Þjóðviljinn - 22.03.1977, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 22.03.1977, Blaðsíða 6
»S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. mars 19/7 Garðar Sigurðjsson mælti fyrir frumvarpi um: Afnám sölu- skatts af kjöti, kjötvör- um og raforku Á fundi neðri deiidar Alþingis á miðvikudaginn var kom til umræðu frumvarp Garðars Sigurðssonar um afnám sölu- skatts á kjöti, kjötvörum og raf- orku. Garðar mælti fyrir frumvarp- inu, en siðan var þvi visað til nefndar. Garðar sagöi m.a.: Með þessari tillögugerð er ieit- ast við að lækka þö Ilitiu sé flata skattheimtu rikissjöðs meö þvi aö fella niður söluskatt á tveimur nauðsynjavörum, sem alllr landsmenn þurfa að nota, en það er einmitt skattheimta af þessu tagi, sem kemur verst við þá sem hafa iægst iaunin. t greinargerð segir: „Verðbólgan og lágur kaup- máttur almennra verkalauna eru höfuðvandamál þjóðfélagsins um þessar mundir og fátt eitt hefur verið gert til þess, að ráðast að þessum vanda. Með frumvarpi þessu er aðeins snúist gegn einum þætti þessa samtvinnaða við- fangsefnis. Gifurleg gjaldtekja rikisins með óbeinum sköttum, sem leggjast á vöru og þjónustu, sem allir landsmenn nota, er mikill verðbólguvaldur og bitnar auk þess þyngst á þeim, sem minnst hafa á milli handa. Kjot og kjötvörur eru ásamt fiski brýnustu nauðsynjar almennings. Með þvi að kjöt er greitt niður er Garðar Sigurðsson það algjör þvehsögn að leggja of- an á söluverð þess 20% söluskatt. Skattheimta af þessu tagi eykur að sjálfsögðu verðbólgu eins og áður er sagt en hefur auk þess þau áhrif, að draga úr neyslu inn- anlands, sem aftur þýðir, að enn meiri útflutningabætur þarf að greiða á kjöt, sem selt er úr landi. Framhald á bls. 18. þingsfá Annad frumvarp um skerdingar- ákvædi og fæd- ingarorlof Ragnhildur Helgadóttir og átta aðrir þingmenn hafa lagt fram á Alþingi frumvarp um afnám Stjórnin leggur til Skattfrelsi jardstöövar! Rikisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi stjórnar- frumvarp um að innflutning- ur vegna byggingar fyrir- hugaðrar jarðstöðvar hér á landi skuli undanþeginn að- flutningsgjöldum og sölu- skatti, og einnig að jarðstöð- in og eignaraðilar hennar skuli undanþegnir tekju- skatti, eignarskatti, aðstöðu- gjaldi og fasteignaskatti. Mikia norræna simafélag- ið mun byggja jarðstöðina og verður eigandi hennar fyrst um sinn, en gert er ráð fyrir að jarðstöðin verði að fullu i eigu islendinga ekki seinna en árið 1991. Ríkisstofnanir úr Reykjavík Skipaútgerdin á Reyð- £»• • • T •• \ arfiorð og Isafjorð Heigi Seljan og Karvel Pálma- son hafa lagt fram á alþingi þingsályktunartillögu um deiidaskiptingu Skipaútgerðar rikisins. Tillagan er á þessa leiö: „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að hefja nú þegar endurskipulagningu á starfsemi og rekstri Skipaútgerðar ríkisins, sem miði að þvi að henni verði skipt i tvær deildir: Austurlands- og Vestfjaröadeild með aðsetri á Reyðarfirði og Isafiröi. Skal tekið mið af tillögum stofnananefndar um þetta frá ár- inu 1975 og þegar á næsta þingi lagt fram frumvarp hér að lút- andi.” t greinargerö segir m.a.: - Flutningsmönnum þessarar til- lögu hefur af eigin reynslu verið það ljóst lengi, að bæta yrði þjón- ustu Skipaútgerðar rikisins við landsbyggðina og um leið gera átak til að skipuleggja þannig heildarstarfsemina hjá stofnun- inni að henni yrði gert þetta kleift. Hér er um veigamikinn þátt að ræða i almennri aðstöðujöfnun, þar sem er vörudreifing til lands- byggðarinnar og um leið ráðstaf- anir til minni fiutningskostnaðar og lægra