Þjóðviljinn - 12.03.1977, Side 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. mars 1977
Umsjón: Magnús H. Gislason.
Frá v. Stjáni grafari (Torfi Steinsson) Hreppsstjórinn, (Hreinn
GuObjartsson), Palli (Bragi Andrésson), Benni, (Sigurjón Skúla-
son). Mynd: Ljósmyndastofa Suðurnesja
Leikarar, hijómlistarmenn og aörir starfsmenn við sýninguna. Mynd Ljósmyndastofa Suðurnesja.
Litla leikfélagið í Garði
Kynnir verk Jónasar
Litla leikfélagiö i Garði hefur
að undanförnu flutt kynningu á
verkum Jónasar Arnasonar.
Hefur sú kynning verið flutt alls
fimm sinnum: fjórum sinnum i
Garöi og einu sinni i Félagsbiói 1
Keflavik, ávallt fyrir fullu húsi
og færri komist aö en vildu á
stundum.
Dagskráin hefst með flutningi
einþáttungsins Drottins dýrðar
koppalogn. En þar sem Jónas
Arnason hefur sýnt okkur þá
einstöku vinsemd að vera með
okkur á allflestum sýningunum
hefur hann flutt stutt spjall um
verkið I byrjun sýninga.
Koppalognið gerist I litlu
sjávarþorpi úti á landi, rétt eftir
fyrriheimsstyrjöld. Mangi mál-
lausi, sem elskar allt hnöttótt,
kemur einn daginn úr róðri með
tundurdufl i slefi inn i mitt
plássiö. Timinn fer I karp um
smáatriöi og einskisverða hluti,
•meðan ógnvekjandi hætta vofir
yfir plássinu, þar sem duflið
hefur táknræna merkingu, sem
næsta auövelt er aö finna stað I
okkar nútimasamfélagi, enda
heimurinn litt lagast.
Leikstjóri og leiktjaldahönn-
uöur er Sævar Helgason. Verður
ekki annað sagt en aö honum
hafi tekist alveg sérstaklega vel
að ná fram einhverjum ákveön-
um ,,sjarma”á sýninguna, sem
strax slær áhorfendur og setur
einhverja tilfinningu eða stemn-
ingu i húsið. Hjálpa leiktjöldin
þar vel til, enda hefur Sævari
tekist að skapa hið rétta um-
hverfi.
Leikendur eru: Séra Konráð
(Kjartan Asgeirsson), Georg
oddviti (Jóhann Jónsson),
Jakob hreppsstjóri (Hreinn
Guöbjartsson), Davið skóla-
stjóri (Unnsteinn Kristinsson),
Kristin (Kristbjörg Hallsdótt-
ir), Villi (Magnús Guðmunds-
son), Benni (Sigurjón Skúla-
son), Palli (Bragi Andrésson),
Stelpan (Helga ólafsdóttir),
Læknir (Gisli Eyjólfsson),
Stjáni (Torfi Steinsson), Sigriö-
ur (Sigriður Halldórsdóttir),
lik.menn (Brynjar Guömunds-
son og Hólmberg Magnússon).
Seinni hluti dagskrárinnar er
siðan söngur og upplestur úr
verkum Jónasar Arnasonar.
Höfundinn hefur Helgi Seljan
oftast kynnt með gagnmerku og
mjög áheyrilegu erindi um Jón-
as. A hann þakkir skyldar fyrir
og vonum við að hann verði sem
oftast meö við þessa kynningu á
verkum Jónasar, svo að hið
ágæta erindi hans nái eyrum
sem flestra.
Auður Sigurðardóttir les sögu
Jónasar. Er þar greinilega á
ferðinni efni I mikilhæfan upp-
lesara, þar eru undirtektir
áheyrenda ólýgnasta vitnið. Um
sönginn sér trióiö Bóthildur og
er greinilegt að þar eru engir
viðvaningar á ferðinni.
