Þjóðviljinn - 13.03.1977, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. mars 1977
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis.
Útgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans. Útbreiðslustjóri: Finnur Torfi Hjörleifsson.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Augiýsingastjóri: úlfar Þormóösson
Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Gestsson Siðumúla 6. Simi 81333
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón meö sunnudagsblaöi
Árni Bergmann Prentun: Blaöaprent hf.
800 miljóna
halli á Grundar-
tanga-
verksmiðjunni
Bandariski auðhringurinn Union
Carbide kaus að greiða nærri einn miljarð
króna fremur en að standa við gerða
samninga um byggingu kisiljárnverk-
smiðjunnar á Grundartanga i Hvalfirði.
Astæðan fyrir þessari afstöðu auðhrings-
ins var sú að forráðamenn hans gerðu sér
grein fyrir þvi eftir itarlegar athuganir að
markaðsverð á afurðum þessarar verk-
smiðju fór sifellt lækkandi. Þrátt fyrir
þessa aðvörun héldu forsjármenn rikis-
stjórnar íslands áfram eins og ekkert
hefði i skorist og leituðu þeir eftir öðrum
bandamanni. Varð niðurstaðan sú eins og
kunnugt er, að samningar tókust með
rikisstjórninni og fulltrúum norska fyrir-
tækisins Elkem-Spiegerverket. Voru
samningar undirritaðir og málið siðar
tekið fyrir á alþingi. Við umræður um
málið á alþingi héldu talsmenn Alþýðu-
bandalagsins þvi fram að enn væru
markaðshorfur á afurðum verksmiðju
þessarar mjög slæmar. Byggðu þeir full-
yrðingar sinar á sjálfstæðum athugunum
á samningnum og á tiðindum erlendis frá
af markaðshorfum. Ber erlendum tima-
ritum saman um það að stálmarkaður
Vestur-Evrópu og Bandarikjanna sé svo
að segja i rúst um þessar mundir og
framtiðarhorfur vægast sagt mjög
iskyggilegar. Er málið kom til iðnaðar-
nefndar neðrideildar alþingis óskaði
Sigurður Magnússon fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins i nefndinni eftir þvi að fá að
sjá markaðskannanir þær sem Union
Carbide lét gera áður en auðhringurinn
hvarf frá Grundartanga. Þrátt fyrir eftir-
grennslan hafa þessar kannanir og niður-
stöður þeirra ekki komið fram. Þá óskaði
Sigurður Magnússon eftir þvi að reiknað
yrði út hver hefði orðið afkoma verk-
smiðjunnar á Grundartanga miðað við
hráefnisverð og afurðaverð ársins 1976.
Þessir útreikningar voru gerðir og sýna
þeir satt að segja býsna fróðlegar upplýs-
ingar um verksmiðju þessa, upplýsingar
sem hljóta að verða til þess að menn
staldri við og virði málin fyrir sér á ný og
endurmeti stöðuna:
Samkvæmt útreikningum Þjóðhags-
stofnunar hefði kostnaður verk-
smiðjunnar 1976 miðað við full afköst,
50.000 tonn, orðið 141 miljón norskra
króna, en söluverðmæti afurðanna aðeins
119 miljónir norskra króna. Hallinn er
með öðrum orðum 22 miljónir norskra
króna eða um 800 miljónir isienskra
króna.
Þessar upplýsingar staðfesta ummæli
talsmanna Alþýðubandalagsins I áður-
nefndum umræðum á alþingi. Og þær
skýra sennilega einnig þann drátt sem
hefur orðið á þvi að mál þetta fái frekari
meðferð á alþingi. Fulltrúar stjómar-
flokkanna i iðnaðarnefndum þingsins
hljóta að staldra við þegar tölur af þessu
tagi koma fram. Og allir þeir sem hafa
óbrenglaða skynsemi, allir þeir sem ekki
eru haldnir af pólitisku ofstæki, hljóta að
krefjast þess að nú verði spymt við fótum
og hætt við allar framkvæmdir á
Grundartanga þar sem verksmiðjan gefur
ekki þann arð sem menn' höfðui gert sér
vonir um. Það er sama hvaða afstöðu
menn hafa áður haft til þess hvort reisa
eigi kisiljárnverksmiðjuna á Grundar-
tanga: hinar nýju upplýsingar sem byggð-
ar em á tölum Þjóðhagsstofnunar beinlin-
is kalla á það að þeir sem áður hafa verið
hlynntir verksmiðjubyggingunni endur-
meti afstöðu sina og krefjist þess að öll
áform um byggingu verksmiðjunnar verði
lögð til hliðar.
Þjóðviljinn skorar á þingmenn allra
flokka að láta skynsemina ráða, skorar á
þá að virða fyrir sér þær tölur um halla-
rekstur verksmiðjunnar, sem hér hafa
verið gerðar að umtalsefni, og draga af
þeim þá eðlilegu og sjálfsögðu ályktun að
stöðva framkvæmdirnar á Gmndartanga.
Við erum bara
í öðru sæti!
Carter forseti segir, aö eitt af
brýnustu verkefnum hans sé aö
láta bandarlkjamönnum skilj-
ast hve alvarleg orkukreppa
okkar er. Hvernig á hann svo aö
fara aö þvi?
Vinur minn Honneker, sem
vinnur viö auglýsingar, heldur
aö hann hafi fundiö svar viö
þessari spurningu.
