Þjóðviljinn - 26.11.1976, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 26.11.1976, Blaðsíða 5
Föstudagur 26. nóvember 1976 I»JÓDVILJINN — SÍÐA .> Greinargerð röntgentœkna: „Sömu laun fyrir sömu vinnu” Röntgentæknafélag Islands hefur sent frá sér eftirfarandi greinargerð vegna fjöldaupp- sagna félagsmanna, sem starfað hafa á sjúkrahúsum hér i Reykjavik: Vegna fyrirspurna sem fram hafa komið um aðgerðir félags- manna Röntgentæknafélagsins vill félagið taka fram eftir- farandi: Við hörmum þetta ástand, sem skapast hefur vegna öbilgirni og óraunsæi viðsemj- enda okkar. Undanfarin ár hafa viðsemjendur okkar ítrekað brotið gerða samninga og ekki fengist til að leiðrétta, þrátt fyrir margar vinsamlegar ábendingar og tilmæli frá röntgentæknum, starfsmanna- félagi rikisstofnana og starfs- mannafélagi Reykjavikurborgar. Arið 1974 var gerður kjara- samningur fyrir röntgentækna af starfsmannafélagi rikisstofnana við fjármálaráðherra þar sem gert var ráð fyrir að þeir fengju laun skv. 19. lfl. (B 10 i dag). Þessi samningur hefur aldrei verið virtur, allar götur siðan höfum við fengið laun skv. 18. lfl. og ekki fengið nein vilyrði um leiðréttingu. 1 umræddum samningum 1974 gerðist það að röntgentæknar voru settir bæði i 18 og 19. lfl. Skv. hefð sem gilt hefur hjá rikinu þegar slik slys verða er ávallt greitt skv. þeim launaflokki, sem hærri er sé munurinn ekki því meiri. Röntgenhjúkrunarfræðingar hjá rikinu hafa samningsbundið 16 daga vetrarfri, röntgentæknar hjá rikinu hafa samsvarandi vetrarfri undanfarin ár byggt á hefð. Nú i haust var tilkynnt að röntgentæknum hjá rikinu yrðu ekki veitt vetrarfri oftar því engir skriflegir samningar lægju fyrir um þau mál. Röntgentæknar og röntgenhjúkrunarfræðingar hjá Reykjavikurborg og sveitarfélög- unum hafa samningsbundið 16 daga vetrarfri. Er hér þvi um samræmingaratriði að raeða. Ein leiðréttingin sem við förum fram á er að sú sanngjarna krafa „sömu laun fyrir sömu vinnu” verði virt og laun okkar færð til samræmis við laun þeirrar stéttar sem við vinnum við hlið- ina á, nákvæmlega sömu störfin. Orsök þess að við virðum ekki tilskipanir um framlengingu uppsagnarfrests eru þær: 1. Tilskipun um framlengingu uppsagnarfrests hjá rikinu kom ekki frá réttum aðila, þar sem framkvæmdastjóri rikisspital- anna er ekki sá aðili sem hefur vald til að gefa út slikar tilskip- anir heldur hefur heilbrigðis- málaráðherra einn slikt vald og segir i lögum að þvi skuli aðeins beitt horfi til auðnar i starfsemi stofnunarinnar. (1 þessu tilfelli er um að ræða röntgendeild Landspitalans. 2. Tilskipun um framlengingu uppsagnarfrests hjá Reykja- vikurborg kom þrem dögum of seint, auk þess sem óheimilter að framlengja uppsagnarfresti laus- ráðinna starfsmanna Reykja- vikurborgar um þrjá mánuði. Flestir þeir röntgentæknar sem störfuðu á röntgendeild Borgar- spítalans voru lausráðnir. Röntgentæknar mótmæla harðlega þvi virðingarleysi og lillitsleysi gagnvart opinberum i starfsmönnum sem lýsir sér i þvi að tilskipanir um framlengingu uppsagnarfrests hjá rikinu koma fram tveim dögum áður en upp- sagnarfrestur rennur út. Röntgentæknar þeir sem störf- . uðu á röntgendeild Borgar- spitalans hafa tilkynnt yfirlækni deildarinnar að þeir