Ekki má gleyma þætti Jónas-
ar sjálfs i dagskránni. Þar les
hann úr verkum sinum og tekur
gjarnan lagið á milli, með aö-
stoð Bóthildar-triósins, að ekki
sé minnst á undirtektir áhorf-
enda sjáifra, sem taka rösklega
Frá v. Hreppstjórinn (Hreinn Guöbjartssonj séra Konráð. (Kiartan
Asgeirsson). Mynd: Ljósmyndastofa Suðurnesja.
undir sönginn. Fer Jónas á
kostum, og er greinilegt að þar
er á ferðinni maður, sem hefur
fólkiö með sér og fær athygli
þess óskipta.
Það má vissulega segja, að *
leiklistarmálin hér i Garðinum
hafi tekið við sér i vetur, eftir
áralangan Þyrnirósarsvefn. Og
þráttfyrir það að ekki horfði vel
i byrjun með aö unnt yrði að
koma þessari kynningu af stað;
vegna þess að sá timi, sem fór i
æfingar, er að jafnaði mesti
annatimi ársins hér, þá tókst
þetta nú samt með samstilltu
átaki. Og þó aö talið sé að hér á
Suðurnesjum sé oftast einhver
vindstrekkingur, þá hefur nú
brugðið svo við, að slðan æfing-
ar hófust og fram á þennan dag
hafi rikt „Drottins dýrðar
koppalogn” hér. Og sé það rétt,
sem ýmsir bera sér i munn, að
leiklistin hafi þessi áhrif á veðr-
áttuna, þá á hún ekki svo litla
hönk upp I bakið á þjóðarbúinu,
ef litiö er til þeirrar loðnu sem á
land hefur borist nú þessa logn-
daga. Vonum við að það logn
megi haldast sem lengst eöa
a.m.k. á meöan sýningar vara.
Nú er nefnilega ráðgert að fara
með sýningar út á land. Er fyr-
irhugaö að næsta sýning verði i
Félagsgarði I Kjós á morgun,
(laugardag) og þar mun Jónas
Arnason flytja ávarp, og siðan
er ráðgert að fara um Snæfells-
nes og Dali og svo e.t.v. að koma
á sýningu i Kópavogi.
Stjórn Litla leikfélagsins er
skipuð þessu fólki: Torfi Steins-
son, formaður, Einar Tryggva-
son, gjaldkeri, Helga ólafsdótt-
ir, ritari, Bergmann Þorleifsson
og Sigríöur Halldórsdóttir
meöstjórnendur. Varamenn:
Sigurjón Skúlason og Hólmfrið-
ur ólafsdóttir.
ts/mhg
Færeyjar:
Engar breytingar á lands-
stjórn eftir kosningarnar
Frá Leivi Hansen, Þórshöfn,
10/3
Að lokinni lokatalningu I
kosningunum I Færeyjum til
danska þingsins eru úrslitin
þessi: Sambandsflokkurinn fékk
5183 atkvæði og einn þingmann
kjörinn, Jafnaðarflokkurinn 3681
atkv. og einn þingmanp.
Þjóðveldisflokkurinn 3058 atkv .,
Fólkaflokkurinn 2773 atkv., utan-
flokkamenn 891 atkv., Sjálf-
stjórnarflokkurinn 551 stkv. og
Framsóknarflokkurinn 207 atkv.
Ekki er búist við þvi, að
kosningaúrslitin hafi I för meö
sér neinar breytingar á lands
stjórninni, þar eð flokkar þeir
þrir, sem að henni standa,
Jafnaðarflokkurinn, Þjóðveldis-
flokkurinn og Fólkaflokkurinn,
hafa ennþá samanlagt um 2000
atkv. meirihluta meðal kjósenda,
miðað við kosningaúrslitin. A
danska þinginu mun Pauli Ellef-
sen, þingmaður Sambandsflokks-
ins, taka sér stöðu með Venstre,
en Jóhan Nielsen, þingmaður
Jafnaðarflokksins með sósfal
demókrötum. — Af grænlensku
þingmönnunum tveimur er þaö
að frétta, að þingmaður Siumut -
hreyfingarinnar, sem berst fyrir
aukinni sjálfstjórn Grænlands,
mun hafa samstöðu með Sósial-
iska þjóðarflokknum, en hinn
þingmaðurinn með Radikale
Venstre.
’
Þinghúsið I Þórshöfn