Þjóðviljinn - 22.03.1977, Síða 6
»S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. mars 19/7
Garðar Sigurðjsson
mælti fyrir frumvarpi um:
Afnám sölu-
skatts af
kjöti, kjötvör-
um og raforku
Á fundi neðri deiidar Alþingis á
miðvikudaginn var kom til
umræðu frumvarp Garðars
Sigurðssonar um afnám sölu-
skatts á kjöti, kjötvörum og raf-
orku.
Garðar mælti fyrir frumvarp-
inu, en siðan var þvi visað til
nefndar.
Garðar sagöi m.a.:
Með þessari tillögugerð er ieit-
ast við að lækka þö Ilitiu sé flata
skattheimtu rikissjöðs meö þvi aö
fella niður söluskatt á tveimur
nauðsynjavörum, sem alllr
landsmenn þurfa að nota, en það
er einmitt skattheimta af þessu
tagi, sem kemur verst við þá sem
hafa iægst iaunin.
t greinargerð segir:
„Verðbólgan og lágur kaup-
máttur almennra verkalauna eru
höfuðvandamál þjóðfélagsins um
þessar mundir og fátt eitt hefur
verið gert til þess, að ráðast að
þessum vanda. Með frumvarpi
þessu er aðeins snúist gegn einum
þætti þessa samtvinnaða við-
fangsefnis. Gifurleg gjaldtekja
rikisins með óbeinum sköttum,
sem leggjast á vöru og þjónustu,
sem allir landsmenn nota, er
mikill verðbólguvaldur og bitnar
auk þess þyngst á þeim, sem
minnst hafa á milli handa. Kjot
og kjötvörur eru ásamt fiski
brýnustu nauðsynjar almennings.
Með þvi að kjöt er greitt niður er
Garðar Sigurðsson
það algjör þvehsögn að leggja of-
an á söluverð þess 20% söluskatt.
Skattheimta af þessu tagi eykur
að sjálfsögðu verðbólgu eins og
áður er sagt en hefur auk þess
þau áhrif, að draga úr neyslu inn-
anlands, sem aftur þýðir, að enn
meiri útflutningabætur þarf að
greiða á kjöt, sem selt er úr landi.
Framhald á bls. 18.
þingsfá
Annad frumvarp
um skerdingar-
ákvædi og fæd-
ingarorlof
Ragnhildur Helgadóttir og átta
aðrir þingmenn hafa lagt fram á
Alþingi frumvarp um afnám
Stjórnin leggur til
Skattfrelsi
jardstöövar!
Rikisstjórnin hefur lagt
fram á Alþingi stjórnar-
frumvarp um að innflutning-
ur vegna byggingar fyrir-
hugaðrar jarðstöðvar hér á
landi skuli undanþeginn að-
flutningsgjöldum og sölu-
skatti, og einnig að jarðstöð-
in og eignaraðilar hennar
skuli undanþegnir tekju-
skatti, eignarskatti, aðstöðu-
gjaldi og fasteignaskatti.
Mikia norræna simafélag-
ið mun byggja jarðstöðina og
verður eigandi hennar fyrst
um sinn, en gert er ráð fyrir
að jarðstöðin verði að fullu i
eigu islendinga ekki seinna
en árið 1991.
Ríkisstofnanir úr Reykjavík
Skipaútgerdin á Reyð-
£»• • • T •• \
arfiorð og Isafjorð
Heigi Seljan og Karvel Pálma-
son hafa lagt fram á alþingi
þingsályktunartillögu um
deiidaskiptingu Skipaútgerðar
rikisins.
Tillagan er á þessa leiö:
„Alþingi ályktar að skora á
rikisstjórnina að hefja nú þegar
endurskipulagningu á starfsemi
og rekstri Skipaútgerðar ríkisins,
sem miði að þvi að henni verði
skipt i tvær deildir: Austurlands-
og Vestfjaröadeild með aðsetri á
Reyðarfirði og Isafiröi.
Skal tekið mið af tillögum
stofnananefndar um þetta frá ár-
inu 1975 og þegar á næsta þingi
lagt fram frumvarp hér að lút-
andi.”
t greinargerö segir m.a.:
- Flutningsmönnum þessarar til-
lögu hefur af eigin reynslu verið
það ljóst lengi, að bæta yrði þjón-
ustu Skipaútgerðar rikisins við
landsbyggðina og um leið gera
átak til að skipuleggja þannig
heildarstarfsemina hjá stofnun-
inni að henni yrði gert þetta
kleift.
