Þjóðviljinn - 28.10.1976, Síða 4

Þjóðviljinn - 28.10.1976, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 28. október 1976 DJÖÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfdfélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón méö sunnudagsblabi: Arni Bergmann Útbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjör- leifsson Auglýsingastjóri: Úlfar Þormóösson '.Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólavör&ust. 19. Sfmi 17500 (5 linur) - Prentun: Bláöaprent h.f. SAMANBURÐUR í ræðu sinni um stefnuræðu forsætisráð- herra sýndi Ragnar Amalds, formaður Alþýðubandalagsins, fram á þann regin- mun sem er annars vegar á vinstristiórn- inni og hins vegar hægristjórninni. í ræð- unni sagði Ragnar Arnalds meðal annars: „Ekki er óliklegt að einhverjir hafi áðan hrokkið við að heyra forsætisráðherra lýsa þvi hátiðlega yfir að stefna rikis- stjórnarinnar i efnahagsmálum hefði borið verulegan árangur, Liklega er þetta ein kokhraustasta yfiriýsing sem íéngi hefur heynst i islenskum stjórnmálum. Á þvi ári þegar reiknað er með að visitala vöm og þjónustu hækki um 33% — á þvi ári þegar iskyggi- leg skuldasöfnun við útlönd á sér stað, þegar skuldir rikissjóðs og rikisstofn- ana við Seðalbankann eru komnar yfir 12.000 miljónir króna , sem þýðir i reynd að bankinn hefur prentað nýja seðla sem nemur um 4.000 miljónum króna> annað árið i röð til að bjarga rikissjóði frá fjárþrotum — á þvi ári þegar lifskjör alls þorra launafólks hafa haldist i djúpum öldudal vegna látlausra kjaraskerðingar- aðgerða, þá er forsætisráðherra landsins ánægður með árangurinn og telur sig hafa unnið umtalsverðan sigur. Ekki skal ég halda þvi fram að vinstri- stjórnin hafi ávallt haldið á efnahags- málum þjóðarinnar eins og best verður á kosið. En skyldu ekki flestir þeir, sem ó- ánægðir voru með störf vinstristjórnar- innar gera sér grein fyrir þvi, hvilikur reginmunur er á þeirri stjórn og hinni sem nú situr. Á tveimur fyrstu stjórnarárum vinstri- stiórnar, frá ágústmánuði 1971 til ágúst- mánaðar 1973 hækkaði visitala vöru og þjónustu um 44%. En á tveimur fyrstu valdaárum núverandi hægristjómar, þe. frá stjórnarskiptum til ágústmánaðar 1976 hækkaði visitala vöru og þjónustu um hvorki meira né minna en 111%. Á tveggja ára afmæli vinstristjórnar- innar var gengi krónunnar gagnvart bandarikjadollar nokkurn veginn það sama og verið hafi i upphafi kjörtimabils, það hafði að visu bæði hækkað og lækkað en var um þær mundir i sama fari og verið hafði tveimur árum áður. En svo gifurlegt gengisfall isl. krónunnar verð á tveimur árum hægri stjórnar, að bandarikjadollar hefur hækkað i verði um rúmlega 90%. Á tveimur fyrstu stjórnarárum vinstri- manna batnaði gjaldeyrisstaða landsins um 2.500 milj. kr. og gjaldeyrisvarasjóð- urinn fór nokkuð yfir 6.000 milj. kr. Þá var hrópað hátt um það i herbúðum Sjálf- stæðisflokksins að gjaldeyrisvarasjóður þjóðarinnar væri ekki nógu stór. Nú er þessi sjóður löngu þurrausinn og i staðinn komnar gjaídeyrisskuldir sem nema á annað þúsund miljónum króna. Á tveimur fyrstu valdaárum vinstri- stjórnar jókst skuld rikisins og rikis- stofnana við Seðlabankann um 250 milj. kr. hvort árið, en á tveggja ára valdatima hægristjórnar hefur skuldaaukningin numið um 4 þús. milj. kr. hvort árið. 1 tið vinstristjornar bötnuðu lifskjör fólksins mjög verulega sem sannaðist á þvi að hækkun verðlags i landinu var uþb. helmingi hægari en hækkun almennra launa á fyrri hluta timabilsins. En nú hefur þessi þróun snúist gjörsamlega við og hækkun verðlags hefur verið uþb. tvö- falt meiri en hækkun launanna, eins og margoft hefur verið sýnt fram á i um- ræðum um kjaramál að undanförnu.” Með samanburði sinum á nokkrum meginþáttum efnahagsmála sýnir Ragnar Arnalds skýrt fram á hverjum úrslitum það ræður um kaup og kjör fólksins i land- inu þegar sósialistar ráð einheverju um gang mála. í báðum þeim rikisstjórnum sem hér eru bornar saman var Fram- sóknarflokkurinn með aðild — en dæmin banna að engu skiptir hvort hann er i stjórn eða ekki. Hann er stefnulaust rek- ald, og hægriflokkur i hægristjórn og þeim árangri sem vinstristjórnin náði tókst að að ná þrátt fyrir aðild hans að stjórninni. —s. Guömundur Pétur Hvenœr taka starfandi versl- unarmenn til sinna ráða? Niðurstöðu 10. þings Sjó- mannasambandsins ber fyrst og fremst aö túlka sem sigur starf- andi sjómanna. útsendari at- vinnurekenda- og rikisvaldsins, Pétur Sigurösson, alþingismað- ur var kolfelldur i kosningum til allra trúnaðarstarfa á vegum Sjómannasambandsins, og hlaut hann að vikja fyrir skel- eggri forystu sjómanna sjálfra. Otrúlega viöa i verkalýöshreyf- ingunni hefur útsendurum Sjálf- stæðisflokksins tekist að koma ár sinni fyrir borö, og veröur tvöfeldnin i hráskinnaleik þeirra með hagsmuni verka- fólks æ meir áberandi, eftir þvi sem árásir rikisvaldsins á launakjör alþýöustéttanna haröna. 1 Verslunarmannafélagi Reykjavikur trónar Guðmundur H. Garöarsson, þingmaður Sjálfstæöisflokksins, blaöafull- trúi Sölumiöstöðvar hraöfrysti- húsanna meö meiru, sem for- maöur. Hvenær skyldi starfandi verslunarfólk risa upp og kjósa sér forystu, sem talist getur sannur fulltrúi þess? Prófkjörsvandi A. Þ. i Timanum er mikill á- hugamaður um málefni Alþýöu- flokksins og ritar eftirfrandi um prófkjörsvandann, sem flokks- þingið bakaði sér: „A nýafstöðnu flokksþingi Al- þýðuflokksins fór Sighvatur Björgvinsson alþingismaöur ekki dult með andstöðu sina gegn prófkjöri. Astæðan er skiljanleg. Samkvæmt þeim prófkjörsreglum, sem sam- þykktar voru á flokksþinginu, getur Karvel Pálmason og hans fólk á Vestfjörðum tekið þátt i prófkjöri Alþýðuflokksins. Slikt prófkjör óttast Sighvatur mjög. Hann treysti á, að flokksstjórnin á Vestfjöröum mundi tryggja honum efsta sætið á framboðs- listanum. En nú er sýnt, að svo verður ekki. Framundan er þvi mikiö strfö milli Sighvats og Karvels, og er Karvel óneitan- lega sigurstranglegri.” Sighvatur Karvel Fá rússar öll Nóbelsverðlaun- in nœst? Útdeiling Nóbelsverðlauna hefur sætt æ meiri gagnrýni á siðustu árum. Ýmsir aðilar deila þeim út en þaö viröist þeim sammerkt að þeir hiaupa eftir ýmsum