vöruverös. En þar þarf fleira til að koma og að þvi lýtur þessi tillögugerð. Raunar hafa báðir flm. reifað þessa hugmynd áður á Alþingi, ýmist með tillög- um um skipakaup eða beinum hugmyndum um deildaskiptingu Skipaútgerðar rikisins sem lið i dreifingu opinberra stofnana og stjórnsýslu. Um það, hversu raunhæf þessi deildaskipting yrði, fer mest eftir framkvæmdinni og þvi, hver vilji forráðamanna er til að vinna að verkefninu og endurskipu- leggja alla starfsemi og rekstur út frá þessu sjónamiði. Það er hins vegar ótviræð skoðun flm., að auk þeirrar þýðingar, sem deilda»skiptingin hlýtur aö hafa f y r i r v i» komandi byggðarlög, þá sé> margvislegt hagræði að aukinni hlutdeild heimaaðila I rekstrinum til hagsbóta fyrir ibúa þessara svæða. Ef rétt er að málum staðið efast flutningsmenn ekki um þjóðhags- lega jafnt sem byggðalega hag- kvæmni af þessari skipan, svo sem nánar verður greint frá I framsögu. Höfuðrök sin sækja flm. hins vegar i einróma álit stofnana- nefndar frá árinu 1975 um deilda- skiptingu Skipaútgeröar rlkisins, en þar segir svo orðrétt: 3 tillögur samþykktar Einni vísaö tQ stjórnar Nú i vikunni voru nokkrar þingsályktunartillögur sam- þykktar á Alþingi. 1 fyrsta lagi tillaga frá Sigur- iaugu Bjarnadóttur og Jóni Árnasyni, sem með áorðnum breytingum varð á þessa leið: „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að hún hlutist til um, að gerð verði hið fyrsta könnun á þvi hvernig koma megi við fullnýtingu lifrar og hrogna úr fiskafla lands- manna.” Tillagan var samþykkt sam- hljóða. 1 öðru lagi tiilaga frá Ingólfi Jónssyni og fleirum á þessa leið: „Alþingi ályktar að fela rfkis- stjórninni aö láta fara fram rannsókn á þvi með hvaða hætti hagkvæmast sé að vinna verð- mæti úr sláturúrgangi.” — Tillagan var samþykkt samhljóða. t þriðja lagi var samþykkt þingsályktunartil- laga frá Sverri Hermannssyni og Pétri Sigurössyni um útgáfu fiskikorta. Tillagan var á þessa leiö: „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina aö hlutast til um að nú þegar verði hafinn undir- búningur að útgáfu sérstakra fiskikorta með Loran — C staö- arlínum I og öðrum þeim upp- lýsingum, sem að gagni mega koma við fiskveiðar. Við undirbúning fjárlaga fyrir næsta ár verði tekið tillit til þess kostnaðar, sem útgáfa slikra korta hefur I för með sér.” Tillagan var samþykkt sam- hljóða. Þá var á fundi sameinaös þings s.l. þriðjudag samþykkt aö visa til rikisstjórnarinnar til- lögu Gylfa Þ. Gislasonar og fleiri um að riksstjórnin afli nýjustu fáanlegra upplýsinga, sem séu sambærilegar um þjóðartekjur á mann á Islandi og öðrum Noröurlöndum, — enn fremur um gildandi kaupgjald helstu starfsstétta og kaupmátt launanna. „Skipaútgerð rikisins skiptist I strandferðadeild, landhelgis- gæsludeild og hafrannsókna- og fiskirannsóknadeild; tvær slðar- nefndu deildirnar annast skipa- kost viðkomandi stofnana og tengjast þvi fyrst og fremst starf- semi þeirra. Nefndin fjallar þess vegna hér fyrst og fremst um strandferðadeild sem aöallega fæst við vöruflutninga til og frá landsbyggðinni, einkum Vest- fjörðum og Austfjöröum. Starf- semiSkipaútgerðar rikisins hefur dregist mjög saman á síðari ár- um og þjónar stofnunin nú aðal- lega þessum tveimur landshlut- um. Þar eð þessi tegund starf- seminnar er einkum hagsmuna- mál tveggja landshluta leggur nefndin til að strandferðadeild verðiskiptí tvo hluta. Vestfjaröa- deild og Austfjarðadeild, sem fái aðsetur á Isafjarðarsvæði og Austfjarðasvæði. Deildirnari fái hvor fyrir sig ákveðin skip til um- ráða sem annist flutninga innan þessara landshluta og við aöra landshluta, einkum Reykjavik og Akureyri. Deildum verði veitt verulegt sjálfstæði við rekstur skipanna. 