Þjóðviljinn - 28.11.1976, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 28.11.1976, Blaðsíða 11
Sunnudagur 28. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Til þess að annað foreldrið geti verið heima á islenskum alþýðu- heimilum þurfa laun að hækka um helming. Skyldi alþingis- maðurinn hafa gert sér grein fyr- ir þvi hvaða laun almenningur i landinu fær, eða skyldi hann ætla að beita sér fyrir 100% launa- hækkun? órökstuddur áróður sem þessi gerir litið annað að minu áliti en að fylla útivinnandi alþýðukonur sektarkennd, sem þær geta ekki losað sig við en slikt getur farið illa með geðheilsu fólks. Nú meöal þess hluta þjóð- arinnar, sem gæti fjárhagslega haft annað foreldrið heima en vildi frekar vinna utan heimilis- ins, sér til lifsfyllingar er liklegt að óánægja myndi skapast. Óánægja foreldrisins bitnaði siðan fljótlega á barninu og hver veit hvers konar afleiðingar slikt gæti haft. Næst mætti spyrja hvað al- þingismaðurinn ætlar að gera i sambandi við störf þau, sem kon- an hefur sinnt á vinnumarkaðn- um. Ætlar hann kannski að flytja inn vinnuafl? Ef svo er þá þarf hann liklega að leita út fyrir Norðurlöndin ef bjóða á þau laun, sem islensku kvenfólki er boðið. Kannski þræla frá öðrum heims- álfum? Að siðustu má svo nefna að lausn alþingismannsins er stórt skref afturábak i jafnréttisbaráttu kynjanna. Frá uppeldisfræðilegu sjónar- miði hefði „lausn” alþingis- mannsins bæði kosti og galla. Ef annað foreldrið væri heima þá aukast likurnar á þvi að barnið búi við öryggi,sem er auðvitað mjög æskiíegt upp á tilfinninga- þroska og geðheilsu barnsins. A hinn bóginn má nefna, að mörg einkaheimili eru ekki eins vel bú- in þroskaleikföngum og góðar dagvistarstofnanir.og oft hafa foreldrar ekki nægilegan tima til að örva vitsmuni barnsins. Min niðurstaða er þvi sú að það sé hvorki raunhæf né heilla- vænleg lausn á uppeldisvanda- málum þjóðarinnar að hafa bara konuna heima. Fleiri stofnanir Næst verður þvi litið á seinni lausnina, þ.e.a.s. þá að byggja fleiri dagvistarstofnanir. Hversu æskileg yrði hún fyrir barnið og fyrir þjóðfélagið i heild? A undanförnum þrem áratug- um hefur orðið sú stefnubreyting varðandi skoöanir fræðimanna á fyrirbærum eins og greind eða hæfileikum, að i stað þess að álita allt slikt vera meðfætt þá hafa augu fræðimanna opnast fyrir þvi að umhverfið og þar með upp- eldisaðstæður barnsins skipti þar miklu máli. Sumir fræðimenn nefna ákveðna % i þessu sam- bandi — 20-50%, en aðrir eins og t.d. Piaget, einn kunnasti þroska- sálfræðingur nútimans, ieggja áherslu á að greindarþroski eigi sér stað vegna stöðugs samspils á milli lifverunnar og umhverfis- ins. t þessum rannsóknum hefur einnig komið fram að á fyrstu 8 árum ævinnar eru börn óvenju- lega næm fyrir vitsmunalegri örvun, m.a. vegna þess að þá er vaxtarhraði heilans mjög mik- ill.” Að minu áliti hafa þessar rann- sóknir vegið þungt við mótun þess hugsunarháttar, sem nú er mjög almennur t.d. i Englandi og i Bandarikjunum að svokallaðir forskólar séu æskilegir fyrir barnið, burt séð frá þvi hvort for- eldrarnir séu heima eða heiman. Þó að þessi hugsunarháttur sé ekki eins algengur enn hér á landi, þá álit ég að meðvitund fólks sé að vakna gagnvart þeim rétti barnsins að fá að alast upp við þroskavænleg uppvaxtarskil- yrði og að æ fleiri liti á dagvistar- stofnanir sem jákvæða uppeldis- aðstoð, sem foreldrum er veitt i nútimasamfélagi. Sérþjálfað starfsfólk, sem hefur skilning á þroska barnanna, á athafnaþörf þeirra og á þörfum þeirra fyrir samskipti við önnur börn og full- orðna ætti að vera hæfara en a.m.k. sumir foreldrar til að örva börnin vitsmunalega og félags- lega. Viða er markvisst unnið að þvi að jafna aðstöðumun barna til náms með þvi að opna dagvistar- stofnanir eða forskóla fyrir þá hópa þjóðfélagsins, sem minnsta örvun fá heima. 