Þjóðviljinn - 23.06.1977, Qupperneq 1
m
Fimmtudagur 23. iúni 1977 —42. árg. 131. tbl.
Happdrætti Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík
Vinningsnúmerin i happdrætti Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik verða birt 6. júli. Dreifingar-
aðilar eru minntir á að innheimta og gera skil
strax.
Alþýðubandalagið í Reykjavik.
Launaj öfnunar samningar
undirrítaðir í gærmorgun
Osamið er
enn við
sjómenn,
starfsfólk
álversins
og málm-
ipasmiði
Klukkan hálfellefu í
gærmorgun voru kjara-
samningar milli ASI og at-
vinnurekenda undirritaðir
eftir langt og seinvirkt
samningaþóf. Hefur
kjaradeila þessi staðið i
eina þrjá mánuði. Haldnir
voru 56 bókaðir samninga-
fundir með aðalsamninga-
nefndum auk hundruða
Þreyttir en ánægðir á svip viö undirritun kjarasamninganna i gærmorgun. Fr.v. Björn Jónsson, forseti ASi, Snorri Jónsson, framkvæmdastjóri
ASl, Guðmundur J. Guðmundsson, formaöur Verkamannasambands isiands, og Benedikt Daviðsson, formaöur Sambands byggingamanna.
annarra funda. Það voru
32 fulltrúar verkalýðssam-
takanna sem undirrituðu
með fyrirvara um sam-
þykki félagsfunda/ en
fundirnir verða haldnir i
dag og næstu daga.
Málmiðnaðarmenn und-
irrituðu rammasamninginn ekki i
gærmorgun, en bókagerðarmenn
gengu frá sinum samningum
strax að loknum frágangi aðal-
samningsins. Ósamið er enn við
sjómenn og starfsmenn álversins
svo nokkuð sé nefnt.
Torfi Hjartarson, sáttasemjari,
formaður sáttanefndar-, kallar
samninga þessa „sólstööusamn-
inga” en forustumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar eru á einu máli
um að kenna samningana við
launajöfnun.
A siðum 6, 7, 8 og 9 birtir Þjóð-
viljinn aðalsamninginn i heild,
fréttir af einstökum atriðum
samningamálanna, auk viðtala
við forystumenn verkalýðshreyf.
Málm- og skipasmiðir
Óþrifaálag
enn óleyst
Álverið
Hreyflng á
samningnm
Samningamenn Málm-
og skipasmiðasambands-
ins undirrituðu ekki samn-
inga þá er undirritaðir
voru á Loftleiðum í gær-
morgun.
Stafar þetta af þvi að óleyst eru
mál er varða álag á laun fyrir
timabundin^ óþrifaleg og erfið
störf. Er hér um að ræða viss
störf sem sérstaklega eru talin
upp i samningum, svo sem vinna i
skipum og kötlum og fleira i þeim
dúr, og gengur þetta undir nafn-
inu óþrifaálag.
Fara málmiðnaðarmenn fram
á að álag þetta verði áfram miðað
við prósentu af kaupinu, þ.e. að er
launin hækka hækki álagið einnig,
og segja að ef álagið festist meö
ákveðinni krónutölu veröi þaö að
lokum einskis virði og menn fáist
ekki i óþrifaleg störf.
Samningamenn málm- og
skipasmiöa héldu kl. 14 i gær fund
með trúnaðarmönnum félaganna
á Reykjavikursvæðinu. Voru
menn þar sammála afstöðu
samninganefndarinnar, en aö
sjálfsögðu var vilji fyrir þvi að
leysa málið sem fyrst.
Er við ræddum við Guðjón
Jónsson i gær átti hann von á að
málin yrðu rædd i dag.
eng.
Það cr góð hreyfing á samn-
ingamálunum i augnablikinu,
sagði Hallgrimur Pétursson, for-
maður lilifar i Hafnarfirði, er við
spurðum hann um gang viðræðn-
anna viö fslenska Alfclagið, en
hann er i hinni sameiginlegu
samninganefnd er fer með þau
mál fyrir hin mörgu félög er
hagsmuna eiga að gæta.
— Ég er bara vongóður um
árangur, það eru skapleg við-
brögð hjá ráðamönnum Álfélags-
ins i augnablikinu, en það skipast
oft fljótt verður i lofti.
Or þvi að málið var tekið frá
sáttasemjara á ég ekki von á að
það fari þangað aftur, heldur
verði þetta leyst með beinum
samningum — var mat Hall-
grims.
Beinar samningaviðræður milli
Alfélagsins og samningamanna
verkafólks hófust i fyrrakvöld og
var haldið áfram i gær.
Eitt af meginatriðunum i kröfu-
gerð launþega er stytting vinnu-
timans, einkum á vöktum i ker-
skála.
eng.
Prentar 200.000 blöð
Er við litum inn i prentsmiðj-
una f kjailara Loftleiðahótelsins
á lO.timanum i gærmorgun var
þar allt i fullum gangi og prent-
un samninganna á lokastigi.
— Við höfum verið að hér sið-
an i gærmorgun án nokkurrar
hvildar og erum orðin heldur
rislág, sagði Magnús Hjörleifs-
son prentari á staðnum.
— Við höfum ekki alveg tölu á
þvi hve mikið við höfum prentað
en ætli það séu ekki i námunda
við 200 þúsund blöð.
Prentsmiöja þessi er I eigu
Flugleiða og fylgir með i ráð-
stefnuaðstöðu þeirri sem samn-
inganefndirnar hafa tekið á
leigu á Loftleiðahótelinu.
Við höfum hlerað að kostnað-
ur viö fundaraðstöðu þessa sé
kominn upp i 20 - 25 miljónir kr.
eng.
Friðrik gef-
ur kost á
sér sem for-
seta FIDE
Sjá baksiðu