Þjóðviljinn - 13.03.1977, Side 24
DJÚÐVIUINN
Sunnudagur 13. mars 1977
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra
starfsmenn blaðsins i þessum simumt Eitstjórn 81382,
81527, 81257 og 81285, útbreiðsla81482 og Blaðaprent81348.
@81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans I sima-
skrá.
Rœkju-
vinnslan
á Dalvík
sœkir á
brattann
Dalvíkingar hófu rækju-
vinnslu árið 1975 og var það
hið gamalgróna Söltunar-
félag Dalvíkur sem setti
starfsemina i gang. I sam-
tali við Kristján Þórhails-
son verkstjóra kom fram
að nú er búið að festa kaup
á sérstökum rækjutogara
frá Italíu og er hann vænt-
anlegur til landsins innan
tiðar. Fyrsti rækjutogárinn
kemur þar með til Islands
og munu dalvikingar senda
hann umsvifalaust á út-
hafsrækjuna.
Um þessar mundir rær einn
bátur á vegum Söltunarfélags
Dalvikur á úthafsrækju. Er það
Arnarborgin sem þannig heldur
starfseminni gangandi, en oft
hafa 3-4 bátar róið i einu. Othafs-
rækjan er sótt að Grimsey og Kol-
beinsey og eru miðin afar erfið
vegna sjólags og veðurfars.
Rækjuvinnsla lá t.d. algjörlega
niðri i desember og janúarmán-
uöi sl. vegna ógæfta.
En úthafsrækjan er sannkall-
aður herramannsmatur og sjó-
mennirnir á Dalvik leggja á sig
fgp^ [ "r: || IfT ; gii§ é ffl§fl|
'W 1
Triliurnar á Dalvik lúra uppi i fjöru yfir vetrarmánuðina og eru ónýtar viðalla úthafsrækju en meö vorinu verður þeim ýtt úr vör hverri á fætur
annarri. Trilluútgeröin blómstrar á Dalvfk eins og annars staöar f svipuðum plássum. Myndir: —gsp
Fyrsti rækjutogarinn er
væntanlegur til íslands
mikla vinnu til þess aö færa
þessa björg i bú. Þeir munu halda
áfram rækjuútgeröinni á bátun-
um, enda þótt togarinn komi, þvl
allar likur eru á þvi að hann sigli
að verulegu leyti með afla sinn
beint til útlanda. Togarinn er bú-
inn fullkomnum frystiiestum og
er ekki séð fram á þaö að rækju-
vinnslan geti til að byrja meö
a.m.k. annað vinnslu á öilum
þeim afla sem hann mun væntan-
lega fá.
Um 20 manns vinna að jafnaði i
rækjuvinnslu hjá Söltunarfélagi
Dalvikur, en fyrir kemur að kall-
að er á mun fjölmennra lið til
vinnu. Rækjan er þessa dagana
einkum send til Þýskalands og
Sviþjóöar i 2ja kg. pokum eða þá I
1/2 kg. pokum. Sagði Kristján
Þórhallsson verkstjóri að mikill
áhugi væri fyrir þvi að taka udd
smærri pakkningar og ganga þá
jafnvel frá rækjunni i hentugar
neytendaumbúðir.
tJthafsrækjuútgerð fékk ekki
mikinn hljómgrunn þegar hún
kom fyrst til tals á Dalvik. Söltun-
Or rækjuvinnslu Söltunarfélags Dalvlkur. Um 20 manns hafa þar að jafnaði vinnu allt árið um kring.
arfélagið, sem stofnað var áriö
1943 og blómstraöi á sildarárun-
um, haföi litiö starfað i langan
tima, eða frá þvi sildin hvarf, en
ákveðið var að láta til skarar
skriöa og reyna viö úthafsrækju. I
lok mai árið 1975 kom fyrsta
rækjan á land á Dalvik og hefur
siðan v.eriö vinna allt árið um
kring fyrir fjölda manns. Rækju-
vinnslan er i stöðugri sókn og
verður fróðlegt að fylgjast meö
þvi hvernig fyrsta rækjutogaran-
um tekst upp á Islandsmiðum.
—gsp
Útgerð — Fiskverkun — Söltun—Hersla
Kaupum allan físk
Bliki h/f Dalvík Símar 61431 og 61157