Þjóðviljinn - 28.11.1976, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 28.11.1976, Qupperneq 13
Sunnudagur 28. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN —StÐA 13 FYRRI HLUTI ,,Það sem pabbi minn sagði voru lög hérna á heimilinu. Aldrei heyrði maður styggðaryrði og aldrei neina vonsku og ekki rifrildi nema þá helst á milli okkar krakkanna. Við slógumst eins og gengur og gerist". Þessi orð segir Sigurður Thoroddsen verk- fræðingur þar sem hann situr makindalega á æsku- heimili sinu í Vonarstræti 12 ogtottar vindil. Sigurður er sonur stjórnmálaskör- ungsins Skúla Thoroddsens og Theodóru Thoroddsen skáldkonu. Við fengum Sigurð til að rifja upp nokkrar minningar frá Bessastöðum þarsemhann ólst upp til sex ára aldurs og frá Vonarstrætinu. Rithöf undarnir Þorgeir Þorgeirsson og Vilborg Dagbjartsdóttir búa nú á efstu hæðinni og á heimili þeirra sitjum við og njótum gestrisni. i þessum fyrri hluta viðtalsins víkur sögunni til Bessastaða en í seinni hlutanum kemur Vonarstræti 12 einkum við sögu. Thoroddsenbræfturnir þegar þeir voru upþ á sitt besta um aldamót. Þorvaldur náttúrufræbingur og Skúli sitja: Þórftur læknir og Sigurbur verkfræöingur standa. Hér eru vinkonurnar Guöbjörg Jafetsdóttir (t.v.) og Theódóra Thoroddsen (t.h.) meö strákana. Taliö ofan frá vinstri eru Guömundur, Þorvaldur, Skúli, Jón, Sverrir, Siguröur og Bolli. Bessastaöastofa eins og Skúli lét gera hana. Kirkjan á Bessastööum Myndin er tekin um 1930. þar sem þau sátu inni fyrir ruku þau upp og hentu manni út og læstu dyrunum. bá lagðist ég á dyrnar og sparkaði i þær klukku- timum saman. 1 staðinn fyrir að leyfa barninu að koma inn og vera þar i tvær minútur og þá hefði það þotið aftur. — Hvernig stóð á þvi að þau Skúli og Theódóra fluttu frá Bessastöðum? — Ég veit það ekki beint. bað var þægilegra að mennta börnin hér i Reykjavik og svo undi mamma aldrei á Bessastöðum. Hún vildi i sollinn, sem maður segir, og margmennið. — bau voru ákaflega ólik að eðlisfari? — Ja. Hann var afar ómann- blendinn, ég held honum hafi leiðst fólk en þveröfugt var með hana farið. — Kynntust þið krakkarnir ekki föður ykkar samt? Jú, að svo miklu leyti sem það var hægt. Gættu þess aö ég er aðeins 13 ára þegar hann deyr. Gagnvart okkur yngri börnunum var hann afskiptalitill en ekkert annað en gæðin. Hann sat inni á kontórnum sinum alla daga. bað má heita að hann hafi verið út af fyrirsig svona mest. Við máttum þó koma inn til hans hvenær sem við vildum en við bárum ákaflega mikla virðingu fyrir honum. bar vorum við alltaf róleg og sátum þá við að lesa i bókum eða blöðum. — bið hafið ekki þéraö fööur ykkar? — Nei, en fóstra min, Guðbjörg Jafetsdóttir, sagði mér frá þvi að hún þurfti að þéra foreldra sina en það var liðin tið þá. — Hvernig kona var Guðbjörg? — Hún var forkur duglegur kvenmaður, hrein og bein, sagði sina meiningu og lét engan vaða ofan i sig. Bar hag heimilisins fyrir brjósti og var okkur börnunum sem önnur móðir. — Ef þú ættir nú að lýsa móður þinni þegar hún var upp á sitt besta, hvernig mundirðu gera það? — bað á ég erfitt meö. Ég þekkti hana ekki þegar hún var upp á sitt besta. Hún er um fertugt þegar ég kem til. Annars hefur Sigurður Nordal skrifað um hana inngang að Ritsafni hennar og hygg ég að hann geri það með ágætum. Annars var hún ágætis kona og skörungur þegar þvi var að skipta. Við systkinin skiptumst hins vegar i tvennt. bað voru mömmubörn og Baujubörn. Ég var eitt af Baujubörnunum. betta hefur liklega verið af þvi að skammt var á milli barna að Guðbjörg tók þau sum að sér á fyrsta eða öðru ári. Ég geri mér i hugarlund að það hafi æxlast svo- leiðis. Ég svaf inni hjá Bauju þar til ég var svona 15-16 ára. — Hún hefur haft talsverð áhrif á heimilinu? — Já, það hefur hún sjálfsagt haft. — Var hún skyld ykkur? — Nei, hún var óskyld okkur. Hún var náskyld Jóni Sigurðssyni forseta. Guðbjörg hafði kynnst mömmu hér i Reykjavik. Svo þegar mamma fór vestur til að gifta sig fékk hún hana til sin og átti hún að vera i nokkra mánuði en hún flentist og dó hjá Katrinu systur og hafði þá verið hjá okkur i hart nær 60 ár. — bað hefur verið farið mikið með skáldskap i þessari fjölmennu fjölskyldu? — Blessaður vertu. bað lifði og hrærðist fólkið i skáldskap. Afskaplega oft var kveðist á. bá var það nú alla jafna svoleiðis að mamma var ein á móti öllum hinum. Ég fyrir mitt leyti hefi ekki brageyra en svo mikla áherslu lagði ég á að kunna visur að ég lagði það á mig að læra utan að bæði byrna borsteins Erlings- sonar, Grim Thomsen og Alþingisrimurnar — bara til að vera gjaldgengur. Svo komu ung skáld og lásu og ég held að mamma hafi lagt dóm á þá og hjálpað þeim eða sagt amk. hvað henni fannst. Jóhann Gunnar Sigurðsson kom á Bessastaði. bar voru lika viðloða Jónas Guðlaugsson og Jakob Smári. bá má heldur ekki gleyma borsteini Erlingssyni. Mamma las fyrir okkur að heita mátti á hverju kvöldi. Sat hún þá með prjónana sina og las jafnframt. — Og hvað las hún? — Hitt og þetta: Njáiu. Grettlu og fleiri Islendingasögur. Forn- aldarsögur Norðurlanda. vmsar riddarasögur, tvar hlújárn eftir Walter Scott og margt fleira. Já, það er margs að minnast frá Bessastöðum og alltaf verða þeir mér kærir. Á það bæði við um náttúruna og ekki siður hið glað- væra heimilislif og þann góða anda og félagsskap sem þar rikti. —GFr

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.