Þjóðviljinn - 26.11.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 26.11.1976, Blaðsíða 16
UOÐVIUINN Föstudagur 26. november 1976 Aöalsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra ■ starfsmenn blaösins 1 þessum simum Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla81482 og Blaöaprent81348. Einnig skal bent á heimasima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans i simaskrá. Svanur Jó- Haraldur Pétur Péturs- Kjartan Þor- Guðmundur Grétar hannesson Tómasision son steinsson Þ. Jónsson Þorsteinsson Rœtt við fulltrúa á komandi Alþýðusam bandsþingi Hvers vænta menn af ASÍ-þingi? i gær náði Þjóðviljinn tali af nokkrum fulltrú- um, sem sæti eiga á Alþýðusambandsþingi því, sem nú er fram- undan og spurði þá að því, hvaða mál þeir teldu að þar mundi bera hæst og vera þýðingarmest að þingið fjallaði um . Eins og vænta mátti er f lestum það sama í huga og svörin því æði svipuð. Fara þau, í stuttu máli, hér á eftir: Svanur Jóhannesson bókbindari, Reykj avik: Brýnast tel ég að bæta kjörin meö einhverjum hætti, einkum hjá láglaunahópunum . i þjóð- félaginu. Það nær ekki nokkurri átt að laun hér séu i engu sam- ræmi við það, sem gerist hjá nágrannaþjóðum okkar. Ýmis- konar skattamál innan Alþýðu- sambandsins koma sjálfsagt eitthvað á dagskrá. Haraldur Tómasson veitingaþjónn, Reykjavík: Mér er nú frumvarpið að nýrri vinnulöggjöf ofarlega i huga. Nú svo er það vitanlega kaupmáttarskerðingin. Launa- misréttið er orðið óhóflegt. Mér þykir ekki ólikiegt að dag- vistunarmálin beri einnig á góma. Full ástæða væri til að þingið vitti rikisstjórnina ræki- lega fyrir hennar frammistöðu. Margtfleira mættiauðvitað tina til en ég vona að þingið taki al- varlega á þessum málum og öðrum þeim, sem það kemur til með að fjalla um. Pétur Pétursson, ísafirði: Kjaramálin hlýtur að bera hæst. Aldrei verið rikari þörf en nú að rétta láglaunahópunum hjálparhönd. Launamismunur- inn hefur sifellt verið aukast og er það hrein óhæfa. Hinsvegar sýnist litið þýða að hækka kaup þegár stjórnvöld hleypa hækk- ununum strax út i verðlagið og gera þær óðara að minna en engu. Kannski mætti hugsa sér að lækka söluskatt og vöru- gjald? Fleira er kjarabætur en beinar kauphækkanir og það held ég að fólk sé farið að sjá. Kjartan Þorsteinsson, Olafsvík: Taka þarf kaupmátt launanna til rækilegrar athugunar þvi lit- ið þýðir að hækka kaupið ef aII- ar kauphækkanir eru teknar til baka, jafnvel fyrirfram. Kaup- máttinn verður að tryggja. Það er höfuðatriði. Það er litið gagn að þvi að taka eitt skref áfram þegar svo eru tvö tekin afturá- bak. Einnig þarf að taka fyrir- komulag hinar svonefndu kaup- tryggingar til rækilegrar athug- unar. Guðmundur Þ. Jónsson hjá Iðju, Reykjavík: Stefnuskráin er með allra þýðingarmestu málunum. Þá kjarabætur. Og ekki skyldum við gleyma baráttunni gegn vinnulöggjafarfrumvarpinu. Grétar Þorsteinsson húsasmiður, Reykjavík: Mál málanna er kjarabarátt- an. Ný stefnuskrá er lika stór- mál. Siðanfræðslumál alþýðu- samtakanna og aðbúnaður á vinnustöðum. Vinnulöggjafar- frumvarpið verður nú hreinlega að kveða niður. Halldór Hafsteinsson, bílamálari, Selfossi: Náttúrlega eru kjaramálin höfuðviðfangsefnið. Nú svo má ekki gleyma frumvarpinu um nýja vinnulöggjöf. Stefnuyfir- lýsing Alþýðusambandsins er lika þýðingarmikið viðfangs- efni. Og hvaða ákvörðun tekur þingið um þá kjarasamninga, sem nú eiga að heita i gildi? Þeir voru brostnir eftir þrjá mánuði. mhg. lslenski dansflokkurinn er aö fara af staö meö sýningu á atriöum úr klassikum balletum, sem hinn nýi balletmeistari, Nataija Konjús, hef- ur sett á sviö. Myndin er tekin á æfingu á atriði úr Svanavatninu I gær — Nánar um sýninguna á morgun (ljósm. Þjv. — eik —). Mæta ekki á fund Flensborgarkennarar mót- Allt vaðandi í sild á Hornafirði; Haustvertíðin var með eindæmum góð og gjör breytti atvinnulífinu mœla hýrudrœtti Kennarar i Flensborg hafa á fundi 24. 