Þjóðviljinn - 09.03.1977, Side 9

Þjóðviljinn - 09.03.1977, Side 9
Miövikudagur 9. mars 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 BORGARM Á næstu vikum er ætlun- in að hafa hér í blaðinu fastan vikulegan þátt um störf fulltrúa Alþýðu- bandalagsins að borgar- málefnum. AB á fulltrúa í öllum nefndum borgar- innar og þeir vinna þar mikið starf og hafa yfir- leitt mikil áhrif á gang mála, þrátt fyrir minni- hlutaaðstöðu sína. Hið sama er að segja um full- trúa AB i borgarstjórn, þeir eru mjög virkir þar og flytja mál/ oftast fleiri en eitt,á svo til hverjum ein- asta borgarstjórnarfundi. Tilgangurinn með þáttum þessum er fyrst og fremst að kynnastörf okkar manna að borgarmálefnum og að fá fleiri til að hugsa um þau mál og fá ábendingar um eitt og annað, sem full- trúum AB kann að koma vel i pólitísku starfi sínu. Fulltrúar AB hafa mikil áhrif i nefndum borgarinnar Borgar mála- ráð Sigurjón Pétursson, Adda Bára Sigfúsdóttir, Þorbjörn Broddason, Guömunda Helgadóttir, Siguröur Magnússon, Guöriin Heigadóttir, Guörún Ágústsdóttir, Þorsteinn Sigurösson, Margrét Margeirsdóttir, Siguröur Haröarson, Þörunn Klemensdóttir, Siguröur Tómasson, Ingibjörg Jónsdóttir. BORGARMÁLARÁÐ mótar stefnuna Þessi fyrsti þáttur f jail- ar um borgarmálaráð AB en það kemur saman hálf smánaðarlega og undirbýr borgarstjórnar- fundina og þar eru teknar ákvarðanir um mál- flutning fulltrúa AB I borgarstjórn. Ráðið er skipað 13 mönnunri/ þar af eru 10 hinir efstu á listan- um til borgarstjórnarkosn- inga, og eru þeir kosnir til fjögurra ára,en hinir þrír eru kosnir til eins árs i senn. Sigurjón Pétursson, borgarfull- trúi,er formaöur borgarmálaráös og greindi hann nánar frá störf- um ráösins. Bæði á lista og í nefndum Viö upphaf siöasta kjörtfmabils var sú stefna tekin upp aö fulltrú- ar i borgarmálaráöi væru jafn- framt fulltrúar i öllum helstu nefndum borgarinnar. Tilgangur- inn er tviþættur. Annars vegar aö tryggja aö á fundum borgarmála- ráös fáist heildaryfirsýn yfir alla þætti borgarmálanna, og hins vegar aö virkja efstu menn list- ans, og hefur þetta fyrirkomulag gefiö góöa raun. Hver og einn hinna 10 efstu manna Iistanum á rétt til þess aö koma inn sem full- trúi á borgarstjórnarfundi, vilji hann flytja ákveöiö mál, en Sigurjón sagöi aö þvi miöur væri þessi heimild ekki mikiö notuö. Starfshópar Eins og áöur segir mótar borgarmálaráö stefnu AB á borgarstjórnarfundunum og þeir þrlr fulltrúar þar, sem ekki eru á listanum eru tengiliður milli full- trúanna i borgarstjórn og félags- ins I Reykjavik. Sigurjón sagöi, að ráöiö væri mjög virkt, mæting á fundi væri sjaldan undir 80%. Auk þess aö undirbúa borgar- stjórnarfundi starfa allajafna starfshópar um einstök mál á vegum ráösins. Þrir hópar störf- uöu t.d. 1973-74. Einn vann aö stefnumörkun fyrir ráöiö I sam- vinnu viö félagiö og annar vann mikiö starf meö borgarfulltrúum aö umhverfismálum. Þá hefur hópur fjallaö um aöalskipulagiö og hélt sá hópur fjölmennan fund um það mál 2. mars sl. Nokkrar tillögur AB samþýkktar Borgarmálaráö vinnur alltaf mikiö starf, þegar fjárhagsáætl- un er i undirbúningi. Aætlunin var afgreidd i janúar og fluttu fulltrú- ar AB þar margar breytingartil- lögur og hiö óvanalega geröist að sumar þeirra voru samþykktar. Sú merkasta var tvimælalaust stefnumarkandi tillaga um hol- ræsi, þ.e. aö hafist veröi handa viö aö sameina útrásir i Rvk. i þrjár stórar, sem leiddar yröu langt út I sjó. Einnig var sam- þykkt tillaga um endurskipu- lagningu leikvalla. Fulltrúar i