Þjóðviljinn - 22.03.1977, Qupperneq 7
Þriöjudagur 22. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 7
...eiginlega er aðeins um tvær leiðir að velja.
Það má í fyrsta lagi pira einhverri hungurlús i nærri
alla......i öðru lagi er sú leið að láta rausnarlega
renna fé til fárra, sem brýnasta hafa þörfina...
Ráðlegging um
r
Islands stjórnun
A íslandi býr fámenn þjóð,
sem þarf að láta tiltölulega
þungar byrðar hvila á fárra
bökum eigi verkleg,
menningarleg og félagsleg
aðbúð landsmanna að vera slik
sem okkur likar. Arlega kemur
þvi það vafalaust vandasama
verk i hlut alþingis og rikis-
stirtrnar að deila niður ráð
stöfunarfé rikissjóðs til þeirra
mörgu, sem færa rök að þvi, að
þeir eigi þar nokkra heimtingu.
Við fjárlagagerð er drjúgur
hluti ráðstöfunarfjár fyrirfram
fastur i þeim rekstri opinberum,
sem byggður hefur verið upp á
umliðnum árum. Það sem af
gengur rennur til nýrra fram-
kvæmda og nýrrar uppbygg-
ingar. Um þann hlut er bitist
hatramlega. bar bitast um
ráðuneyti, þingmenn, nefndir,
kjördæmi, stjórnmálaflokkar,
hagsmunahópar, þrýstihópar,
sveitarfélög landshluta o.s.frv.
Hlutur þessi er og verður
trúlega ævinlega minni en svo,
að allir, sem áhuga hafa á, fái
það i sinn skerf, sem þeir kysu.
Ráðstöfun þessa fjár er þvi
vandaverk, og ævinlega munu
einhverjir ganga bölvandi frá
borði.
t svona skiptingu er eiginlega
aðeins um tvær leiðir að velja.
Það má i fyrsta lagi pira
einhverri hungurlúsi nærri alla,
þó svo hún hrókkvi engan
veginn til þeirra hluta, sem
umsóknin eða krafan byggir á. I
öðru lagi er sú leið til að láta
rausnarlega renna fé til fárra,
sem brýnasta hafa þörfina, en
biðja hina kurteislega um að
doka við þar til röðin komi að
þeim.
Af þessum tveimur kostum
hefur íslensk rikisstjórn
gjarnan valið þann fyrri.Þing-
menn og aðrir ráðstöfunar-
aðilar vilja ógjarnan styggja
umbjóðendur sina og vilja
gjarnan á ytra borðinu að
minnsta kosti geta sýnt lit og
gefið þeim von um að bráðum
komi betri tið, sem aftur á móti
heldur kröfugerðarmönnunum
kurteisum næsta árið.
Afleiðingin er sú, að sjaldnast er
staðið stórt I stykkjum, þar sem
byggt er á aðild rikisins. Fram-
kvæmdir dragast á langinn,
verk standa hálfköruð og koma
ekki að notum vegna seina-
gangs, lög eru sett i gildi án þess
að þau séu framkvæmanleg, þar
eð þvi er ekki fylgt eftir á borði
sem sagt er i orði. Ég hirði ekki
um að nefna einstök dæmi
þessa; fiestum, sem málið hug-
leiða eru slik dæmi bæði tiltæk
og töm. Einkum virðist mér þó,
að þetta eigi við á sviði skóla-
mála, heilbrigðismála og
félagsmála. Fjárpiringur til
ákveðinna verkefna á þessum
sviðum stendur oft vart undir
verðbólgu áætlunarársins.
Skólar, sjúkrarými og stofn-
anir, sem viðurkennd þörf er
fyrir — einnig af rikisvaldinu —
potast upp með einstökum
seinagangi. Ýmis brýn starf-
semi fer á laggirnar af þeim
vanefnum, aö ekkierhálftgagn
að.
Nú geri ég mér grein íyrir þvi,
að ekki veröur allt gert i einu.
Sumt verður að sitja i fyrir-
rúmi, annað á hakanum, og ég
öfunda engan af þvi að meta
það, hvort eigi við hverju sinni.
