþorskaflinn verður amk. 330-340 þúsund tonn á þessu ári og fer hann langt fram fyrir öll skynsamleg takmörk að áliti fiskifræðinga en Þjóð- viljinn ræddi stuttlega við þá Sigfús Schopka og Ölaf Karvel Pálsson um þessi efni i gær. Eins og margsinnis hefur komið fram leyfði svarta skýrslan aðeins 230 þúsund tonna heildarafla á árinu sem hámark en sjávarútvegs- ráðherra tók sér hins vegar bessaleyfi til að nefna 280 þúsund tonn. Fiskifræðingarnir voru sammála um að smáfiskadráp væri mikið á tslandsmiðum og gengið væri jafnt og þétt á stofninn. Nú er mokveiði. Þess skal getið að aflahlutur islendinga sjálfra i þessum 330- 340 þúsund tonnum er áætlaður 270-280 þúsund tonn. —gfr HEFUR ÞÚ ÚTVEGAÐ NÝJAN ÁSKRIFANDA? Askrifendasöfnunin stendur sem hœst. — Askrifendasími Þjóðviljans er 17500

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.