borgarmálaráöi eru þessir: Sigurjón Pétursson, Adda Bára Sigfúsdóttir, Þorbjörn Brodda- son, Guðmunda Helgadóttir. Siguröur Magnússon, Guörún Helgadóttir, Guörún Agústs- dóttir, Þorsteinn Sigurösson, Margrét Margeirsdóttir, Sigurö- ur Haröarson. Þetta eru 10 efstu menn listans kosnir til fjögurra ára. Hinir þrir, sem kosnir eru til eins árs eru: Þórunn Klemens- dóttir, Siguröur Tómasson og Ingibjörg Jónsdóttir. —hs Tóbaksauglýsingar veröi bannaðar ,,í tilefni af siaukinni aug- lýsingastarfsemi tóbaksinnflytj- enda samþykkir borgarstjórn eftirfarandi: a) aö skora á Alþingi aö banna þegar i staö meö iögum allar tóbaksauglýsingar á stööum, sem opnir eru almenningi. b) aö skora á reykviska verslunarcigendur aö biöa ekki lagasetninga, heldur taka þegar i staö niöur allar hvatningar til reykinga, sem kann aö vera aö finna I verslunum. c) aö veita Krabbameinsfélagi tslands og Krabbameinsfélagi Reykjavikur sérstakan einnar miljónar króna styrk, sem variö skuli meö þeim hætti, sem félögin telja farsælast I baráttu sinni gegn áróöri inn- flytjenda tóbakseitursins.” Þannig hljóöaöi tillaga sem Þorbjörn Broddason, borgarfull- trúi Alþýöubandalagsins, fhitti á siöasta fundi borgarstjórnar Reykjavikur. A fundinum var flutt breytingartillaga viö c.-liö tillög- unnar. I henni fólst, áö Rvlkúr- borg tæki upp viöræöur viö Krabbameinsfélagiö um þaö á hvern hátt borgin gæti best oröiö félaginu aö liöi i baráttu þess gegn reykingum og fylgi- kvillum þeirra. Þannigbreyttvar tillagan sam- þykkt meö öllum greiddum at- kvæöum. —úþ Meirihlutinn vill ekki sjóminjasafn ..Borgarstjórn Reykjavikur samþykkir aö stofnsetja sjó- minjasafn i Reykjavik. Safniö sýni meö myndum og munum sögu og þróun útgeröar og fiskvinnsiu i borginni og þátt þessarar atvinnugreinar i vexti og viögangi hennar. Borgarráöi og umhverfis- málaráöi veröi falinn undir- búningur máisins.” Þessari tillögu, sem Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Al- þýöubandalagsins flutti á siöasta borgarstjórnarfundi,var visaö frá meö 9 atkvæöum sjálf- stæöismanna gegn 6 atkvæöum annarra borgarfulltrúa. Sigurjón lagöi áherslu á þaö, aö þrátt fyrir ályktun frá Al- þingi þess efnis, aö reisa skuli sjóminjasafn i Hafnarfiröi, sem yröi safn alls landsins, væri út- gerö og sjósókn svo mikill þátt- ur i sögu Reykjavikur og lifi reykvikinga, aö slikt landssafn gæti aldrei sagt þá sögu alla og reyndar ekki nema litinn hluta hennar. Þvi bæri borginni aö koma sér upp sliku safni, og því fyrr sem farið væri aö safna til þess þvi betra, vegna þess aö meö hverju árinu sem liöur glatast eitthvaö þaö af munum og minjum sem heima ætti á sliku safni um sjómennsku og erfiösmenn til lands og sjávar sem aö sjómennsku og fisk- vinnslu hafa starfaö. Helsti talsmaöur Sjálfstæöis- flokksins i máli þessu var Elin Pálmadóttir og taldi hún þetta óþarfa hinn mesta; landssafn i Hafnarfiröi meö Reykjavikur- deild myndi fyllilega gagnast reykvikingum. Svo mætti ekki gleyma þvi, aö i Arbæ td. og á einkakontór útgeröarst jóra BÚR og fl. stGÖum væru geymd- ar minjar um sjósókn og þróun fiskveiða frá borginni, og allt væri þetta þvi harla gott! Ekki frekar i þessu máli en svo mörgum öörum sem lúta aö menningarmálum tókst aö brjóta skarö i fyrirfram mótaöa afstööu borgarstjórnarmeiri- hlutam, þrátt fyrir mörg aug- ljós rök fyrirstofnun sliks safns. Þvi uröu þaö örlög tillögunnar aö vera visaö frá, og þvi ekki til umræðu lengur hjá nokkurri nefnd né ráöi borgarinnar. —úþ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.