Aftur á móti finnst mér það
hvergi nærri nógu búmannlegt,
að vasast svo i öllu, að engu
verði komið almennilega frá.
Það eru kallaðir búskussar, sem
rjúka i það dagpart að dreifa
skit á tún, samdægurs að lag-
færa girðingu, marka nokkur
lömb og dittinn og dattinn, án
þess að neinu verkinu sé
sæmilega lokið að kvöldi. 011
þessi verk ódrýgjast við að vera
hálfköruð og þó vissulega liggi á
mörgu á stóru búi þá er snöggt
um vænlegra að ráðast i það
fyrst, sem er brýnast,og ljúka
þvi áður en rokið er I annað.
Þetta vita allir góðir bændur.og
að sjálfsögðu er óþarfi að
gleyma þvi i ráðhe’-ra- eða þing-
sæti.
í minu starfi rek ég mig dag-
lega á hálfunnin verk af ofan-
nefndum sviðum. Þau hafa ver-
ið hálfunnin lengi og verða það,
eftir þvi sem horfir, lengi enn.
Ég gæti hæglega nefnt hér um
mörg dæmi, þar sem strtrtjón er
að þessu, t.d. þjónustu ýmsa
sem tengdar eru vonir við en fer
af stað af þeim vanefnum að
þeim, sem hennar eiga að njóta,
verða vonbrigðin ein aö.
Ég held aö þetta sé óheillaráð
og að hvorki þingmenn né rikis-
stjórn þurfi að hafa þann rttta af
kjósendum, að þeirmundu mis-
virða það, þó staðið vrði af hálfu
rikisins við færri hluti í einu en
með meiri rausn og myndar-
skap. Þvert á móti þessi sifellda
smáskammtalækning ergir vel-
flesta. Ég hygg að kjósendur
gætu vel skilið þá rikisstjórn
sem segði eitthvað á þá leið að i
ár mundi hún einbeita sér að
þessum tilteknu verkefnum og
verja til þeirra öllu þvi ráð-
stöfunarfé, sem tiltækt væri,
enda yrði viðkomandi mála
bálki þá vel borgið um nokkra
framtið. Annað yrði að biða
næsta árs eða jafnvel þarnæsta
eftir mikilvægi; smáskammtar
fengjust engir i ár. annaðhvort
yrðu hlutirnir gerðir eða þá ekki
gerðir. Þaö er altént íllskárra
að biða 1 vissu, þrt lengi sé,
heldur en i óvissu um alla tiö.
Björn Bjarnason, formaður Landssambands iðnverkafólks:
Það ristir margur breiðan
þveng af annars skinni
Ný efna-
hags-
skipan
— rœdd á
almennum fundi
Félags Sameinuðu
þjóðanna
A morgun, miðvikudaginn 23.
mars, gengst Félag Sameinuöu
þjóðanna fyrir almennum fundi
um nýja skipan efnahagsmála
heimsins (A new international
economic order). Frummælendur
veröa Gunnar G. Schram,
prófessor og Jón Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri. Fundurinn
verður haldinn i stofu 103 i Lög-
bergi og hefst kl. 17:15.
Miklar umræður fara nú fram
um allan heim umnauðsynnýrrar
skipunar efnahagsmála heims-
ins. A sérstökum aukafundi Alls-
herjarþings Sameinuðu þjóðanna
árið 1974 var samþykkt ýtarleg
yfirlýsing um þessi efni. Megin-
inntak hennar og fleiri sam-
þykkta alþjóðastofnana slðan
eru tillögur um það, hvernig
mjókka megi bilið milli rikra
þjóða og snauðra. Þessar tillögur
hefur enn sem komiö er litiö borið
á góma hér á landi.
Allt frá þvi að verkalýðssam-
tökin knúðu fram lögin um at-
vinnuleysistryggingar hafa þær
rikisstjórnir, er við völd hafa
verið hverju sinni, haft rikar til-
hneigingar til þess að leggja
ýmsar kvaðir á atvinnuleysis-
try ggingasjóðinn, honum
óskildar.
Rikur þáttur i þessari ágengni
eru lögin um fæðingarorlof.
