Þjóðviljinn - 22.03.1977, Side 18

Þjóðviljinn - 22.03.1977, Side 18
18.S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 22. mars 1977 Skjálfta- og landrismet viö Kröflu: Það hlýtur eitthvað að fara að gerast — en hvað það verður getur enginn sagt til um, segir Eysteinn Tryggvason, jarðeðlisfræðingur — líkur á gosi aukast Þegar lesið var af skjálfta- mælunum á Kröflusvæðinu sl. sunnudag kl. 15.00 höfðu mæist 140 skjálftar sólarhringinn á undan og þegar lesiö var af I gær mældust 133 skjálftar. Flestir litlir, en þó voru nokkrir um og yfir 2 stig. Þá hcldur landris áfram og norðurendi stöðvarhússins er kominn i 9,1 mm. miðað við suðurendann. Svo hátt hefur landrisið aldrei verið og heidur hafa aldrei fyrr mælst svo margir skjálftar og á sunnudag. „Það er alveg ljóst að það hlýtur eitthvað að fara að gerast hér, þetta mikla landris og þessi skjálftafjöldi getur ekki haldið áfram til eilifðar, en hvað það verður sem gerist getur enginn sagt til um”, sagði Eysteinn Tryggvason, jarðeölisfræöingur er viö ræddum viö hann i gær, þar sem hann var staddur norð- ur hjá Kröflu. Eysteinn sagöi að menn teldu að annað hvort væri leiðin, sem kvikan hefur hlaupið norður I Gjástykki við siðustu 3 landsig, stifluð, eða þá að pokinn, sem þar hefur tekið á móti væri orð- inn fullur. Þess vegna yröi kvik- an sem nú streymir upp, að leita eitthvað annað og virtist sem hún ætti ekki neina greiða leið, ef marka má þennan mikla þrýsting, sem stanslaust er á landsvæðinu. „Þessi langvarandi þrýsting- ur, eykur vissulega möguleik- ana á gosi. Meðan kvikan ekki finnur sér neina leiö i burtu neöan jarðar, og þrýstingurinn eykst stöðugt, aukast likur á gosi. Þó getur maður auðvitað engu spáð. Kvikan gæti allt i einu fundið sér rás og þá um leið yrði landsig, eins og orðið hefur þrisvar áður”, sagði Eysteinn. —S.dór Horfir til atvinnuleysis hjá rækjufólki? rækjunni af þeim ekiö þangað til vinnslu. Fyrir hefur komið aö skagstrendingar hafi einnig land- að hér. — Hér er nú rækjuveiðunum lokið að þessu sinni, sagði Karl Sigurgeirsson verslunarstjóri á Hvammstanga okkur I gær, (mánudag). Viö máttum veiöa 306 tonn og náðum þvf. Hinsvegar náöum við ekki þeim aukakvóta, sem okkur var úthlutað noröur á Ofeigsfirði. Þar máttum við veiöa 36 tonn en náðum ekki nema 2,5 tonnum, rækjan virtist bara ekki vera þar til staðar. Okkur tókst ekki að byrja veiðarnar nógu snemma. Við vor- um að ganga frá nýrri vinnslustöð og hún var ekki tilbúin eins tim- anlega og þurft hefði að vera. En mikill munur er á vinnuaðstööu þar eöa i þeirri gömlu. Nú erum við meö tvær vélar og þaö næst mikið betri nýting út úr því. I rækjuvinnslunni unnu rúm- lega 20 manns og svo voru 10 menn á þessum fjórum bátum. Eru það allt heimabátar. Svo lönduðu hér aö staöaldri tveir rækjubátar frá Blönduósi, og er Þetta er liflegt á meðan á veið- unum stendur en mér sýnist á hinn bóginn að nú sé framundan atvinnuleysi hjá sumu þvi fólki, sem unnið hefur við rækjuna. Tveir rækjubátarnir eru farnir suður á net en hinir tveir, ja, — ég veit ekki hvort þeir leggjast bara, það er ekki ákveöiö ennþá meö það, sagði Karl Sigurgeirs- son. ks/mhg Sæluvikan Sæluvika skagfirðinga hófst á Sauðárkróki s.l. sunnudag og stendur að venju i 8 daga og 8 nætur. Vikan hófst meö þvi, aö sr. Sig- fús J. Arnason, sóknarprestur, fiutti guðsþjónustu. Siöan var opnuð málverkasýning I Safna- húsinu á vegum þess og Lista- safns skagfiröinga. Þrir málarar sýna þarna verk sln: Valtýr Pét- ursson, Þórður Hall og Einar Hákonarson. Allar myndirnar eru .til sölu og sýningunni lýkur n.k. sunnudag. 