1 þessu sambandi má nefna Head Start áætlunina i Bandarikjunum og þá staðreynd að þó að börn byrji 5 ára i skólum i Englandi og séu strax frá 9-4 i skólanum, þá hafa viða verið stofnaðir forskólar fyrir börn frá 3ára aldri, sem er fyrst og fremst áætlað aö ná til lágstéttarbarna og minnka þann uppeldisfræði- lega aðstöðumun sem hinir ýmsu hópar þjóðfélagsins búa við. Þó að stéttaskipting á Islandi sé ekki eins greinileg og i Bretlandi þá vita velfelstir kennarar sex ára barna, hér á landi að börn koma misvel undirbúin i skólann — einkum hvað varðar málþroska hreyfiþroska og félagsþroska. Af þessu ætti að vera ljóst að það er mikið hagsmunamál alþýðu að þessi mál leysist farsællega. Þroski, ekki geymsla Til þess að dagvistarstofnun þjóni þeim tilgangi sinum að vera þroskastofnun i andstöðu við gleymskustofnun er ekki sama hvernig hún er. Að minu áliti ætti góð dagvistarstofnun að hafa eftirfarandi fjögur einkenni: 1. Góð stofnun tekur við börnum úr öllum hópum þjóðfélagsins, og þar á ég bæði við heilbrigð börn og þroskaheft. Einnig yrði æskilegt að hafa blandaða aldurshópa á deildum, þannig að systkyni geti notið nærveru hvors annars og að börnin fái bæði eldri og yngri leikfélaga — og æfi sig því jafnt f að vera jafningi, hlýða öðrum og hafa forystu. 2. 1 stað þess að skipta stofnunum i leikskóla og dagheimili fyndist mér æskilegra að hafa eina stofnun, sem væri opin allan daginn og þar sem, börn- in gætu komið á þeim tima, sem hentar þeim og foreldrum þeirra best. l>etta form tiðkast hér viða i strjálbýlinu, þar sem ekki er grundvöllur fyrir fleiri en einni stofnun og sviar, sem standa framarlega i þessum málum,.eru hættir að tala um leikskóla og barnaheimili i nýjustu skrifum sinum um þessi mál. Þetta form kemur i veg fyrir félagslega einangrun ákveðinna hópa og sveigjan- legur dvalartimi er æskilegur vegna þess að þarfir og til- finningar barna og foreldra eru samofnar. 3. Góð dagvistarstofnun tekur til- lit til einstaklingsþarfa barn- anna, og setur i starfi sinu þarfir barnanna ofar þörfum starfsfólksins. 4. Góð stofnun þarf að hafa sér- menntað starfsfólk i hagstæðu hlutfalli við fjölda barnanna. Hún þarf að vera vel búin leik- föngum, þannig að hvert barn fái þroskandi verkefni við sitt hæfi. Það þýðir þvi litið að hrúga niður fl. börnum á þær stofnanir, sem fyrir eru. 1 heild skiptir starfsfólkið.búnaður- inn og innréttingarnar meira máli að minu mati en það hvort byggingin sjálf er af dýr- ustu og flottustu gerð. Hve lengi dagsins? Næst mætti spyrja hversu lengi dags barn þurfi að dvelja á góðri þroskasofnun til að njóta dvalar- innar til fulls og hvað börn ættu að vera gömul þegar þau byrja. Sú lausn, sem mér fyndist heillavænlegust i þessum málum frá sjónarmiði barnsins, foreldr- anna og þjóðfélagsins i heild er þvi e-ð á þessa leið: 1 fyrsta lagi að öll börn a.m.k. frá 2-3 ára aldri fái aðgang að góðri dagvistarstofnun og geti dvalið þar i a.m.k. 3 klukkust. hvenær sem er dagsins, en lengur ef þörf krefur. Varðandi yngri börn tel ég vænlegast að annað foreldrið geti verið sem mest heima og má i þvi sambandi benda á lengra og sveigjanlegra fæöingarorlof, þannig að foreldr- ar geti skipt þvi á milli sin. Þess má geta að t.d. i Búlgariu er konu heimiit að fá 3 ára leyfi frá störf- um vegna barnsburðar, þó að að- eins 1 ár sé á fullum launum. i öðru