11. 1976 ákveðið að koma ekki á boðaðan fund um kennslu- mál i öldutúnsskóla föstudaginn 26.11., kl. 13.00. Út af fyrir sig er mjög æskilegt að slikir fundir séu haldnir en með þessari aðgerð okkar viljum við mótmæla ákvörðun ráöuneyt- is um að hýrudraga okkur vegna sams konar fundar mánudaginn 15. 11. siðastliðinn. A þeim fundi voru rædd skóla- mál almennt og lögð áhersla á tengsl grunnskólans við fram- haldsskólastigið svo og kjaramál kennara, sem hljóta að tengjast endurbótum i skólamálum. Jafnframt viljum við mót- mæla þvi að ráðuneytið gefi sér tima til að reikna hýrudrátt á hvern kennara I lantíinu á meðan ekki hefur gefist timi til að reikna rétt laun kennara samkvæmt kjarasamningum. —Það er allt vaðandi i sild hérna á Höfn i Hornafirði og við gætum tekið ykkur alla islensku blaðamennina i fulla vinnu hér i plássinu, sagði Óskar Valdimars- son vigtarmaður á Höfn þegar við hringdum þangað i gær og spurð- umst frétta af sildinni. —Það vantar fullt af mannskap, stúlkur til að salta og röska stráka i að slá til tunnur. Það er rifandi vinna eftir þessa fádæma góðu haust- vertið og okkur liður alveg einstaklega vel i sildarhrúgunum hérna, sagði Óskar. Eingöngu var landaö rekneta- sild á Höfn og þrir bátar þaöan fengu allir yfir 4000 tunnur, sem þykir dágóður afli. Voru það bát- arnir Steinunn, Æska og Hvanney sem fluttu svo mikla björg i bú en bátar sem gerðir eru út annars staðar frá urðu oftsinnis að hverfa frá Höfn vegna þess hve löndunarbiðin var löng. Og jafn- vel heimabátarnir urðu lika að hrökklast frá á stundum. —Við tókum á móti 11-12 hundr- uð tunnum i dag, sagði Óskar, — og það er viðbúið að það verði eitthvað svipað á morgun. Þetta er búið að vera afskaplega fjörugt siðustu vikurnar og óhætt er að fullyrða að atvínnulifið á staðnum hefur gjörbreyst til hins betra. Höfn i Hornafirði var einn stærsti móttökuaðilinn á þessari vertið, en einnig var siglt með mikið af sild til Vestmannaeyja. Sild var einnig landað á aust- fjarðahöfnum, höfnum við Reykjanes og Faxaflóa auk þess sem siglt var með sild til Siglu- fjarðar. _gsp Guðbjörg ÍS strandaði Stuttu áður áður en blaðið fór i prentun barst frétt uni aö skuttogarinn Guöbjörg 1S hefði strandaö i óshlið, milli Hnifsdals og Bolungarvikur. Veður mun hafa verið gott og cngin slys orðið á áhöfninni. Guðbjörg cr aflahæsti togar- inn af minni skuttogurunum. Skipið komst út aftur af sjálfsdáðum, en gat kom á skrokkinn og olia lak i sjóinn. Guðbjörgin var á útlcið til veiða þegar hún strandaði. Herstöðvaandstæðingar Munið að gera skil í listmuna- og bókahappdrættinu Hverfahópur Vesturbæjar sunnan heldurfund mánudaginn 29. nóvember kl. 20.30 að Hringbrautar Tryggvagötu 10. Brynjólfur Bjarnason hefur . framsögu um aðdragandann að inngöngunni i Hverfahópur Vesturbæjar sunnan Hringbrautar NATÓ og komu hersins 1951.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.