1 gærkvöldi fór svo fram frum- sýning á leikritinu Er á meðan er, undir stjórn frú Ragnhildar Stein- grlmsdóttur. Var húsiö troðfullt ogleiknum ágætlega tekið. Það er Leikfélag Sauðárkróks, sem þarna er að verki. Leikurinn verður sýndur sjö sinnum I Sælu- vikunni eða fram á laugardags- kvöld. Svo er Kvenfélag Sauðárkróks með blandaöa skemmtiskrá, einskonar kabarett, fjórum eöa fimm sinnum I vikunni. Nú svo fara fram kvikmynda- sýningar alia daga vikunnar og dansleikir verða á hverju kvöldi. I dag er gagnfræðaskólinn með sina skemmtun, leik, söng o.fl., sagði Kári Jónsson, póstfulltrúi á Sauöárkróki, en hjá honum fékk blaðið ofangreindar upplýsingar um Sæluviku 1977. kj/mhg Umræðufundir Alþýðubandalags- ins um auðvald og verkalýðsbar- áttu. 3. hluti: Starf og stefna Alþýðu- bandalagsins. Fimmtudaginn 24. mars verður fjallað um sjávarútvegsmál. Framsögumaöur er Lúðvík Jósepsson. Umræöufundurinn er haldinn aö Grettisgötu 3 og hefst kl. 20.30. Að lokinni fram- sögu eru almennar hringborðsumræður. öllum er heimil þátttaka. Alþýöubandalagiö I Reykjavlk Lúðvtk. Styrktarmenn Alþýðubandalagsins eru minntir á aö greiöa framla'g sitt fyrir árið 1977 eða tilkynna þátttöku I styrktarmannakerf- inu til skrifstofu flokksins samkvæmt eyðublaöi sem §ént var út með slöasta fréttabréfi. Kosningar Framhald af bls. 20. og rekið kosningabaráttu slna á frumstæðum andkommúnisma og offorsi. Við þetta geta stuðnings- menn Giscards ekki sætt sig. Þeir eru fáir sem búast við þvl að Giscard flýti kosningum eftir þessi úrslit. Klofningur I stjórnar- liðinu gæti þó sett strik I reikning- inn. Það er mjög llklegt að stjórninni verði breytt og þeir sem féllu I kosningunum látnir vikja. 1 sjónvarpsþættinum voru full- trúar vinstriaflanna mjög hógværir og gættu þess vel að gera ekki of mikiö úr sigri sfnum. Þeir voru ekki áfjáðir I þing- kosningar strax enda er Mitter- rand leiötogi sóslalista þeirrar skoðunar að tlminn vinni fyrir vinstriöflin. En það er ekki hægt að draga úr þessum sigri. m/s BALDUR Fer. af stað' frá Reykjavlk fimmtudaginn 24. þ.m. til Breiöafjaröarhafna, Patreks- fjarðar og Táiknafjaröar. Vörumóttaka: miðvikudag og tii hádegis á fimmtudag. m/s ESJA fer frá Reykjavik þriðjudag- inn 29. þ.m. vestur um land I hringferð. Vörumóttaka: fimmtudag, föstudag og mánudag til Vest- fjarðahafna, Norðurfjarðar, Sigluf jarðar, ólafsfjarðar, Akureyrar, Húsavikur, Raufarhafnar og Þórshafnar. Iðja Framhald af bls. 3. beyggingu Sjálfsbjargar á Akureyri með 350 þús. kr. fram- lagi. 4. Varðandi greiðslur I sjúkra- sjóði félagsins var samþykkt að dagpeningar hækki úr 800.- kr. i 1500,- kr. á dag, þegar iauna- greiðsla hefur fallið niður frá vinnuveitanda. " LEIKFÉLAG ^REYKIAVIKLIR MAKBEÐ i kvöld kl. 20.30 föstudag kl. 20.30 siöustu sýningar STRAUMROF 3. sýn. miðvikudag, uppselt Rauð kort gilda 4. sýn. sunnudag kl. 20.30 Blá kort gilda SAUMASTOFAN 5. Samþykkt að dagpeningar með barni hækki úr kr. 200.- á dag I kr. 400.-. 6. Samþykkt var að hækka styrk upp i útfararkostnað úr kr. 10 þús. I kr. 20 þús. 7. Samþykkt að hækka fæöingarstyrk úr kr. 20 þús. I kr. 30 þús. 8. Samþykkt var nýtt ákvæði þess efnis, að fæðingarstyrkur til þeirra kvenna, sem ekki ná rétti til fæðingarorlofs verði kr. 60 þús. Fjárhagsafkoma félagsins var góð á árinu. Eignaaukning nam kr. 9.236.625.-. ji/mhg Garðar Framhald af bls. 6. Um rafmagnið er það að segja, að það er ein brýnasta nauðþurft i nútfma þjóðfélagi. Þessí þurfa allir með. Þvi miður er rafmagn ekki enn selt á sama verði um land allt,en að þvi verður stefnt sem fyrst. Útsöluverð á rafmagni er hærra hér en erlendis, þótt framleiðslukostnaður þess sé lægri hér en ytra. Kemur þar ekki sist til óeðíileg gjaldtaka hins opinbera af raforkunni. Er söluskattur með álögðum söluskatti á útseldri orku marg- falt hærri á kwst, en sjálft orku- verðið sem útlendingar greiða hér á landi. Afnám söluskatts af raforku ætti bæði