lagi að flestir foreldrar fái tækifæri til að vera með börn- um sinum hinn hluta dagsins, og þar getur engin kona úti i bæ komið i staðinn. Þetta atriði er ekki raunhæft i dag nema annað- hvort gerist — að veruleg launa- hækkun eigi sér stað hjá almenn- ingi — eða að fleiri en foreldrar leggi hönd á plóginn. Þar á ég ekki sist við aðila vinnu- markaðarins, sem gætu komið til móts við foreldra t.d. með sveigjanlegum vinnutima. Annar möguleiki væri sá að vinnu- stundafjöldi foreldra stæöi i hlut- falli við fjölda og aldur barna þeirra, þannig td. að hjón með 3 börn þurfi að vinna færri stundir á viku en barnlaus hjón fyrir sömu laun. Einnig væri æskilegt að atvinnurekendur greiddu ákveðið gjald i byggingasjóð dag- vistarstofnana til að flýta fyrir framkvæmdum. Að minu áliti eru þetta atriði sem verkalýðssam- tökin ættu að gefa gaum að við gerð næstu kjarasamninga, þvi hagsmunir alþýðunnar eru i veði. 1 þriðja og siöasta lagi tel ég óæskilegt að útiloka skólabörn frá dagvistarstofnunum á meðan skólatimi er eins stuttur og raun ber vitni, t.d. i 6 og 7 ára deildum. Þarna þyrftu þarfir fjöl- skyldunnar að sitja i fyrirrúmi. Stefna skuli þó að heilsdagsskóla sem allra fyrst, þannig að heima- nám hverfi og um leið sá aðstöðu- munur sem þvi fylgir. Afturför Þetta ersem sagt sú lausn, sem að minu áliti yrði farsælust bæði uppeldisfræðilega og þjóðfélags- fræðilega séð. En hversu raunhæf hún er er ekki hægt að meta nema lita aðeins á kostnaðarhliðina og stefnu rikisvaldsins i þessum málum. Lög nr. 29/1973 sem sett voru i tið vinstri stjórnar, gera ráð fyrir að rikið greiði 50% af stofn- k.ostnaði fullbúinna dagvistar- stofnana og 20-30% af rekstrar- köstnaði. Núverandi rikisstjórn breytti siðan lögunum þannig að hlutdeild rikissjóðs i rekstrar- kostnaði stofnananna var felld niður. A ráöstefnu þeirri um kjör láglaunakvenna, sem nefnd var hér i upphafi var lagabreyting þessi fordæmd og tek ég undir það álit. Eins og biölistar stofnananna gefa til kynna svo og siðustu tölur um framlag rikisins til dag- vistunarmála (117.4 milj. 1975 68,4 milj. 1976) þá er bersýnilegt að gifurlegur samdráttur er að eiga sér stað i þessum málum. A fjárhagsáætlun fyrir 1977 er gert ráð fyrir 85 milj. króna til þessara mála, þó að áætlað hafi verið að 230milj. væru nauðsynlegar til að halda i horfinu með þær áætlanir. sem gerðar höfðu verið. Það er þó von min að alþingismenn og sveitarstjórnarmenn endurskoði afstöðu sina i þessu máli og falli ekki i þá gryfju að vanmeta þetta þjóðþrifamál, þó að börnin hafi ekki atkvæðisrétt og skaðinn komi ekki i ljós strax i dag. Mikið er i veði, þroski og geðheilsa komandi kynslóðar og lifs- hamingja foreldra i dag. Að minu áliti er nauðsynlegt að lita á dagvistarstofnanir i félags- legu og pólitisku samhengi, eins og hér hefur verið gerð tilraun til. Min aðainiðurstaða er þvi sú að til þess að tryggja komandi kynslóð viðunandi uppvaxtarskilyrði þurfum við fleiri og betri dag- vistarstofnanir og þannig þjóðfé- lagsskilyrði að a.m.k. annað for- eldrið — helst bæði til skiptis — geti verið með börnum sinum sem allra mest. Það er þvi skoðun min að nægar dagvistarstofnanir séu sjálfsögð mannréttindi i nú- tima þjóðfélagi og nauðsyn en ekki ill. Vonandi er það ljóst af efni er- indisins að með hugtakinu mann- réttindi er átt við réttindi beggja kynja og hinna ýmsu hópa innan þjóðfélagsins, en siðast en ekki sist er þar átt við rétt barnsins, — við megum nefnilega ekki gleyma þvi að barnið er lika maður. VELJUM ÍSLENSKT VELJUM ÍSLENSKt

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.