Hér er um veigamikinn þátt að
ræða i almennri aðstöðujöfnun,
þar sem er vörudreifing til lands-
byggðarinnar og um leið ráðstaf-
anir til minni fiutningskostnaðar
og lægra vöruverös. En þar þarf
fleira til að koma og að þvi lýtur
þessi tillögugerð. Raunar hafa
báðir flm. reifað þessa hugmynd
áður á Alþingi, ýmist með tillög-
um um skipakaup eða beinum
hugmyndum um deildaskiptingu
Skipaútgerðar rikisins sem lið i
dreifingu opinberra stofnana og
stjórnsýslu.
Um það, hversu raunhæf þessi
deildaskipting yrði, fer mest
eftir framkvæmdinni og þvi, hver
vilji forráðamanna er til að vinna
að verkefninu og endurskipu-
leggja alla starfsemi og rekstur
út frá þessu sjónamiði. Það er
hins vegar ótviræð skoðun flm.,
að auk þeirrar þýðingar, sem
deilda»skiptingin hlýtur aö hafa
f y r i r v i»
komandi byggðarlög, þá sé>
margvislegt hagræði að aukinni
hlutdeild heimaaðila I rekstrinum
til hagsbóta fyrir ibúa þessara
svæða.
Ef rétt er að málum staðið efast
flutningsmenn ekki um þjóðhags-
lega jafnt sem byggðalega hag-
kvæmni af þessari skipan, svo
sem nánar verður greint frá I
framsögu.
Höfuðrök sin sækja flm. hins
vegar i einróma álit stofnana-
nefndar frá árinu 1975 um deilda-
skiptingu Skipaútgeröar rlkisins,
en þar segir svo orðrétt:
3 tillögur samþykktar
Einni vísaö tQ stjórnar
Nú i vikunni voru nokkrar
þingsályktunartillögur sam-
þykktar á Alþingi.
1 fyrsta lagi tillaga frá Sigur-
iaugu Bjarnadóttur og Jóni
Árnasyni, sem með áorðnum
breytingum varð á þessa leið:
„Alþingi ályktar að skora á
rikisstjórnina að hún hlutist til
um, að gerð verði hið fyrsta
könnun á þvi hvernig koma
megi við fullnýtingu lifrar og
hrogna úr fiskafla lands-
manna.”
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða. 1 öðru lagi tiilaga frá
Ingólfi Jónssyni og fleirum á
þessa leið:
„Alþingi ályktar að fela rfkis-
stjórninni aö láta fara fram
rannsókn á þvi með hvaða hætti
hagkvæmast sé að vinna verð-
mæti úr sláturúrgangi.”
— Tillagan var samþykkt
samhljóða. t þriðja lagi var
samþykkt þingsályktunartil-
laga frá Sverri Hermannssyni
og Pétri Sigurössyni um útgáfu
fiskikorta. Tillagan var á þessa
leiö:
„Alþingi ályktar að skora á
rikisstjórnina aö hlutast til um
að nú þegar verði hafinn undir-
búningur að útgáfu sérstakra
fiskikorta með Loran — C staö-
arlínum I og öðrum þeim upp-
lýsingum, sem að gagni mega
koma við fiskveiðar.
Við undirbúning fjárlaga fyrir
næsta ár verði tekið tillit til þess
kostnaðar, sem útgáfa slikra
korta hefur I för með sér.”
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða.
Þá var á fundi sameinaös
þings s.l. þriðjudag samþykkt
aö visa til rikisstjórnarinnar til-
lögu Gylfa Þ. Gislasonar og
fleiri um að riksstjórnin afli
nýjustu fáanlegra upplýsinga,
sem séu sambærilegar um
þjóðartekjur á mann á Islandi
og öðrum Noröurlöndum, — enn
fremur um gildandi kaupgjald
helstu starfsstétta og kaupmátt
launanna.
„Skipaútgerð rikisins skiptist I
strandferðadeild, landhelgis-
gæsludeild og hafrannsókna- og
fiskirannsóknadeild; tvær slðar-
nefndu deildirnar annast skipa-
kost viðkomandi stofnana og
tengjast þvi fyrst og fremst starf-
semi þeirra. Nefndin fjallar þess
vegna hér fyrst og fremst um
strandferðadeild sem aöallega
fæst við vöruflutninga til og frá
landsbyggðinni, einkum Vest-
fjörðum og Austfjöröum. Starf-
semiSkipaútgerðar rikisins hefur
dregist mjög saman á síðari ár-
um og þjónar stofnunin nú aðal-
lega þessum tveimur landshlut-
um. Þar eð þessi tegund starf-
seminnar er einkum hagsmuna-
mál tveggja landshluta leggur
nefndin til að strandferðadeild
verðiskiptí tvo hluta. Vestfjaröa-
deild og Austfjarðadeild, sem fái
aðsetur á Isafjarðarsvæði og
Austfjarðasvæði. Deildirnari fái
hvor fyrir sig ákveðin skip til um-
ráða sem annist flutninga innan
þessara landshluta og við aöra
landshluta, einkum Reykjavik og
Akureyri. Deildum verði veitt
verulegt sjálfstæði við rekstur
skipanna. 1 Reykjavik verði
áfram afgreiðsla og vöru-
geymsluhús. Nefndin telur eðli-
legt aö sú starfsemi, sem einkum
á að þjóna ákveðnum landshiut-
um, hafi aðsetur Iþeim. Nefndin
leggur jafnframt til að aðrir þætt-
ir I starfsemi stofnunarinnar hafi
óbreyttan aðsetursstaö. Gera má
ráð fyrir að viö skiptingu strand-
ferðadeildar muni auk áhafna
skipanna 5-10 menn fylgja hvorri
deild, Vestfjarðadeild og Aust-
fjarðadeild. Nefndin telur að slik-
ur flutningur muni færa stjórn
flutninganna nær hagsmunum
viðkomandi landshluta og þannig
hafa fjölþætt áhrif á viögang
margvislegrar starfsemi á þess-
um svæðum. Kostnaður við sllkar
breytingar væri einkum fólginn I
útvegun skrifstofuhúsnæðis. A
móti kæmu minni þörf stofnunar-
innar fyrir slíkt húsnæöi á höfuð-
borgarsvæðinu.”