að draga úr verðbólgu og vera einn liður i þvi, að minnka þá dýrtlð, sem þjóðin á nú við að búa. Niðurfelling þess- arar skattheimtu kemur þeim best, sem minnst hafa ráðstöf- unarfjár svo sem jafnan er við lækkun flatrar skattheimtu.” Þessi greinargerð fylgir frum- varpinu, og las Garðar hana. Hann benti slðan á, að söluskattur af kjöti og kjötvörum færði rikis- sjóði nú um 1700 miljónir króna, eða álika og nemur niðurgreiðsl- unum. Hvað varðar rafmagnið þá er söluskatturinn lagður á sama gjaldstofn og verðjöfnunargjald- ið, en 13% verðjöfnunargjald gef- ur 725 miljónir, þannig að 20% söiuskattur ætti aö verða u.þ.b. 1100 miljónir. Samtals eru það þvi um 2.800 miljónir, sem rikissjóöur myndi tapa við samþykkt frumvarpsins, en það samsvarar rúmlega hálfu öðru vlsitölustigi I verðlækkun. Til aö vega upp þetta tekjutap rikissjóös mætti taka upp öflugri innheimtu söluskatts almennt, en taliðer að nú tapist a.m.k. 5 -10% skattsins vegna slælegrar inn- heimtu, en það er álika upphæð og þarna er rætt um að létta af al- menningi meö afnámi sölu skatts á þessum vörum. Herða ber eftirlit með innheimtu söluskatts, en það eftirlit er nú slælegt. Einnig ber að herða verulega viðurlög við brotum á þessu sviöi. fimmrudag kl. 20.30 SKJALDHAMRAR iaugardag kl. 20.30 Miöasala I Iðnó kl. 14-20.30 Simi 16620. WÓDLEIKHGSID DÝRIN 1 HALSASKÓGI i dag kl 16. Uppselt Laugardag kl. 15 GULLNA HLIÐIÐ i kvöld kl. 20 SÓLARFERÐ miðvikudag kl. 20 laugardag kl. 20. Fáar sýningar eftir. LÉR KONUNGUR 4. sýning fimmtudag kl. 20 5. sýning föstudag kl. 20 Litla sviðið ENDATAFL miövikudag kl. 21. Miðasala 13.15-20 Pétur Framhald af 1 Malmberg og verkfræðingur sigl- ^ingamálastofnunarinnar Magnús ^Jóhannesson og fleiri, fullyrða að herinn hafi brotið allar alþjóða- samþykktir með þvi að sökkva þessu drasli (eða sprengiefni) i Faxaflóann. Bæði Osló-sam- komulagið svonefnda og eins al- þjóðasamningurinn sem geröur var I London 1972 og tók gildi 30. ágúst 1975 banna athæfi sem þetta. Eins sýnir það fyrirlitningu hersins á Islenskum yfirvöldum, að þeir láta hvorki kóng né prest vita um þetta athæfi, þrátt fyrir þá staðreynd aö hernum ber að sækja um leyfi til islenskra yf- irvalda til að gera svona nokkuö. Menn þurfa víst ekki að fara I grafgötur um það lengur hver það er sem stjórnar hér á landi. _____________________—S.dór Minning Framhald af bls. 8. æviárin starfaði hann sem neta- maður hjá þeim ágætismanni Emil Andersen hér I bæ. Þau hjónin eignuöust fjögur börn sem öll eru búsett hér I Eyj- um. Þaö væri til lltils að ætla sér að lýsa meö vanmegnugum orð- um þeim manni sem Heinrich Tegeder var. Það gerði hann best sjálfur, meðan hann lifði og starf- aði á meöal okkar. En göfug minning um atorkumanninn sem meö drengskap og ósérhlifni fórn- i sjálfum sér öðrum til vaxtar og hvarf okkur sjónum langt um ald- ur fram, mun lengi geymd I hug- um okkar. Vestmannaeyjum 4. febrúar 1977 G.H. Tegeder. Herstöövaa ndstæöi nga r Skrifstofa Tryggvagötu 10. Opið 5-7. Laugard. 2-6. Simi: 17966. Sendið framlög til baráttu herstöðvaandstæðinga á glronúmer: 30309-7. Hverfahópur i Laugarnes-Voga- og Heima- hverfi heldur fund aö Tryggvagötu 10 fimmtudaginn 24. mars kl. 20.30. Allir velkomnir. Baráttuvaka i Kópavogi Hverfahópur I Kópavogi efnir til baráttuvöku I Þinghól laugardaginn 26. mars kl. 15. Einar Olgeirsson ræðir og svarar spurningum um 30. mars 1949. Ásmundur Asmundsson ræðir um starfiö framundan. Siguröur Grétar Guðmundsson og fleiri flytja sungiö og talað efni. Sigrún Gestsdóttir syngur. Kaffiveit- ingar. Allir velkomnir. Hverfahópur i Vesturbæ heldur fund aö Tryggvagötu 10. mánudaginn 28. mars kl. 20.30. Umræðuefni: Stóriðjan. Allir velkomnir.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.