Þjóðviljinn - 22.03.1977, Blaðsíða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 22. mars 1977
Fasteignasalan sem er í yðar
þjónustu býður yður að
sjálfsögðu alla aðstoð við
kaup og sölu fasteigna.
Spörum hvorki tíma né
fyrirhöfn við að veita yður
sem besta þjónustu
ðldlfCp fasteignasaía
Öldugötu 8
\síitiaf:.28644 : ?8645
Söjumaður
Fmnur Karlsson vx. í
heimasimi 434 70
Valgar'ður Sigurðsson’hbgfi-ijí
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður
haldinn að Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2,
sunnudaginn 27. mars n.k. ki. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aða 1 fundarstörf
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir ábyrgðarmönnum eða umboðs-
mönnum þeirra fimmtudaginn 24. mars
og föstudaginn 25. mars i afgreiðslu spari-
sjóðsins. Ennfremur verða afhent B stofn-
bréf sparisjóðsins.
Stjórnin
Herstöðvaandstæðingar
Suðurnesjum
Fundur i Vélstjórafélagshúsinu miðviku-
dagskvöld kl. 8:30.
Dagskrá: Skipulag samtakanna og starfið
framundan.
Herstöðvaandstæðingar eru hvattir til að
fjölmenna á fundinn.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir febrúar-
mánuð 1977 hafi hann ekki verið greiddur i
siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag
eftir eindaga, uns þau eru orðin 10%, en
siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð talið frá og
með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið
21. mars 1977
Blikkiðjan Gartohreppi
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu —ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboð.
SÍMI 53468
Sjaldan hefur jafn litlum
fjármunum veriö var-
iö til jafn mikillar
ánægju fyrir jafn marga,
— Heita má aö einmuna gott
■ tiðarfar hafi verib hér i allan
vetur, sagði Hreinn Sigurðsson,
fréttaritari Þjóðviljans á
Sauðárkróki, i viðtali við Land-
póst nú nýiega. Mjög snjólétt
hefur verið i bvggð og reyndar
lengstaf snjóiaust að kalla i hér-
aðinu innan við Sauðárkrók.
Mikill skiðaáhugi.
— En þótt snjólétt hafi verið á
láglendi hefur þó verið nógu
mikill snjór i Tindastólnum til
þess að fólk hefur getað brugðið
sér þar á skiði og notað skiða-
lyftuna. Hún hefur stóraukiö
áhuga fólks hér á skiðafþrótt-
inni. Uppi i Stólnum er fólk
daglega á skiöum og allt upp i
120-130 manns um helgar. Ekki
dregur það úr áhuganum að við
höfum haft hér skiðakennara i
viku og verður hann hjá okkur I
aðra viku til. Þessi ágæti kenn-
ari er stúlka frá isafirði. Er hún
hér við skiðakennsluna á vegum
skólanna og ungmennafélagsins
i sameiningu. A meðan skiða-
kennslan stendur yfir kemur
hún i stað iþróttakennslu i
skólunum. En skiðakennslan
nær til fleiri en unglinganna.
Fullorðna fólkið nýtur hennar
einnig um helgar. Þessi starf-
semi er ákaflega vinsæl og ég
held að sjaldan hafi jafn litlum
fjármunum veriö varið til jafn
mikillar ánægju fyrir jafn
marga og með kaupum á skiða-
lyftunni.
Sæluvikan
Og svo liöur nú senn að Sælu-
vikunni. Er fyrirhugað að hún
hefjist sunnudaginn 20. mars.
Skemmtiatriöi veröa þar meö
likum hætti og áður. Leikfélag
Sauöárkróks mun sýna sjónleik-
inn Er á meðan er, kvenfélagið
veröur með kabarettsýningu og
verður efni hennar væntanlega
að einhverju töluverðu leyti
heimafengiö. Efalaust mun
samkórinn syngja, og e.t.v.
veröur eitthvað meira um söng
og svo að sjálfsögðu kvik-
myndasýningar. Stundum hefur
færi á vegum viljað spillast um
segir Hreinn
Sigurðsson,
Sauðárkróki
Sæluviku, en við vonum að til
þess komi ekki að þessu sinni.