séu tilbúnir að sinna neyðarþjónustu og skipuleggja neyðarvaktir i sam- ráði við yfirmenn deildarinnar verði þessóskað. Sú þjónusta gæti þó aldrei orðin nein langtima þjónusta. Norræn bókakynning í Norræna húsinu Nú fer óðum að liða að bóka- kynningum norrænu sendi- kennaranna við Háskóla Is- lands. Undanfarin ár hafa sendikennararnir i samvinnu við bókasafn NH. haft kynningu á athyglisverðum bókum hins norræna bókamarkaðs haust hvert. Til þessarar kynningar hefir verið boðið norrænum rit- höfundum og hafa Edde Klöve- dal. Reich frá Danmörku, Lars Huldén frá Finnlandi, Olav H. Hauge frá Noregi og Per- Gunnar Evander frá Sviþjóð verið gestir. Að þessu sinni verður það danski rithöfundur- inn Svend Age Madsen. Eins og áður verða kynningarnar tvær, hinn fyrri á bókum frá Finnlandi og Sviþjóð og fer hún fram laugardaginn 27. nóvem- ber, kl. 16:00,og verður Í umsjá sænska sendikennarans Ingrid Westin og finnska sendikennar- ans Ros-Mari Rosenberg. Siðari kynningin, þegar á dagskrá verða danskar og norskar bækur, verður laugar- daginn 4. des., kl.16:00, Og sjá danski sendikennarinn Peter Rasmunssen og norski sendi- kennarinn Ingeborg Donali um hana. Þar les Svend Age Madsen m.a. upp úr nýjustu bók sinni, tveggja binda verki, sem heitir Tugt og utugt i Mellemtid- en. Svend Age Madsen er fæddur i Arósum 1939, varð stúdent 1958, hóf nám i stærðfræði, en hvarf frá þvi eftir þrjú ár. — Svend Age Madsen heyrir til tilrauna- höfundanna svonefndu. Óöryggi og leit að þvi varanlega kemur fram eins og rauður þráður i verkum hans. Ekkert er tekið fyrir gefið og skoðanir og at- burðir metnir frá ýmsum sjónarhornum. Fyrsta ritsmið höfundar var smásagan — Den ottende dag —, sem kom i tima- ritinu Vindrosen 1962. Ari siðar kom fyrsta skáldsaga hans — Besöget — og nú 1976 kom út verkið Tugt og utugt i Mellem- tiden, en ur þvi les hann á kyn- ingunni, eins og fyrr sagði. Sven Age Madsen hefur ekki verið við eina fjölina felldur i verkum sinum. Hann hefur bæði skrifað smásögur og skáldsögur, leik- rit, reyfara og barnabók. Honum voru veitt stóru verð- laun dönsku akademiunnar árið 1972. Bókakynningarnar hefjast kl. 16:00 i bæði skiptin og eru allir velkomnir. i DILKAKJOT á gamla verðinu í öllum matvörubúðum Skólatannlækningar Reykjavíkurborgar munu annast tannviðgerðir barnaskóla- barna i Reykjavik i vetur. Flest börn i Breiðholtsskóla og Fellaskóla auk 11 og 12 ára barna í Árbæjarskóla verða þó að leita til annarra tannlækna þar til annað verður ákeðið og verða reikningar fyrir tannviðgerðir þeirra end- urgreiddir hjá Sjúkrasamlagi Reykjavik- ur. önnur börn eiga að fá tannviðgerðir hjá skólatannlæknum. Leiti þau annarra tannlækna verða reikningar fyrir tannvið- gerðir þeirra ekki endurgreiddir nema með leyfi yfirtannlækna. Skólatannlækningar Reykjavikurborgar. Auglýsingadeildin OPNUMIM ínýju húsnæði við Stmndgötuna önnumst alla almenna bankaþjónustu. Höfum tryggingaumboð fyrir Samvinnutryggingar g.t. og Líftryggingafélagió Andvöku. Opið alla daga kl. 9.30 — 12.30 og 13.00 — 16.00 nema laugardaga. Ennfremur á föstudögum kl.17.30—18.30 Nýtt símanúmer: 5-39-33 Samvinnubankinn STRANDGÖTU 33, HAFNARFIRÐI SÍMI 53933

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.