Þjóðviljinn - 13.03.1977, Síða 17
Sunnudagur 13. mars 1977 ÞJÚÐVILJINN — SÍÐA 17
Chlrac
vegna þess einmitt aö hann var
þá búinn að missa stuðning
„frjálslyndra” kapitalista). Fyr-
ir valdatöku de Gaulles 1958
byggöust völd og áhrif hægri
manna i Frakklandi aö miklu
leytiá þvi aðþá var viö lýöi sterk-
ur kaþólskur hægri flokkur með
mikiö alþýöufylgi, en hann leyst-
ist hreinlega upp, þegar de Gaulle
varö forseti, og fyllti raöir gaull-
ista.
Af þessum ástæðum var þaö
engan veginn nóg fyrir Giscard
aö brjóta niöur gaullistaflokkinn
og mynda á rústum hans nýjan
flokk, sem héldi trúnaöi viö hann
persónulega, — hann varö einnig
aö vinna til frambúðar þaö al-
þýöufylgi, sem gaullistar höföu
notiö. Nú hefur kaldhæðni örlag-
anna komiö þvi svo til leiöar aö
flokkur Giscards, sjálfstæöir lýö-
veldissinnar er lang „aristókrat*-
iskasti” stjórnmálaflokkur
Frakklands, og myndi sjálfsagt
enn hafa vinninginn þótt viöar
væri leitaö; Giscard d’Estaing
sjálfur telur til skyldleika viö
Lúövik 15. Frakklandskonung
(þóttýmsir vefengi þá ættartölu),
Michel Poniatowski er prins af
gömlum pólskum konungsættum
Michel d’Ornano mun vera af
itölskum aöalsættum, og þannig
mætti lengi telja. Þaö sem verra
er: þessir menn eru ekki aöeins
úr rikustu yfirstétt landsins,
heldur eru þeir jafnframt þekktir
sem slikir og hafa ekkert gert
sem gæti breytt þessari mynd
þeirra i augum fransks almenn-
ings. Michel Poniatowski er td.
þekktur undir nafninu „prins
Ponia”, og Georges Marchais,
leiötogi kommúnista, kallar sjálf-
stæöa lýöveldissinna stundum
„flokk prinsa, markgreifa og her-
toga.” Þessi áróöur viröist hrifa.
Þótt forystumenn stuöningsflokks
Giscards hafi starfað að þvi i
mörg ár aö koma á fót fjölda-
hreyfingu, sem gæti staöið fyrir
litrikum fjöldafundum og hóp-
göngum, sem fréttir birtust um á
forsiðum dagblaöa, er árangur-
inn enn mjór.
,Ekki kosinn til þessa’
Svo virðist heldur ekki sem
stjórnarstefna Giscards 'sjálfs hafi
gert samstarfsmönnum hans
auöveldara fyrir i þessari viö-
leitni þeirra. Aö undanförnu hafa
gengiö um íifakkland allskonar
hviksögur og kvittir, sem snuist
hafa um Giscard forseta, en þeg-
ar grannt er eftir þeim Weraö,
viröast þeir koma frá þeim sem
upphaflega studdu hann mest —
og eru nú af einhverjum ástæöum
mjög óánægöir meö stefnu hans.
Kjarni þessa oröróms eru
ásakanir á hendur Giscard fyrir
„hik” og „viljaleysi”, en þegar
betur er aö gáö viröist ðánægjan
beinast mest aö þeirri umbóta-
stef nu, sem hann hefur barist fyr-
ir frá þvi hann bauö sig fram til
forseta.
■ Ariö 1974 viröist Giscard
d’Estaing hafa litiö svo á, aö
óánægja fransks almennings,
sem birtist i fylgisaukningu
vinstri flokkanna stafaöi einkum
af þvi hve hægfara stjóm Georges
Pompidous heföi veriö, og kjam-
inn I framboösræöum hans var
sá aö lofa skjótum og róttækum
umbótum. Hann tók dæmi af
þeim þjóöum Evrópu, sem lengst
eru komnar i félagsmálum, og
bætti siöan viö „Ef ég næ kjöri
veröa frakkar furöu lostnir á öll-
um þeim umbótum sem ég mun
koma til leiðar á skömmum
tima!” Francois Mitterrand
frambjóöandi vinstri manna,
benti á þaö, aö Giscard heföi
reyndarveriö ráöherra i fjölmörg
ár og litiö beitt sér fyrir „umbót-
um”, en hann lagði þó meiri
áherslu á annaö: i stuttu máli
sagöi hann aö jafnvel þótt um-
bótavilji Giscards væri fullkom-
lega einlægur myndu stuönings-
menn hans á þingi og kjósendur
hans ekki gera honum kleift aö
framkvæma þaö, sem hann
lofaði.