Skagfirskir ómar.
Jón Björnsson frá Hafsteins-
stöðum er, eins og alþjóð veit,
mikilvirkt og vinsælt tónskáld.
Nýverið kom út eftir hann söng-
lagahefti, Skagfirskir ómar II.
og er útgefandinn Myndprent á
Sauðárkróki, en þar er heftiö
prentað. I heftinu eru 15 lög
fyrir einsöng, blandaöar raddir
og karlaraddir. Aöur hafa kom-
ið út Skagfirskir ómar I. meö 10
iögum eftir Jón Björnsson. Lýð-
veldishátiðarsöngva frá 1944
hefur Jón einnig gefiö út og í
handriti á hann mikinn fjölda af
tónverkum. Má vera aö Mynd-
prent ráðist i útgáfu af á ein-
hverjum þeirra. Mér er ekki
kunnugt um að áður hafi verið
prentuð og gefin út bók á
Sauðárkróki, og er þetta þvi
nokkuð sérstæður atburður.
Útgeröin
Afli togaranna er nú heldur að
glæðast, en hann hefur verið
fremur tregur að undanförnu.
Siðasta skipið, sem kom inn,
Drangeyjan, var ekki nema
meö 60 tonaen sá afli fékkst all-
ur i flottroll.en tvö skipin eru nú
komin með það. Hegranesið
hinsvegar ekki.
Rætt hefur verið um aö selja
Hegranesið og kaupa stærra
skip, þvi það er eiginlega of litið
fyrir okkur. Hefur komið til
orða að kaupa franskt skip álika
að stærð og Drangey, en verðlag
mun vera lágt á fiskiskipum er-
lendis núna; þaö er eins og þeir
ytra séu ekki almennilega búnir
að átta sig á hvaða skip henta
þeim best, eftir breytinguna á
fiskveiðilögsögunni.
Næg atvinna.
Nóg er um atvinnu og fer jafn-
vel vaxandi. Ég skal ekki segja
um hvort haldið verður áfram
við þær gatnagerðarfram-
kvæmdir, sem unnið var að i
sumar.en áhugi er þó á að hefja
þær á ný i vor. En það er hins-
vegar mikill áhugi á að byggja
annað fjölbýlishús, þvi það er
mjög mikil eftirspurn eftir ibúð-
um.
Hesta- og bílaleiga.
Liklegt er að heimavist fyrir
gagnfræða- og iðnskólann verði
tekin i notkun i haust. Lokið
verður við frágang á herbergj-
unum i vor og er hugmyndin að
hótelið geti fengið aðgang að
þeim i sumar, eftir þörfum.
Hótelstjórinn, Guðmundur
Tómasson, er að koma á fót
bilaleigu. Hann hefur einnig
komið sér upp hesthúsi og ætlar
að reka hestaleigu i sumar. Og
úr þvi aö við minnust á hesta þá
er ekki úr vegi að geta þess, að
hestamenn hér hafa byggt þrjú
stór og vönduð hesthús hér aust-
ur á Borgarsandinum, skammt
vestan við nýja flugvöllinn.
Við erum aö vonast til þess, aö
eitthvað verði unnið við nýja
flugvöllinn I vor, a.m.k. komiö
upp nauösynlegum byggingum
og blindflugstækjum.
Er gróðurhús i augsýn?
Viö erum náttúrlega I sjö-
unda himni yfir heita vatninu,
sem við fengum hérna til við-
bótar þvi, sem fyrir var. Og ég
var aö frétta að ungur maður,
Steinn Kárason, kennari við
Garðyrkjuskólann á Reykjum i
ölfusi hafi sótt hér um lóö undir
gróöurhús og standi til að hann
byggi það I vor eða sumar.
Verði af þvl, þá hefur ilræktin
haldið hér innreið sina.
hs/mhg
Umsjón: Magnús H. Gislason.
Sauðárkrókur.