Þjóðviljinn - 12.03.1977, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 12.03.1977, Qupperneq 5
Laugardagur 12. mars 1977 ÞJóÐVlLJINN — SIÐA 5 Greinargerö verkalýðsfélaga og trúnaðarmanna í Straumsvík Hættu nefnd^rstörfum vegna stífni ÍSAL Nokkrir trúnaOarmenn og forystumenn verkalýðsfélaga á fundinum i fyrradag. (Myndir gel). úrbœtur í 4 liðum Greinargerð frá formönnum og trúnaðarmönnum verkaiýðs- félaga sem samningsaðild eiga við ISAL vegna umræðna um heilsufar og hollustuhætti i Al- iðjuverinu i Straumsvik. Með skýrslu þeirri er heil- brigðismálaráðherra flutti á Al- ingi 1. mars s.l. um heilsufar og ollustuhætti i Aliðjuverinu i Straumsvik og umræðum sem orðiö hafa, virðist sem loks hafi opnast augu ráðamanna fyrir þeirri hliö mengunarmála sem snýr að verkafólki. Um leið og þvi er fagnað, þykir undirrituðum aöilum ástæða að gera grein fyrir gangi þessara mála og viðhorfum til þeirra, frá sjónarhóli viðkom- andi verkalýösfélaga og trúnað- armanna þeirra hjá ISAL. Hreinsitæki — Vinnuskil- yrði 1971 fóru fram umræður um nauðsyn á uppsetningu hreinsi- tækja við álverksmiðjuna til að fyrirbyggja flúormengun gróðurs. Þá óskuðu trúnaðar- menn i Straumsvik eftir þvi við heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið að rannsókn færi fram á andrúmslofti i kerskála. Ástæðan var sú að talið var að vinnuskilyrði myndu versna ef sett yrðu upp hreinsitæki af þeirri gerð sem þá var þekkt, og þvi nauðsynlegt að hafa mældan samanburö ef til kæmi. Með versnandi viiinuskilyrðum var einnig talin aukin hætta á at- vinnus júkdómum. Kröfur um Atvinnusjúkdómar I ársbyrjun 1972 var rætt um nokkur veikindatilfelli þar sem grunur lék á að um atvinnusjúk- dæma væri að ræða. Verkalýðs- félögin óskuðu eftir þvi við ISAL að sameiginlega yrði farið fram á það við heilbrigðismálaráðuneyt- ið að það gengist fyrir rannsókn á þeim veikindatilfellum sem fram hefðu komið og orsökum þeirra. Nokkrum dögum siðar var enn haldinn fundur sömu aðila ásamt Grimi Jónssyni héraðslækni, Ólafi Hjaltested trúnaðarlækni ISAL og Hrafnkeli Helgasyni yfirlækni á Vifilsstöðum. 1 fram- haldi af þessum fundum, skrifuðu verkalýðsfélögin heilbrigðisráðu- neytinu þar sem óskað var eftir rannsókn á 1. Hvort aðstæður i Straumsvik séu þannig, að hætta sé á at- vinnusjúkdómum hjá starfs- mönnum. 2. Hvaða sjúkdóma geti hugsan- lega orðið vart við. 3. Hvort tilgreind veikindatilfelli verði rakin til vinnuaðstæðna i Straumsvlk. Þessa rannsókn framkvæmdi Baldur Johnsen, þáverandi for- stööumaður heilbrigðiseftirlitsins (árið 1971) og eru helstu niður- stöður þær að: 1. Bekja megi flest sjúkdómstil- fellin til starfsins i áliðjuverinu þó þar blandist fleira inn i. 2. Veikindatilfellin i Straumsvik koma undir atvinnusjúkdóma í samræmi við reglur um skrán- ingu og tilkynningu atvinnu- sjúkdóma,en þar segir I 1. gr.: „Atvinnusjúkdómar eru sjúk- dómar, sem eiga beint eða óbeint rætur að rekja til óhollustu I sam- bandi við atvinnu manna, hvort heldur er vegna eðlis atvinnunn- ar, tilhögunar vinnu eða að- búnaðar á vinnustað. Einkum koma hér til greina bæklunar-, bilunar-, eitrunar- og ofnæmis- kviliar.” Það eru niðurstöður þessarar skýrslu frá 1972 sem vakið hafa mesta athygli af þvi sem fram kom I skýrslu heilbrigðismála- ráðherra nú fyrir nokkrum dög- um. Vitað er um mörg fleiri veikindatilfelli en þau 8 sem rætt er um i skýrslunni þar sem starfsmenn hafa annað hvort orðið að hætta ab fullu störfum i áliðjuverinu að ráði læknis eða reynt að breyta til um störf. Aug- ljóst er þvi að hætta á atvinnu- sjúkdómum er fyrir hendi. Niður- stöður heyrnarmælinga er fram fóru á málmiðnaðarmönnum að tilhlutan Félags járniðnaðar- manna 1974 og i framhaldi af þvi á nokkrum öðrum starfsmönnum eru geigvænlegar; þær sýna þó ekki að hjá ISAL sé meiri hætta á heyrnarskemmdum en á öðrum hávaðastöðum þar sem ekki eru gerðar heyrnarmælingar er menn hefja störf hjá fyrirtækinaÞessar niðurstöður verða vonandi til þess að þessum þætti vinnuverndar veröi betri gaumur