Þessi spá Mitterrands hefur
ræst að veigamiklu leyti. Um þaö
veröur þó ekki deilt að Giscard
sýndi i raun og veru mikinn um-
bótavilja þegar eftir aö hann tók
viö embætti, og fór reyndar svo
ab fyrstu tillögur hans, sem flest-
ir voru sammála um (t.d. lækkun
kosningaaldurs), voru samþykkt-
ar á þingi meö miklum meiri-
hluta. En fljótlega fór aö bera á
tregöu meðal þingmanna
stjórnarflokkanna: sumar tillög-
ur hans (t.d. um afnám banns við
fóstureyðingum) voru ekki sam-
þykktar nema af því, aö þing-
menn vinstri flokkanna greiddu
þeim atkvæöi, og aö þvi kom jafn-
vel aö beita þurfti þingmenn
stjórnarflokkanna geysilegri
hörku og flokksaga svo aö sumar
tillögur (sem vinstri menn vildu
ekki greiöa atkvæöi með af þvi aö
þeim fannst að þær gengju ekki
nógu langt) kolféllu ekki á þing-
inu. Eftir það var öðrum umbóta-
tillögum slegiö á frest, og hefur
margt þaö sem Giscard lofaöi i
upphafi kjörtimabilsins enn ekki
séö dagsins ljós. önnur atriöi,
>sem reyndar voru aðeins tákn-
ræn, höföu þær afleiðingar aö
ergja kjósendur Giscards. Hann
lét þaö t.d. veröa eitt sitt fyrsta
verk aö breyta útsetningu þjóö-
söngsins þannig aö hann yröi ljóö-
rænni og minnti siður á hergöngu-
lag — og fór það vitanlega i
taugarnará uppgjafahermönnum
úr tveimur heimsstyrjöldum. Svo
fór hann i óvænta kynnisferð i
fangelsi og heilsaðiupp á fangana
þar til aö skoöa aðbónaðinn — og
hneykslaöi þaö þá sem vildu
harðar refsingar og enga linkind.
Þaö bendirþvimargttil þess,aö
þessi stefna Giscards forseta hafi
haft þær afleiðingar helstar aö
gera stóran hluta kjósenda hans
óánægöan — án þess þó aö vinna
honum fylgi meöal andstæöinga
hans, og er orörómurinn nú vitni
úm þaö. En á einu þingi sjálf-
stæöra lýðveldissinna kvaö ræöu-
maöur einn upp úr meö þetta;
hann deildi á allar aðgeröir for-
setans til þess tima og lauk svo
máli sinu meö orðunum „ekki
kusum viö hann til aö hann geröi
þetta!”
Þefvísi Chiracs
Þaö er nefnilega enginn vafi á
þvi, aö hvaö sem Giscard sagöi,
var hann frambjóöandi hægri
manna 1974 og greiddu þeir hon-
um atkvæöi vegna stefnu hans
meðan hann var ráðherra, en litu
' hins vegar á umbótatal hans sem
e.k. stilbragö, sem fæstir kjós-
endur hans ætluðust sennilega til
aö hann reyndi aö framkvæma.
„Frjálslyndir” hægri menn voru
vitanlega dauöhræddir viö allar
þær umbætur sem gætu torveldaö
frjálsa kapitaliska atvinnuhætti
þeirra, og hægri sinnuö
„bónapartisk” alþýöa vildi sterk-
an mann, sem sýndi „siðspill-
ingu” og „úrkynjun” nútlmans
enga undanlátssemi heldur heföi
hátt; þegar Giscard bar fram til-
lögur um, aö sjúkrasamlagið
endurgreiddi getnaðarvarnapill-
ur minntust menn þess aö de
Gaulle haföi á sinum tfma aftekiö
slikt meö öllu og sagt eitthvað á
þá leið, að nær væri aö leggja
skemmtanaskatt á helv. pilluna!
En þrátt fyrir þennan nýja stil
Giscards tortryggðu vinstri menn
hann þó og sáu enga ástæöu til aö
styðja hann, nema þvl aöeins að
hann bæri beinlinis fram tillögur
sem þeir höföu á sinni stefnu-
skrá: Þaö hlakkaöi aöeins I þeim
þegar spá Mitterrands rættist og
forsetinn lenti upp á kant viö sina
eigin stuöningsmenn. Þeir einu
sem studdu Giscard nokkuö
stöðugt voru ýmsir miöflokka-
menn, einkum þeir sem hafa
veriö kallaðir „umbótasinnar” en
þeirra þekktastur er Jean-
Jacques Servan-Schreiber. Þeir
hafa nokkur áhrif þótt kjörfylgi
þeirra sé takmarkaö.