skerðingarákvæðis hvað varðar
tekjur maka I sambandi við
greiöslu fæðingarorlofs úr at-
vinnuleysistryggingarsjóði.
Aöur hafði Svava Jakobsdóttir
lagt fram frumvarp um sama
efni, en frumvarp Svövu gengur
lengra,þvi að það nær ekki aðeins
til fæðingarorlofs, heldur einnig
til almennra atvinnuleysisbóta
svo sem skýrt var frá I Þjóðvilj-
anum s.l. miðvikudag.
Vonarland —
yistheimili
vangefínna á
Austurlandi
Fyrir skömmu rann út frestur
til að skila tillögum um nafn á
væntanlegt vistheimili fyrir van-
gefna á Austurlandi, sem Styrkt-
arfélag vangefinna á Austurlandi
mun reisa á Egilsstöðum. Tillög-
ur um allmörg nöfn bárust I þessa
samkeppni, og verðlaunum var
heitið fyrir þá tillögu, sem fyrir
valinu yrði.
Nú er búið að velja úr tillögun-
um, og það nafn, sem fyrir valinu
varð, er VONARLAND. Höfundur
þeirrar tillögu reyndist vera
Sveinlaug Þórarinsdóttir, Nes-
kaupstað, og hefir hún þvi unnið
til verðlaunanna.
Styrktarfélagið vill þakka öll-
um þeim, sem þátt tóku I þessari
samkeppni, fyrir ágætar tillögur
þeirra og góðan hug til félagsins
og starfsemi þess.
Farið er nú að hilla undir, að
vistheimilið Vonarland rlsi. Þar
verður um að ræða sex hús fyrir
vistmenn, og verður hvert þeirra
200 ferm. aö stærð. Auk þess
verður tengigangur milli húsanna
og hús fyrir llkamsrækt og sund-
laug. Verður þetta byggt I þrem
áföngum.
1 fyrsta áfanga verða byggð tvö
hús fyrir átta einstaklinga svo og
þjónustuaðstaða. Teikningar og
útboðsgögn eru senn tilbúin og
verður þá verkið boðið út. Stefnt
er að því, að framkvæmdir geti
hafist I mal.
Arkitektarnir Helgi og Vil-
hjálmur Hjálmarssynir hafa
teiknað byggingarnar. Gert er
ráð fyrir þvi við teikningu bygg-
inga og allt skipulag bygginga-
svæöisins, að unnt sé að stækka
síðar og byggja við.
Engar tóbaks-
auglýsingar
Framkvæmdastjórn Kaup-
mannasamtakanna hefur
samþykkt að beina þeim ein-
dregnu tilmælum til félagsmanna
sinna að auglýsa ekki framar
tóbaksvörur. Með þessum til-
mælum vill framkvæmdastjórnin
koma til móts við skólana I
baráttu þeirra gegn reykingum
barna og unglinga.
I frétt frá Kaupmanna-
samtökunum segir, aö þpim hafi
borist bréf frá skólastjórum i
Reykjavík, sem einnig var
undirritað af fræðslustjöra,
borgarlækni og framkvæmda-
stjóra Krabbameinsfélagsins,
þar sem þess er eindregið farið á
leit að framkvæmdastjórnin
samþykki tilmæli I ofangreinda
veru.
Athugasemd
Þjóðviljinn biður velvirðingar á
þvi að niður féll að geta þess að
dagskrárgrein Steinunnar
Jóhannesdóttur, leikara, á
þriðjudaginn um Lé konung og
Bjart i Sumarhúsum var fengin
úr leikskrá sýningarinnar.