gefinn. Aðbúnaðarmál Verkalýðsfélögin hafa i undan- förnum samningum látið mjög til sin taka aðbúnaðarmál. Astæðan fyrir þvi að þessi mál eru tekin upp I samningum er fyrst og fremst sú að lagfæringar hafa ekki fengist nema undir þeim þrýstingi sem lausir samningar skapa. Sem dæmi um samnings- atr. má nefna afdrep fyrir menn i kerskálum og viðar þar sem þeir stutta stund gætu leitað i betra loft en er á vinnustöðunum. Kröf- ur hafa verið um betri loft- ræstingu á flest-öllum vinnustöð- um og bættan abbúnab að mörgu leyti þær hafa þó ekki allar náðst fram. Rétt er aö geta þess, að Framhald á bls. 18 Þannig eru rekstrarhorfur málmblendiverksmiðju: 800 miljón kr. halli árið 1976 l j<1i..ibtói uuil t.ií idjb. 22/2/1977 A.etlað rekstraryf irlit kisilj.irnversins fyrir oit t ár, miðað við ful 1 afköst og verðlag, ársins 1976 .• Mil1iónir norskra krón.i r>iil utek jur 50.000 tonn á 2.388 n.kr 1) 800 miljón króna halli árið 1976. Þetta er dómur Þ jóðhagsstofnunar um afkomuhorfur málm- blendiverksmiðjunnar á Grundartanga miðað við markaðsaðstæður ársins 1976. Það voru þessar af- stæður sem forráðamenn Union Carbide gerðu sér grein fyrir og kusu því að greiða nærri miljarð fsl. króna til þess að losna út úr samningunum um Grundartangaverk- smiðjuna. Frumvarp til laga um málm- blendiverksmiðju I Hvalfirði hefur verið til meðferöar I iðnaðarnefnd neðri deildar al- þingis alllengi; svo lengi að kunnugir telja að þar hafi hlaupið snurða á þráðinn. Siguröur Magnússon, fulltrúi Alþýðubandalagsins I iðnaðar- nefnd, hefur farið fram á það að fá að sjá gögn um viöskilnað Union Carbide og þá alveg sér- staklega gögn um þær markaðs- kannanir sem fyrirt. lét gera og voru svo Iskyggilegar að fyrirtækið kaus aö hverfa frá fyrrisamningum. Til þessa hef- ur Sigurður ekki fengið þessi gögn, en Þjóðviljinn heitir á þingmenn að knýja þau fram i dagsbirtuna. Annað er ekki viðunandi. Þá hefur Sigurður farið fram á að kannaðar veröi rekstrar- forsendur verksmiðjunnar á Grundartanga miðað við full af- köst og verölag ársins 1976 á afuröum verksmiðju af þessu tagi. Hefur formaður iðnaðar- nefndar neðri deildar, Ingólfur Jónsson, orðiö við þessari kröfu Sigurðar. Hefur Þjóðhagsstofn- un nú nýlega reiknað þetta dæmi og kemur þar út að miðað við allar forsendur ársins 1976 hefði hallinn á verksmiðju þess- ari orðið heilar 800 miljónir króna. Við birtingu fréttar i Þjóðvilj- anum i gær urðu þau leiðu mistök að niður féll birting á áætlun Þjóðhagsstofnunar. Þess vegna er áætlunin birt I heild með þessari frétt. Aætlunin er eins og sjá má I norskum krón- um, en skv. upplýsingum Seðla- bankans var gengi norsku krón- unnar 36,36 kr. islenskar i fyrra- dag. Yfirlitið skýrir sig sjálft, en til fróöleiks er það einnig birt i meginatriðum, reiknað út i Is- lenskum krónum. Sölutekjur 4.284 milj. isl. kr. Gjöld alls 5.076 mflj. ísl kr. Halli afls 792 mflj. ísl kr. Hráofni Kvarz 12 Koks 22 Kol 7 . < Járn ^ Rafskaut 5 Annaö 1 Raforka 51 18 Hafnargjöld og annar broytilegur f ramleiöslukostnaöur________ M Fastur framleiöslukostnaöur Vinnulaun 10 Stjórnun, skrifstofu- kostnaÖur og viöhald 8 18 Takniþóknun o.fl. 3,9% 8 VerÖ jðf nunarg jald .2 Vextir2^ 18 2 1 Af skriftir 2 5 Gjöld alls mi Hreinn hagnaður fyrir l o ina skatta-22 Skýringar: 1) Tekjuverö, 2.388 n.kr. pr.tonn,^sem her er tekiÖ sem dæmd, er ^skilaverð _.t il norskra kísil járnframleiÖenda á árinu 1976 . T aætlunum^Járhblendifélagsins nú er tekiö til viömiöunar sem grunnverÖ a arinu 1976 2.800 n.kr. pr.tonn. Sé þaö gert hækka * sölutekjur og hagnaöur um 20^m.n.kr. frá því sem svnt er húr aÖ ofan. Hreint tap mundi þá lækka úr 22 m.n.kr. í 2 m.n.kr. 2) Her eru teknir inn árlegir meÖalvextir og afskriftir alls rekstrartímabilsins ^og er þá gert ráö fyrir 10% lækkun stofn- kostnaöar,^þar eð her er ekki gert ráö fyrir veröhækkunum á byggingartimanum. Aœtlun Þjóöhagsstofnunar um hallann af Grundartangaverksmiöj- unni eins og hann heföi oröiö 1976.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.