— Hr. Carter, sagöi hann,
verður aö fara i sjónvarpiö og
tilkynna bandarisku þjóðinni aö
sovétmenn séu númer eitt orön-
ir í orkumálum.
— Etv sagöi ég, bandariska
þjóöin mun aldrei viöurkenna
þá staöreynd, aö sovétmenn séu
númer eitt i einhverju.
— Þaöereinmitt þaö, svaraöi
hann. Manstu ekki, aö eftir aö
Spútnik fór á loft fór Kennedy i
sjónvarpiö og sagöi, aö rússar
kynnu aö lenda á tunglinu áöur
en viö geröum þaö? Allir uröu
dauöhræddir og viö settum
saman skyndiáætlun um geim-
feröir sem allur heimur gapti af
undrun yfir. Fólk haföi engan
áhuga á geimferöum, og viö
höföum ekki áhuga á þvi aö
komast til tunglsins. En þegar
menn heyröu, aö sovétmenn
væru I fyrsta sæti, þá var þaö
nóg til aö allir gengju af göflun-
um.
— Amrikanar vilja ekki vera
i ööru sæti i neinu, samþykkti
ég.
— Carter forseti gæti sagt, aö
hann heföi fengiö leyniskýrslu
frá CIA um orkuforöa Sovét-
rikjanna og um aö ef viö héldum
áfram aö sóa orku eins og viö
gerum, muni ljósin slokkna hjá
okkur 20 árum fyrr en þau
slokkna hjá rússum.
Þess vegna ætli hann aö biöja
þingiö um áhlauparáöstafanir
til aö brúa orkubiliö áöur en þaö
er of seint.
— Þingiö mundi gleypa viö
þvi, sagöi ég æstur.
— Og samsteypa herforingja
og iöjuhölda lika, sagöi
Honneker. Þaö er þeirra starf
aö sjá til þess aö sovétmenn nái
ekki fyrsta sæti í neinu. Þaö
mundi einnig sameina oliubar-
ónanna, sem hata kommúnisma
meira en nokkuö annaö. Þeir
mundu fara aö bora eftir gasi og
ollu, jafnvel þar sem þeir gætu
ekki grætteitt sent á vinnslunni.
— Gleymdu ekki Detroit!
Bilakóngarnir eru ekki siöri
fööurlandsvinir en oliufólkiö. Ef
þeir héldu aö sovétmenn kynnu
aö vinna orkukapphlaupiö, þá
mundu þeir smiöa bila, sem
ekki nota eins mikiö bensin,
jafnvel þótt þeir þyrftu aö
endurskipuleggja allar slnar
verksmiöjur, sagöi ég.
— Hin óvænta yfirlýsing for-
setans mundi demba þessu
landi i striösástand, sagöi
Honneker. Viö mundum fara aö
spara gas og oliu bæöi á heimil-
um okkar og i verksmiöjunum.
Upplýsingaskrifstofa um orku-
mál mundi prenta áróöurs-
spjöld, sem sýna rússa grafa
amrikanana meö rafstöövum.
John Wayne mundi búa til aug-
lýsingamyndir fyrir sjónvarp,
þar sem hann skorar á fólk aö
skrúfa niöur hitastillinguna svo
aö hægt sé aö sigrast á rauöu
hættunni. FBI mundi fara aö
setja á skrá nöfn þess fólks sem
sóar eldsneyti. Allir kraftar
landsmanna mundu virkjaöir i
i-Mj/
.,r
§ fí
y Mr
, 's.-r.'t ■
' ■; ,* • s
þvl skyni, aö viö yröum aftur i
fyrsta sæti i orkumálum.
— Þetta er okkar eini séns,
sagöi ég.
— Ég er ekki búinn, sagöi
Honneker. Hálftimasjónvarps-
þátturinn frá Super Bowl yröi
nelgaöur sólarorku. Ungfrú
Amrika mundi mæla meö kolum
á reisu sinni um landiö. Robert
Redford mundi sýna sig á fööur-
landsbrókum. Amrlkubanda-
lagiö mundi lýsa þvi yfir, aö all-
ir meölimir þess færu i hungur-
verkfall þar til kommarnir væru
aftur komnir I annaö sæti.
— En segjum svo aö rússar
veröi þaö gáfaöir, þegar þeir
heyra um áætlanir forsetans, aö
þeir neiti þvl aö þeir séu I fyrsta
sæti í orkumálum?
— Þeim mun betra, svaraöi
vinurminn. Ef þeir neita þvl, þá
vitum viö, aö þeir eru aö ljúga
og aö þeir eru aö reyna aö rugga
okkur I svefn meö falskri
öryggiskennd. Bandarikjamenn
eru engir asnar I orkumálum.
— Honneker, sagöi ég. Þaö
má vera aö þú hafir fundiö svar
viö þeirri spurningu sem mest
brennur á löndum okkar.
— Þetta er eina svariö, sagöi
hann. Enginn viröist hafa
éhyggjur af þvi.aö arabar hafa
kverkatök á okkur. En ef menn
héldu aö rússar heföu slik tök, þá
mundu amrikanar setja upp
kjarnorkuofna I kjöllurum sln-
um.
— Er þaö ekki hættulegt?
spuröi ég.
— Þaö er ekki hættulegt, sagöi
Honneker, ef þú trúir þvi aö þaö
sé betra aö vera dauöur en
rauöur.