1 Reykjavik verði áfram afgreiðsla og vöru- geymsluhús. Nefndin telur eðli- legt aö sú starfsemi, sem einkum á að þjóna ákveðnum landshiut- um, hafi aðsetur Iþeim. Nefndin leggur jafnframt til að aðrir þætt- ir I starfsemi stofnunarinnar hafi óbreyttan aðsetursstaö. Gera má ráð fyrir að viö skiptingu strand- ferðadeildar muni auk áhafna skipanna 5-10 menn fylgja hvorri deild, Vestfjarðadeild og Aust- fjarðadeild. Nefndin telur að slik- ur flutningur muni færa stjórn flutninganna nær hagsmunum viðkomandi landshluta og þannig hafa fjölþætt áhrif á viögang margvislegrar starfsemi á þess- um svæðum. Kostnaður við sllkar breytingar væri einkum fólginn I útvegun skrifstofuhúsnæðis. A móti kæmu minni þörf stofnunar- innar fyrir slíkt húsnæöi á höfuð- borgarsvæðinu.” skerðingarákvæðis hvað varðar tekjur maka I sambandi við greiöslu fæðingarorlofs úr at- vinnuleysistryggingarsjóði. Aöur hafði Svava Jakobsdóttir lagt fram frumvarp um sama efni, en frumvarp Svövu gengur lengra,þvi að það nær ekki aðeins til fæðingarorlofs, heldur einnig til almennra atvinnuleysisbóta svo sem skýrt var frá I Þjóðvilj- anum s.l. miðvikudag. Vonarland — yistheimili vangefínna á Austurlandi Fyrir skömmu rann út frestur til að skila tillögum um nafn á væntanlegt vistheimili fyrir van- gefna á Austurlandi, sem Styrkt- arfélag vangefinna á Austurlandi mun reisa á Egilsstöðum. Tillög- ur um allmörg nöfn bárust I þessa samkeppni, og verðlaunum var heitið fyrir þá tillögu, sem fyrir valinu yrði. Nú er búið að velja úr tillögun- um, og það nafn, sem fyrir valinu varð, er VONARLAND. Höfundur þeirrar tillögu reyndist vera Sveinlaug Þórarinsdóttir, Nes- kaupstað, og hefir hún þvi unnið til verðlaunanna. Styrktarfélagið vill þakka öll- um þeim, sem þátt tóku I þessari samkeppni, fyrir ágætar tillögur þeirra og góðan hug til félagsins og starfsemi þess. Farið er nú að hilla undir, að vistheimilið Vonarland rlsi. Þar verður um að ræða sex hús fyrir vistmenn, og verður hvert þeirra 200 ferm. aö stærð. Auk þess verður tengigangur milli húsanna og hús fyrir llkamsrækt og sund- laug. Verður þetta byggt I þrem áföngum. 1 fyrsta áfanga verða byggð tvö hús fyrir átta einstaklinga svo og þjónustuaðstaða. Teikningar og útboðsgögn eru senn tilbúin og verður þá verkið boðið út. Stefnt er að því, að framkvæmdir geti hafist I mal. Arkitektarnir Helgi og Vil- hjálmur Hjálmarssynir hafa teiknað byggingarnar. Gert er ráð fyrir þvi við teikningu bygg- inga og allt skipulag bygginga- svæöisins, að unnt sé að stækka síðar og byggja við. Engar tóbaks- auglýsingar Framkvæmdastjórn Kaup- mannasamtakanna hefur samþykkt að beina þeim ein- dregnu tilmælum til félagsmanna sinna að auglýsa ekki framar tóbaksvörur. Með þessum til- mælum vill framkvæmdastjórnin koma til móts við skólana I baráttu þeirra gegn reykingum barna og unglinga. I frétt frá Kaupmanna- samtökunum segir, aö þpim hafi borist bréf frá skólastjórum i Reykjavík, sem einnig var undirritað af fræðslustjöra, borgarlækni og framkvæmda- stjóra Krabbameinsfélagsins, þar sem þess er eindregið farið á leit að framkvæmdastjórnin samþykki tilmæli I ofangreinda veru. Athugasemd Þjóðviljinn biður velvirðingar á þvi að niður féll að geta þess að dagskrárgrein Steinunnar Jóhannesdóttur, leikara, á þriðjudaginn um Lé konung og Bjart i Sumarhúsum var fengin úr leikskrá sýningarinnar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.