Þjóðviljinn - 28.11.1976, Side 15
1
Sunnudagur 28. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Sérversianir bandaríska hersins:
Þaðan er straumur
út á svartan markað
Bandarisk PX-búö: auövelt aö fara kringum skömmtun.
Það er mörg Miðnes-
heiðin. í Vestur-
Þýskalandi eru nú um 214
þúsundir bandarískra
hermanna og þeim fylgja
um 100 þúsund eiginkonur,
börn osfrv. Nú hefur það
vakið nokkurn hávaða, að
þetta fólk selur „ótrúlega
mikið" af tollfrjálsu
áfengi tóbaki, bensíni og
öðrum varningi til þjóð-
verja.
Mál þetta hófst á þvi, aö rit-
stjóri hermannablaðsins Stars
and Stripes lét kanna það i anda
rannsóknarblaðamennsku. Yfir-
manni hans fannst hann væri þar
með að „fara með ruslið út úr
húsi” bandariska hersins, og lauk
þeim sviptingum á þann veg, að
ritstjórinn sagði af sér.
Sú tið er að visu löngu liðin að
ein sigarettulengja gæti tryggt
bandariskum hermanni flestar
lystisemdir. En enginn hörgull er
á kaupendum aðódýrum varningi
úr PX-búðum hersins, og enn
mun eftirspurn vaxa þegar hækk-
að verður verð á áfengi og tóbaki
að miklum mun um næstu
áramót.
Heryfirvöld reyna að setja fyrir
lekann með þvi að skammta söl-
una, binda hana viö fimm viski-
flöskur og f jórar sigarettulengjur
á mann á mán.. En þessi
skömmtun er litt virt — það
þarf ekki annað en semja við
vinsamlega afgreiðslustúlku i
PX-búð um að hún „gleymi” að
lita á skömmtunarseðla, auk þess
eru þeir falsaðir i stórum stil.
Haft er eftir hermönnum, að þeir
sem hafi sæmilega stóran hóp
viðskiptavina geti vel haft sem
svarar 140 þúsund krónum á
mánuði i aukatekjur með þvi að
smygla úr PX-búðunum.
Tollyfirvöld landsins eru svo til
varnarlaus i þessum málum og
það er varla nema fyrir tilviljun
að þau rekist á umtalsvert magn
af smyglvarning. En þau gera ráð
fyrir þvi að velta á þessum svarta
markaði sé um 20 miljónir dollara
á ári hverju.
Skilaboð
til skipstjórans:
ímyndaðu þér að það sé bandvitlaust veður og þig dauðlangar í kaffi.
Ef þú ert meö þennan síma um borð þarftu ekki annað en ýta á takkann og þá getur
þú beðið kokkinn um hressandi kaffibolla.
Svo er það höfuðverkur kokksins að koma öllu kaffinu til skila.
Skilaboð til forstjóra
í frystihúsi:
Þú þarft að tala við hann Jón verkstjóra. En þú veist ekki hvort Jón
verkstjóri er inni sal að líta eftir stúlkunum, (eða horfa á þær), eða hvorí
Jón er inná skrifstofunni, eða hvort hann Jón er að athuga hvenær næst
bátur kemur með ferskfisk. Þetta er ekkert vandamál ef þú hefur kalltæk
við hendina. Þú ýtir bar a hnappana, sparar þér sporin, og
Jón verkstjóri er án efa kominn eftir nokkrar mínútur.
Ljósfari hefur á boðstólum margar
gerðir af innanhússsímum
og dyrasímum.
Ljósfari h.f.
Grensásvegi 5 sími 30600.
TWYFORDS
HREINLÆTIST ÆKI
□
c
c
c
r
HANDLAUGAR í BORÐ
HANDLAUGAR Á FÆTI
BAÐKÖR STÁL & POTT
FÁANLEG í SJÖ LITUM.
TWYFORDS-HREINLÆTISTÆKIN ERU í
SÉRFLOKKI.
Byggingavöruverzlun
Tryggva Hannessonar
SUOURLANDSBRAUT 20.
SÍMI 83290.
sem
er
H.F OLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON