Þjóðviljinn - 13.03.1977, Page 6

Þjóðviljinn - 13.03.1977, Page 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. mars 1977 SIGURJÓN PÉTURSSON, borgarráðsmaður: Það er fljótlegt að stroka út á teikrdborði en steinsteypan verður ekki brotin niður. 7.000 miljónir verður að leggja i ný umferðar- mannvirki á næstu 20 árum fyrir utan eðlilegt viðhald. ....má gera ráð fyrir að bilastæði borgarinnar þeki 1V2 -2 fer- kilómetra... ....malbikuð bilastæðin orka á mann eins og hrúðrað sár innan um lágreist og vinaleg hús. FRAM I ÍÐIIN MÓTUÐ Við islendingar hælum sjálfum ok: "r oft fyrir að við byggjum va> laðri hús en aðrar þjóðir. Sjáífsagt er þetta rétt. Við búum i eldfjallalandi, þar sem gera má ráð fyrir all- snörpum jarðskjálftum og þvi þurfum við að byggja sterkt. Við dveljum meira innan dyra en flestar þjóðir vegna rikjandi veðráttu og þvi þurfum við að byggja bæði hlý og rúmgóð hús. Nær allarbyggingar eru reistar ur járnbentri steinsteypu, ófor- gengilegu efni, sem endast mun ófyrirsjáanlega margar kyn- slóðir. Af þessum ástæðum skiptir skipulag byggðar svo geysilega miklu máli. Það er fljótlegt að stroka út á teikniborði og teikna nýtt. En steinsteypubyggðin er varanleg og verður ekki brotin niður, ekki einu sinni þótt illa takist til. t þessari grein ætla ég að undir- strika þrjú atriöi i nýju aðal- skipulagi fyrir Reykjavlk. Alls ekki þau einustu þrjú, sem ástæða væri til að fjalla um, heldur aö- eins þrjú af þeim mörgu, sem skipta máli. Þessi þrjú atriði sem ég ætla að fjalla um I þessari grein eru umferðarpólitfk aðalskipulagsins, stefna byggðarinnar og einn þáttur I endurskipulagningu gömlu hverfanna. Almenningsvagnar — einkabílar Ein sú veigamesta ákvörðun, sem tekin hefur verið i þessu skipulagi, er sú ákvörðun að áfram skuli gert ráð fyrir þvl. aö fólksflutningar fari fyrst og fremst fram meö einkabllum. Við umferðarútreikninga var sá möguleiki ekki einu sinni kannað- ur að beina fólksflutningum i vax- andi mæli að almenningsvagna- kerfi. Ég hef orðið þess var að mjög margir álíta að þeir, sem aðhyll- ast kerfi almenningsvagna til lausnar á vandamálum nútima umferðar, séu einhverjir bilaand- stæðingar, einskonar meinlæta- menn, sem vilji afneita þægindum af hugsjónaástæðum einum. Tveir valkostir Þetta er misskilningur. Um er að ræða tvo valkosti i fólks- flutningum innan borgar, almenningsvagna eða einkabila. Báða valkostina á að skoða, siðan má velja og hafna. Flestar erlendar stórborgir hafa komið sér upp neðanjarðarbrautum, sem eru mikið notaðar. Þar ferðast ekki neinir meinlæta- menn. Liklega eiga flestir þeirra, sem með þessum neðanjarðar- brautum fara, bila heima. Þeir kjósa neðanjaröarbrautina vegna þess að hún er fljótari, hún lendir ekki I umferðartöfum, hún er stundvisari og hún sparar tim: ann, sem ella tekur að leita uppi bifreiðastæði. Þessa kosti almenningsvagna- kerfis viljum við, sem aöhyllumst þá, sem lausn á umferðarvand- anum, hagnýta. Láta skoða og bera saman kostnaðinn við hana á móti stefnu einkabílsins. Ekkiskoðað Eigi almenningsva gnar að keppa við einkabilinn, þá verður að sjálfsögðu að stórbæta kerfið frá þvl sem nú er. Núverandi strætisvagnakerfi er miðað við það að gera stefnu einkabilsins vinsæla. Kostnaður við að láta almenningsvagnakerfið taka meginþunga fólksflutninga hefur ekki verið rannsakaður i sambandi við þetta skipulag, en kostnaður við umferðarkerfi einkabilsins hefur aftur á móti verið metinn. Samkvæmt þeim áætlunum sem gerðar hafa verið verður að leggja a.m.k. 7.000 miljónir I ný umferðarmannvirki á næstu 20 árum. Þvi má alveg treysta aö þessi tala er ekki of há. Raunar er hún þegar orðin of lág,vegna þess að verðlag hefur hækkað siðan hún var reiknuð út. Þessi skattur sem þegar er búið að leggja á reykvikinga er algjörlega til viðbótar eðlilegu viðhaldi gatna. Fleira en götur En Jiað er ekki nóg aö gera götu fyrir einkabilinn. Það þarf bilastæði, bæöi við heimili og vinnustað, ef gera á ráð fyrir að menn ferðist með einkabilum. Og auk þess þarf að sjálfsögðu bílastæði við verslanir og stofn- anir fyrir þá, sem sækja þangaö þjónustu. Ég býst við að vægt sé að gera ráð fyrir að bilastæði i borginni þurfi aö vera þrisvar tíl fjórum sinnum fleiri en bilar borgarbúa, sérstaklega með hlið- sjón af þvlað fjölmargir, sem búa I nágrenni borgarinnar, sækja þangað vinnu. Þar sem hvert bilastæöi meö tilheyrandi aðkeyrslu er um 20 ferm aö stærð og bilar borgarbúa um 28000, má gera ráð fyrir, að bllastæöi borgarinnar þeki 1 1/2-2 ferkfló metra, þegar allt er reiknað, og enginn skal halda að bilastæðum verði komið upp ókeypis. Það er bjargföst sannfæring min að meirihluta innanbæjar- umferðar megi leysa með almenningsvagnakerfi,sem verði beinlinis þægilegra og eftir- sóknarverðara en það að ferðast i eigin bil, ef aðeins hluti af þeim 7.000 miljónum sem verja á til umferðarmannvirkja væri varið til að bæta aðstöðu almennings- vagna. En ég veit iika að bæði bifreiða- utnboð og ollufélög eru ekkert hriíin af slikri framtið,og borgar- stjórnarihaidið hefur þegar glatt hjörtu þeirra með þvi að marka þá stefnu að einkabillinn skuli áfram gegna aðalhiutverki 1 mannflutningum innan borgar- innar. Það á ekki einu sinni að kanna þann möguleika að almenningsvagnar gegni þvi hlutyerki, Furstadæmin A þvi svæði, sem I einu orði má kalla höfuðborgarsvæöi, eru eins og allir vita sjö sveitarfélög. Hvert þessara sveitarfélaga fyrir sig vinnur aö sinum skipulags- málum i ákaflega litlum tengsl- um við nágrannana og næstum að segja engu samstarfi. Allt þetta svæöi frá Hafnarfirði til Mos- fellssveitar,er i raun eitt og sama atvinnusvæðið. Byggðarkjarninn i Mosfellssveit er ekkert frá- brugðinn Breiðholtinu, og Sel- tjarnarnesið er i flestra huga aðeins framlenging á vestur- bænum, en þó er þarna á regin- munur. Skipulag sveitarstjórnamála á Islandi minnir um margt á Evrópu miðalda með slnum smáu furstadæmum og konungsrlkjum. A höfuðborgarsvæðinu rfkja sjö furstar i gervi bæjarstjóra, borgarstjóra og sveitarstjóra. Hver með sina hirð og sin völd, sem þeir þora fyrir engan mun að deila með öðrum af ótta við að glata einhverju af þessum glæsta höfðingjabrag. Byggdin til suðurs Þvi miður fyrir það fólk, sem býr á þessu svæðiþá er skipulagt með fullkomnu tilliti til hreppa- marka. 1 þvi aðalskipulagi Reykjavikur sem nú er verið að endurskoða og átti að gilda fyrir skipulagstimabilið 1962-1983 var reiknað með að frekari aukning byggðar á höfuðborgarsvæðinu yröi i átt til Hafnarfjarðar og að byggð á þessu svæði yrði þétt. Öneitanlega virðist það skyn- samlegasta lausn á skipulags- málum, sem völ er á. Tvimæla- laust myndi slik byggöaþróun stuðla að heilsteyptri borgar- mynd á höfuðborgarsvæðinu og auðvelda gott umferðarkerfiekki hvað sist almenningsvagnakerfi. En Reykjavikurborg á ekkert land til aö skipuleggja I þá átt, sem aðalskipulagið gerði ráö fyrir, og skipulag sveitarstjórn anna hefur ekkert breyst siðan 1962. Tímaskekkja Samvinna i skipulagsmálum er aöeins orðin tóm og litlar llkur á að það breytist i náinni f ramtið og þvi er það ráð tekið að skipu- leggja byggðina til austurs. Meðan gert var ráð fyrir að byggðin þróaðist til suðurs þá var staösetning nýs miðbæjar i Skipulag er fyrirfram ákvörðuð stefna. Pólitiskt mótuð með vitund og fullum vilja og ákveðna hagsmuni í huga. Flestar lóðir i miðborginni eru i einkaeigu. Eigendur vilja byggja stórt og fá mikla um- ferð til að lóðin skáli hámarksgróða.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.