Flestir munu hafa verið sam-
mála um að fæðingarorlof væri
réttlætismál, réttlæti sem ætti
að ná til allra kvenna, kostað á
sama hátt og aörar almanna-
tryggingar. Reisn flutnings-
manna frumvarpsins var þó
ekki meiri en svo að láta lögin
aðeins ná til þeirra kvenna er
Sá mæti maður, mikli bókari,
og góði kennari Bergsteinn á
Laugarvatni er aö veröa full-
orðinn. Og það kemur mér ekki
svo mjög á óvart þótt árin færist
yfir hann, eins og okkur hin. Aftur
á móti mætti fremur segja, að
kæmi á óvart, hve vel hann axlar
aldurinn. Það eru nálega fjórir
tugir ára siöan ég sá hann
f.yrst. Hann reyndist mér góður
og þolinmóöur kennari, eins og
raunar allir samkennarar hans.
Fáa kennara hef ég þekkt, sem
væru meðlimir verkalýðssam-
takanna og að láta atvinnu-
leysistryggingarsjóö standa
undir kostnaðinum. Nokkurrar
andstöðu varð vart á Alþingi
gegn þessu gerræði, sérstaklega
var það Eövarö Sigurðsson er
hélt uppi vörnum fyrir Atvinnu-
leysistryggingasjóð og benti
réttilega á að ef svo væri fram
haldið sem hingaötil um álögur
á sjöðinn gæti svo farið að ef til
alvarlegs atvinnuleysis kæmi
yrði hann ekki fær um aö gegna
sinu hlutverki.
Fyrst þessi niðursetningur,
fæðingarorlofið, var dæmdur á
Atvinnuleysistryggingasjóðinn
var ekki nema sjálfsagt og eðli-
legt, að lögin um atvinnuleysis-
höfðu eins fágaða framkomu og
hann, og gilti þá einu hver
nemandi var.
Minningar minar frá Laugar-
vatni eru ekki hvað sist tengdar
honum, enda varð hann siðar
mágur minn. Og ekki er ég svo
fróður, að ég þekki betra heim-
ilislif en á bænum þeim. Ég segi
hiklaust, án þess að hugsa mig
um, að sambúð þeirra hjóna sé
ein sú besta, sem mér er kunn.'
Ég geri mér grein fyrir þvf, að
þau hafa eignast mjög efnileg
tryggingar giltu einmg um
fæðingarorlofið, skerðingar-
ákvæöið sem annað. Enda er að
minu áliti vandséð að þaö sé
meira óréttlæti i þvi að kona,
sem ef til vill hefir ásamt eigin-
manni sinum fjórfaldar verka-
mannstekjur, sé svipt fæðingar-
orlofi, þegar barnakonan sem
ekki getur unniö utan heimilis
hversu lágar sem tekjur eigin-
manns hennar eru fái ekki
fæðingarorlof. En svo bregöur
við að ekki færri en tvö frum-
vörp koma samtimis fram á
Alþingi, ekki til þess að koma
fæðingarorlofsmálunum i við-
unandi horf, með þvf að veita
öllum konum jafnan rétt, nei,
fjarri þvi, heldur til þess aö
börn, tengdabörn og bamabörn.
011 eiga þau sinn þátt í óvenjulega
góöri samstööu. Liðin ár hafa
verið þeim hjónum og nánasta
fólki þeirra gjöful og góð. Og það
þýðir vist ekki að neita þeirri
staðreynd að 22. mars 1977 er
Bergsteinn á Laugarvatni
sjötugur.
Ég og mitt fólk óskum honum
og öllu hans nánasta fólki heilla
og hamingju á komandi tið, um
leið og við þökkum liðnar stundir
og ljúfar. Gfsli Guömundson.
Sjötugur í dag
Bergsteinn Kristjónsson
Björn Bjarnason.
vega enn i sama knérunn, ganga
á Atvinnuleysistrygginga-
sjóðinn. —Enn sem fyrr skáka
andstæðingar verkalýðssam-
takanna i þvi skjóli að fæðingar-
orlofsmálið sé svo mikið rétt-
lætismál að svona handarbaka-
vinnuþrögð veröi látin
biðgangast.