Þjóðviljinn - 04.12.1976, Síða 6

Þjóðviljinn - 04.12.1976, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Laugardagur 4. desember 1976 ASÍ-þing: Vantraust ó ríkisstjórnina Hér fer á eftir sú samþykkt sem frá er greint á forsiðu að Alþýöu- sambandsþing gerði i fyrrinótt. ,,33ja þing Alþýðusambands ís- lands minnir á að framleiðslu- kerfi islendinga er að nær tveim- ur þriðju hlutum i höndum rikis, sveitarfélaga og samvinnuhreyf- ingar. Hlutskipti einkaatvinnu- rekenda er ráðiö af alþingi og rikisstjórn ár hvert, og fer oft mestur timi alþingis i þvilika fyr- irgreiðslu. Þvi er það fyrst og fremst rikisstjórn og stefna henn- ar sem ákveða skiptingu þjóðar- tekna og skera úr um lifskjör launafólks, og aldraðs fólks og ör- yrkja. Núverandi rikisstjórn hef- ur ráðist af einstæðri hörku og til- litsleysi á lifskjör launafólks og kemur það harðast niður á þeim sem lakast voru settir fyrir. Er nú svo komið að lífskjör iáglauna- fólks munu óviða i Evrópu vera jafn bágborin og á Islandi i sam- anburði við þjóðartekjur. Skiptir meginmáli að allt alþýðufólk geri sér ljóst að þar er fyrst og fremst um aö ræða afleiðingar af stefnu rikisstjórnar og störfum. Stuðningsflokkar rikisstjórnar- innar boðuðu þveröfuga þróun i loforðum sinum fyrir siðustu al- þingiskosningar. Ekkert hefur á það reynt, hvort núverandi stefna stjórnarflokkanna nýtur fylgis meirihluta þjóðarinnar. Þess vegna krefst 33ja þing Alþýðu- sambands Islands þess að rikis- stjórnin segi þegar af sér og boði til almennra þingkosninga, svo að vilji þjóðarinnar komi i ljós og móti stefnu opinberra aðila. Skor- ar þingið á launafólk hvarvetna um land að fylgja þeirri kröfu eft- ir meö markvissri baráttu sem sanni i verki að rikisstjórnin nýt- ur ekki lýðræðislegs stuðnings við hina þjóðhættulegu láglauna- stefnu sina. Varanlegar og raun- hæfar kjarabætur nást þvi aðeins að i landinu sé rikisstjórn, sem hafi eðlilegt og jákvætt samstarf við verkalýðssamtökin.” Flutningsmenn: Bjarnfriður Leósdóttir, Kolbeinn Friðbjarn- arson, Björgvin Sigurðsson, Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttir, Jón Helgason, Herdis ólafsdóttir, Sigfinnur Karlsson, Skúli Þórðar- " son, Hallsteinn Friðþjófsson, Bragi Haraldsson, Sigúrjón Björnsson, Agnar Jónsson, Pétur Sigurðsson, Guðmundur M. Jóns- son. Björn Jónsson, forseti ASl Snorri Jónsson, varafor- seti ASl. Eðvarð Sigurðsson, form. Verkamannaféiagsins Dagsbrúnar. Bjarnfriður Leósdóttir, varaform. Verkalýðsfé- lags Akraness. Einar ögmundsson, form. Landssambands vörubifreiðastjóra. Hin nýja miðstjórn A Jón Snorri Þorleifsson, form. Trésmiðaf. Kvikur. Þórunn Valdimarsdóttir, form. Verkakvennafé- lagsins Framsókuar. Jón Eggertsson, form. Verka lýðsf. Borgarness. Hermann Guðmundsson, form. Vkmf. Hiifar. Björn Þórhallsson, form. Landssamb. verslunar- manna. Magnús Geirsson, form. Kafiðnaðarsambandsins. Guðmundur Þ. Jónsson, varaformaður Iðju. Óskar Vigfússon, form. Sjómannasambands is- lands. Jón Helgason, form. Ein- ingar, Akureyri. Guðrlður Eliasdóttir, form. Verkakvennafél. Fraintiðin Hafnarfiröi. Hvað var merkast við ASÍ þingið? Hvað er markverðast við nýafstaðið Al- þýðusambandsþing og niðurstöður þess? — Þessa spurningu lögðum við i gær, að þinginu loknu, fyrir tvo miðstjórnarmenn i Alþýðusambandinu, Snorra Jónsson, varaforseta A.S.l. og Bjarnfriði Leósdótt- ur, Akranesi, en Bjarnfriður er i hópi þeirra átta, sem nú voru kjörin i miðstjórn Alþýðusambandsins i fyrsta sinn. Snorri Jónsson: Róttœkt vinnuþing Ég tel að þetta hafi verið mikiö vinnuþing. Mikil vinna var lögð i undirbúning þingsins og vel var unniö á þinginu sjálfu. Söguleg- asta atburö þingsins tel ég sam- þykkt sérstakrar