Þjóðviljinn - 28.10.1976, Page 11

Þjóðviljinn - 28.10.1976, Page 11
Fimmtudagur 28. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 KR-ingar urðu Reykjavík- urmeistarar í körfubolta Ólafur Benediktsson — eftirsjá aö honum lir Islenskum handknatt- leik, ef hann tekur tilboöinu. Freistandi segir Ólafur Benediktsson landsliös- markvörður, sem hefur fengið boð frá sænsku liði um að gerast markvörður þess „Mér finnst þetta afar freistandi, þvi er ekki að leyna a5 manni hefur alltaf langað til aö fá aö reyna sig meö erlendu liöi og ég veit aö ef ég læt ekki veröa af þessu núna, þá geri ég þaö aldrei” sagöi Ólafur Benediktsson lands- liösmarkvöröur i handknatt- leik um tilboö þaö sem hann hefur fengiö frá sænska 2. deildarliöinu Olympia um aö koma til Sviþjúöar og leika meö liöinu. ,,En þaö er margt sem þarf aö athuga. Ég hef góöa at- vinnu hér heima og okkur gengur vel hjá Val i mótinu. Og eins er hitt aö félagiö hefur ekki gert mér ákveöiö tilboö, heldur rætt um þann mögu- leika aö ég komi út. Þeir hafa áhuga á aö koma hingaö og sjá mig lcika áöur en þeir gera mér ákveöiö tilboö. Ef þaö veröur gott býst ég viö aö ég slái til, en ef mér likar ekki boöið læt ég þaö vera, ég fer ekki út fyrir hvað sem er” sagöi ólafur. Þaö veröur mikill missir fyrir Val aö missa Ólaf og þá ekki siður fyrir landsliöiö, sem er aö fara I B-heimsmeistara- keppnina i vetur. ólafur sagö- istmyndi setja sem skilyröi aö hann fengi aö leika meö landsliöinu, ef þaö heföi þörf fyrir sig, ef af Sviþjóðarför yröi. — S.dór. „Hólmsteinn geröi allt sem hann gat” „Hólmsteinn gerði allt sem hann gat,” sögöu KR-ingar um Hólmstein Sigurðsson dómara og töldu hann hafa veriö aö ná sér niðri á KR-ingum i leik þeirra gegn IS i Reykjavikurmótinu i körfuknattleik i gærkvöldi. Um leikinn er þaö annars aö segja, aö KR-ingar sigruöu 1S meö 67 stigum gegn 53, en i hálf- leik var staðan 33-31 fyrir KR. Fyrri hálfleikur var allur mjög jafn, en á 1. min. i seinni hálfleik tóku KR-ingar forystu og á 5. minútu hálfleiksins var staðan 51- 37. mesti munur varð hins vegar 57-41, um miðjan siðari hálfleik. Stúdentarnir áttu i miklum erfið- leikum með að fá leikkerfi sin til að ganga upp, en allt gekk eins og i sögu hjá KR-ingum. Stigahæstu menn: Hjá KR: Kolbeinn Pálsson með 19 stig, Bjarni Jóhannesson 18 stig. Hjá 1S: Bjarni Gunnar Sveinsson með 20 stig. Dómarar voru Marinó Sveins- son og Hólmsteinn Sigurðsson og dæmdu mjög illa og oft og tiðum stórfurðulega. G. Jóh. NM í badminton: Svend Pri kemur 1 fréttatilkynningu frá blaða- fulltrúa Norðurlandamótsins i badminton, sem fer fram hér á landi f lok næsta mánaöar segir m.a.: Það er nú ljóst að hinn stóri draumur fsl. badminton- áhugamanna að fá að sjá hinn heimsfræga badmintonmann Svend Pri á fjölum Laugardals- hallarinnar á NM dagana 20-21 nov. n.k. muni rætast. Danir munu senda alla sina sterkustu badmintonleikara til mótsins. Nú er því beðið með mikilli eftir- væntingu eftir þátttökutilk. frá Svium sem einnig eiga á að skipa nokkrum af sterkustu badminton- leikurum i heimi. B.S.l. hafa nú borist þátttöku- tilkynningarfrá Danmörki, Noregi og Finnlandi, en svlar og Islendingar munu tilkynna sin lið fyrir fimmtúdag en þá verður raðað niður i mótið. 1 liði Dana eru margir heims- frægir badmintonleikarar. Svend Pri varð heimsmeistari (All England) 1975 I einliðaleik, hefur einnig þrisvar orðið Norður- landameistari bæði i einliða- og tvíliðaleik, og einu sinni I tvenndarleik. Hann er einnig margfaldur Danmerkurmeistari og hefur á undanförnum árum verið talinn einn allra besti badmintinleikari í heimi þó svo að hann hafi aðeins einu sinni sigrað á hinu óopinbera heimsmeistarmóti All England. Hann varð fyrir þvi óláni að slasast illa á fæti i upphafi slðasta keppnistimabils og varð þvi m.a. frá keppni á síðasta NM f Stokk- hólmi. Hann mun nú vera búinn að ná sér að fullu á ný og samkv. fréttum frá Danmörku hefur