Þjóðviljinn - 13.03.1977, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 13.03.1977, Blaðsíða 22
22 SiÐA — ÞJOÐVIl.JINN Sunnudagur 13. mars 1977 Sláttumennska ----Nei, ertu þarna, ástin, mér fannst endilega að þú hefðir farið hérna inn... ----1 næsta skipti færðu smið til þess aö jafna boröfæturnar... ----Nei, auðvitað er þetta ekki alvörubyssa, en þú mátt trúa þvl að fólk er sérstakiega tillitssamt og vingjarnlegt við okkur I umferð- inni... 500-C r Lockheed-málið á Italiu: Samþykkt að stefna tveimur ráðherrum RÖM 10/3 — ítalska þingið sam- þykkti i dag á sameiginiegum fundi beggja deilda að tveimur fyrrverandi varnarmálaráðherr- um landsins yrði stefnt fyrir rétt vegna meintrar þátttöku i Lock- heed-hney kslinu. Ráöherrar þessir eru Luigi Gui i flokki kristilegra demókrata og sósial- demókratinn Mario Tanassi. Á úrskurður sem þessi sér ekkert fordæmi I sögu ttaliu. Tveir nefndir þingmenn eru meðal ellefu manna, þar á meðal nokkurra háttsettustu framá- manna kristilegra demókrata, sem sakaðir hafa verið um að taka við mútum frá bandarlska Frakkland Framhald af bls.17. annars vegar að hafa hátt og 'gagnrýna stjórnina mjög til að ná fylgi hægri manna, sem eru óánægðirmeðstefnu Giscards, en hann má þó alls ekki ganga of langt, þvi að það gæti reynst al- varlegt fyrir hann ef svo liti út sem hann bæri ábyrgð á raun- verulegum klofningi stjórnar- flokkanna og brambolt hans leiddi til þess að Giscard yrði að rjúfa þing og efna strax til kosninga. Það væri jafnvel hægt að kenna honum um sigur vinstri flokkanna ef svo bæri undir! Þessi staða skýrir nokkuð hina mótsagnakenndu baráttu Chiracs, sem ræðst ýmist á stjórnina eða lýsir yfir stuðningi sinum við Giscard forseta og Raymond Barre forsætisráð- herra. En horfurnar eru mjög óvissar: samkvæmt skoðana- könnunum eru báðir frambjóð- endur stjórnarflokkanna I Paris, Chirac og d’Ornano nokkuö jafnir nú. Chirac heyr mjög harða bar- áttu til að reyna að ná yfirhend- inni, en það er erfitt.þvf að svo vill til að Paris er engan veginn hentugur baráttuvöllur fyrir hann. Gaullistar hafa stjórnað borginni I mörg ár, að visu meö stuðningi sjálfstæðra lýðveldis- sinna, sem reyndar hafa ekki beinlinis beitt sér á þessumvett- vangi, og þvi er það svo.að i aug- um margra bera Chirac og - stuðningsmenn hans ábyrgð á ýmsum skyssum i bæjarrekstrin- um; þótt það virðist mótsagnar- kennt er staöan þannig I Paris að d’Oranano á auðveldara með að bera fram gagnrýni en Chirac. Við þetta bætist, að i þessum klofningi er ekki vafi á þvi,að þeir miðflokkamenn, sem stutt hafa stjórnina i mörg ár, munu miklu fremur hallast að stuöningi viö d’Ornano. Vinstri menn láta sér vitanlega fátt um finnast, þegar stjómar- sinnar deila á þennan hátt, en þeir eru samt ekki sammála um það hvernig beri að lita d þennan klofning. Sósialistar eru yfirleitt kampakátir og telja að hann sé einungis merki um að hægri menn séu ráðþrota og liö þeirra i upplausn. Kommúnistar eru hins vegar á ööru máli. Þeir benda á, að stjórnarflokkarnir hafi lengi haldið völdum með þvi að innlima smám saman ýmis miöflokka- brot, sera áður höfðu verið i stjórnarandstöðu; þessi flokks- brot söfnuðu til sin atkvæöum óánægöra kjósenda en gengu svo til stuðnings við stjómarflokk- auðhringnum Lockheed og tryggja i staðinn að italir keyptu af þvi fyrirtæki flugvélar. Rann- sóknir og þingumræður um þetta hafa staöiö mánuðum saman og hafa aukið spennuna milli stjórn- arflokksins, kristilegra demó- krata, og annarra flokka, þar á mdial Kommúnistaflokksins og Sósialistaflokksins. Eru kristileg- ir demókratar ekkert hrifnir af þvi aö veriö sé að fara ofan i saumana á mútumáli þessu og komst Aldo Moro, einn af forustu- mönnum flokksins, svo að orði að umræðurnar um þetta hefðu snú- ist upp i „réttarhöld gegn flokkn- um fyrir 30 ára stjórn hans á ítaliu.” ana. Ariö 1974 var svo komiö i fyrsta skipti aö stjórnar- flokkarnir höfðu innlimað og fengið til stuðnings við sig öll slik flokksbrot, og var allt Frakkland þá skipt i tvær andstæðar fylking- ar, vinstra bandalagið og stjórnarsamsteypuna,en ekkert á milli þeirra. Telja kommúnistar að slik staða sé stjórnarflokkun- um óhagstæð og geri þeir sér fulla grein fyrir þvi — þess vegna hafi þeir gripiö til þess ráðs nú að búa til e.k. gerviklofning, sem sé i rauninni sjónarspil gert til þess eins að safna saman bæöi at- kvæðum stjórnarsinna og lika at- kvæðum óánægðra manna. Kommúnistum skjátlast áreiöanlega þegar þeir halda þvi fram að klofningurinn sé að- eins samantekin ráð þeirra Gis- cards og Chiracs, þvi að deilur þeirra, sem e.t.v. eru að ein- hverju leyti persónulegar dyljast engum, en hins vegar gæti hann haft svipaðar afleiðingar og þeir óttast. Það er augljóst mál aö i grundvallaratriðum eru Giscard og Chirac aðeins ólikir fulltrúar svipaðra hagsmunahópa og munu reyna aö gæta þess að deilur þeirra gangi ekki svo langt að þær stofni hagsmunum þeirra i beinan voða, — vandinn er einungis sá hvort þeim tekst það. e.m.j. pær svara allan sólaritríngínn Við álítum þær elskulegustu stúlkur á Islandi. Það gera lika fleiri. Símastúlkur Hreyfils eru ávallt boðnar og búnar til að senda þeim sem hringja i síma 8-55-22, þægilega leigubifreið á örskammri stund. Til þess að viðskiptavinir Hreyfils njóti sem beztrar þjónustu, biða símastúlk- umar eftir hringingu yðar dag og nótt Þess vegna auglýsir Hreyfill æfinlega: „Opið allan sólarhringinn." HREVFILL súni 85522 Opið allan sólarhringinn |l| Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingur óskast sem fyrst að Geðdeild Borgarspitalans i Arnarholti. Ibúð á staðnum. Upplýsingar á skrifstofu forstöðukonu Borgarspitalans i sima 81200. Reykjavik, 12. mars 1977 BORGARSPITALINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.