tiskufyrirbrigöum og valið veröur I meira lagi duttlungafullt. Frægt er þegar Nóbelsnefnd norska stórþings- ins útdeildi friöarverðlaunum til Kissingers og aðalsamninga- manns Norður-Vietnams. Sá siöarnefndi hafði vit á þvi að hafna verölaununum. Willy Brandt fékk einnig slík verðlaun fyrir austurstefnu sina án þess að ráö virtist gert fyrir þvi að tvo þyrfti til þess að semja um slökun milli austurs og vesturs. Og úthlutun bókmenntaverð- launa hefur á stundum þótt bera keim af pólitiskum sjónarmiö- um, en ekki bókmenntalegum. Nú er þaö ljóst að mat á friðar- bókmennta- og vísindaafrekum getur aldrei verið algilt. Sá sem fær verölaun er ekki þar með sá besti í heimi á sinu sviði. Nú hafa bandarikjamenn fengiö öll Nóbelsverðlaunin til þessa og eru sjálfsagt vei að þvi komnir. En sá grunur hlýtur aö læðast að manni að nokkru kunni að hafa ráðið að bandarikjamenn halda nú upp á 200 ára afmæli sjálfstæðisyfirlýsingarinnar. A næsta ári halda Sovétmenn upp á 60 ára afmæli byltingarinnar. Með hliðsjón af útdeilingunni i ár má öruggt telja hvar verð-' launin hafna aö ári. Þaö eru lík- leg þessi afmælis- og stórvelda- sjónarmið sem ráða því að friöarverðlaunum verður ekki úthlutað i ár. En er það ekki ámælisvert að útdeilingarmenn Nóbelsverðlauna skuli hafa gleymt okkur islendingum á 1100 ára afmæli Islandsbyggð- ar? Boðberi úreltr- ar stefnu með blóð á fingrum „Eru Milton Friedman og lærisveinar hans sannfærðir um að hendur þeirra séu ekki blóði drifnar?” Þannig spyr Le Monde snemma i þessum mán- uöi. Astæöan er sú, að Nóbels- nefnd Seölabankans i Sviþjóð sæmdi Friedman nóbelsverö- launum I hagfræöi. Friedman hefur verið ráöunautur Barry Goldwaters og herforingja- stjórnarinnar i Chile i efnahags- málum, auk þess sem hann er þekktur fyrir kenningasmið I hagfræöi og skrif I kunn timarit eins og Newsweek. 1 yfirlýsingum hefur Fried- man viðurkennt aö hann sjái ekkert athugavert við að gefa ráðleggingar um efnahags- stjórn til stjórnvalda, sem hann segist þó vera á móti i grund- vallaratriðum. Hann væri þvi llklega reiöubúinn til þess að taka að sér svipaö hlutverk fyrir Pinochet eins og Albert Speer, hermálaráðherra, fyrir Hitler. En það er ekki fyrir þessa ráðgjöf sem hann fær verðlaun- in. Höfuðkenning hans er sú, að rikisvaldiö eigi ekki aðskiptasér af efnahagslifinu nema meö þvi að sjá svo um að ávallt sé hæfi- legt magn af peningum i um- ferö. Kenningar hans eru aftur- hvarf til hinnar úreltu frjáls- hyggju 19. aldarinnar og and- svar við kenningum Keynes um jafnvægishlutverk rikisstjórna I sambandi viö tekjumyndun og atvinnustig i atvinnulifinu. Kenningar Friedmans hafa rennt stoðum undir þá hægri stefnu, sem nú virðist eiga tals- vert brautargengi á Vesturlönd- um. Þaö er nokkurskonar frjálshyggja i stað félagslegu frjálshyggjunnar, sem flestir kapitaliskir hagfræðingar hafa hallast að slöustu áratugina. Eða eins og danska blaöið Infor- mation segir I leiðara: „Þetta eru verðlaun peningavaldsins til spámanns peningahyggjunar.” ekh. Friedman.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.