stefnuskrár fyr- ir Alþýðusambandiö, en Alþýöu- sambandið hefur ekki átt sér póli- tiska stefnuskrá frá þvi 1940 og þar til nú. Næst nefni ég kjaramálin, en það sem einkenndi umræðurnar um þau, var hversu fólk var á- kveðiö þeirrar skoðunar, aö kjör- in yrði hið fyrsta að bæta i einu stökkium miklu meira, en fengist hefur fram i samningum að und- anförnu. Umræöur á þinginu voru yfir- leitt málefnalegar. Enda þótt siðasti fundur þingsins hafi staðið frá þvi klukkan niu á fimmtu- dagsmorgun og til klukkan fjögur siðdegis á föstudag samfellt, þá var samt fundartimi á þinginu ekki jafn óreglulegur i heild og oft áður. Yfirleitt byrjuðum við klukkan niu á morgnana og héld- um áfram fram á klukkan sjö sið- degis. Þetta þing var mjög fjölmennt og sátu það nær 400 manns. Við urðum áþreifanlega vör við þá fjölgun sem átt hefur sér stað i verkalýössamtökunum á siðustu fjórum árum, þvi að þröngt var nú um þingiö á Hótel Sögu. Er nokkuð ráðgert að breyta lögum A.S.Í., svo að fulltrúar á þingum verði færri? Sli'karhugmyndir voru ræddar i laganefndinni nú, en flestir telja þýðingarmikið að þingin séu sem fjölmennust, svo að sem flestum gefist kostur á, að vera þar þátt- takendur. Engar tillögur komu fram um lagabreytingar i þá átt að fækka fulltrúum á Alþýðusam- bandsþingum. Ég vil að lokum taka fram, sagði Snorri Jónsson aö mikil rót- tækni var rikjandi á þessu þingi, og er meðal annars samþykktin um brottför hersins og úrsögn ís- lands úr NATO til marks um það. Bjarnfríður Leósdóttir: Vantraust á rikisstjórnina. — Sókn i kjaramálum og sjálfstœðismálum Ég tel það ekki sist markvert, að hér sannaðist aö Alþýðubanda- lagið er bæði stærsti og heil- steyptasti verkalýðsflokkurinn, og kemur það m.a. fram i þvi, að nú eru 6 flokksmenn Alþýðu- bandalagsins kjörnir i miöstjórn Alþýðusambandsins, en á siðasta þingi voru þeir aöeins fjórir. Mér finnst rétt að undirstrika, að hefði Alþýðuflokkurinn viljað fallast á okkar stefnu, þá hefðu þessir flokkar tveir getað farið einir með stjórn Alþýðusam- bandsins næstu fjögur ár. Það er min skoðun, að liðsmenn Alþýðu- bandalagsins og Alþýðuflokksins eigi einir aö bera ábyrgð á stjórn heildarsamtaka verkafólks á Islandi. Ég tel kjaramálaályktunina, sem þingið samþykkti vera hið merkasta plagg, og að þingið skyldi samþykkja vantraust á rikisstjórnina undirstrikar náttúrlega það, að sú mikla kjaraskerðing sem orðin er fyrst og fremst stjórninni að kenna. Það er rikisstjórnin og þing- meirihluti hennar, sem beitt hafa löggjafarvaldinu til aö hrifsa til baka umsamdar kjarabætur og þannig reynt að eyðileggja starf verkalýðshreyfingarinnar. í hinni pólitfsku baráttu innan verkalýðshreyfingarinnar tel ég aö merkum áfanga hafi nú verið náð á þessu þingi, er báðir þing- menn Sjálfstæðisflokksins, sem sæti áttu i siðustu miðstjórn ASÍ, voru nú hreinsaðir þaöan burt. Það var stórkostlegt, að þingið skyldi samþykkja einarða kröfu um brottför Bandarikjahers frá Islandi og úrsögn Islands úr NATO. Von min er sú, að Alþýöúsam- bandið og verkalýðssamtökin i heild skipi sér nú, á grundvelli þessarar ágætu samþykktar, i fararbrodd, svo sem áöur var, i baráttunni gegn herstöðvum á íslandi og gegn þátttöku okkar i hernaðarbandalagi. Um stefnuskrána, sem samþykkt var, vil ég segja það, að þótt margt megi að henni finna, þá er það fengur, að Alþýðusambandið skuli nú hafa fengið slika pólitiska stefnuskrá, þar sem þvi er slegið algerlega föstu, að verkefni verkalýðs- hreyfingarinnar, sé ekki bara kjarabarátta i þröngri merkingu, heldur skuli að þvi stefnt að breyta allri þjóðfélagsgerðinni með hagsmuni verkafólksins og allrar alþýðu fyrir augum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.