Af öllum þessum ástæöum mun
Giscard aldrei hafa séö neitt
tækifæri á þvi aö reyna aö sundra
gaullistum, en sá timi kom hins
vegar aö gaullistar geröu sér
sjálfir grein fyrir þvi, að þótt þeir
hefðu sjálfir bakað sér nokkrs
óvinsæld eftir nærri tuttugu ára
stjórnarsetu, heföi þó enginn enn
getaö náð af þeim sæti þeirra i
pólitisku litrófi Frakklands.
Menn eru ekki sammála um þaö,
hvort Giscard hafi látið Chirac
segja af sér embætti forsætisráð-
herra i sumar eöa hvort Chirach
hafi sagt af sér af sjálfsdáöum.en
þaö er vist aö strax eftir aö hann
hafði látið af embætti skildi hann
þaö mjög gjörla úr hvaöa átt
vindurinn blés — og var þaö
reyndar i annað sinn sem hann
skynjaði stjórnmálaástandiö á
undan öörum mönnum. Hann
hófst þá fljótlega handa um aö
endurreisa gaullistaflokkinn og
blása nýjum baráttuanda i
flokksdeildir um allt Frakkland,
sem legiö höföu i hálfgerðum
dvala siöan Chaban-Delmas beið
sinn fræga ósigur. Þaö er til
merkis um lipurö Chiracs og
hæfnihans tilaö skilja hvaö viö á
hverju sinni, aö óbreyttir gaull-
istar tóku kalli hans eins og þeir
heföu einmitt veriö aö biöa eftir
þvi — engum datt i hug aö álasa
honum fyrir afstööu hans 1974.
Chaban-Delmas einn lét þaö
undir höfuö leggjast aö ganga til
stuðnings viö Chirac, en gamlir
forystumenn gaullista og
stuöningsmenn Chabans geröu
þaö hins vegar allir, þ.á m.
Michel Debré, sem alltaf haföi
verið blendinn I stuðningi sinum
við Giscard. Aö þessu búnu hélt
Chirac gifurlegt fjöldaþing i'
Paris i haust — margfalt stærra
en nokkurt það þing sem sjálf-
stæöir lýðveldissinnar hafa getað
haldið — og kom þar fram sem sá
sem valdiö heföi. Samkvæmt til-
lögum hans og samstarfsmanna
hans skipti gaullistaflokkurinn
, um nafn (hann heitir nú RPR, en
þaö stendur fyrir orðin „Sam-
einingarflokkur til stuönings
lýöveldinu”) og setti sér ný lög. 1
byrjun þingsins hékk I fundar-
salnum risastór mynd af de
Gaulle og Pompidou, en I lok þess
var i hennar staö komin mynd af
Chirac.
Staðan i París
Þannig var Chirac aftur kom-
inn i fremstu vigiinu og hefur
hann veriðlsviðsljósinu siöan. Er
enginn vafi á þvi aö fyrirætlanir
hans eru stórar og hann hefur i
hyggju aö ná undirtökunum innan
meirihlutans og vafalaust taka
viö af Giscard, þegar sá timi
kemur. En svigrúm hans er mjög
takmarkaö af ýmsum ástæöum.
Eftir þing flokksins i haust álitu
margir fréttaskýrendur aö
Chirac hefbi fariö af staö á þann
hátt aö hann yröi aö halda sér i
sviðsljósinu I framtiöinni svo aö
fjöldahreyfing hans hjaönaöi ekki
ofsnemma — og töldu þeir aö þaö
gæti reynst erfitt, þar sem eitt og
hálftár væri til þingkosninga. En
nú hefur hann leyst þaö vandamál
á sinn hátt meö framboðinu I
Paris, sem gæti annars virst
nokkuð út I hött, þar sem hann
hefur alltaf veriö fulltrúi fyrir
kjördæmi i miöhálendinu. Þetta
framboö getur þó reynst örlaga-
rikt skref, þar sem hann er nú á
mjög hálum is: hann verður
Framhald á bls. 22
Sérréttirnir
í dag eru:
HADEGISVERÐUR:
Rjómasveppasúpa kr. 210.00
Fylltur grísahryggur með ofnsteiktum
kartöflum, rjómasoðnum asparagus
og hrásalati, kr. 1.500.00
KVÖLDVERÐUR:
Kjötseyði með grænmeti kr; 210.00
T-Bone steik með bernaise sósu, bök-
uðum kartöflum, hleyptu eggi og hrá-
salati, kr: 1.500.00
Það er ódýrt að borða hjá okkur
Verið velkomin
Atvinna
Menn óskast til starfa i mötuneyti strax,
helst vanir. Húsnæði á staðnum. Góð laun.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu vorri
i Lækjargötu 12 (Iðnaðarbankahús, efsta
hæð)
íslenskir aðalverktalar
Tilraunastöðin
á Keldum
óskar að ráða starfsmann til þess að sjá
um eldi tilraunadýra, aðstoða við dýra-til-
raunir og fleira. Nánari upplýsingar hjá
forstöðumanni i sima 17300.