hann sjaldan eða aldrei verið betri en einmitt nú. Það er þvi ljóst að erfitt verður fyrir Sture Johnsson frá Sviþjóð aö verja Norðurlandameistaratitil sinn þar sem Pri mun örugglega gera sitt til að endurheimta þann eftir- sótta titil. Lene Köppen er þrefaldur Danmerkur- og N o r ð u r 1 a n d a m e i s t a r i i badminton en hún hefur verið ein fremsta badmintonkona i heiminum undanfarin ár þó svo að hún hafi tvö s.l. ar tapað I undanúrslitum á All England. Pia Nielsen er Evrópumeistari unglinga i einliðaleik. Pernille Kaagaard er gamalkunn kempa og er mjög sterk i tviliöaleik og tvenndarleik. Heimsmeistari I tviliðaleik varð hún 1970. Þá státar hún af fjórum sigrum i tviliðaleik og fimm sigrum i tvenndarleik á NM. Hún varð fyrir þvi óláni aö slasast i upphafi siöasta NM i Stokkhólmi. Hún mun þvi ef að likum lætur gera sitt eins og Pri til að endurheimta Noröulandatitla sina. Ármann-ÍR 85:73 Armann vann ÍR 85:73 i siö- asta leik Reykjavikurmótsins 1 körfubolta í gærkvöld. •Sigur Ármanns var öruggur og aldrei i hættu. Jimmy Rogers skoraði flest stig fyrir Ar- mann, 24. Jón Sigurðsson skoraöi 17 stig. Stigahæstir hjá 1R voru Kolbeinn Kristinsson, 18 og Jón Jörundsson 12. Jón Jörundsson var meö bestu vitahittni i mótinu, 12:10 eða 83%. Jimmy Jogers var stigahæsti maður mótsins, skoraði 135 stig eða 27 að meðaltali i leik. Lubansky — von pólverja I HM keppninni. Pólverjar endurheimta dýrmætan landsliðsmann Lubansky kemur aftur í liðið! Wlodzimierz Lubansky, hetja pólverja i siðustu heimsmeist- arakeppni i knattspyrnu, mun um helgina leika með landsliði sinu á ný eftir tveggja ára hlé. Pólverjar mæta þá kýpurbúum i HM-keppninni, en þeir eru I riðli með Kýpur, Portúgal og Danmörku. Lubansky varð að hætta að leika með landsliðinu strax eftir stórkostlega frammistöðu i sið- ustu HM-keppni sem lagöi horn- steininn að óvæntri velgengni pólverjanna. Meiðsli i hné voru þess valdandi aö hann varð að hætta knattspyrnuiðkun að nokkru leyti og hélt hann yfir til Belgiu, til þess að leika þar i 2. deild. En nú hefur Lubansky náð sér að fullu og pólskir knattspyrnu- aðdáendur binda við hann miklar vonir. Stefnan hefur vcrið tekin á úrslitakeppnina og er vonast til þess að Lubansky leggi til þess drjúgan skerf af mörkunum. Júdó- menn þinga A laugardaginn klukkan tvö munu islenskir júdómenn setjast niður og halda sitt ársþing að loknu annasömu en árangursriku starfsári. Þingið fer fram i húsa- kynnum Miðfells h/f að Funa- höfða 7. 1 fréttatilkynningu um þingið kemur m .a. fram að á starfsárinu var fimm sinnum keppt viö aðrar þjóðir og unnust fjórar af þeim viðureignum. Þykir hlutur islenskra judómanna á alþjóðavettvangi fara sivaxandi. Danir sigruðu Danir sigruðu norður-Ira með einu marki gegn engu i fyrri leik liðanna i Evrópukeppni unglinga- landsiiða. Kenneth Larsen skor- aði hið dýrmæta sigurmark dana fyrir tæplega eitt þúsund áhorf- endur á leikvanginum i Álaborg. ÍR-ingar áfrýja IR-ingar eru búnir að áfrýja úr- skurði dómstóls KKRR, vegna mál Þorsteins Hallgrimssonar sem upp kom á dögunum, að sögn Páls Júliussonar formanns KKl. IR-ingarnir áfrýjuðu til dóm- stóls KKl á söm f' rsendu og þeir fóru með málið til KKRR og fara fram á að dómstóllinn dæmi úr- skurö KKRR dómstólsins ógildan og að leikurinn fari fram aftur. Einnig má ætla að þeir fari fram á aö dómstóllinn viti aganefnd fyrir léleg vinnubrögð við að til- kynna viökomandi aðilum um leikbannið sem Þorsteinn var dæmdur i. I dómstólnum eiga þrir menn sæti, Hólmsteinn Sigurðsson, Kristbjörn Albertsson og Hilmar Hafsteinsson. Hólmsteinn er IR- ingur og verður þvi að vikja, Kristbjörn dæmdi leikinn og verður hann þvi að vikja og Hilmar er ekki á landinu. Vara- maöur i dómstólunum er Guð- mundur Þórsteinsson, en stjórn KKI verður aö skipa hina tvo dómarana. Búast má viö úr- skurðinum innan fárra daga. G.Jóh.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.